Tíminn - 23.12.1982, Blaðsíða 1
Hverjir fá láglaunabætur—Fréttaskýring bls. 10-11
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ
Fimmtudagur 23. desember 1982
293. tölubiað - 66. árgangur
L__________________I___i_____
Idnadarrádherra kynnir tillögur sfnar í álmálinu, ádur en
ríkisstjórnin hefur fjallad um þær:
Gómuð í
sturturmi!
— bls. 2
Ástkona
Bogarts:
Bóka
gagnrýni
— bls. 8-9
Sauma-
klubbur
föndra
— bls. 12
'I
„BUBAMANNAFUNDUR HJOR-
LEIFS KEMUR MÉR A ÖVARTl
1
segir Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins
■ „Það kemur mér á óvarl að búið
sé að halda blaðamannafund um þetta
mál áður en Alusuisse og íslensk
stjómvöld hafa kynnt sér tillögur
Hjörleifs gaumgæfilega," sagði Stein-
grímur Hermannsson, sjávarútvcgs-
ráðherra þegar Tíminn spurði hanri í
gær álits á tillögum þeim scm Hjör-
leifur Guttormsson hefur sent Alu-
suisse varðandi gmndvöll að áfram-
haldandi samningaviðræðum.
Iðnaðarráðherra sendi í fyrradag
tillögur sínar til Alusuisse og hann
kynnti þær á fundi með fréttamönnum
í gær. Þær eru m.a. í því fólgnar að
ágreiningsefni verði sett í íslenskan
gerðardóm, raforkuverð hækki frá 1.
jan. nk. í 10 mills úr 6.5 mills á
kílówattstundina og aftur I. apríl í
12.5 mills nema samningar um annað
hafi áður náðst, þegar í stað verði
teknir upp samningar um endurskoðun
á leiðréttingu á rafmagnsreikningi, og
samtímis hefjist viðræður um endur-
skoðun á aðalsamningi um álverið í
Straumsvík. Skal samkvæmt tillögum
iðnaðarráðherra stefnt að því að ljúka
samningum fyrir 31. mars nk.
„Mér sýnist þetta sami grauturinn úr
sömu skálinni," sagði Ragnar Hall-
dórsson, forstjóri ÍSAL, er Tíminn
innti hann álits á tillögum iðnaðarráð-
. herra. „Mér finnst fremur ólíklegt að
Alusuisse muni sætta sig við að
gerðardómurinn til þess að útkljágöm-
ul ágreiningsefni, verði skipaður ís-
lendingum eingöngu, því slíkt berekki
vott um að aðilar séu jafnréttháir",
sagði Ragnar.
„Mér finnst einkennilega að
samningnum staðið, að gera Alusuisse
tilboð og halda um það blaðamanna-
fund, áður en rætt hefur verið við
Alusuisse, eða Alusuisse fengið tæki-
færi til að svara,“ sagði Guðmundur
G. Þórarinsson, alþingismaður, er
hann var spurður álits á tillögunum.
AB/Sjó.
Sjá nánar bls. 5
FMIwlBFffl iljlliiftfflWHUIIHIIFiiiSMM—WBBH—
■ Fjöldinn allur af hressum krökkum var samankominn í Laugardalshöllinni í gærkvöldi við undirbúning að
ióladansleiknum stóra. sem Æskulýðsráð gengst þar fyrir á annan í jólum með aðstoð Stuðmanna. Ekki vitum við
nafnið á bessum risava- na jólásveini sem þam-. er að líta dagsin; Jjós, cn hann prýðir Höllina ásamt lleiru a
sunnudagskvöldið. Tunamynd EUa
Margir verslun-
areigendur með
opidígærkveldi:
LÖGREGIAN
MED ENGIN
flFSWPTl!
■ - Það er út af fyrir sig afar athyglisvcrt,
ef lögreglan ákveður að hafa ekki afskipti af
því hvort faríð er að lögum eða ekki, - sagði
Magnús L. Sveinsson formaður Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur í gær er Tíminn
spurði hann álits á þeirri ákvörðun lögreglu
stjóraembættisins í Rcykjavík að veita ekki
undanþágu frá rcglugcrð um lokunartíma
verslana í gær, en hafa ekki afskipti af því
hvort kaupmenn færu eftir henni eða ekki.
Kaupmenn við Laugaveg höfðu sótt um að
fá að hafa opnar verslanir til Id. 22.00, en
samkvæmt reglugerð bar þeim að loka kl.
18.00. Rökstuddu kaupmenn beiðni srna um
undanþágu einkum með því að vegna
óveðurs hefðu neytcndur ekki getað nýtt sér
rýmkun á opnunaitíma s.l. laugardag. Vildu
kaupmenn gefa starfsfólki sínu frí frá vinnu
á mánudaginn þriðja í jólum í staðinn fyrir
aukið vinnuálag síðustu kvöld fyrir jól.
Verslunarmannafélag Reykjavíkur féllst
ekki á þessi sjónarmiö kaupmanna og byggði
afstöðu sína á því að gífúrlegt vinnuálag
væri á afgreiðslufólki nú fyrir jól og segði
opnunartíminn ekki alla söguna því af-
greiðslufólk þyrfti að vinna bæði fyrir og eftir
opnunartíma verslananna. Auk þess hefði
fólk ekki tryggingu fyrir að staðið væri við
að veita frf þriðja í jólum.
Borgarstjóri samþykkti fyrir sitt leyti við
lögreglustjóraembættið að undanþágan væri
veitt, en þegar sýnt þótti að ekki næðist
samkomulag kvað William Th. Möller upp
þann úrskurð að undanþága yrði ekki geftn,
en hins vegar myndi lögreglan ekki hafa
afskipti af kaupmönnum sem hefðu opið eftir
kl. 18.00.
f krafti þessa úrskurðar og þrátt fyrir
mótmæli Verslunarmannafélagsins voru
flestar verslanir við Laugaveg opnar til kl.
22.00 í gærkvöldi. Afgreiðslufólk í verslunum
sem blaðið talaði við í gærkvöldi var
undantekningalaust ánægt, með þessi úrslit
málsins. Allmikil ös var á Laugaveginum í
gærkveldi, en ekki kom til neinna átaka,
enda rcyndu hvorki lógregla né fulltrúar
V erslunaunannafélagsins að skipta sé; aí
kaupmönnum. JGK