Tíminn - 06.03.1983, Qupperneq 7
SUNNUDAGUR 6. MARS1983
hræðslu eða öðrum slíkum annarlegum
ástæðum látið undan falla að færa þetta
í letur, enda ekki ætlað til birtingar
almenningi eða yfirvöldum.
Ekki varðveist
í munnmælum
En jafnvel þótt gert sé ráð fyrir að
samtíma söguriturum hafi af einhverjum
óskiljanlegum ástæðum láðst að færa
atburðina í letur þá er með öllu óhugs-
andi annað en þeir hefðu haldist í
munnmæium og frásögnum með þjóð-
inni og þannig komið fram hjá síðari
höfundum og sagnariturum, t.d. Espól-
ín, eða þó sérstaklega Jóni Halldórssyni
í Hítardal, einhverjum mesta sagnfræð-
ingi íslendinga fyrr og síðar, en hann
hefur skrifað allmikið um Bjelke og
þ.á.m. um Kópavogsfundinn. Hvorugur
þeirra, né aðrir síðari tíma höfundar,
minnast þess einu orði að Bjelke hafi
beitt íslendinga ofbeldi á Kópavogs-
þingi.
Hafa ber í huga að auk eiðmanna var
mikill fjöldi viðstaddur í Kópavogi þenn-
an dag, sjálfsagt í allt um eða yfir tvö
hundruð manns, og væru það í sannleika
sagt býsn mikil og ef enginn þeirra hefði
orðið var eða heyrt frá sagt ógnunum
þeim og ofbeldisverkum sem þarna áttu
að hafa verið höfð í frammi.
Að mati Sigurðar Ólasonar eru bréf-
sneplar Árna Magnússonar helst til létt-
vægir á metunum gagnvart sönnunar-
þunga ofanrakinna staðreynda.
Til frekari áréttingar vekur hann at-
hygli á fleiri atriðum, m.a. afstöðu Jóns
forseta Sigurðssonar til heimildagildis
þeirra.
Jón forseti taldi ekki
byggjandi á sneplunum
Ganga verður út frá því að Jón forseti
hafi þekkt sneplana, en af einhverjum
ástæðum ekki talið á þeim byggjandi.
Þegar Hannes Þorsteinsson ristjóri „gróf
fram“ þessi gögn á sínum tíma var látið
svo sem um allsendis nýja „uppgötvun"
hafi verið að ræða. En það fær vitanlega
ekki staðist því að gögnin voru í hand-
ritasafni Jóns forseta (JSig. 64 Fol. í
Landsbókasafni) Hvorki í bók sinni Om
Islands Statsretlige Forhold sem mjög
fjallaði um Kópavogseiðana og gildi
þeirra, - né síðari ritum og ritgerðum
minnist Jón einu orði á ofbeldi og
• ógnanir á Kópavogsþingi, né heldur
ber hann það fram nokkru sinni að
eiðarnir hafi verið ógildir fyrir nauðung.
Gagnrýni hans er byggð á allt öðrum
forsendum. Það sem meira er: Jón fer
vinsamlegum orðumum Bjelke höfuðs-
mann sem hann mundi auðvitað ekki
hafa gert ef hann tryði því að sagan á
sneplum Árna Magnússonar væri á
rökum reist.
Hvers vegna kom
Bjelke með hermenn?
Nú vaknar sú spurning hvers vegna
Bjelke höfuðsmaður kom hingað til
lands á herskipi og hvað hann ætlaðist
fyrir með því að setja hermenn á land.
Gat það verið til annars en að sýna
íslendingum í tvo heimana, jafnvei þótt
beinar ógnanir hafi ekki verið hafðar í
frammi?
Fyrst er til þess að taka að vitaskuld
hlaut Bjelke að ferðast á herskipi til
landsins, hann var yfirflotaforingi ríkis-
ins og helsti trúnaðarmaður konungs.
Annar farkostur hefði ekki sómt tign
hans og embætti. I annan stað er þess að
geta að venja var og er enn að slíkir
yfirmenn hafi með sér lífvörð eða annað
viðeigandi fygldarlið við opinber tæki-
færi til þess að auglýsa tign sína og veldi,
og oft er þá skothríð viðhöfð til hátíðar-
brigða. Að sjálfsögðu þarf slíkt engan
veginn að standa í sambandi við ógnun
eða ofbeldisfyrirætlanir. í þessu tilviki
liggur heldur ekkert fyrir um það að
aðrir hermenn hafi verið til staðar við
Kópavogsþingstað en þeir sem sýsluðu
um fallbyssur og tilheyrandi skothríð, og
máttu þingmenn vita að það var í
viðhafnarskyni en ekki ofbeldis. Ekki
verður heldur séð af heimildum að
skothríðin hafi komið illa við íslendinga.
Yeisla í kjölfar ofbeldis?
Þess er og að geta að Bjelke hafði haft
mikla aðdrætti til veisluhalda fyrir þing-
Éigum fyrirliggjandi
CAV 12 volta startari:
Bedford
Perkins
L. Rover D.
M.Ferguson
Zetor
Ursusofl.
CAV 24 volta startari:
Perkings
Scania
JCB o.fl.
Lucas 12 volta startari:
M. Ferguson
Ford Tractor ofl.
