Tíminn - 18.12.1982, Blaðsíða 13
12
LAUGARDAGUR 18. DF.SEMBER 1982
bókatfðindi
II. bindi íslenskra sjávarhátta, eftir dr. Lúðvík Kristjánsson, komið út:
Saga áraskipanna
og verstödvanna
■ Fá rit um íslenska þjóðhætti og
atvinnu, hafa vakið jafn mikla athygli og
Islenskir sjávarhxttir, eftir Lúðvík Krist-
jánsson, ritstjóra, en hann hefur meðal
annars hlotið doktorsgráðu fyrir þetta
verk, er hann hefur unnið að í rúmlega
fjóra áratugi.
Er gert ráð fyrir að íslenskir sjávar-
hættir, verði 4-5 bindi, að sögn Hrólfs
Halldórssonar, forstjóra Menningar-
sjóðs, er gefur verkið út. Fyrsta bindið
kom út árið 1980, og nú er II. bindið
komið, og er það hið veglegasta.
Meginkaflar þessa bindis, sem er 516
blaðsíður eru Verstöðvatal, íslenski
árabáturinn, Vertíðir, Verleiðir og ver-
ferðir, Verbúðir og Mata og mötulag.
Ennfremur hefur bókin að geyma
myndaskrá, heimildaskrár, ítarlega atrið-
isorðaskrá, eftirmála og efnisútdrátt á
ensku þýddan af Jóhanni S. Hannes-
syni kennara.
Óhætt er að fullyrða, að ekki er síður
fengur að þessari bók en hinni fyrri.
Benda má á, að í kaflanum um íslenska
árabátinn, sem er langstærsti kafli
ritsins, er dreginn saman firnmikill
fróðleikur um allt, sem að árabátum
lýtur, smíði þeirra, lagi og seglum
o.s.frv. í bátakaflanum eru 363 myndir,
smíðateikningar og yfirlitsteikningar
báta, skýringamyndir og Ijósmyndir.
Ókunnugt er, að fyrr eða annars staðar
hafi því efni verið gerð viðlíka skil. Alls
eru í bókinni 482 myndir, þar af milli 50
og 60 litmyndir, flestar af fornum
verstöðvum og verminjum.
Fjölmargir unnu að
gerð bókarinnar
Á fréttamannafundi, er Menningar-
sjóður hélt þar sem auk höfundar og
forstjóra, var fyrir svörum Einar
Laxness, formaður menntamálaráðs,
kom það fram, að í bókinni er fjöldi
loftmynda af útræðum, og einnig teikn-
ingar af um það bil 30 verbúðum.
Unnn fjölmargir menn að mælingum,
teikningu og Ijósmyndun, en margar
myndanna eru í lit. Þá unnu ýmsir aðrir
fræðimenn að úgáfunni, við atriðisorða-
skrár og fl.
í eftirmála lýsir höfundur verkinu, og
þar getur hann stuðningsmanna og
stofnana, er urðu honum að liði. Þar
getur hann m.a. ise'rstaklega sem full-
tingismanna sinna dr. Kristjáns heitins
Eldjárns, Más Elíssonar fiskimálastjóra
og Helgu Proppé konu sinnar.
Bókahöfundur, Lúðvík Kristjánsson
rithöfundur, stundaði lengi kennslu og
var ritstjóri Ægis frá ársbyrjun 1937 til
ársloka 1954, en hefur síðan unnið að
fræðimennsku og ritstörfum. Hann er í
hópi kunnustu sagnfræðinga okkar nú á
dögum og höfundur margra bóka.
Meðal rita hans eru: Við Ijörð og vík og
Úr bæ í borg (endurminningar Knud
Zimsens), Vestlendingar I-III, Á slóðum
Jóns Sigurðssonar, Úr heimsborg í Gijót-
þorp I II (ævisaga Þorláks Ó Johnsons),
Islenskir sjávarhættir I og Vestræna.
