Tíminn - 18.12.1982, Page 1
Hækkun gatnagerðargjalda í Reykjavík 390% - bls. 5
Síðumúla 15 - Pósthólf 370 Reykjavík - Ritstjórn 86300- Auglýsingar 18300- Afgreiðsla og
Blað 1 Tvö blöð í dag
Helgin 18.-19. desember 1982 289. tölublað - 66. árgangur
Deilur vegna sölu á raðhúsum í Brekkubyggd í Garðabæ:
„UTINN borga stórfé
UMFRAM LAGAHEIMILD
— á bilinu 40-100 þús. kr. vegna rangs verðbótaútreiknings
V
„Engin
tíðindiað
Alistair
Maclean
sé í
fyrsta
sæti”
Segir Jóhann
Páll Valdi-
marsson
■ „Auðvitað vildi ég miklu frekar að
við værum að selja góðan íslenskan
„literature" í þessum upplögum,"
sagði Jóhann Páll Valdimarsson fram-
kvæmdastjóri bókaútgáfunnar Iðunn-
ar, þcgar Tíminn spurði hann hvað
honum þætti um það að bók eins og
Dauðafljótið eftir Alistair Maclcan
væri 'söluhæst allra bóka, samkvæmt
bóksölukönnunTfmans þessa vikuna.
„Ég vil þó taka það skýrt fram, að
það er aldeilis fjarri því að ég
skammist mín fyrir að gefa út bækurn-
ar cftir Alistair Maclean, því þetta er
maður sem kann sitt fag, og spennu-
sögur og afþreyingarbækur eru bækur
sem við öll viljum geta gripið í, þegar
við viljum gleyma okkur," sagði Jó-
hann Páll.
Jóhann Páll sagði að þessi mikla sala
á Maclean ætti sér að sjálfsögðu sínar
skýringar. M.a. væri Maclean fyrsti
höfundurinn af þessu tagi, sem gefinn
hefði verið út á Islandi. Spennusögur
hans hcfðu því náð að hasla sér völl
áður cn aðrir fóru að keppa við hann.
„Annars þurfa þctta ekki að vera nein
tíðindi að Maclean sé í efsta sæti, því
hapn hefur verið mest seldi höfundur-
inn hér mörg undanfarin ár,“ sagði
Jóhann Páll, „nema ef til vill í einu
tilfelli og það var þegar bókin hans
Sigurðar A. Magnússonar kom út,
Undir kalstjörnu en ég hcf það á
tilfinningunni að hún hafi slegið hann
út. En það var í fyrsta skipti í minni
tíð sem einhver sló Maclean út.“
■ „Það er alveg fáránlegt að þeir sem
minnst launin hafa skuli líka fá minnstar
láglaunabætur og jafnvel engar bætur“,
sagði Aðalheiður Bjamfreðsdóttir for-
maður Sóknar, spurð álits á fyrirkomu-
lagi á útreikningi láglaunabótanna sem
nú er verið að útdeila.
„í fyrsta lagi hef ég alltaf verið mjög
ákveðinn andstæðingur þess hvernig
vísitalan er reiknuð - að þeir fái mest
sem mest hafa en þeir lægst launuðu
minnst, þeir sem þó helst þyrftu að fá
dýrtíðina bætta. Að beita svo sömu
■ Mikið deilumál er nú risið með
kaupendum og seljanda nokkurra rað-
húsa við Brekkubyggð í Garðabæ. Telja
kaupendurnir, sem eru um tíu talsins,
að seljandinn, verktakafyrirtækið
íbúðaval h/f, hafi gert þeim að greiða
stórfé umfram það sem eðlilegt geti
talist, með röngum verðbótaútreikningi.
aðferðum við útreikning láglaunabót-
anna finnst mér alveg fráleitt. Það er
mín sannfæring að þeir sem verst fara út
úr þessu em þeir sem síst skyldi, þ.e.a.s.
þeir sem hafa léieg laun. Áreiðanlegt að
þarna verða konur mjög illa úti, t.d.
einstæðar mæður sem ekki geta unnið
yfirvinnu og oft ekki nema skerta vinnu.
í raun og veru finnst mér það þó
óbragð af þessu öllu saman. Það sæmir
ekki svo ríkri þjóð sem Islendingum að
vera að rétta fólki einhverja ölmusu,“
sagði Aðalheiður.
