Tíminn - 14.12.1982, Síða 4

Tíminn - 14.12.1982, Síða 4
ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1982 16 Iþróttir enska knattspyrnan UVERPOOL SKORUÐU TVISVAR UR VlTASPYRNUM GEGN WATFORD Coventry og Everton komu á óvart með því að sigra West Ham og Ipswich ■ Liverpool heldur sínu striki í 1. deildinni í Englandi og á laugardag afgrciddu þeir liö Watford, sem leikið hefur mjög vel það sern af er vetrar og reynst öllum liöunum óþægur Ijár í þúfu. En leikmenn Liverpool tóku þá engum vettlingatökum er þeir léku í fyrsta sinn á Anfield í dcildarkeppninni. Það var Ian Rush sem skoraði fyrsta mark leiksins á Anfield á 21. mínútu fyrri hálfleiks. Wilf Rostron heitir varnarleik- maður Watford og á hann voru dæmdar hvorki meira né minna en tvær víta- spyrnur á Anficld og úr þeim báðum skoraði landsliðsbakvörðurinn Phil Neal af miklu öryggi. En þáttur fyrrnefnds Rostrons í þessum leik var ekki þar með búinn, því hann skoraði einnig hinum megin hjá Liverpool og bætti þar með stöðuna í 3-1. Phil Thomson landsliðsmiðvörður Englands meiddist á ökkla er 28 mínútur voru til leiksloka, en hann fór útaf og lét binda unt ökklann og kom aftur inná, en í Ijós kom að hann var ekki í nógu góðu ástandi til að leika áfram, þannig að hann fór alfarinn af leikvelli rúmlega tveimur mínútum síðar. Pað er stór spurning hvort Thomson geti leikið með í landsleiknum gegn Luxemburg á Wembley á miðvikudaginn. Úrslit leikja í I. deild urðu sem hér segir: Birininghani-Southainpton 0-2 Rrighton-Norwich 3-0 Ipswich-Everton 0-2 Liverpool-Watford 3-1 ■ Þegar Alan Devonshire fór útaf hjá West Ham hrundi leikur liðsins. Fashanu til Notts County ■ Justin Fashanu sem átt hefur erfitt uppdráttar að undanförnu hjá Nottingham Forest hefur verið seldur til 1. deildarliðs Nolts County. Fashanu var í haust i láni hjá Southampton, en er hann kom aftur á heimaslóð í Nottingham hugðist Brian Clough senda hann til Derby sem lánsmann, en Fashanu var ekki sáttur við þaö.Varð úr mikil rimma milli þeirra tveggja, sem endaði með því að Fashnnu var bannað að æfa með Forest og lét Clogh fjarlægja hann af svæði félagsins með lögreglu- valdi. En nú er Fashanu áreiöanlega feginn að vera laus frá Brian Clough. Lutun-Man. City 3-1 Man. Utd.-Notts County 4-0 Nott. For.-Swansea 2-1 Stoke-Tottenham 2-0 W.B.A-Sunderland 3-0 West Ham-Coventry 0-3 í 2. deild urðu úrslit hins hér segir: vegar sem Barnsley-Carlisle 2-2 Bolton-Charlton 4-1 Burnley-Leicester 2-4 Crystal Pal-Sheff. Wed 2-0 Fulham-Derby 2-1 Middlesbro-Chelsea 3-1 Newcastle-Wolves 1-1 Oldham-Cambridge 3-0 Q.P.R-Grimsby 4-0 Rotherham-Leeds 0-1 Sbrewsbury-Blackburn 0-0 ■ Notts. County sóttu ekki gull í greipar stjörnuliðs Manchester United er liðin mættust á Old Trafford. Samt voru það leikmenn aðkomuliðsins sem voru kröftugri í byrjun leiksins, en smátt og smátt náðu miðvallarleikmenn Unit- ed