Tíminn - 09.07.1983, Blaðsíða 1

Tíminn - 09.07.1983, Blaðsíða 1
Fimmti flokkur ÍK með 61 mark í 5 leikjum! — Bls. 12—13 Bla 1 ð 1 Tvö blöð í dag Helgin 9.-10. júlí 1983 156. tölublað - 67. árgangur Fyrirhugaðar framkvæmdir í Helguvík og við flugstöð á Keflavíkur- flugvelli farnar að segja til sfn? FASTEIGNIR A KEFLAVIKUR- SVÆÐINU HÆKKA (VERDI ■ Eftirspurn eftir kaupum á íbúðum í Keflavík og nágrenni hefur aukist nú undanfarið en framboðið hins vegna minnkað, sem leiðir því til verðhækkunar. Keflvíkingar halda nefnilega nú að sér höndum með sölu þar sem það liggur í loftinu á Suður- nesjum að íbúðaverð muni enn hækka þar á næstunni, að því er fram kom í samtali við fasteigna- sala þar suður frá. Kvað hann þetta töluverða breytingu frá því sem þeir eigi að venjast, þar sem sumarmánuðirnir hafi verið heldur dauðir sölumánuðir. Fyrirspurnirnar um íbúðir þar syðra berast víða að, af höfuð- borgarsvæðinu og landsbyggð- inni ekki síst frá byggingar- mönnum á Norðurlandi. Margir þeirra hafa á orði í leiðinni: „Verður ekki farið að byrja á flugstöðinni". Sem dæmi um íbúðaverð var okkur sagt að 3ja herbergja íbúðir sem kostuðu um 1.200 þús. í Reykjavík færu á um 700-800 þús. í Keflavík. Nýlegar íbúðir í blokkum væru nú að skríða upp í 900-1.000 þúsund krónur. Sveitarstjórnarmaður sem við ræddum við í Keflavík var hins vegar ekkert hrifinn af þessari þróun sem nú virtist liggja í loftinu. Kvað það ekkert sniðugt ef mikil umræða um væntanlega uppgripavinnu þar syðra yrði til þess að fólk færi kannski að selja ofan af sér fyrir skít og ekki neitt úti á landsbyggðinni og kaupa húsnæði á uppsprengdu verði á suð-vesturhorninu. Slík röskun kæmi hvorki fólkinu sjálfu né þjóðfélaginu í heild til góða nema síður væri. -HEI ■ „Sólskinshópurinn“ í Kópavogi var ásamt verk- stjórum sínum að snyrta svæðið í kring um Hamra- borgina í gær. Að undan- förnu hefur hópurinn'unn- ið að því að rnála og snyrta umhverfís Strætisvagna- skýli bæjarins sem tekið hafa miklum breytingum. Hendingin: „Gulur, rauð- ur, grænn og blár/ gerður af meistara höndum“ kom einmitt í huga Tímamanns sem beið eftir vagni í einu þessara skýla nú í vikunni. Tímamynd Ari - Sjá bls. 5 Landhelgisgæslan sendir út aðvörun vegna merkja- blysa sem reka á land: „BARA TÍMASPURS- MÁL HVENÆR SLYS HLÝST AF ÞESSU” - segir Gylfi Geirsson hjá Landhelgisgæslunni ■ „Sem betur fer hafa enn björgunarstörf, einkum til ekki orðið slys af völdum þess- staðarákvörðunar í myrkri. ara blysa en eins og menn í tiikynningu LHG um málið meðhöndla þetta hér er bara segir m.a. að á hverju ári gera tímaspursmál hvenær slys sprengjusérfræðingar LHG hljótast afþessu og því sendum . óvirk tundurdufl og sprengjur, við frá okkur þessa aðvörun“, sem borist hafa á land. Þannig sagði Gylfl Geirsson loft- voru á árinu 1982 gerð óvirk 5 skeytamaður hjá Landhelgis- tundurdufl og 6 sprengjur. gæslunni en LHG hefur sent Gylfi Geirsson og Hálfdán frá sér-aðvörun vegna merkja- Henrýsson stýrimaður fóru á blysa sem rekur á fjörur hér- síðasta ári á vegum LHG á lendis þar sem hætta er á að sérstök sprengi- og tundur- þau springi, eða kvikni í þeim duflanámskeið til danska sjó- af sjálfú sér. Það sem af er hersins og bandaríska sjóhers- árinu hafa sex slík blys fundist ins. -FRI hér. „Málið er það að ef ekki verður fullkominn bruni í blys- unum þá myndast í þeim hvítur fosfór og þegar hann þornar, eftir að blysið hefur rekið á land, kviknar í honum af sjálfu sér. Þannig að ef menn taka þetta upp blautt og setja í skottið hjá sér eða í bílskúrinn þá er bara tímaspursmái hvenær kviknar í blysinu aftur", sagði Gylfi. Fólk er stranglega varað við að meðhöndla blysin og best er að tilkynna þau strax til Land- helgisgæslunnar eða lögrcgl- unnar um leið og þau finnast. Gylfi sagði að þessi blys væru mikið notuð við æfingar hjá varnarliðinu svo og við -m Svonalítamerkjablysinút. Aukaútreikningur Hagstofunnar á vísitölu framfærislu- kostnaðar samkvæmt beiðni ASÍ: # HÆKKAD UM 14% A sfeusni 2 mAhuðum ■ Vísitala framfærslukostnað- ar hefur hækkað um 14% s.l. tvo mánuði samkvæmt aukalegum útreikningi hennar sem Hagstof- an hefur gert að beiðni Alþýðu- sambands íslands. Miðað er við verðlag um mánaðamótin júní/ júlí. Verðhækkun á búvöru olli 3,21% af hækkuninni, og á öðrum matvörum um 2,97%, eða samtals 6,18% vegna mat- vörunnar. Nefna má að þar af eru 0,49% vegna brauðvara, 0,53% vegna físks og 0,28% vegna nýrra ávaxta. Verðhækk- anir á fatnaði eiga 1,35% af vísitöluhækkun þessari,á áfengi og tóbaki 0,52%, rafmagni 0,20%, bensínið 0,68% og fjöl- skyldubíllinn 1,81%. Hagstofan tekur fram að.mikl- ar verðhækkanir hafi orðið á matvörum öðrum en búvörum, bæði innlendum og erlendum. Áhrif gengisfellingarinnar í maí séu væntanlega komin fram í verði flestrar matvöru með stutt- an birgðatíma hjá smásala, en mikið geti vantað upp á að svo sé að því er varðar marga aðra vöruflokka. -HEI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.