Kaupendurnir hafa leitað til lögmanna.
„Við höfum hvert um sig verið látin
ofborga stórfé, frá 40 til 100 þúsund
krónum umfram það sem lög gera ráð
fyrir“, sagði einn kaupendanna í samtali
við Tímann.
Lögmaður kaupandans sem við var
rætt skrifaði Seðlabanka íslands bréf þar
„Hafi nokkru sinni verið bitið höfuð-
ið af skömminni þá er það með þessum
láglaunabótum", sagði Bjarnfríður
Leósdóttir miðstjórnarmaður ASÍ.
„Mér finnst það hreint siðleysi að tala
sífellt um að bæta lægstu launin, en
reikna þetta síðan þannig að þeir lægst
launuðu fá minnstar bætur og jafnvel
engar. Þar að auki er farið eftir
skattaskýrslum þannig að þeir sem
möguleika hafa á að svíkja undan skatti
- sem er viðurkennd íþrótt á íslandi -
geta fengið láglaunabætur þótt þeir hafi
sem þar sem hann leitaði eftir áliti
bankans á aðferðum verktakafyrirtækis-
ins við útreikning verðbóta. í svari
Seðlabankans segir m.a.: „Með þessu
fæst niðurstaða um of háa verðbót sem
skuldara er gert að reiða.“
í kjölfar þessa máls telur kaupandinn
sem Tíminn talaði við sig ekki knúinn
nóg að bíta og brenna.
Raunar hef ég verið á móti því að
verið sé að rétta einhverja ölmusu að
fólki sem vinnur við undirstöðuatvinnu-
vegi þjóðarinnar og ætti því að hafa
lífvænleg laun. Ríkisstjórnin á ekki að
vera að hringla í samningum og reyna
stðan að klóra yfir það með því að rétta
fólki svona hungurlús“, sagði Bjarn-
fríður, sem efaðist ekki um að reiknings-
aðferðin bitnaði fyrst og fremst á konum
“eins og vant er“.
-HEI
til að standa við greiðslur á víxlum sem
hann hefur undirritað ,” vegna þess
einfaldlega að víxilskuldirnar eru lægri
en það sem ég hef þegar ofgreitt,“ segir
hann.
Jakob
Magnússon
framleiðir
kvikmyndina
Nickel
Mountain
vestra:
Kostnadar-
áætlun er
3 milljónir
dollara
■ Jakob Magnússon tónlistarmaður
nt.m. mun vcrða framleiðandi myndar-
innar The Nickel Mountain en tökur
hennar hefjast skammt fyrir norðan
Los Angeles snemma á næsta ári.
í samtali við Tímann sagði Jakob að
kostnaðaráætlun hljóðaði upp á einar
3 milljónir dollara, eða nær 50 millj.
kr. Fjármagn kemur frá ýntsum aðil-
um, m.a. hafa framleiðendur myndar-
innar „Sverðið og sciöskrattinn" sýnt
málinu áhuga en sú mynd var aðeins
dýrari í framleiðslu cn hefur hinsvegar
skilað inn tæpum 50 millj. dollurum.
Leikstjóri The Nickel Mountain
mun verða Dru Denbaum en hann
gerði m.a. myndina Lovesick sem
tilnefnd var til Óskarsverðlauna á
sínum tíma. Aðstoðarleikstjóri verður
hinsvegar Sigurjón Sighvatsson en
þessi ntynd verður íslensk/bandarísk
samvinna og verða margir íslendingar
scm vinna við hana en Jakob taldi að
þetta væri í fyrsta sinn sem samvinna
væri á milli íslendinga og Bandaríkja-
manna við gerð kvikmyndar t fullri
lengd. Sjá nánar kvikmyndahorn bls
23. -FRI
-Sjó
Sjá nánar bls. 4
-AB
Krakkarnir í Hólabrekkuskóla héldu sín „litlu jól“ í gærdag, og brugðu þá m.a. þessari leiksýningu á svið.
Tímamynd: Róbert
Forsvarsmenn í verkalýðshreyfingurmi óánægðir með
láglaunabæturnar: F ¥
„ÞEIR FARA VERST UT UR
ÞESSU SEM SÍST SKYLDI”
— segir Aðalheiður Bjarnfreösdóttir, formaður Sóknar