-Lúðvík hefur verið félagi í Vísindafé-
lagi íslendinga síðan 1961. Hann hlaut
verðlaun úr sjóði Ásu Guðmundsdóttur
Wright 1980 og var gerður heiðursdoktor
Lúðvik Kristjánsson
við heimspekideild Háskóla Islands
1981, sem áður sagði.
Það kom fram á blaðamannfundinum,
að líklega er þessi bók ítarlegasta ritið,
sem til er í heiminum um áraskip. Til
eru þykkar og vandaðar bækur um skip,
þar á meðal á íslensku, en sérbækur um
árabáta í sögulegu samhengi, munu ekki
áður hafa verið gjörðar.
Árarskipið og síðan trillan, var um
langa hríð, öldum saman, sálarskip
íslendinga. Menn réru opnum skipum til
fiskjar og lagðist sá útvegur ekki niður
fyrr en á fjórða áratug þessarar aldar.
Höfundur telur að þarna hafi tekist að
safna flestu, sem unnt er að ná saman
um áraskip íslendinga. Auðvitað eru
engin rit alveg tæmandi, en það var mál
manna, að aldrei hafi áraskipinu og
verstöðinni verið gjörð jafn ýtarleg skil
og í þessu riti. Kort er af öllum útræðum,
er máli skiptu, og verstöðvar eru
flokkaðar, eftir notkun þeirra.
Sumar voru aðeins útræði, en aðrar
voru einkaverstöðvar, er fylgdu bújörð-
um. Og svo allt þar á milli.
JG
ALBERT GUDMUNDSSON FJALLAR UM ÆVINTYRALE^AN FERl'l SINN
Kvistir í Iífstrénu
Bréfin hans Þórbergs
Dauðafljótið
í f yrsta
Kvistir í Iffstrénu
skjótast upp í 4. sæti
ðflf
■ Það ber helst til tíðinda í þriðju
könnun Tímans á bókasölu að þessu
sinni, að Dauðafljótið eftir Alistair
Maclean kemst í fyrsta sæti, og bók
Árna Johnsen, Kvistir í lífstrénu skýst í
fjórða sætið, en hún hefur ekki komist
í eit af 10 efstu sætunum áður.
Fyrir þá sem ekki hafa fylgst með
könnun Tímans fyrir þessi jól, skal frá
því greint að haft er samband við 10
verslanir, sem veita upplýsingar um 10
söluhæstu bækurnar þessa vikuna, og
númera þær frá 1 til 10, og bók númer
eitt hlýtur þar af leiðandi 10 stig og svo
koll af kolli. Þær verslanir sem að þessu
sinni taka þátt í könnuninni eru:
Penninn, Hafnarstræti, Bókadeild Hag-
kaupa, Bókabúð Grönfeldts, Borgar-
nesi, Gríma, G.arðabæ, Bókabúð Vest-
mannaeyja, Bókhlaðan, Glæsibæ, Bóka-
búð Fossvogs, Aðalbúðin Siglufirði,
Bókabúð Braga, Lækjargötu og Bóka-
búð Jónasar Tómassonar, ísafirði. List-
inn að þessu sinni lítur þá svona út í
sviga er röð bókarinnar í síðustu viku:
1. Duuðafljótið eftir Alistair Madean, (2), Alfheiður
Kjartansdóttir þýddi (Iðunn). 76 stig.
2. Æviminningar Kristjáns Sveinssonar, (1), Gylfl Gröndal
skráði (Setberg) 61 stig.
i. Albert, Gunnar Gunnarsson skráði (3), (Setbcrg) 44 stig.
4. Kvistir í lifstrénu eftir Áma Johnsen, (Var ekki á lista)
(Öm og Örlygur ) 37 stig.
5. Bréfin hans Þórbergs, Hjörtur Pálsson bjó til prentunar
(7) (Vaka) 29 stig
6. 555 gátur, Sigurveig Jonsdottir þýddi og staðfærði (9)
(Vaka) 28 stht.
7. Persónur og leikeodur eftir Pétur Gunnarsson (5)
(Punktar) 27 stig.
8. Landið þitt, ísland, eftir Steindór Steindórsson, Þorstein
Jósepsson og Pál Lindal (8) (Öm og Örlygur) 22 stig.
