Tíminn - 21.12.1982, Side 1
Allt um íþróttaviðburði helgarinnar bls. 13-16
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ
Þriðjudagur 21. desember 1982
291. tölublað - 66. árgangur
heimilis
tírninn:
Jóla-
glögg
— bls. 10
Margs
konar
bros
- bls. 2
Jól
í heims-
kreppu
— bls. 26
Pólskur
vandi
— bls. 7
geymsla eyði
lagðist f eldi
■ Klukkan 11.17 í gærmorgun var
Slökkviliö Hafnarfjarðar kvatt út
vcgna elds í húsi við Vesturgötu, þar
sem geymd voru veiðarfæri fyrir togara
Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar og fleiri.
Þegar slökkviliðið kom á vettvang var
steingaflahús áfast tveim öðrum með
timburveggjum á milli. Tókst að
bjarga hinum tveim frá að verða
eldinum að bráð en húsið sem kviknaði
í má heita ónýtt svo og mest af því sem
þar var geymt.
Engin vinna var í húsinu þegar
eldsins varð vart og rafmagn hafði
verið tekið af því. Eldsupptök eru
ókunn en rannsóknarlögregla ríkisins
hefur málið til athugunar.
JGK.
Tímamynd: Jói
„GENGISFELUNG KEM-
UR EKKI TIL GREINfl”
— segir Steingrímur Hermannsson, sjávarútvegsrádherra
„Gengisfelling kemur ekki tii greina - svo mikið er
víst,“ sagði Steingrímur Hermannsson, sjávarútvegs-
ráðherra, þegar blaðamaður Tímans spurði hann
hverjar yrðu hugsanlegar efnahagsráðstafanir sem
ríkisstjórnin myndi grípa til nú um áramótin.
■ Steingrímur vildi ekki tjá sig að
öðru leyti um aðgerðir í efnahagsmál-
um, hvorki hverjar þær gætu orðið, né
hvenær yrði gripið til þeirra.
Steingrímur sagði það vera ljóst
mál. að til einhverra ráðstafana þyrfti
að grípa, því vandi útgeröarinnar væri
geigvænlegur.
Steingrímur sagði jafnframt í sam-
tali við Tímann: „Ég átti ágætan fund
meðfulltrúum þingtlokkannaí morgun.
þar sent við ræddum vanua útgerðar-
innar. en fleira erekki um það aðsegja
í bili. Við munum svo eiga fund með
útgcrðarmönnum og sjómönnum um.
sömu málefni á miðvikudag."
í gær var haldinn fundur í Yfirnefnd
Verðlagsráðs sjávarútvegsins um stöðu
fiskvinnslunnar og annar fundur verð-
ur haldinn í dag.
Tíminn hafði einnig samband við
Tómas Arnason, viðskiptaráðherra í
gær, og spurði hann hvaða ráðstafanir
í efnahagsmálum hann teldi vænlegast-
ar: „Ég held að þaö sé of snentmt að
segja nokkuö um það. Menn eru að
vinna í þessum máluin og athuga.
mismunandi leiðir. Það er náttúrlega
ákaflega áríðandi að hægt sér að skapa
grundvöll fyrir rekstur fiskiflotans og
sjávarútvcgsins, án þess að hrinda af
stað nýju verðbólguflóði."
Ekki vildi Tómas tjá sig um afstöðu
sína til hugsanlegrargengisfellingar að
svo stöddu.
-AB/ESE
NÝTT FJÁR-
MAGN INN í
CARGOLUX!
— Forstjórinn
lætur
af störfum
— Sjá bls. 5
FIRÐI
Veiðarfæra-