Tíminn - 22.12.1982, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1982
21
fþróttfr
Umsjón: Samúel Örn Erlingsson
Borð-
tennis
hjá KR
■ Borðtennisdeild KR heldur á sunnu-
daginn 26.desember forgjafarmót KR í
gamla KR húsinu. Þetta er í þriðja sinn
sem deildin heldur þetta mót, og er það
því að verða árviss viðburður. Styrkleiki
keppenda er metinn eftir punktakerfi
BTI, og er því þeim sem ekki hafa hæfni
á við toppfólkið gert auðveldari sú þraut
að vinna. Oft hefur verið erfitt að spá
um úrslit í þessum mótum.
Þátttökugjald verður 70 krónur fyrir
fullorðna, en 50 krónur fyrir börn, en
áhorfendur geta horft á ókeypis. Húsið
verður opnað klukkan 13.00 en mótið
hefst klukkan 13.30 stundvíslega.
— Stenmark
varð annar
■ Stig Strand frá Svíþjóð sigraði í
svigmóti á Madonna di Campiglio á
Ítalíu í gær. Stig Strand er æskufélagi
Ingemars Stenmark sem er frægastur
Svía sem skíðamaður. Stenmark lenti í
öðru sæti á Ítalíu í gær, en aðalkeppi-
nautur Stenmarks, Phil Mahre frá
Bandaríkjunum varð í þriðja sæti. Þrátt
fyrir snjókomu og lélegt skyggni náði
Strand tímanum einni mínútu 38,99
sekúndum samanlagt, 0,24 sekúndum á
undan Stenmark og 0,27 sekúndum á
undan Mahre. Þessi sama þrenning varð
í þremur fyrstu sætum í svigi í Courmay-
eur á Ítalíu í síðustu viku, en þá sigraði
Stenmark og Strand varð í öðru sæti.
Phil Mahre sem sigraði í heimsbikar-
keppninni í fyrra og náði bestum árangri
■ Kínverski badmintónkappinn You Zou Rong í leik í gærkvöld. Þá var xfingamót hjá TBR fyrir ferð badmintonmanna
til Sviss í janúar. You Zou Rong hefur þjálfað hér frá því í september í fyrra. Hann er einnig liðtxkur badinintonleikari
svo ekki sé meira sagt, varð Kínameistari árið 1977.
Mikið að
gerast í
körfubolta
■ Unglingalandsliðið í körfuknattleik
er nú nýkomið frá Bandaríkjunum þar
sem það keppti við háskólalið, æfði við
frábærar aðstæður og horfði á leik í
NBA keppninni. Liðið tapaði naumlega
öllum leikjunum en stóð sig mjög vel að
sögn Einars Bollasonar þjálfara liðsins.
„Menn voru virkilega með í öllum
leikjunum og það sem best er við þetta
allt saman er að okkur stendur til boða
að koma aftur þarna út“ sagði Einar.
„Við gælum nú við þá hugmynd að fara
með unglingalandsliðið átján ára og
yngri í svona ferð til Bandaríkjanna á
næsta ári. Mesta ævintýrið í ferðinni var
að okkur var boðið á æfingu hjá Chicago
Bulls, sem er eitt aðal atvinnuliðið í
NBA.
Það var stórt ævintýri fyrir strákana,
og reyndar mig líka, að hafa tækifæri til
að spjalla við leikmenn og þjálfara
liðsins eftir æfingu osfrv. Við æfðum í
Loyola University, en það er skóli sem
sigraði 1963 í háskólakeppninni. Við
hefðum með smáheppni getað unnið
einn leikinn og það er virkilega góður
árangur. Við æfðum þarna alla daga, og
ég er ánægðastur með hvernig liðið kom
út."
Mikið er nú um að vera hjá körfu-
knattleiksmönnum. Eftir þessa ferð er
verkefnum landsliðsins 21 árs og yngri
lokið í bili.cn núeru þrjú landslið á fullri
ferð við æfingar. Drengjalandsliðið og
unglingalandsliðið æfa á hverjum degi
frá klukkan 14-18, og síðan tekur
karlalandsliðið við frá klukkan 18-20.
