Tíminn - 05.07.1983, Síða 4

Tíminn - 05.07.1983, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1983 ORION Kjarnaborun Tökum úr steyptum veggjum fyrir hurðir, loftræstingu, glugga, og ýmisskonar lagnir, 2", 3", 4", 5", 6" og T' borar. HLJOÐLÁTT OG RYKLAUST. Fjarlægum múrbrotið, önnumst ísetningar hurða og glugga ef óskað er. Hvert á land sem er. Skjót og góð þjónusta. Kjárnaborun sf. Símar 38203-33882 Þjónusta fagmanna Leigjum út með mönnum, trausta og lipra körfubíla, sem hægt er aS koma fyrir á hvaða vinnusvæði sem er. Mjög hagstætt verð. Hringið og leitið upplýsinga. —— MURAFL hf. Sími 36022 pkiymobll pkiufnebll 'vifííiwir •in ö ifí 1 W' Úrvalið af leikföngum fyrir alla krakka á öllum aldri. Póstsendum LEIKFANGAVERZLUNIN J0J0 AUSTURSTRÆTI8 - SÍM113707 fréttir ■ Bifröst í Borgarfirði. Bifröst í Borgarfirði á ný rekin sem hótel ■ Ferðaskrifstofan Samvinnuferðir- Landsýn hefur tekið við rekstri Bifrast- ar í Borgarfirði og mun reka staðinn hér eftir sem Hótel Bifröst. U ndanfarin ár hefur verið þar orlofs- heimili og gestir dvalið þar frá einni viku og upp í þrjár. Nú geta ferðamenn hins vegar gist þar eina nótt, yfir helgi eða þá í nokkrar vikur. Ef gist er meira en þrjár nætur er veittur 30% afsláttur. Herbergi eru 31, eins tveggja og þriggja manna og auk þess svefnpoka- pláss í skólastofum. Gufubað og bóka- safn stendur gestum einnig opið. Á hótelinu er matsalur með vönduð- um matseðli og vínveitingum og þang- að eru allir ferðamenn velkomnir hvort sem þeir eru hótelgestir eða eiga leið fram hjá. Þá ergóð aðstaða til að halda ráðstefnur og aðrar hópsamkomur á hótelinu. Hótelstjóri á Hótel Bifröst er Auður Ingólfsdóttir. Póst & simamálastofnunin: Aukin þjónusta við dreifbýlið Bæjarráð Sauðárkróks: Starf- semi Olíu- félags- ins víki frá nú- verandi stað ■ Bæjarrráð Sauðárkróks kom saman þann 18. júní s.l. til að ræða lóðamál Olíufélagsins h/f. Rætt var um aðstöðu Olíufélagsins við Ábæ og samþykkt að leyfa bensínsölu þar áfram en að þvottaplan víki af þeim stað þar sem það er nú. Taldi Bæjarráð að framtíðarstaðfélagsins væri best borgið á lóð sunnan Tjarnar- brautar, austan Skagfirðingabrautar. Bæjarráð kom síðan aftur til fund- ar þann 20. júní og voru þá einnig mættir til viðræðna forráðamenn Olíufélagsins um lóðamál félagsins. Þar lögðu þeir fram eftirfarandi samkomulagsgrundvöll sem varsam- þykktur: „Að olíufélagið fái úthlutað lóð sunnan Tjarnarbrautar austan Skag- firðingabrautar og sjái bærinn um jarðvegsskipti á allri lóðinni og setji lóðina í rétta hæð...Abær fái að standa næstu 5 ár og heimilað verði að byggja við Ábæ u.þ.b. 36 fer- metra. Pá verði heimilað að gera lítið þvottaplan sunnan Ábæjar til bráða- birgða sent notist þar til væntanleg lóð verður byggingarhæf. Olíufélagið verði flutt nteð alla sína starfsemi á nýju lóðina í júlí 1988. Gatnagerðar- og byggingaleyfisgjöld verði einungis greidd af því byggingamagni á nýrri lóð sem er umfram byggingamagn á gömlu lóðinni. Þá mun Olíufélagið ekki gera kröfur um skaðabætur vegna flutninganna. -ÞB ■ Á þessu ári er fyrirhugað að skipta út 629 handvirkum símum á vegum póst- og símamálastofnunarinnar. Samkvæmt fjárlögum fyrir árið 1983 verður unnið við að koma þessuni símum í gagnið víða í dreifbýli landsins. í Landbroti verður lagður jarð- strengur frá syðsta bæ þar og á alla bæi í hreppunum. í Þverárhlíð og Stafholts- : tungum i Mýrarsýslu verða lagðir jarðstrcngir til allra bæja í þessum hreppum sem ekki hafa sjálfvirkan síma. Frá Arnarstapa verður lagður jarð- sími vestur í Miklaholtshrepp, þarsem sett verður upp ný 100 númera sjálfvirk símstöð. Þá er áætlað að skipta út símstöðinni í Súðavík og setja þar upp 200 númera stöð og tengja alla síma við ísafjarðardjúp innan Súðavíkur við stöðina. 1 Vesturhópi verður lagður jarðstrcngur á alla bay og settir verða upp fjölsímar frá Hvammstanga á tvo staði á svæðinu og verða allir símar ■ Slökkvilið Eyrarbakka hefur eign- ast nýjan og fullkominn slökkviliðsbíl. Er hann af Bedford-gerð með tilheyr- andi útbúnaði og dælum, auk þess sem töluverður fjöldi varahluta fylgdi. Tekið var á móti bílnum með mikilli viðhöfn og blöktu fánar við hún í bænum. Bíll ogdælurvoru prófaðarog tengdir við símstöðina þar. í Lýting- staðahreppi og Akrahreppí í Skaga- firði verða lagðir jarðstrengir frá sím- stöðinni í Varmahlíð um þessa hreppa og eiga allir bæir á svæðinu að fá sjálfvirkt samband við Varmahlíð. í Saurbæjarhreppi í Eyjafirði verða lagðir jarðstrengir um alla sveitina og verður öllum handvirkum símum þar skipt út. í Mývatnssveit verður settur upp 12 rása fjölsími og línukonsentrator á streng, sem búið er að leggja milli Reykjavíkur og Skútustaða.. í Valla- hreppi í S.-Múl verða lagðir strengir frá Egilsstöðum að Hallormsstað og að Geirólfsstöðum í Skriðdal. Allir not- endur í Vallahreppi fá sjálfvirkan síma en handvirkir símar eru þar nú um 60. í Beruneshreppi í S.-Múl, verður sett upp radíósamband frá Djúpavogi yfir á Berufjarðarströnd, og þaðan lagðir jarðstrengir á bæina. í hreppunum koma allir bæir til með að hafa sjáli'- virkan síma. -ÞB slökkviliðsæfing var haldin. Tækin reyndust í alla staði vel og er dæla bifreiðarinnar mjög kraftmikil. Einnig var látið vel af aksturseiginleikum bílsins. Slökkviliðsstjóri á Eyrarbakka er Gísli Sigurðsson. - ÞB Eyrbekkingar eignast nýjan slökkviliðsbíl

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.