Tíminn - 30.12.1982, Síða 1

Tíminn - 30.12.1982, Síða 1
Danirnir sigrudu í sídari leiknum 26-22 sjá bls. 10-11 TRAUST OG FJÖLBREYTT FRÉTTABLAÐ Fimmtudagur 30. desember 1982 297. tölublað - 66. árgangur ■ Það er friðsxlt við höfnina, þar sem þessi varðskip liggja við festar, öll landhelgisstríð að baki og vonandi langur friður framundan, þótt fallbyssumar hafi verið yngdar um nokkra áratugi til öryggis. - Tímamynd: Róbert. Verzlunarrád Islands: SPAlR 59% VERDBOLGU — á næsta ári frá upphafi ■ í nýrri verðbólguspá Verzlunar- ráðs íslands er spáð 59% verðbólgu á næsta ári miðað við hækkun fram- færsluvísitölu frá upphafi til loka ársins 1983. Þá gerir spáin ráð fyrir 57,7% launahækkunum á árinu og að verð bandaríkjadoUars hækki úr 16,70 kr. nú fyrsta janúar í 26.50 kr. í desember n.k. eða um 65.3%. Meðal- talsbækkun verðbólgunnar miUi ára er midad við hækkun framfærsluvísitölu til loka ársins hins vegar spáð 62% meðaltalshækkun doUars 74,2% og launa 51,0%. Forsendur spárinnar eru m.a. þær, að ekki verði aðrar grunnkaupshækk- anir en þegar hefur verið samið um (2,2% 1. jan. og 0.8% 1. mars), að viðskiptakjör versni um 1-2% frá árinu 1982, fiskverð hækki ekki meira en til að tryggja sjómönnum sömu kjarabætur og á almennum launamark- aði, bandaríkjadalur haldi styrkleika sínum og að samdráttur verði í eftirspum í kjölfar vaxtahækkunarinn- ar 1. nóv. s.l. og skerðingar kaup- gjaldsvísitölunnar 1. des. s.l. svo og vegna almennra greiðsluerfiðleika. Sé litið á spá um 12 mánaða hækkun framfærsluvísitölu er hún sögð 60% á árinu 1982. Þessi tala mun síðan hækka mánuð frá mánuði allt fram í ágúst 1983, þegar 12 mánaða hækkun er spáð 65%, en fara síðan aftur lækkandi niður í 60% í lok hins nýja árs. Þriggja mánaða hækkun fram- færsluvísitölu er spáð 10,5% í febrúar- byrjun, 13,5% í maíbyrjun, 12% í ágústbyrjun og 13,5% hinn 1. nóvem- ber 1983. Kauphækkanir yrðu rúmu 1% lægri en hækkanir framfærsluvísi- tölunnar. - HEI. Kona Rod Stewart - bls. 2 Jómfrú heiður - bls. 8-9 Dagur bls. 13 Síðumúla 15-Pósthólf 370Reykjavík-Ritstjórn86300-Auglýsingar 18300- Afgreiðsla og áskrift 86300 - Kvöidsímar 86387 og 86306 LÍKUR A AÐ FISKVERÐ VERÐIHÆKKAD UM14% - frá og með áramótum, og olíuniðurgreiðslur verði auknar úr 22% f 28% ■ Fjórtán prósent fiskverðshækkun og aukning á niðurgreiðslum á olíu úr 22% í 28% virðist nú vera það sem verður ofan á í fiskverðsákvörðun, ef faríð verður að tillögum Steingríms Hermannssonar, sjávarútvegsráð- herra. Tíminn hefur aflað sér heimilda fyrir því að sjávarútvegsráðherra muni leggja þetta tii, því hann vilji hækka fiskverðið eins mikið og mögulegt er, til þess að halda olíuniðurgreiðslum niðri, en þær þyrftu að fara eitthvað yfir 30%, ef fiskverðið verður aðeins hækkað um 10%. Auk þessara auknu niðurgreiðslna er stefnt að þvi að oh'ugjald, sem er nú 7% verði áfram það sama, þó svo að lögin um olíugjaldið falli úr gildi nú um áramót- in. Verður reynt að halda olíugjaldinu áfram, með samstarfi við fulltrúa stjómarandstöðunnar, þannig að kom- ist verði hjá setningu bráðabirgðalaga. Samkvæmt heimildum Tímans, er samfara þessu stefnt að ýmiskonar annarri aðstoð við útgerðina, s.s. stimpilgjöld að skuldbreytingunni, auk þess sem rætt er um að taka á vanda einstakra útgerða, svo sem í Hafnar- firði. Þá er Ijóst mál að gengið verður að síga áfram, til þess að skapa fiskvinnsl- unni svigrúm, eða að hún verði rekin sem næst núllinu. Ekki vildi heimildar- maður Tímans tjá sig um það hve mörg prósentustig gengið þyrfti að síga, til þess að slíkt næðist. Ólafur G. Einarsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, sagði í gær, þegar hann var spurður um afstöðu þingflokksins til samstarfs við stjórnarliða varðandi afgreiðslu á olíulögum, sem fyrsta mál á dagskrá Alþingis eftir áramót: „Við getum nú ekki tekið afstöðu til þessara mála, áður en ríkisstjórnin sjálf hefur tekið afstöðu, eftir því sem við best vitum. Okkur sýnist sem þetta sé allt svífandi í lausu lofti ennþá. En enn liggur ekki fyrir ákveðin tillaga um lausn, frá ríkisstjórninni, þannig að við höfum enn ekkert til þess að taka afstöðu til.“ - AB. yfirlit: Andro- pofs bls« 7

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.