yfirráðum á miðsvæðinu, og þar með áttu þeir alls kostar við County. Fyrsta markið skoraði Norman Whiteside, en síðan Frank Stapleton. Bryan Robson skoraði þvínæst þriðja markið með skalla og loks skoraði Mike Duxbury fjórða mark Manchester United. Rétt fyrir leikslok varð Bryan Robson að 'yfirgefa völlinn vegna meiðsla og því kann svo að fara að bæði hann og Thompson verði fjarri góðu gamni á miðvikudaginn. Everton kom á óvart Everton hefur ekki vegnað ýkja vel það sem af er keppnistímabilinu og því kom það á óvart að þeir skyldu sigra Ipswich á Portman Road. Everton hafði fram að þessu ekki unnið sigur í níu leikjum og því var annað hvort að duga eða drepast og þeir dugðu. Það var Kevin Sheedy sem skoraði tvívegis fyrir Everton, bæði mörkin í síðari hálfleik. Tottenham gengur illa um þessar mundir, enda eiga margir leikmenn liðsins við meiðsli að stríða. Liðið tapaði gegn Stoke á laugardaginn á útivelli og þar skoruðu þeir Sammy Mcllroy og Dave Watson eitt mark hvor. Coventry lagði West Ham á Upton Park West Flam hafa ekki þótt árennilegir andstæðingar á heimavelli sínum í London Upton Park. Þess vegna kom góður sigur Coventry gegn þeim mjög á óvart. Reyndar vantaði marga kunna kappa í lið West Ham vegna meiðsla og má þar nefna Trevor Brooking, Billy Bonds og Alvin Martin og síðan meiddist Alan Devonshire og varð að yfirgefa leikvöllinn og þá var eftirleikurinn auðveldur fyrir Coventry. Öll mörkin voru skoruð á síðustu átta mínútum fyrri hálfleiks. Fyrst á 37. mínútu og var Mark Hateley þar á ferð. Því næst skoraði Brian Roberts og loks Steve Witton. Enn sigrar Forest Nottingham Forest sigraði Swansea á heimavelli með tveimur mörkum gegn einu. Leikmenn heimaliðsins komust í 2-0 áður en Swansea tókst að kvitta. Fyrra mark Forest skoraði Colin Walsh og síðan bætti Mark Proctor öðru marki við. Robbie James minnkaði muninn í eitt mark er hann skoraði. En ekki tókst leikmönnum John Toschack að jafna metin. W.B.A. vann góðan sigur á Sunder- land með þremur mörkum gegn engu. ■ Sammy Mcllroy. Gamli refurinn skoraði eitt mark gegn Tottenham. Skoruðu þeir Robertson og Gary Owen mörk W.B.A. Southampton sigraði Birmingham með tveimur mörkum gegn engu í Birmingham. Steve Moran og David Wallace skoruðu mörk „Dýrlinganna1". Brighton sigraði Norwich örugglega á heimavelli sínum og Luton lagði Manchester City og þar var Asa Hart- ford í sviðsljósinu er hann skoraði fyrsta mark leiksins í eigið mark. Q.P.R. hefur fjögurra marka forystu í 2. deild og á laugardag unnu þeir fjögurra marka sigur á Grimsby. Fulham sem er í öðru sæti sigraði Derby með tveimur mörkum gegn einu, en Úlfarnir og heimamenn Newcastle skildu jafnir í Newcastle. Ekki nægði mark Simonsen Charlton, því andstæðingar þeirra Bolton skoruðu fjögur. Simonsen skoraði eina mark Charlton. ■ Celtic juku enn við forystu sína í