Tíminn - 15.12.1982, Page 1
Sex halda áfram í getraunaleik Tímans — bls. 15
- o
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ
Miðvikudagur 15. desember 1982
286. tölublað - 66. árgangur
i
Rekstrarstaða útgerðarinnar í dag:
HALU ÚTGERÐARINNAR NEM-
UR RÚMUM HALTUM MILUARDI
„Mun verra en ég átti von á”, segir Kristján Ragnarsson, formadur LIU
■ - Að vissu leyti koma þessar
upplýsingar ekki á óvart, en ég verð
þó að segja að staðan er verri en ég
átti von á, sagði Kristján Ragnarsson,
formaður LÍU í samtali við Tímann er
tölur Þjóðhagsstofnunar varðandi
rekstrarstöðu útgerðarinnar í dag, 15.
desember voru bornar undir hann.
Halli útgerðarinnar miðað við árs-
grundvöÚ er nú talinn nema rúmum
hálfum milljarði króna miðað við
tekjur.
- í þessum tölum er gengið út frá
því að afli og aflasamsetning verði hin
sama og verið hefur á þessu ári.
Fiskverð það sama og kostnaður og
niðurgreiðslur á olíu með sama hætti,
sagði Ólafur Davíðsson, forstjóri þjóð-
hagsstofnunar í samtali við blaðið.
Ólafur sagði að samkvæmt þessu
væri hallinn á minni togurunum nú tæp
14% miðað við tekjur, eða svipaður
því sem var fyrir aðgerðir ríkisstjórnar-
innar fyrr í haust. Halli minni togar-
anna eftir þessar aðgerðir hefði verið
3-4% og megin ástæðan fyrir því að
sigið hefði aftur á ógæfuhliðina væri að
allur kostnaður hefði hækkað mun
meira en tekjur útgerðarinnar.
Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ
sagði að samkvæmt útreikningum
Þjóðhagsstofnunar næmi halli bátanna
nú 14.1% miðað við tekjur, eða um
225 milljónum króna. Halli minni
togaranna væri 13.8% og væri þá
gengið út frá 3500 tonna afla, en þessi
halli samsvaraði 254 milljónum króna á-
ársgrundvelli. Halli stóru togaranna
væri svo 21.3% eða jafngildi 85
milljóna króna. Samtals eru þetta 564
milljónir króna.
- Þetta ástand er í rauninni verra,
því að ég tel að Þjóðhagsstofnun hafi
gengið út frá ákaflega hæpnum for-
'Senduni sagði Kristján Ragnarsson.
Kristján benti á að það að reikna
með sama afla og aflasamsetningu
þýddi í raun að gengið væri út frá að
afli myndi aukast, þar sem skipum hefði
fjölgað. Það væri ákaflega hæpið og
eins mætti benda á að allir bátar 200
tonn og stærri, þar á meðal allur
loðnuflotinn stæði utan þessa dæmis,
en staða loðnuflotans væri mun verri
en allra hinna. -ESE
Leikdómur:
Þján-
ingin
— bls. 8-9
Suður-
Afrfka
— bls. 7
|Liz briegd
ur á leik
— bls. 2
■ I gier sýndi Gísli Viggosson,
yerkfræðingur, þingmönnum
Noröurlands veslra og framá-
mönnum frá Blönduósi, líkan af
væntanlegri Blönduóshöfn.
Sjá bls. 5.
Túnamynd Róbi
Hugmyndir
um stór-
hækkun á
bílastæöa-
gjöldum:
HÆKKA STÖBIIHÆLfl-
GlfiUNN IIM 400%?
Ml A borgarstjórnarfundi annað
kvöld mun verða rædd tillaga frá
Umferðarnefnd sem felur í sér að
stöðumælagjald verði hækkað úr 1. kr.
og í 5 kr. eða um 400% en þetta gjald
hefur verið óbreytt síðustu 2 árin, eða
allt frá því að myntbreytingin var gerð.
„Það er rétt að Umferðarnefnd
hefur mælt með þessu en um þrjá
valkosti var að ræða“ sagði Guttormur
Þormar verkfræðingur hjá Gatnamála-
stjóra í viðtali við Tímann. „Fyrir utan
ofangreint kom fram tillaga um að
nota krónuna áfram en stytta jafnframt
tímann sem fæst fyrir hana í 15 mín,
úr 30 mín, og þriðja tillagan fól í sér
að slá sérstaka mynt sem síðan yrði
seld á mismunandi verði þannig að
þessar hækkanir kæmu ekki alltaf í
svona stórum stökkum".
Guttormur sagði ennfremur að þessi
tillaga um að slá sérstaka mynt væri
ekki nýtilkomin hinsvegar væru nokk-
ur vandkvæði á að hrinda henni í
framkvæmd. Dýrt væri að slá hana,
hún þyrfti víða að vera tíl sölu en menn
væru einmitt hræddastir við það atriði,
þ.e. dreifinguna. Því hefði verið stað-
næmst við hina tvo valkostina og síðan
orðið úr að leggja til 400% hækkunina.
Hin tillagan um að nota krónuna
áfram en stytta tímann hefði þýtt
100% hækkun.
Samhliða þessu verður síðan lagt til
að aukaieigugjaldið verði hækkað úr
30 kr. og í 50 kr. -FRI
!—