Tíminn - 23.02.1983, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 1983.
Söluskattur
Viöurlög falla á söluskatt fyrir janúarmánuö 1983, hafi hann ekki verið
greiddur í síðasta lagi 25. þ.m..
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern byrjaðan virkan
dag eftir eindaga uns þau eru orðin 20%, en síðan eru viðurlögin 5%
til viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. mars.
Fjármálaráðuneytið, 18. febrúar 1983.
{Dð
W Utboð
Tilboö óskast í tvær loftpressur fyrir Borgarspítalann.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Fríkirkjuvegi 3 Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 29. mars 1983 kl. 11
f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirltjuvegi 3 — Sími 25800
Staða útibússtjóra
Hafrannsóknarstofnunarinnar á Húsavík er laus
til umsóknar.
Háskólamenntun í líffræði æskileg.
Umsóknir sendist forstjóra Hafrannsóknarstofn-
unarinnar Skúlagötu 4 Reykjavík fyrir 15. apríl
n.k.
Frá
í Reykjavík
Hér með er skorað á alla þá, sem enn hafa ekki staðið skil á
skipulagsgjaldi af nýbyggingum í Reykjavík með gjalddaga á árinu
1982, að gera full skil nú þegar til Tollstjórans í Reykjavík,
Tryggvagötu 19, og ekki síðar en einum mánuði eftir dagsetningu
greiðsluáskorunar þessarar. Að öðrum kosti verður krafist nauðung-
arsölu á umræddum nýbyggingum til lúkningar gjaldföllnu skipulags-
gjaldi, ásamt dráttarvöxtum og kostnaði, samkvæmt heimild í lögum
nr. 49 1951, sbr. 35. gr. laga nr. 19 1964.
Reykjavík 17. febrúar 1983.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem glöddu mig á
sjötugsafmælinu með heimsóknum, gjöfum, skeyt-
um eða með öðrum hætti.
Guð blessi ykkur öll
Lifið heil
Kristinn Óiafsson
Hænuvík.
t
Við færum öllum þeim alúðarþakkir, sem veitt hafa okkur hlýhug við
fráfall
Hermanns Guðbrandssonar
delldarstjóra hjá Sjúkrasamlagi Reykjavfkur,
Njorvasundi 37,
og sýnt hafa honum vináttu á Iffsferli hans.
Sérstakar þakkir til Sjúkrasamlags Reýkjavíkur sem veitti honum
sérstaka viðurkenningu fyrir unnin störf. * Ennfremur til lækna og
hjúkrunarfólks gjörgæsludeildar Landakotsspítala og starfsfólks
Blóðbankans.
Oddný Þórarinsdóttir, Jenný Guðbrandsdóttir
Sigríður Hermannsdóttir, Kristján Favre,
Sigrún Favre,
Stefán Hermannsson, Hraf nhildur Gunnarsdóttir
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför
Sigríðar Stefánsdóttur
Sérstakar þakkirtil alls starfsfólks á Dvalarheimilinu Lundi,Hellu.
Ása Guðmundsdóttir Gunnar Guðjónsson
Gyða Guðmundsdóttir Jón Baldvinsson
og barnabörn.
Tollstjóranum
fréttir
■ Hluti þeirra sem unnu að bekkja- og stólaframleiðslunni á vinnuhelginni.
Kennarar,foreldrar og nemendur Digranesskóla:
Smíðuðu um áttatíu
sæti, töfl og spil
■ Sköpunargleðin fékk að njóta sín í föndurstofunni - bæði hjá þeim yngri og
eldri.
■ Um áttatíu ný sæti í anddyri Digra-
nesskóla voru smíðuð af foreldrum,
kennurum og nemendum skólans á
vinnuhelgi sem foreldra- og kennara-
félag Digranesskóla efndi til fyrir
nokkru. Vart er vafi áða þar hafa
sparast miklar fjárhæðir miðað við að
sætin hefðu verið keypt tilbúin.
„Það er gefið mál að kostnaðurinn
er ekki nema brot af því, ef þetta hefði
verið keypt“, sagði Stella Guðmunds-
dóttir, skólastjóri sem við spurðum um
þessa vinnuhelgi. „Það er þó kannski
ekki aðalatriðið að hafa sparað stórfé.
í fyrsta lagi hefðum við aldrei fengið
fjárveitingu fyrir þessu. En það sem ég
tel þó mikilvægast af öllu eru tengslin
milli heimila og skóla. Það er svo
gaman að sjá foreldra og börn koma
hér saman í skólann til að vinna að
einhverju skemmtilegu.