9. Hverju svarar læknirinn? eftir Claire Rayner, Bertil
Mártenssen og Guðmund Þengilsson. (4) (Iðunn) 21 stig
10. í kvosinni eftir Flosa Ölafsson (6) (Iðunn) 18 stig.
Aðrar bækur sem voru nálægt því
að komast á listann voru bækur eins
og Krydd í tilveruna, sem þeir Axel
Ammendrup og Ólafur Ragnarsson
tóku saman og Vaka gefur út, en
aðeins munaði einu stigi á henni og í
kvosinni. Þá var Ljósmyndabókin frá
Setberg tfttnefnd, svo og Hlustið þér
á Mozart? eftir Auði Haralds.
Síðasti bókalisti Tímans fyrir þessi
jól verður unnin næsta miðvikudag og
kemur hann í blaðinu á fimmtudag,
sem er Þorláksmessa.
-AB
■ 'T' -’ 'l " \ . ■ ;
HB
LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 198
Suðumesjamenn!
*
^J^aupj^éiacj. .^uÉurneója JC
SAMKAUP
Höfum opnað
stórmarkað og kjötvinnslu við Reykjanesveg,
sem hlotið hefurnafnii
SftrtKAUP
ÞAR VERÐA SELDAR
EFTIRTALDAR VÖRUR:
Kjötvörur, nýlenduvörur,
mjólkurvörur, ávextir, fiskur,
brauðvörur.
Búsáhöld, raftæki, gjafa-
vörur, fatnaður, ferðavörur,
leikföng og margt fleira.
Unnið er af kappi við undirbúning að opnun stórmarkaðarins.
(Ljósmyndastofa Suðumesja)
Lærður matreiðslumaður leið-
beinir yður um val á kjötvörum, og
kjötvinnslan Kjötsel, sér um úrval
og gæði.
«2r
MÁTTUR HINNA MÖRGU
KJÓTSEL
Nýjar vörur koma daglega fram að jólum.
Suðurnesjamenn velkomnirí SAMKAUP.
Lágt vöruverð, aukin og betri þjónusta.
if
■ „Þurfti að henda þrjátíu síðum þegar Sveindóm-
ur eftir Egil Egilsson kom út,“ segir Páll Pálsson,
rithöfundur i viðtalinu.
„Ef girt
væri nid-
ur um
öldur-
húsin...”
■ „Sagan segir frá hluta af lífi nokkurra Reykja
víkurunglinga, sem hvorki er hægt að flokka með
vandræðaunglingum eða sérstaklega góðum ung-
lingum. Hún hefst að morgni föstudags og lýkur
tæpum sólarhring síðar. Það er víða komið við; í
skólanum, sjoppunni, sagt er frá umstanginu við að
útvega bokku fyrir kvöldið, en þá er von á partýi.
Um efnið get ég eiginlega ekki meira sagt an þess
að eyðileggja fyrir lesandanum, sem verður að fá
að upplifa söguna á sinn hátt,“ sagði Páll Pálsson,
höfundur bókarinnar „Hallærisplanið“ sem nýlega
kom út hjá bókaforlaginu Iðunni, þegar hann var
spurður um efni bókarinnar.
- Hvað rak þig til að skrifa bók um unglinga?
„Ég hef haft áhuga á að skrifa bók um unglinga
alllengi. Þegar ég byrjaði var á ég fyrsta ári í
félagsfræði í Háskólanum, uppfullur af áhuga á
náminu og ég ákvað að gera nokkurs konar
félagsfræðilega úttekt á „planinu“. Fljótlega sá ég
að mikið skemmtilegra yrði á skrifa sögu, sleppa
öllum leiðinlegum félagsfræðilegum útskýringum,"
sagði Páll.
- Hefur þú verið lengi með bókin aí smíðum?