Karlalandsliðið æfir að krafti fyrir lands-
leikina við Dani í janúar hér heima,
unglingalandsliðið æfir fyrir Norður-
landamótið í Danmörku 6.-10. janúar,
og verið var að bjóða drengjalandsliðinu
15-16 ára til Hollands í lok janúar, en
það lið verður með í Evrópukeppninni
hér um páskana.
Þjálfarar drengjalandsliðsiris eru Einar
Bollason og Torfi Magnússon, en þjálf-
ari karlalandsliðsins er James Dooley
sem þjálfar hjá ÍR.
■ Ingemar Stenmark brosir breitt á þessari mynd; skyldi hann hafa brosað eins í gxr?
í bæði svigi og stórsvigi í þeirri keppni,
hefur ekki tekist að sigra Stenmark enn
á þessu keppnistímabili, og reyndar
heldur ekki Stig Strand. Mahre ætlar
ekki að keppa meir fyrr en í næsta
mánuði, ætlar í jólafrí, og mun sjálfsagt
einbeita ser að því að sigra þessa Svía
yfir jólasteikinni. Fyrir Strand sem var
að sigra sfora keppni í fyrsta sinn í gær
voru úrslitin eins og draumur. „Ég
stefndi á eitt af fyrstu þremur sætunum
sagði hann, og besta tímanum í seinni
ferðinni, en ég hélt að ég gæti ekki sigrað
bæði Stenmark og Mahre“ sagði Strand.
Mahre var ekki ánægður með frammi-
stöðuna. „Ég var ekki nógu ákveðinn"
sagði hann, „andlega var ég hreint ekki
á staðnum."
Meðal þeirra fyrstu sem óskuðu
Strand til hamingju voru Ingemar Sten-
mark og kappaksturshetjan Patrick
Tambay, en hann er fyrrum brunakappi
úr franska unglingalandsliðinu. „Ég veit
að Strand lagði sig mjög fram um að
vinna í dag,“ sagði Stenmark, sem var
vanur að tapa fyrir Strand á yngri árum
þar til að hann fór að láta að sér kveða
fyrir átta árum. „Hann hefur þurft að
æfa mikið og breyta tækninni, svo var
ég bara ekki nógu góður í seinni
ferðinni" sagði Stenmark.
Stenmark og Strand eru nú jafnir í
sjötta sæti í heimsbikarkeppninni.
Brunkóngarnir frá Austurríki og Sviss,
Peter Mueller, Harti Weirather og Frans
Klammer hafa ennþá töluverða forystu,
enda hafa þeir verið sigursælir undanfar-
ið.
Asgeir orðinn hress
— byrjar að æfa á fullu eftir áramót
■ „Ég er orðinn braðhrcss", sagði
Ásgeir Sigurvinsson í samtali við
Tímann í gxr. „Ég var búinn að xfa í
hálfan mánuð áður en ég kom heim á
sunnudaginn. Maður varð að sjálf-
sögðu að fara rólega af stað, en þetta
kemur allt saman.“
Ásgeir kom til íslands í jólafrt' á
sunnudaginn var. Hann mun dveljast
hér á landi hjá sínum nánustu fram yfir
hátíðar, en fer aftur til Vestur-Þýska-
lands 2. janúar. Ásgeir segist munu
æfa á fullu eftir áramótin, en þá fer
félag hans Stuttgart í keppnis og
æfingaferð til Frakklands. Liðið mun
æfa af krafti þar til „Bundesligan",
fyrsta deildin í Vestur-Þýskalandi hefst
aftur í lok janúar. Stuttgart er komið
í átta liða úrslit vestu-þýsku bikar-
keppninnar og er í fimmta sæti í
deildinni, fjórum stigum á eftir topp-
liðinu Hamburger Spirtsverein. Þegar
Ásgeir var spurður hvort hann teldi
ekki að það yrði erfitt að komast í liðið
þar sem því gengi svo vel sem raun ber
vitni sagði hann: „Það verður ekkert
vandamál".