Tíminn - 01.05.1983, Síða 7
SUNNUDAGUR 1. MAÍ1983
&nmm
7
■ Anna Guðrún Líndal hefur saumað búninga fyrir Nemendaleikhúsið nú í vetur,
„Það er afskaplega óhentugt", segir
Helgi, „Þetta er eins og krufning, ef til
vill erum við að kryfja okkar eigin
tilveru. Þetta er ákaflega óþægilegur
höfundur, hann fer inn um naflann á
manni og ekkert út aftur.“
En hann er víst einn um þá skoðun að
Sigurður sé beinlínis óþægilegur að
minnsta kosti segir enginn neitt annað
upphátt en Eyþór bætti við: „Það kemur
alveg heim og saman við okkar líf um
þessar mundir, við stöndum líka við
þröskuld,"
- En hvernig stendur leikmynda-
teiknarinn að sínu verki?
„Leikmyndin varð fremur til við borð-
umræður á Hótel Borg ’82 en eftir
handriti ’83, þannig að sú vinna sem þar
fór af stað varð að veruleika. Annars er
þetta líka NÚ fyrir mig. Þetta er sú
Reykjavík og sá kaldranaleiki sem blasir
við ungu fólki í dag. Leikmyndin er
enginn gylltur rammi enda er unglingur-
inn ídag rammaður inn í steinsteypu."
- Og hvað segir leikstjórinn um vinn-
una að þessu verkefni?
„Þetta er mjög mikil og mjög
skemmtileg vinna. Reyndar er þetta í
þriðja sinn sem ég vinn með Nemenda-
leikhúsinu og það er alveg sér á báti og
mjög gaman. I Nemendaleikhúsi fær
maður nefniléga éiná tækifærið til þess að
vinna með atvinnufólki sem þö er. ekki í
vinnunni. Það býður upp á allt aðra
möguleika en maður hefur annars
staðar.
Annars vinn ég mitt verk útfrá Sigurði,
leikstjórinn getur ekki gert neitt annað
en það sem hann finnur hverju sinni.
Leikstjórinn er sá veggur sem tekur við
boltanum - hann er ekki nein maskína
sem sprautar út úr sér boltum."
„Hann er eins og markmaður sem
gætir þess að maður skjóti ekki
framhjá," segir Kristján.
- En svo við víkjum að aðalspurning-
unni: er þetta skemmtilegt leikrit?
„Þetta er hundleiðinlegt helvíti," segir
höfundurinn Sigurður Pálsson. „Áhorf-
endur eru hvattir til þess að forðast
Lindarbæ þvf þeir geta drepist úr leiðind-
um ef þeir hætta sér inn. Og ekki má
gleyma því að það bíður sérhönnuð
meðferð þeirra sem ætla að ganga út af
sýningunni. Þetta er líka stórhættulegt
verk, það fór manneskja úr kjálkaliðn-
um hér um daginn. Fólk getur sprungið af
harmi og farið úr kjálkalið af hlátri.
Fleiri hættur bíða þeirra sem hætta sér
hingað en við látum ekki fleiri getið að
sinni.“
- Hvað tekur svo við hjá leikurunum
að loknum sýningum á Miðjarðarför-
inni?
Og nú flugu svörin úr öllum áttum:
„Framtíðin", „reyna að fóta sig á hinum
hála ís áður en manni verður sturtað
niður“, „við vitum ekkert hvað tekur
við“, „að útskrifast er eins og að fæðast
upp á nýtt“, og að lokum: „Ætli það
verði ekki Holiywood eða Broadway -
'líklega sem barþjónn."
Og nú þótti leikstjóranum nóg skrafað
og kvaddi fólk til upphitunar en ég rölti
fram í salinn til að forvitnast sí sona um
sviðið og annan útbúnað.
Sviðsmyndin markast mjög af stein-
steypunni. Sviðið er steypt í óreglulegt
form sem hallar niður á við - þar sem
blasir við nakin og oddhvöss steypan.
Höfundur Ieikritsins er mjög ánægður
með sviðið: „Sviðið er skúlptúr sem
breytir mannslíkamanum í skúlptúr. Það
er ekki hægt að slappa af á þessu sviði
maður verður að mynda mótvægi við
það - líkaminn verður að taka afstöðu.
til þess að hann falli ekki um koll."
Ég fékk að horfa á rennsli svokallað,
það vantaði nokkur leikhljóð og búnin-
garnir voru ekki alveg tilbúnir, en annars
var þetta allt að skríða saman. Ef ég væri
leiklistargagnrýnandi myndi ég segja:
„áleitið nútímaverk", „gefur raun-
sanna mynd af lífi ungs fólks-’í kaldrifj-
uðum veruleika í skugga kjarnorku-
sprengjunnar“, „stefnir saman skynjun
og skilningi“ ... en þar sem ég er
venjulegur leikhúsgestursegi ég: gaman,
gaman - in a way...
- sbj.
afrilmr
ftwmfmfmr
20 dagar fyrir aðeins kr. 11.800
Innifalið: Flug, gisting, rútuíerðir, hálít íœði í rútuíerðum
og íslensk íararstjórn.
í samvinnu við Alþýðuorloí og Dansk Folke-Ferie efnir Sam-
vinnuíerðir-Landsýn til þriggja einkar hagstœðra skemmti-
ferða til Danmerkur í sumar. Með góðum samningum, m.a.
um skipti á orloíshúsum, heíur tekist að halda verði í algjöru
lágmarki þannig að einsdœmi hlýiur að teljast.
í þessum sérlega ódýru Danmerkurferðum, sem einkum eru
skipulagöar með aðildaríélaga í huga, sameinum við kosti
góðrar rútuferðar og ánœgjulegrar dvalar í sumarhúsi.
Við dveljumst alls í 9 daga í notalegum sumarhúsum þar
sem aóstaða öll er eins og best verður á kosið. Þar skipu-
leggjum vió leiki, kvöldvökur og skemmtanir, bregðum okkur
1 stuttar gönguíerðir eða heimsœkjum nálœga merkisstaði
og njótum liísins ríkulega í gullíallegu umhverti.
í 11 daga rútuferðum kynnumst við síðan nánar danskri
náttúru og einlœgri gestrisni, komum víða við á Jótlandi og
Sjálandi og gerum ógleymanlega úttekt á danskri matar-
gerðarlist.
íslenskur leiðsögumaður verður feróalöngum að sjálfsögðu
til trausts og halds í öllum lerðunum.
Bókanir fara fram á skrifstoíu Samvinnuferða-Landsýnar i
Reykjavík og hjá umboðsmönnum um allt land.
IViðíramlengjummoguleUcann
tram til
áaðildarfélagsatslœ«i|
1.ium
ílugtar innanlands.
Barnaafsláttur kr. 1.500
fyrir börn 2-11 ára.
1. ferð 11. júní-30. júní
2. ferð 1. júlí-20. júlí
3. ferð 22. júlí-11. ágúst
Sjáumst í góðri
Danmerkurferð
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
Frá Tónlistar-
skólanum í
Reykjavík
Inntökupróf í tónmenntakennaradeild skólans
veröurmánudaginn 16. maín.k. Umsóknarfrestur
er til 10. maí. Umsóknareyöublöð eru afhent á
skrifstofu skólans og þar eru einnig gefnar nánari
uppiýsingar um prófkröfur og nám í deildinni.
Skólastjóri
i
ALLIR ÞURFA
AÐ ÞBKKJA
MERKIN!
þú sérb
þau i
símaskránni
JjggERDAR }