Já, þátttaka var góð og sérstaklega
duglegt fólk sem mætti hér til að vinna,
jafnt konur sem karlar og mikill hópur
nemenda. Unnið var af fullum krafti
frá kl. 9.00 til 18.00 á laugardeginum
og aftur frá kl. 9.00 til 17.00 á
sunnudeginum. Sex vinnustofur voru
settar upp, m.a. föndurstofa fyrir
yngstu börnin og spilastofa ef þau yrðu
KÁIFT i
HVOftU
„Hálft í hvoru”
skemmtir
Héraðsbúum
á morgun
■ Næstkomandi fimmtudagskvöld,
24. febrúar, verður söngskemmtun í
sal Menntaskólans á Egilsstöðum.
Hljómsveitin „Hálft í hvoru" skemmtir
með fjölbreyttum söng og hljóðfæra-
ieik. Hluti sveitarinnar kom á „opna
viku“ menntaskólans sl. vetur og vakti
sú heimsókn mikla hrifningu. Þeir
sem skipa „Hálft í hvoru" eru Gísli
Helgason, Aðalsteinn Ásberg Sigurðs-
son, Eyjólfur Kristjánsson. Ingi Gunn-
ar Jóhannsson og Örvar Aðalsteins-
son.
Nú er fitjað upp á þeirri nýbreytni í
starfi menningarsamtakanna er standa
að samkomuhaldi með öðrum aðilum
til eflingar menningarlífi á Héraði. Það
er von Menntaskólans á Egilsstöðum
og menningarsamtakanna að Héraðs-
búar kunni vel að meta þetta framtak
og fjölmcnni á þessa einstæðu
skemmtun, sem haldin verður í sal
menntaskólans og hefst klukkan 21.00.
(Frá Menningarsainlökum Héraðsbúa
og Menntaskólanum á Egilsstöðum).
leið. 12 ára nemendur sáu síðan um að
smyrja flatbrauð sem þau seldu ásamt
mjólkurvörum", sagði Stella.
Af fyrrefndum 80 sætum eru 56 í
þriggja sæta bekkjum. Miðsætin eru
svo haganlega útbúin að þau eru
ýmisskonar spil og töfl í leiðinni -
skák, milla, Lúdó, slönguspil og svo
framvegis, sem máluð eru á miðspjöld-
in beggja vegna. f kassanum undir
plötunni er síðan annar kassi fyrir
spilapeningana, skákmennina og ann-
að sem til þarf. Hin 24 sætin eru kollar
sem búnir voru til úr pappahólkum frá
Kassagerðinni. Auk stóla og bekkja
voru einnig smíðuð skilrúm til að hólfa
á milli.
Fram til þessa sagði Stella enga
aðstöðu hafa verið fyrir nemendur að
setjast niður í þessu anddyri skólans,
en nú væri það orðið ákaflega notaiegt.
í þennan skóla komi t.d. nemendur
ofan að Vatnsenda sem oft þurfi að
bíða langtímum saman eftir skólabíln-
um, einnig séu nemendur sem koma
t.d. langar leiðir í leikfimitíma og oft
bíði nemendur í hádeginu. Auk þess
kvað Stella skólann ávallt opnaðan
klukkan hálf átta á morgnana. Nú geti
nemendur í slíkum tilvikum haft
eitthvað við að vera meðan þau bfða.
„Já krakkarnir voru greinilega mjög
hrifin af þeirri breytingu sem þarna
varð. T.d. heyrði ég á sunnudeginum
að krakkar voru að ræða um hvenær
mundi verða opnað á mánudags-
morgninum - hvort þau gætu kannski
komið klukkan 7 til þess að byrja að
spila. Þau skilja líka að þama var verið
að gerða eitthvað fyrir þau og finna að
þeim er treyst fyrir því að „ganga
almennilega um og sjá um þessi töfl og
spil sjálf“, sagði Stella.
Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem
unnið hefur verið í slíkri samvinnu í
Digranesskóla. Fyrir jólin í fyrra sagði
Stellta alla bekki hafa verið boðaða til
vinnu tvo laugardag. Þá hafi m.a. verið
saumaðar sessur, sem skreyttar voru
með tauþrykki, til að hafa á gólfinu í
skólastofunum auk ýmislegs annars.
Siðasta vor var svo unnið í lóð skólans
- hún m.a. máluð, útbúin girðing fyrir
græðlinga, settar niður trjáplöntur og
bætt við leiktækjum.
-HEI
■ Með hugviti, lagni og góðum vilja má oft gera skemmtilcga hluti fyrir lítið fé.
Þessir skemmtUegu kollar eru gerðir úr pappahólkum frá Kassagerðinni.
Hólkarnir voru sagaðir niður, pússaðir og málaðir og síðan skreyttu nemendur
þa fjölbreyttum listaverkum með vatnslitum. Að lokum var sniðinn tU svampur
innan í þá og áklæði fest þar ofaná með heftibyssu.