Tíminn - 16.12.1982, Síða 1
Innkaupakarfa verðlagsstofnunar - jólamaturinn bls. 10
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ
Fimmtudagur 16. desember 1982
287. töiublað - 66. árgangur
Innrásin f
Afganistan:
Var
Andropov
á móti?
— bls. 7
Sala á áfengi til vínveitingahúsanna:
flUKIST H LUTFALLSLEGA
UM 20% ATVEMUR arum
Verd-
bólgan
— bls. 9
aður
dúett
— bls. 23
Eru álög
á liðinu?
— bls. 2
■ Um 20% hlutfallsleg aukning hefur
orðið á sölu áfengis til vínvcitingahús-
anna frá árinu 1980 þar til nú, eftir að
hlutfall þeirra af heildarsölu ÁTVR
hafði verið naer óbreytt a.m.k. frá
árunum 1975-1980. Til vínveitingahús-
anna fór nær óbreytt hlutfall öll þessi
ár eða um 11,2% af heildarsölu
ATVR. Þetta hlutfall hækkaði í
12,4% á síðasta ári og í 13,4% til
nóvemberloka nú í ár, sem samsvarar
19,6% aukningu. Auk þess mun heild-
arsala hafa aukist nokkuð á þessum
árum.
Frá árinu 1975 til 1980 jókst áfengis-
sala ÁTVR úr 47,6 millj. kr. í 258,4
millj. kr. eða 5,4 sinnum. Um síðustu
mánaðamót nam sala ÁTVR 536,8
millj. og þar af hafði áfengi fyrir 71,9
millj. farið til veitingahúsanna. Miðað
við hlutfallslega sömu sölu þennan
síðasta mánuð ársins og aðra mánuði
hefur heildarsala ÁTVR aukist um
127% frá árinu en sala til veitingahús-
anna um 172% á sama tíma.
Sem kunnugt er hefur veitingahús-
um með vínveitingaleyfi fjölgað veru-
lega frá því um mitt ár 1980. Samtals
eru þau nú orðin 53, þar af 25 í
Reykjavík, 16 í öðrum kaupstöðum og
12 utan kaupstaða. Hin síðasttöldu eru
yfirleitt hótel út um land. -HEI
■ „Mamma, er þetta jólasvcinninn sem gefur mér í skóinn þegar ég er góð, eða er þetta bróðir hans?“ sagði litla hnátan við hana mömmu sina er hún
fylgdi henni í jólainnkaupunumíbænumígær-eðaþaðhöldumviðhéráTímanumaðhúnhafisagt. Tímamynd Róbert
ÚGNAÐITVEJMUR UNGUM
DRENGJUM MEÐ HNÍFI!
— eftir að hafa reynt að lokka þá upp í bifreið sfna í Hlíðunum
og biður hana að hjálpa þeim. Hann
sagði „Hjálpaðu okkur - hjálpaðu
okkur. Maðurinn ætlaði að taka
okkur.“ Konan stóð til að byrja með
■ „Það er beinlínis hryllilegt að
svona lagað geti gerst hér á landi,“
sagði móðir átta ára drengs, sem var
ásamt sex ára frænda sínum í Hlíðun-
um á leið heim úr skóla kl. 17.30 í gær,
þegar hann varð fyrir áreitni eldri
manns á grænni Skodabifreið,sem
reyndi að fá drengina upp í bifreið sína
og beitti í þeim tilgangi hótunum og
hélt að sögn drengsins hníf á lofti.
„Við erum bæði í uppnámi eftir
þetta og alls ekki búin að jafna okkur“
sagði móðirin. Hún var beðin að
greina nánar frá atburðarásinni, þegar
sonur hennar var á leið heim úr skóla:
„Barnið var að koma heim úr skóla-
num, ásamt frænda sínum. Þá mættu
þeir manni á bíl, sem vildi fá þá upp í
bílinn til sín. Sonur minn neitaði, og
þá sá hann hníf í hönd mannsins, er
hann var á leiðinni útúr bílnum, og
gerði sig líklegan til þess að sækja þá.
Harrn hafði í hótunum við þá og þeir
voru skelfingu Iostnir. Þegar hann var
hálfkominn útúr bílnum, þá kviknaði
ljós inni í bílnum, og þeir gátu þar með
greint hann í myrkrinu. Þá hvarf hann
aftur inn í bílinn og keyrði löturhægt
í burtu. Þá kom þarna kona, og sonur
minn hrópaði á hana skelfingu lostinn
í þeirri meiningu að drengirnir hefðu
verið að kasta snjóbolta í bíl mannsins,
en sá fljótlega hvers kyns var.“
Mál þetta er nú í rannsókn hjá
lögreglunni.
-AB