Tíminn - 16.04.1983, Blaðsíða 10
10
S« liili
LA.UGARDAGUR 16. APRIL 1983
LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1983
RULLUBINDIVELAR
Nýjung í heyverkun!
WELGER rúllubindivélarnar eru meö stálvölsum í
staö bélta áöur og henta því nú jafnt fyrir vothey sem
þurrhey. Þéttleiki rúllanna er stillanlegur eftir því hvort
um votheysverkun eöa þurrheysverkun er aö ræða.
Binding rúllanna er sjálfvirk.
WELGER rúllubindivélarnar fást í tveim stærðum:
RP-12 með þvermál rúll 1,20m; og RP-15 með þver-
mál rúlla 1,55m. Breidd á báðum rOllum er 1,20m.
SÍMI BIBOO-ÁRMÚLAH
Íulllz
cmum
álaHýut
f
Það má cetíð
treysta
ÍSSKAPA OG FRYSTIKISTU
VIÐGERÐIR
Breytum gömlum ísskápum
i frystiskápa.
Góð þjónusta.
SiraslvBrk
REYKJAViKURVEGI 25 Há'fnarfirðí sími 50473
útibú að Mjölnisholti 14 Reykjavík.
íþróttir
umsjón Samúel Örn Erlingsson
SVÍAR FORU ILU
MEÐ fSLENDINGA
— sóknarleikurinn enn í molum hjá íslendingum
■ Það var alger rassskelling í Karlstad í
gærkvöld, þar sem áttust við Svíar og
Islendingar á Norðurlandamótinu í körfu-
knattlcik. Svíarnir voru mun sterkari allan
tímann, og sigruðu af stöku öryggi 96-50.1
hálfleik var staðan 58-23.
Varnarleikurinn hjá íslendingum gekk
ekki nógu vel upp í þessum leik, og
sóknarleikurinn var jafnbágborinn og gegn
Finnum í fyrradag.
Svíar eru líklega með sterkasta liðið á
NM nú. Þrír þeirra eru risar vexti, svokall-
aðir 7 feta menn. fslendingum gekk illa að
ráða við þá og þegar líða tók á leikinn
týndust íslendingarnir útaf með 5 villur.
Axel Nikulásson fór fyrstur, þegar 3 m ínút-
ur voru liðnar af síðari hálfleik. Síðan fór
Jón Sigurðsson þegar 13 mín. voru af síðari
hálfleik, og Flosi Sigurðsson þegar 15 mín.
voru liðnar. Þorvaldur Geirsson rak lest-
ina, fór útaf þegar 17 mínútur voru liðnar
af síðari hálfleik.
Stigaskorunin hjá íslendingum var jöfn
að þessu sinni, Ríkharður Hrafnkelsson,
Torfi Magnússon, Hreinn Þorkelsson, Flosi
Sigurðsson og Þorvaldur Geirsson skoruðu
allir 7 stig, Jón Sig. 6, Axel 5 og Jón Kr. og
Kristján 2 hvor. Stighæstir maður Svía
skoraði 18 stig.
Danir náðu að sigra Norðmenn í hinum
leiknum í gær, 75-74. Leikursávarhnífjafn
og spennandi allan tímann, og 40-37 í
STODU SIG VEL
GEGN FINNUM
— Varnarleikurinn mjög góður,
en hittnin brást
■ Kristján Ágústsson var bestur
Islendinga gegn Finnum í fyrradag.
■ „Strákarnir áttu góðan leik, varnar-
leikurinn var eins og best verður á kosið,
en sóknarleikurinn var ekki í lagi, strákar-
nir hittu illa, og einnig vorum við óheppnir
með dómarana", saði Jim Dooley lands-
liðsþjálfari í körfuknattleik í sámtali við
Tímann í gær, en íslenska landsliðið tapaði
fyrir því finnska með 49 stigum gegn 65 í
iandsleik þjóðanna í fyrrakvöld. „Þetta var
í heild góður leikur“, sagði Dooley, „það
er oft einblínt á stigaskorunina, þegar
leikir eru rnetnir, en við lékum vel að öllu
leyti, nemaviðhittumilla. Það erlíka hægt
að hitta vel og leika illa"
„Kristján Ágústsson lék mjög vel í
þessum leik, mjög vel, og það gerði
Þorvaldur Geirsson líka, en það léku allir
vel í vörninni, en sóknin brast.“
íslenska liðið Ienti miklum villuvand-
ræðum í leiknum, og fóru Flosi og Torfi
báðir útaf með 5 villur. Axel Nikulásson
gat aðeins leikið 17 mínútur í leiknum
vegna villuvandræða. íslenska liðið var
mjög óheppið með dómara í þessum leik,
en á mótinu er dómaranámskeið á vegum
FIBA. „Þeir dæmdu a.m.k. 15 sinnum
skref á okkur", sagði Dooley, „og það
gerði okkur mjög erfitt fyrir“.
Kristján Ágústsson var stigahæstur ís-
lensku leikmannanna með 10 stig. Axel,
Ríkhaður, Jón Kr., Flosi og Þorvaldur
voru allir með 6 stig, Torfi 3, Jón Sig 4,
Valur 2.