skosku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, er liðið sigraði Aberdeen með tveimur mörkum gegn einu á laugardaginn. Aberdeen höfðu veitt þeim einna mesta samkeppni upp á síðkastið, en með tapinu á laugardag fór lið Dundee United upp fyrir þá. Það var Murdo McLeod sem skoraði fyrsta mark leiksins á 16. mínútu leiksins, en hann fékk góða hjálp eins varnarmanna Aberdeen. En leikmenn Aberdeen voru alls ekki á þeim buxun- um að gefast upp og skoraði Mark McGee jöfnunarmark tveimur mínútum síðar, en Davie Provan skoraði sigur- mark Celtic á 15. mtnútu síðari hálf- leiks. Dundee United sem komust upp í 2. sæti í úrvalsdeildinni unnu glæsilegan sigur á liði Kilmarnock og urðu mörkin sjö áður en upp var staðið, en Kilmar- nockmönnum tókst ekki að kvitta. Það var góð viðbót við sigur liðsins á Werder Stadan Staðan 1. deild: Liverpool 18 11 4 3 41 15 37 Man Utd 18 10 4 4 28 14 34 Nottm Forest 18 10 2 6 32 25 32 Aston Villa 18 10 1 7 28 20 31 Watford 18 9 3 6 35 21 30 West Bromwich 18 9 3 6 30 24 30 West Ham 18 9 1 8 31 27 23 Coventry 19 8 4 7 23 24 28 Ipswich 19 7 6 6 31 22 27 Man City 18 8 3 7 22 25 27 Stoke 18 7 3 8 32 29 24 Tottenham 18 7 3 8 23 26 24 Notts County 18 7 3 8 23 32 24 Everton 18 6 5 7 27 26 23 Arsenal 18 6 5 7 21 23 23 Southampton 18 6 4 8 20 31 22 Swansea 18 6 3 9 26 30 21 Brighton 18 6 3 9 18 36 21 Luton 18 4 8 6 36 33 20 Norwich 18 4 5 9 20 32 17 Birmingham 18 3 8 7 11 27 17 Sunderland 18 3 5 10 21 37 14 2. deild: Q.P.R 19 12 4 3 31 13 40 Fulham 18 11 3 4 39 24 36 Wolves 18 10 4 4 32 19 34 Shefld Wed 18 9 4 5 31 21 31 Oldham 18 7 8 3 31 22 29 Leeds 18 7 7 4 22 17 28 Shrewsbury 18 3 4 6 23 23 28 Grimsby 18 8 3 7 27 29 27 Leicester 18 8 2 8 33 22 26 Barnsley 18 6 8 4 25 22 26 Crystal Palace 18 6 6 6 22 22 24 Newcastle 18 6 5 7 26 27 23 Blackburn 18 6 5 7 23 30 23 Carlisle 18 6 4 8 35 37 22 Rotherham 18 5 7 6 22 27 22 Chelsea 18 5 6 7 21 22 21 Charlton 18 6 3 9 25 37 21 Middlesbrough 18 5 6 7 22 37 21 Bolton 18 4 5 9 13 26 17 Burnley 18 4 3 11 25 35 15 Derby 18 2 3 8 17 29 14 Cambridge 19 3 5 11 19 33 14 Bremen í Evrópukeppni félagsliða á miðvikudaginn var. Þeir komust þó ekki almennilega í gang fyrr en í seinni hálfleik, því staðan í leikhléi var 1-0, en sex voru síðan skoruð í þeim síðari. St. Mirren vann 3-0 sigur á Jóhannesi Eðvaldssyni og félögum í Motherwell, en Rangers gerði jafntefli 1-1 gegn Morton og sömu úrslit urðu í leik Hibernian og Dundee United. Staðan í skosku úrvalsdeildinni eftir leikina á laugardag er sem hér segir: Celtic 14 12 1 1 39 16 25 Dundee Utd. 14 9 4 1 34 10 22 Aberdeen 15 9 3 3 29 13 21 Rangers 14 4 7 3 24 17 15 Dundee 14 5 4 5 19 16 14 St Mirren 15 3 6 6 17 27 12 Morton 15 2 6 7 13 27 10 Hibernian 15 1 7 7 12 23 9 Motherwrell 15 4 1 10 16 34 9 Kilmarnock 15 1 7 7 15 35 9 Sex mörk f sfdari hálfleik

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.