Fréttablaðið - 07.02.2009, Síða 69

Fréttablaðið - 07.02.2009, Síða 69
LAUGARDAGUR 7. febrúar 2009 „Ég ferðaðist mikið á þessu ári,“ segir Charlotte. „Foreldr- ar mínir fluttu til Sýrlands svo ég fór og heimsótti þá og dvaldi góðan tíma í sumar. Síðan fór ég til Vestur-Afr- íku og tvívegis til Bandaríkjanna. En nú er góðærið búið svo ég sé ekki fram á að ferðast svona mikið á þessu ári sem er afskaplega leitt. En ég mun þó fara til Sýrlands í maí. Ég fékk námsstyrk í fyrra til að læra íslensku hér og áformin voru að reyna að finna vinnu hér á Íslandi í haust og vinna hér í þrjú fjög- ur ár þar til unnustinn væri búinn með sitt nám en þá kom kreppan og setti strik í reikninginn og áformin í uppnám. Ég var svo heppin að komast í mastersnám en við sjáum svo til hvað ég geri.“ Charlotte Ólöf Ferrier frá Bretlandi og Íslandi: Sumar á Sýrlandi CHARLOTTE Fór að læra í stað þess að vinna. „Þetta hefur verið mjög gott ár að því leyti að ég er farinn að átta mig betur á þessu samfélagi,“ segir Rachid sem búið hefur hér á landi í þrjú ár. „Ég skil núna hvernig fólk hugsar og hvernig hlutirnir ganga fyrir sig. Þar af leiðandi er ég orð- inn öruggari og tek því mun meiri þátt í samfélaginu. Dálk- urinn í Fréttablaðinu hefur líka hjálpað til, ókunnugt fólk hefur gefið sig á tal við mig og það er greinilegt að fólk sér að ég er bara venjuleg manneskja sem vinn heiðarlega og reyni að gera mitt besta.“ Rachid Benguella frá Marakkó: Kominn inn Algirdas vinnur hjá Trefjum sem búa til plastbáta og heita potta. Hann hefur búið hér á landi í ell- efu ár. „Ég er afar ánægður með það að við skyldum stofna Félag Lit- háa á Íslandi,“ segir hann. „Við erum um 40 talsins í félaginu og þar af eru bæði Litháar og Íslend- ingar. Íslendingarnir hafa þá ein- hver sérstök tengsl við Litháen. Við höfum látið til okkur taka og til dæmis vorum við með bás á Menningarnótt.“ Vissulega hefur Jón Baldvin Hannibalsson og eig- inkona hans Bryndís Schram sýnt félaginu áhuga. Hann var nefni- lega fyrsti utanríkisráðherrann til að viðurkenna sjálfstæði Lithá- ens árið 1991. Heldur hann sam- bandi við þessa heimsvini og var félagsmönnum boðið til þeirra hjóna þegar Bryndís hélt teiti vegna útgáfu bókar hennar „Í sól og skugga“ fyrir síðustu jól. Ræddi þá Algirdas við Jón Baldvin um stjórnmálaástandið hér á landi og fleiri hluti. En hann er ekki margorður þegar hann er spurður um það sem honum þótti miður gott á árinu. „Fjármála- kreppa!“ segir hann og hlær við. Hann hefur heldur ekki mikinn tíma til að velta því fyrir sér sem miður fer en hann er tveggja barna faðir, stundar háskólanám meðfram fullrei vinnu, heldur úti útvarps- þætti á stöðinni Halló Hafnar- fjörður og leikur knattspyrnu í frí- tíma svo fátt eitt sé talið. Algirdas Slapikas frá Litháen: Ánægður með Fé- lag Litháa á Íslandi ALGIRDAS OG KJARTAN ÓLAFSSON Algirdas veltir kreppunni ekki mikið fyrir sér. FRAMHALD AF SÍÐU 28 RACHID BENGUELLA Orðinn öruggari og meiri þátttak- andi í samfélaginu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.