Tíminn - 22.12.1982, Síða 5

Tíminn - 22.12.1982, Síða 5
viðskipta, hvorki er varðar vexti né verðtryggingu. Hins vegar getum vér reynt að svara framlögðum þremur spurningum yðar á eftirfarandi hátt og í sömu röð og þær eru settar fram í áminnstu bréfi yðar“. í lok bréfsins segir: „ítrekað skal, að bankinn er ekki úrskurðaraðili um viðskipti einstakra aðila, og er hér ekki tekin bein afstaða tii þeirra kaup- samninga, sem þér ræðið um í bréfi yðar.“ 5. Mikið er gert úr því í greindri blaðagrein að verðbætur eru reiknaðar miðað við þann dag sem greiðslur eru inntar af hendi þ.e. jafnaðarvísitala. Rétt hefði verið að blaðamaður hefði kynnt sér þessi mál en mjög algengt er að reikna vísitölu þannig við húsbygging- ar eða jafnvel reikna miðað við breyting- ar á verðum á vinnulaunum og bygging- arefnum hverju sinni. 6. Við afhendingu húss á seljandi eftir að framkvæma hluta af verki. M.a. að ganga frá húsi að utan, malbika götur o.fl. Er því síður en svo óeðlilegt að verðbætur séu greiddar eftir að hús hefur verið afhent vegna þess að þá er verkframkvæmd ekki lokið. Ef verðbæt- ur ættu að falla niður þegar hús eru afhent er ljóst að ekkert hús yrði afhent fyrr en öllum framkvæmdum er að fullu lokið. Nú í dag á eítir að malbika aðalgötuna að hluta og steypa gangstétt meðfram henni og leggja gangstíg með lýsingu milli Hlíðarbyggðar og Brekku- byggðar. Vissulega falla verðbætur niður í hvaða tilfelli sem er þegar greiðsla hefur verið innt af hendi. 7. Þegar verðbólga geysar eins og á íslandi er ljóst að óframkvæmanlegt er að reisa byggingingar á föstu verði nema áætla verðbólgu inn í verð. Eins og áður segir var sú leið ekki fari heldur greiddu kaupendur raunverulega hækkun. Lögð hefur verið á það áhersla að allir sætu við sama borð. Reynt hefur verið að koma til móts við óskir kaupenda. Þannig er augljóst að þeir sem hafa greitt húsverð mjög fljótlega eftir kaup greiða lágar verðbætur. Hinir sem greiða seint greiða hærri verðbætur. Þannig eru allir jafnir. Það hefur verið stefna fyrir- tækisins að gefa fólki kost á að semja um greiðslur eins og heppilegast er fyrir það og jafnframt er kaupendum ávallt heimilt að greiða fyrr en samningur segir til um og þar með lækka verðbóta- greiðslur að þeim hluta. T.d. má geta þess að munur á verðbótum eftir eitt ár á tveimur nákvæmlega sambærilegum eignum hefur numið rúmum 100%. 8. Því fer víðsfjarri að einhver hús- kaupandi hafi greitt kr. 400.000.00 í verðbætur eins og segir í blaðagreininni. Er hér um eina rangfærsluna enn að ræða. Það vekur furðu að dagblað eins og Tíminn skuli slá upp svo rækilega frétt með fullyrðingum sem fyrirsögn án þess að hafa samband við hlutaðeigandi fyrst. Ekki getur hafa legið svo á. Það er rétt að deilt er um verðbætur við tvo kaupendur en engin niðurstaða hefur fengist í þeim málum enda barst bréf frá lögmanni kaupanda að Brekkubyggð 20 með kröfugerð fyrst s.l. fimmtudag og hefur því enginn tími unnist til að fjalla um málið. íbúðaval h.f. telur sig hafa farið eftir lögum í hvívetna sbr. það sem að framan segir. 