„Ég byrjaði fyrir einum fjórum árum. Það má
segja að á þessum tíma hafi ég skrifað söguna
margsinnis. Þótt grindin hafi í meginatriðum staðið
óbreytt hef ég neyðst til að breyta mörgu,
sérstaklega því sem varðar tísku. T.d. get ég nefnt
að fyrir fjórum árum, var John Travolta goð
krakkanna númer 1 og Bubbi Morthens ennþá ekki
kominn til sögunnar. Aðrar unglingabækur, sem
komu út meðan ég var að skrifa Hallærisplanið,
töfðu fyrir mér líka. í því sambandi get ég nefnt að
þegar Sveindómur eftir Egil Egilsson kom þurfti ég
að henda einum þrjátíu síðum. Á þeim voru
hugmyndir sem þegar voru komnar fram hjá Agli.
Eins þurfti ég að endurskrifa stóran hluta þegar „Ég
um mig frá mér til mín“ eftir Pétur Gunnarsson
kom út.
„Búið að nota
flestar hugmyndir“
„Þegar ég byrjaði að skrifa Hallærisplanið voru
unglingabækur í þessum dúr, við getum kallað þær
reynslusögur unglinga, nánast ekki til. Núna,
fjórum árum seinna, er búið að skrifa svo margar,
að ég sárvorkenni þeim manni sem hyggst bæta við.
Ég held svei mér þá að búið sé að nota flestar
hugmyndir,“ sagði Páll.
Unglingspiltur er aðalsöguhetjan í bókinni. Er
hann einhver sem þú þekkir?
„Ég þekki hann mjög vel. Hins vegar get ég ekki
gefið upp heimilisfangið hans, því hann er gerður
úr mörgum mönnum; nokkurs konar sambræðingur
af sjálfum mér, vinum mínum og þeim unglingum
sem ég kynntist meðan ég var að skrifa bókina."
- Varðst þú einhvers vísari af að kynna þér líf
krakkanna á Hallærisplaninu?
„Ég fékk staðfestingu á því, sem raunar var
skoðun mín áður, að unglingavandamál er ekki til
í þeim skilningi sem oftast er lagður í orðið.
Foreldravandamál er nær sanni.
Svo komst ég líka að því að skemmtanavenjur
unglinga er í engu frábrugðnar skemmtanavenjum
fullorðins fólks. Munurinn liggur í því að við, sem
fullorðin erum, höfum hús til að sukka í. Ég er viss
um að ef girt yrði niðrum öldurhúsin meðan allt er
á fullu og það sem fram fer borið saman við það
sem fram fer á Hallærisplaninu, yrði samanburður-
inn unglingunum mjög í hag,“ sagði Páll. -Sjó.
Lokabíndi Ættbókar
sögu fslenska hestsins
■ Bókaforlag Odds Björnssonar h/f á
Akureyri hefur nú sent frá sér 4. og
síðasta bindi af hinu mikla ritverki
Gunnars Bjarnasonar ráðunauts, Ætt-
bók og saga íslenska hestsins. Bókin
hefur að geyma upplýsingar um íslenska
stóðhesta og hryssur og ættir þeirra svo
og um kynbótahesta erlendis. Bókin er
prýdd fjölda mynda.
Gunnar Bjarnason sagði á blaða-
mannafundi á dögunum að hann hefði
ekki unnið þetta verk af skyldurækni,
heldur áhuga, samband hests, manns og
náttúru hefur verið mitt líf og yndi.
íslenski hesturinn er náttúruundur, sagði
Gunnar, þetta er einstök skepna og
samband þessa sérstæða íslenska bænda-
fólks við þennan gáfaða þjon sinn hefur
verið mér kært vtðfangsefni og upp-
spretta óendanlegrar ánægju.
Fyrri bindin verksins eru þegar komin
út á þýsku og er þýðing fjórða bindisins
þegar hafin. Gunnar sagði að nú myndi
hann hefjast handa við nýja útgáfu og
væri meiningin að gefa út verk þar sem
íslenska hestinum erlendis væru gerð
skil, en nú munu vera til milli 30 og 40
þúsund islenskir hestar utan íslands og
hefur verið stofnað alþjóðlegt samband
áhugamanna um íslenska hestinn.
■ Gunnar Bjarnason