„Finnska liðið er mjög gott lið“, sagði
Jim Dooley, „þeir ráða yfir miklum hraða,
og skjóta nokkuð vel, en sænska liðið er
mjög sterkt einnig þeir eru með þrjá 7 feta
menn (um 2,10 m.).“
Svíar unnu Norðmenn í hinum leiknum
í fyrrakvöld 91-76.
hálfleik Dönum íhag. Norðmenn klikkuðu
á tveimur vítaskotum í lokin þegar þeir
höfðu yfir 74-73, og Danir skoruðu síðustu
körfuna 75-74.
Léjegur aðbúnaður
„Ég var á þriggja tíma skammarfundi
með þessum Svíum í dag“, sagði Sigurður
Helgason, annar fararstjóra íslenska lands-
liðsins á Polar Cup í samtali í gær. „Það er
ekki nóg með að þeir hafi látið okkur hafa
afar lélega aðstöðu til að sofa í, heldur er
allt skipulag hér í molum. Það hefur farið
mestur tíminn í að snúast í bílferðum milli
staða, komumst seint heim á kvöldin eftir
leiki, og höfum þurft að fara of snemma af
stað á morgnana. Menn hafa ekki náð
nægum svefni, hvað þá annað."
„Það er fyrst nú í kvöld sem við búum
við almennilegar aðstæður, og þetta van-
gefna skipulag hefur farið illa í okkur. En
það er vonandi að þetta fari að lagast með
sóknarleikinn, þetta hefur verið fremur
slæmt að því leyti. Leikurinn gegn Finnum
var mjög góður, en gegn Svíum ekki nærri
nógu góður.“
Islensku landsliðsmennirnir
í körf uknattleik: _
VORU ATTAI
HERBERGI!
— fyrstu tvær næturnar
á NM í Karlstad
JLitlíi bikar-
keppnin hefst
í dae
■ Litla Bikarkeppnin í knattspyrnu
hefst í dag. Á Vallargerðisvelli í Kópa-
vogi leika Breiðablik og Keflavík, og á
Haukavellinum í Hafnarfirði lcika
Haukar og Akranes. Báðir leikirnir
hcfjast klukkan 14.00, og B-lið félag-
anna leika strax á eftir.
■ Þegar landsliðsmennirnir okkar í
körfuknattleik komu til Karlstad í Svíþjóð
í fyrradag beið þeirra frekar nöturleg
aðkoma. Þeir áttu að gista á farfuglaheim-
ili, í einu 8 ntanna herbergi, og einu 6
manna h erbergi, þótti þeim það allóupplíf-
gandi, þar eð þeir höfðu verið á ferðalagi
mest allan daginn, og þurftu svo sannarlega
á hvfld að halda fyrir keppnina.
Afsakanir Svíanna voru heldur bágborn-
ar, þeir sögðu að liðin hefðu til kynnt
þátttöku sína svo seint, sum hver, þ.á.m.
íslendingar, að stuttur fyrirvari hefði verið
til að finna gestunum sæmilegt húsnæði.
„En það eru nú frekar léttvægar afsakanir,
allar Norðurlandaþjóðirnar hafa tekið þátt
í þessu Norðurlandamóti frá upphafi",
sagði Einar Ólafsson aðstoðarþjálfari Jims
Dooley.
„Ferðalagið hingað var mjög erfitt",
sagði Einar. „Við lögðum af stað klukkan
05.30 um morgun í fyrradag, og flugum til
Oslóar. Þegar þangað var komið tók við
rútuferð hingað til Karlstad, og það tók
ríflega fjóra tíma. Mönnum fannst það nú
ekki beint þægilegt að vera svo settir 8
saman í herbergi eftir þetta allt saman.“
íslensku landsliðsmennirnir fluttu í
gærmorgun inn á fyrsta flokks hótel í
Krlstad, og hafa það þar mjög gott.
Tvö jafntefli
■ Tveir leikir voru í Reykjavíkurmót-
inu í knattspyrnu í vikunni. Á miðviku-
dag gerðu Ármann og Fram markalaust
jafntefli, og í fyrrakvöld gerðu KR og
Þróttur jafntefli 1-1. Næsti leikur er í
dag klukkan 16.00, þá leika Valur og
Víkingur.
JSanna náði
fóðum stisum
i
ágætlega undanfarna viku á skíðamótum
Norðurlandamótsins á skíðum. Hún
varð í 19. sæti í svigi í Rankatunturii í
Finnlandi um síðustu helgi, 29. sæti í
Pyhatunturii í stórsvigi og i 24. sæti
daginn eftir, einnig í stórsvigi. Nanna
hefur náð rúmum 73 stigum FIS, en þessi
stig gefa betri rásnúmer. Tinna Trausta-
dóttir hefur einnig staðið sig þokkalega,
hún varð no. 22 í Rankatunturii, og 39.
í annarri keppni í Pyhátunturii, en
keyrði út úr brautinni í hinni.