9. Um þá hlið málsins að kaupandi, sá sem ræddi við blaðamann Tímans, hafi samþykkt víxla til greiðslu hjá fyrirtæk- inu er það að segja að þeir eru gjaldfallnir. Hefur verið stefnt fyrir þessum víxlum. Ekkert er ólöglegt við stefnu víxlanna en staðfest er að víxl- arnir eru í eigu íbúðarvals h.f. Ibúðaval h.f. vonar að samskipti við núverandi og væntanlega kaupendur verði jafn ánægjuleg og hingað til í hvaða tilliti sem er og að þessi æsiskrif Tímans og upphlaup eins af kaupendum íbúðavals h.f. að Brekkubyggð 20, spilli ekki þeim ánægjulegu samskiptum sem ávallt hafa ríkt milli kaupenda og seljanda. Að lokum vill íbúðaval h.f. taka fram að þar sem véfengt er lögmæti kaup- samninga sem fyrirtækið hefur gert er ekki um annað að ræða en láta dómstóla skera um þau mál en fyrirtækið telur að löglega hafi verið farið að í öllum málum. Á meðan dómstólar fjalla um þessi mál verður ekki frekar af blaðaskrifum af hálfu fyrirtækisins varðandi það sem að framan er sagt. Reykjavík, 20. desember 1982 Sigurður Pálsson Húskaupendur við Brekku- byggð ekki óánægðir med að byggingarkostnadur skulí uppreiknaður með vfsitölu: „KAUPENDUR VIIDU BARA RÉTTA VÍSI- TÖUIHÆKKUr — segir í athugasemd frá hus- kaupandanum að Brekkubyggd 2< P Tilefni þessarar blaðagreinar varða útreikninga íbúðavals h/f á hækkun byggingarvísitölu á alls níu kaupsamn- ingum. sem allir hafa verið birtir forráðamanni fyrirtækisins, vegna sölu á húsum og íbúðum við Brekkubyggð í Garðabæ. Samkvæmt ölluni þessunt kaupsamningum er „söluverð hinnar keyptu eignar háð byggingarvísitölu frá Hagstofu íslands." Um lögform og vísitöluviðmiðun í hverjum samningi verður ekki fjallað hér. Hins vegar mun svokölluð „jafnað- arvísitala" f útreikningum íbúðavals h/f vera fyrirbæri, sem er með öllu óþekkt' stærðfræðieining við fram- reikning á vfsitölu, hverju nafni scm sú vísitaia nefnist. Örlítið dæmi um „frjálsræði" og nákvæmni tbúðavals h/f er að finna í 3. gr., en þar segir að hækkun vísitölu fyrir tímabilið 1. júní til 1. okt.,sé 16,8%-hið réttacr 16.75 samkvæmt heimildum Hagstofunnar- og áfram 5,6% á mánuði - hið rétta 5,58 - en því miður; svona er vísitala ekki mæld. Sorglegt er til þess að vita að forráðamunni Ibúðavals h/f. sé það ckki Ijóst að Ifnulega er hægt að verðbæta samninga frarn í tímann til að mæta hækkun byggingarkostnaðar og honum til nánari glöggvunar skal þess getið að dæmið má reikna þrepalcga á eftir. þ.e.a.s.. þegar ný vísitala hefur veriö gefin út, cn með því fæst rétt niðurstaða um hækkun á ársgrundvelli, og ekki citt vísitölutíma- bil í kaupbæti. Ofgreiddur eða vangreiddur mis- munur er venjulega verðbættur nteð lánskjaravtsitölu, svona nú til að koma í veg fyrir að nokkuð tapist. Allir vildu kaupendur vísitöluhækkun; bara rétta vísitöluhækkun. „Jafnaðarvísitölukenning" þessi mun aðöllum líkindum sótt í dómsnið- urstöðu Hæstaréttar frá 12.01. 1978, þótt skilgrciningin „jafnaðarvísitala" finnist þar ekki. Rétt er að gcta þess til upplýsingar að umræddir níu kaup- samningar eru allir gcrðir eftir 07.04. 1979, þegar lög númer 13 - Ólafslög - voru í gildi gcngin. „Jafnaðarvjsitölukenningu" íbúða- vals h/f, er þó beitt áfram af fullum þunga, saman ber gr. 2 í svari íbúðavals h/f, undir Ægishjálmi Hæstaréttardóms fyrir fáfróða. Að niðurstöðum þessarar „jafnaðar"- rcikningsfærslu vcrður vikið síðar. Gera verðtír þá kröfu til íbúðavals h/f, sem notið hefur velvilja bæjar- stjórnar Garðakaupstaðar um lóðar- úthlutun, að rétt sé farið að útreikning- um á vísitöluhækkunum og þær útfærð- ar samkvæmt þeim lögunt og reglum, sem í gildi eru, en ekki eftir lögunt, sem fallin cru úr gildi, og áfram er beitt svo sem fram kcmur í svari íbúðavals h/f, 2. gr. - síðustu málsgreinar. Þessum staðreyndum var komið á framfæri við forráðamann íbúðavals h/f 12.05. 