Tíminn - 09.07.1983, Page 1
Fimmti flokkur ÍK með 61 mark í 5 leikjum! — Bls. 12—13
Bla 1 ð 1 Tvö blöð í dag
Helgin 9.-10. júlí 1983 156. tölublað - 67. árgangur
Fyrirhugaðar framkvæmdir í Helguvík og við flugstöð á Keflavíkur-
flugvelli farnar að segja til sfn?
FASTEIGNIR A KEFLAVIKUR-
SVÆÐINU HÆKKA (VERDI
■ Eftirspurn eftir kaupum á
íbúðum í Keflavík og nágrenni
hefur aukist nú undanfarið en
framboðið hins vegna minnkað,
sem leiðir því til verðhækkunar.
Keflvíkingar halda nefnilega nú
að sér höndum með sölu þar
sem það liggur í loftinu á Suður-
nesjum að íbúðaverð muni enn
hækka þar á næstunni, að því er
fram kom í samtali við fasteigna-
sala þar suður frá. Kvað hann
þetta töluverða breytingu frá því
sem þeir eigi að venjast, þar sem
sumarmánuðirnir hafi verið
heldur dauðir sölumánuðir.
Fyrirspurnirnar um íbúðir þar
syðra berast víða að, af höfuð-
borgarsvæðinu og landsbyggð-
inni ekki síst frá byggingar-
mönnum á Norðurlandi. Margir
þeirra hafa á orði í leiðinni:
„Verður ekki farið að byrja á
flugstöðinni". Sem dæmi um
íbúðaverð var okkur sagt að 3ja
herbergja íbúðir sem kostuðu
um 1.200 þús. í Reykjavík færu
á um 700-800 þús. í Keflavík.
Nýlegar íbúðir í blokkum væru
nú að skríða upp í 900-1.000
þúsund krónur.
Sveitarstjórnarmaður sem við
ræddum við í Keflavík var hins
vegar ekkert hrifinn af þessari
þróun sem nú virtist liggja í
loftinu. Kvað það ekkert sniðugt
ef mikil umræða um væntanlega
uppgripavinnu þar syðra yrði til
þess að fólk færi kannski að selja
ofan af sér fyrir skít og ekki neitt
úti á landsbyggðinni og kaupa
húsnæði á uppsprengdu verði á
suð-vesturhorninu. Slík röskun
kæmi hvorki fólkinu sjálfu né
þjóðfélaginu í heild til góða
nema síður væri. -HEI
■ „Sólskinshópurinn“ í
Kópavogi var ásamt verk-
stjórum sínum að snyrta
svæðið í kring um Hamra-
borgina í gær. Að undan-
förnu hefur hópurinn'unn-
ið að því að rnála og snyrta
umhverfís Strætisvagna-
skýli bæjarins sem tekið
hafa miklum breytingum.
Hendingin: „Gulur, rauð-
ur, grænn og blár/ gerður
af meistara höndum“ kom
einmitt í huga Tímamanns
sem beið eftir vagni í einu
þessara skýla nú í vikunni.
Tímamynd Ari
- Sjá bls. 5
Landhelgisgæslan sendir
út aðvörun vegna merkja-
blysa sem reka á land:
„BARA TÍMASPURS-
MÁL HVENÆR SLYS
HLÝST AF ÞESSU”
- segir Gylfi Geirsson
hjá Landhelgisgæslunni
■ „Sem betur fer hafa enn björgunarstörf, einkum til
ekki orðið slys af völdum þess- staðarákvörðunar í myrkri.
ara blysa en eins og menn í tiikynningu LHG um málið
meðhöndla þetta hér er bara segir m.a. að á hverju ári gera
tímaspursmál hvenær slys sprengjusérfræðingar LHG
hljótast afþessu og því sendum . óvirk tundurdufl og sprengjur,
við frá okkur þessa aðvörun“, sem borist hafa á land. Þannig
sagði Gylfl Geirsson loft- voru á árinu 1982 gerð óvirk 5
skeytamaður hjá Landhelgis- tundurdufl og 6 sprengjur.
gæslunni en LHG hefur sent Gylfi Geirsson og Hálfdán
frá sér-aðvörun vegna merkja- Henrýsson stýrimaður fóru á
blysa sem rekur á fjörur hér- síðasta ári á vegum LHG á
lendis þar sem hætta er á að sérstök sprengi- og tundur-
þau springi, eða kvikni í þeim duflanámskeið til danska sjó-
af sjálfú sér. Það sem af er hersins og bandaríska sjóhers-
árinu hafa sex slík blys fundist ins. -FRI
hér.
„Málið er það að ef ekki
verður fullkominn bruni í blys-
unum þá myndast í þeim hvítur
fosfór og þegar hann þornar,
eftir að blysið hefur rekið á
land, kviknar í honum af sjálfu
sér. Þannig að ef menn taka
þetta upp blautt og setja í
skottið hjá sér eða í bílskúrinn
þá er bara tímaspursmái
hvenær kviknar í blysinu
aftur", sagði Gylfi.
Fólk er stranglega varað við
að meðhöndla blysin og best er
að tilkynna þau strax til Land-
helgisgæslunnar eða lögrcgl-
unnar um leið og þau finnast.
Gylfi sagði að þessi blys
væru mikið notuð við æfingar
hjá varnarliðinu svo og við -m Svonalítamerkjablysinút.
Aukaútreikningur Hagstofunnar á vísitölu framfærislu-
kostnaðar samkvæmt beiðni ASÍ: #
HÆKKAD UM 14% A
sfeusni 2 mAhuðum
■ Vísitala framfærslukostnað-
ar hefur hækkað um 14% s.l. tvo
mánuði samkvæmt aukalegum
útreikningi hennar sem Hagstof-
an hefur gert að beiðni Alþýðu-
sambands íslands. Miðað er við
verðlag um mánaðamótin júní/
júlí.
Verðhækkun á búvöru olli
3,21% af hækkuninni, og á
öðrum matvörum um 2,97%,
eða samtals 6,18% vegna mat-
vörunnar. Nefna má að þar af
eru 0,49% vegna brauðvara,
0,53% vegna físks og 0,28%
vegna nýrra ávaxta. Verðhækk-
anir á fatnaði eiga 1,35% af
vísitöluhækkun þessari,á áfengi
og tóbaki 0,52%, rafmagni
0,20%, bensínið 0,68% og fjöl-
skyldubíllinn 1,81%.
Hagstofan tekur fram að.mikl-
ar verðhækkanir hafi orðið á
matvörum öðrum en búvörum,
bæði innlendum og erlendum.
Áhrif gengisfellingarinnar í maí
séu væntanlega komin fram í
verði flestrar matvöru með stutt-
an birgðatíma hjá smásala, en
mikið geti vantað upp á að svo
sé að því er varðar marga aðra
vöruflokka. -HEI