Piltalandsiiðið hefur einnig verið við
keppni, og kepþti í þeim mikla skíðabæ
Tárnaby í vikunni. Björg Víkingsson
varð þar í 31. sæti, í svigi, Guðmundur
Jóhannsson varð 35. og Elías Bjarnason
varð 42. Árni Þór Árnason, Olafur
Harðarson og Ilaníel Hilmarsson féllu
allir. Það var Svíinn Bengt Fjállberg sem
sigraði í sviginu.
I stórsviginu náði Ámi Þór Árnason
besta árangrinum, í 34. sæti, Guðmund-
ur varð 42., Björn 45., Elías 51. og
Ólafur 53. Daníel féll.
FRAMMISTABA BJARNA
PRÝÐUfG f H0UANDI
— komst í 8 manna úrslit. Keppir í Englandi um
næstu helgi
■ Bjarni Friðriksson náði stórgóðum ár-
angri á opna hollenska meistaramótinu i
júdó, sem haldið var um síðustu helgi.
Bjarni komst í 8 manna úrslit í sínum
þyngdarflokki, en í flokknum voru 45
keppendur, allir sterkustu júdómenn Evr-
ópu, þar með talinni Austur Evrópu, og
auk þess kcppcndur frá Bandaríkjunum og
Kanada. Tveir aðrir Islendingar tóku þátt
í þessari keppni, Níels Hermannsson sem
einnig komst í úrslitakeppnina, og Kol-
beinn Gíslason. Opna hollenska meistara-
mótið er sterkasta júdómót Evrópu ásamt
Opna breska meistaramótinu, en það er
haldið um næstu helgi, og þangað fara 5
íslenskir keppendur.
Bjami Friðriksson keppti í léttþungavigt.
hefur þú s
makkað
-þáðer
í ^uðu pökkunum
Kaffibrennsla Akureyrar hf
-95 kg, en þar voru 45 keppendur í 12
riðlum. Bjarni komst áfram með fullnaðar-
sigri, Ippon, á Harbs frá V-Þýskalandi og
Rosmaien frá Hollandi og sigraði í síðan
Ungverjann Istvan Szepesi sem er landsliðs
maður, á Ippon. í átta manna úrslitum'
mætti Bjarni hinum fræga Neureuter frá V
Þýskalandi, en sá er fyrrum Evrópumeistari
og margfaldur verðlaunahafi á heimsmeist-
ara og ólympíumótum. Eftir jafna og
spennandi viðureign fyrir hverja báðir
fcngu jafnmörg stig var Þjóðverjanum
dæmdur sigur, og Bjarni fallinn úr keppn-
inni. Robert Van De Valle frá Belgíu
sigraði síðan í þessum flokki, en Gurin frá
SQvétríkjunum varð annar.
Níels Hermannsson keppti í + 70 kg
flokki. Þar voru keppendur 67. Níels varð
annar í sínum riðli eftir sigur á tveimur
Hollendingum, Thijssen og Ned, en fékk
þriðja Hollehdinginn í úrsiitakeppninni,
van Neest, og tapaði fyrir honum. Sá
sigraði í þessum flokki.
Kolbeinn Gíslason keppti i þungavigt á
mótinu, og tapaði öllum sínum viðureign-
um í riðlinum, tveimur naumlega. Hann
komst ekki í úrslit.
Um næstu helgi keppa að minnsta kosti
6 íslenskir júdómenn á opna breska meist-
aramótinu í júdó, Bjarni, Kolbeinn, Níels,
Halldór Guðbjörnsson, Karl Erlendsson
íslandsmeistari í 65 kg flokki og Gísli
Wiium. Ómar Sigurðsson úr Keflavík er
meiddur og kemst ekki, en vera má að
einhver fari í stað hans.
■ Bjarni Friöriksson er orðinn mjög
sterkur júdómaður á alþjóðamælikvarða.
Caterpillar
varahlutir til sölu, bæöi i
jarðýtur, veghefla, báta-
vélar o.fl.
Upplýsingar í síma32101.
•H KOMATSU
Vökvagröfur
íöllverk
Við getum nú afgreitt með
örskömmum fyrirvara 3 gerðir af
gröfum á einstöku verði.
Gerð Þyngd kg Hestöfl Skóflustærð Verð
PC-120 11.500 90 v/2400sn. 0.55 m3 1.647.200
PC-200 19.500 105 v/2350 sn. 0.9 m3 2.449.700
PC-220 23.000 136 v/2350sn. 1.1 m3 3.268.800
gengisskr. 6.4.'83
Allar gerðir eru með vönduðu hljóð- og hitaeinangruðu öryggishúsi,
undirvagn er mjög vandaður og vel varinn, og beltabúnaðurinn sams-
konar og á KOMATSU jaróýtum og því sérstaklega sterkbyggður.
Komatsu vinnuvélar hafa nú þegar sannað ágæti
sitt við fjölbreyttar aðstæður á íslandi.
Fullkomin varahluta og viðhaldsþjónusta.
Hafið samband við sölumenn okkar sem veita fús-
lega allar nánari upplýsingar.
Aukin hagræðing og minni til-
kostnaður með komatsu
•HKOMATSU á Islandi
BÍLABORG HF.
Véladeild Smiöshöföa 23. Sími: 81299