CAV 24 volta alternator:
35 amper einangruð jörð
65 amper einangruð jörð
Butec 24 volta alternator:
55 ampers einangruð jörð
Einnig startarar og alternatorar fyrir allar
gerðir af japönskum og enskum bifreiðum.
Þyrill s.f.
Hverfisgötu 84
101 Reykjavík
Sími 29080
■ - Árni Magnússon handritasafnari. Enda þótt bréfsneplarnir um ofbeldishótanir
í Kópavogi 1662 kunni að vera með hans hendi er ekki víst að treysti megi frásögninni.
NÝIR KAUPENDUR
menn sem ekki kemur vel heim við það
að honum hafi verið ofbeldi í huga. í
Fitjaannál segir: „Síðan var þeim öllum
(þ.e. fundarmönnum) haldin ypparleg
veisla; stóð langt fram á nótt með
trómetum, fíólum og bumbum og
skotum af feldstykkjunum 3 í senn, og
þar til með skotum svarað af kóngsins
skipi sem lá á Seylunni. Þá gengu rachett-
ur og fýrverk af um nóttina."
Er það nú alls kostar trúlegt að svo
stoltir menn og vandir að virðingu sinni
sem Árni lögmaður Oddsson og Brynj-
ólfur biskup Sveinsson hefðu haft geð í
sér til þess að sitja viðhafnarveislu hjá
Bjelke eftir að hafa á sama degi sætt af
honum ógnunum og auðmýkingu af því
tagi sem fram er haldið? Og með þeim
aðrir leiðtogar íslendinga, Gísli Þorláks-
son biskup, Vísi-Gísli Magnússon, Hall-
grímur Pétursson og yfirleitt allur blómi
og kjarni landsmanna á þeirri öld?
Er mark takandi á Árna?
Nú munu menn væntanlega vitna til
Árna Magnússonar prófessors og hand-
ritasafnara sem ábyrgðarmanns þessarar
sögu. „Annar eins maður og Oliver
Lodge fer ekki með neina lygi“, segir
þar. En jafnvel þótt bréfsneplarnir séu
með hans rithönd (ef svo er - það er alis
ekki fullsannað) það er hvort tveggja að
hann gat ekkert um þessa hluti borið af
eigin raun, og hinsvegar allt mjög óljóst
eða jafnvel grunsamlegt um heimildir
hans eða heimildarmenn. Sjálfur virðist
hann auk þess ekki hafa lagt mikið upp
úr þessu, enda getur hann þessarar sögu
hvergi í ritum sínum. Eða hvers vegna
hefur hann látið bréfsnepla þessa verða
viðskila öðrum samtíning sínum um
Bessastaðamenn? Annars er Árni Magn-
ússon ekki ýkja umtalsfrómur í skrifum
sínum, og aðdróttanir í garð Bjelke um
sjóðþurrð í einu rita hans eru nú úr lausu
lofti gripnar.
Ríkjandi söguskýring
þarfnast endurskoðunar
Beinar heimildir um Kópavogsfund
eru af skornum skammti, og verður því
mjög að býggja á ágiskunum og líkum
þegar saga hans er rakin. Staðhæfingar
manna eins og Jóns Dúasonar og Jóns
Þorlákssonar fyrr á öldinni um að Danir
hafi falsað og stungið undan skjölum
varðandi Kópavogsfund eru ekki á
rökum reistar, enda nefna þeir ekkert
máli sínu til stuðnings. Þau gögn sem til
eru varðveitt um fundinn benda til þess
að hann hafi farið friðsamlega fram. Hið
eina sem gengur í aðra átt eru sneplarnir
sem kenndir eru við Árna Magnússon en
þegar saga þeirra er höfð í huga og hitt
að um tilurð þeirra veit enginn neitt,
verður að vísa þeim á bug sem heimild-
um í þessu máli.
Niðurstaðan er sú að hin ríkjandi sögu-
skýring Kópavogsfundarins 1662 þarfn-
ist endurskoðunar. Sigurður Ólason hef-
ur leitt að því rök að allt hafi þar farið
fram með skaplegum friði og góðu
samkomulagi, og menn skilið sáttir að
kalla, enda hafi fslendingum tekist að
bægja hættunni frá og tryggja það að
Alþingi og innlent þjóðfélagsvald héldist
áfram, svo sem líka varð reyndin.
-GM
hringiðu#
BLADIÐ q
KEMUR UM HÆ
SÍMI 86300
BÆNDUR
Það er kraftur í kögglunum í íslenska kjarnfóðrinu
Verð: Graskögglar kr. 5.300.- tonnið
Hestakögglar kr. 4.600.-tonnið
Við tökum þátt í flutningskostnaði
þegar vegalengd frá verksmiðju
til kaupanda er yfir 50 km.
•
Leitið nánari upplýsinga
í verksmiðjunum.
ú
J'.
/
l\
GRASKÖGGLA- FÓÐUR & FR F STÓRÓLFSVALLAR
VERKSYIIÐJAN GÚNNARSHOLH BÚIÐ
FLATEY Sími 99-5089. Hvolhrcppi.
Mvrurhrcppi. Sími 99-8163.
Sími 97-8592.
Á / ' A ,7\v