1982, en ekki síðastliðinn fitnmtudag. Hann var ekki til viðræðu unt málið. Að gefnu tilefni skal forráðamanni íbúðarvais h/f hcr og nú gerð grein fyrir hvað vísitöluhækkun í raun ér. Stærð- fræðilega ervísitala háð veldisvísi. Það eitt segir nóg um hvað vanda þarf til vísitölureikninga. í lögurn núnter 13 frá 07.04 1979, er reynt að dcyfa þessi áhrif mcö sérstakri lagaskilgreiningu og cr Seðlabanka íslands falið að scmja reglugerðir þar að lútandi. Lagaskilgrcining þessi nær þó ekki til byggingarvfsitölu, cn cr þó ætlað að mæla fallandi gengi krómt, gagnvart hækkun byggingarkostnaðar. Það er þvf fallandi gcngi krónu scnt skal vcrðbæta og gefur þvf rétta mynd af endurfjárfestingu fjárntuna. „Jafnaðarvísitölukenningin", sent í raun er einföld deiling og margföldun til skiptis, á scr enga hliðstæðu í mælingu á vísitölu, en fræðin cru trúlega sótt í „Litlu grænu reiknings- bókina", og gefa eftirfarandi niður- stöðu: Dæmi Brekkubyggð 20. Hækk- un byggingarvísitölu frá 01.01. ’82 á ársgrundvelli 45,20%, samkvæmt hcimildum Hagstofunnar. A: Höfuðstóll vcröbættur mcð hlið- sjón af fallandi krónu gagnvart bygg- ingarkostnaði kr. 113.501 = 45,20% hækkun. B: Sami höfuöstóll „Jafnaðarvísi- tölubættur" krafa íbúöavals h/f kr. 190.232 = 75,75% á ársgrundvclli - aurum er sleppt. Þessar tölur cru því miður stað- reynd, scm blaðamaðurTímans kynnti scr rækilega eftir yfirliti og rcikningum Ibúðavals h/f, og undirritaðir eru af forráðamanni fyrirtækisins. Því miður varö of seint séö við þessu; víxilskuldbindingar vegna „jafnaðarvísitölu" Itöfðu verið sam- þykktar til tbúðavals h/f. enda fast eftir þeint gengið. Stefna í víxiimáli var útgefin 25.11. 1982 og þingfcst i bæjarþingi 16.12. 1982. Og viti menn, stefna er útgefin persónulega f.h. Sigurðar Pálssonar nnr. 7892-1404, Kambsvegi 32 í Reykjavík, forráða- manni íbúðavais h/f, nnr. 4496-4708. Stcfnu þessari verður svarað á viðeig- andi hátt. Ekki verður fjaliað hér um svör Seölabanka lslands í þessu máli. bankinn mun fær um þaö sjálfur, cn hitt er vfst, að ckki kvaö bankinn upp ncinn „dóm" í málinu, því væntanlega Itcfði hann kært áður! Því miður hefur cnginn ánægður „jafnaðarvísitölugreiðandi," gcfið sig á tal við upphlaupsmatininn í Brekku- byggð 20. Aftur á inóti eru þeir orðnir fleiri en tíu. að ættingjum undan- skildum, sem knúiö hafa dyra vcgna þeirra vandræða er þeir hafa komist í vegna þessa máls. Fleira verður ekki rifjað upp að sinni í þcssu máli þótt af nægu sé að taka, geFtst tilcfni. Rétt er að geta þess að lokum að hús þessi eru vel útfærð yfirleitt og þeim hcfur undantekning- arlaúst verið skilað á réttum tíma. En kaupsamningurinn af Brekkubyggð 20 er þverbrotinn samkvæmt 18. grein, sem fjallar ekki um vísitöluálag. Virðingarfyllst Kaupsamningseigandi á Brekkubyggð 20. ■ Frá blaðantannafundinum. Talið frá vinstri: Þorsteinn Jónsson, verslunarstjóri, Þorsteinn Matthíasson, Iðunn Steinsdóttir, Guðmundur Jónsson og Eyjólfur Sigurðsson, eigandi Bókhlöðunnar. Tímamynd: G E Bókhlaðan h.f.: Hefur aukið umsvif sín á síðustu árum ■ Fyrirtækið Bókhlaðan h/f hefur mjög aukið umsvif sín á síðustu árum bæði hvað varðar bókasölu og bókaútgáfu. Það rekur nú bókabúð, með allstæðu sniði, þar er reynt að hafa á boðstólum á hverjum tíma allar fáanlegar bækur á íslenskum markaði gamlar og nýjar, Þá keypti Bókhlaðan á þessu ári bókafor- lagið Ægisútgáfuna af Guðmundi Jak- obssyni, en hann hefur rekið þá útgáfu í fjölmörg ár. Guðmundur hcfur í útgáfustarfsemi sinni lagt áherslu á bækur um sjómenn og sjómensku á fslandi og hann er höfundur einnar af þeim bókum sem Bókhlaðan gefur út í ár, „Nú er fleytan í Nausti," héitir hún og inniheldur frásagnir þriggja erlendra skipstjóra. Á blaðamannafundi á dögunum voru kynntir þeir íslenskir höfundar sem gefa út hjá Bókhlöðunni, og bækur þeirra. Þorsteinn Matthíasson hefur skráð tvær bækur sem koma út hjá forlaginu að þesu sinni, íslenskir athafnamenn, viðtöl við menn sem hafa látið að sér kveða í atvinnulífinu, og í dagsins önn, viðtöl við fólk úr alþýðustétt, og er það fjórða bókin í þeim flokki. Guðmundur Jónsson fyrrum skóla- stjóri bændaskólans á Hvanneyri hefur séð um útgáfu á bókinni Bóndi er bústólpi, en í henni eru frásagnir af 12 látnum góðbændum skrifaðar af jafn- mörgunt höfundum. Þá gefur Bókhlaðan nú út barnabók- ina Knáir krakkar eftir nýjan höfund, Iðunni, Steinsdóttur, en hún er barna- kennari við Laugarnesskólann. Áður hefur verið getið bókar Guðmundar Jakobssonar. Af þýddum bókum sem koma nú út á vegum Bókhlöðunnar skal hér getið tveggja, Innflytjendurnir, fyrsta bók af þrem úr sagnabálki hins fræga banda- ríska höfundar Howard Fast. Þessi bálkur hefur vakið mikla athygli og hafa verið gerðir framhaldsþættir fyrir sjón- varp byggðir á honum. Ásgeir Ingólfsson er þýðandi þessa verks. Áður hefur komið út á íslensku eftir Howard Fast skáldsagan Fimm synir, í þýðingu Jó- hannesar úr Kötlum. Ennfremur gefur Bókhlaðan út sér- stætt kvcr ævintýra frá Víet Nam og eru ævintýrin í bókinni prentuð bæði á víet nömsku og íslensku. Fjöldi mynda prýða bókina. „Kunni mætavel stíl þjóðsagna” — segir Óskar Halldórsson, ritstjóri nýrrar útgáfu af Islenskum þjóðsögum og sögnum, skráðum af Sigfúsi Sigfússyni ■ „Ég hygg að þetta sé heldur stærra safn, að minnsta kosti ef tekið er tillit til fjölda sagna. Hjá Jóni Árnasyni má finna margar geröir af söntu sögunni, cn Sigfús aftur á móti segir sömu söguna sjaldan oftar en cinu sinni," sagði Óskar Halldórsson, dósent, en hann er ritstjóri nýrrar útgáfu af íslenskum þjóðsögum og sögnum, skráðum af Sigfúsi Sigfús- syni, sem bókaútgáfan Þjóðsaga hyggst gefa út í 9 bindum, fjögur fyrstu bindin eru reyndar komin út þcgar. „Sigfús var mjög góður að segja frá," sagði Óskar á blaðamannafundi scm haldinn var vegna útgáfunnar. „Hann kunni mæta vel stíl þjóðsagna og fornsagna, enda mun hann hafa skráð allt safnið með eigin hcndi að hcita má.“ - Nú hafa þjóðsögur og sagnir Sigfúsar verið gefnar út áður. „Sigfús Sigfússon tvískrifaði allt sitt safn. Það gerði hann meðal annars til öryggis meðan enn var nokkur óvissa um útgáfu þess. Þessi handrit eru öll geymd á Landsbókasafninu. Sigfús skrifaði ekki orðrétt upp eftir sjálfum sér í seinna skiptið. Það var seinni uppskriftin, sem notuð var við eldri útgáfuna. Nú er notað fyrra eintakið," sagði Hafsteinn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Þjóð- sögu, á blaðamannafundinum. - Eru ekki þjóðsögur yfirleitt fullar af alla vega hindurvitnunum og oftast ósannar? „Þetta er bæði og.“ sagði Óskar. „í þjóðsögum og sögnum er margt um frásagnir með sannsögulegum kjarna, sem þó hefur og er smátt og smátt að breytast í skáldskap. En jafnvel þótt viðurkennt sé að kjami sögunnar og fyrirburðirnir séu ekki af þessuin heim heldur draumakyns,ellegarmengaðir af skynvillu, þá er þar samt að finna lýsingu á lífi fólks og högum scm hvergi er til annars staðar, sem sagnfræðin hefur aldrei náð til. hvernig voru til dæmis húsakynnin þegar sagan gerðist? Hvern- ig bjó fólkið? hvernig var atvikum háttað þcim ér sagan greinir frá?“ Á blaðamannafundinum kom fram að Sigfús safnaði flestum sínum sögum á Austfjörðum, en þar flæktist hann um í mörg ár og stundaði m.a. farkennslu og sjómennsku. Talið er að heimildarmenn hans í flestum tilvikum hafi verið gamlar konur. Einnig kom fram á fundinum að Sigfús var ákaflega trúaður sjálfur og að menn telji líklegt að hann hafi sjálfur trúað mörgum þeim sögum er hann skráði. -Sjó.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.