Tíminn - 10.07.1983, Page 5
SUNNUDAGUR 10. JULI1983
sá síðamefndi var Gestapo-foringi í
Lyon. Þegar þeir hittust fyrir tilviljun á
brautarstöðinni hvatti Merk Barbie til
þess að verða honum samferða á hinni
nýju framabraut.
Barbie sótti um og fékk viðtal vegna
vinnunnar í skrifstofu 970. deildar CIC
í smáborginni Kempten í Bavaríu. For-
inginn sem talaði við Barbie við þetta
tækifæri var, að því er skýrslur CIC
herma, Robert Taylor sem nú býr í
Syracuse í New York. Þó að Taylor
muni ekki lengur eftir Barbie viðurkenn-
ir hann vitnisburð skýrslanna sem sýna
að Barbie var ráðinn með samþykki
yfirforingja CIC þar um slóðir, Dale
Garvey sem nú býr í Kansas.
Sá sem ekki var neitt sérstaklega
ánægður með ráðningu Barbies var Earl
Browning, fyrrum foringi hjá CIC sem
nú býr í Washington, en hann tók við af
að yfirheyrslan í Oberursel gæti leitt til
handtöku hans sem stríðsglæpamanns.
Barbie tókst að stökkva út úr jeppanum
og flýja til skógar. Lavoie tæmdi skamm-
byssuna sína á eftir Barbie, ein kúlan
hæfði fingur Barbies. En hann slapp.
Innan klukkustundar hafði CIC sett af
stað umgangsmiklar mannveiðar, borgir
og þorp, þar sem vitað var að vinir
Barbies bjuggu, voru kembdar. Eins og
einn CIC maðurinn sagði: „Þeir eltu
hann eins og hund.“ Loks náðist hann,
var handtekinn og fluttur í strangri
öryggisgæslu til Oberursel þar sem hann
var færður í grófan fangabúning og
læstur inni í einangrunarklefa.
Þeir sem yfirheyrðu hann sögðu hon-
um að skrifa skýrslu um stríðsferil sinn.
Mörgum árum síðar sagði Barbie að
hann hafi verið látinn einn í klefa sínum
vikum saman og hann hafi orðið svo
■ - Starfsmenn bandarísku gagnnjósnaþjónustunnar í Vestur-Þýskalandi: Efst frá
vinstri Gene Kolb, þá Earl Browning, síðan Herbert Bechtold og loks Jim Milano.
Garvey í Frankfurt í febrúar 1947.
Browning lét gera skrá yfir alla þá sem
unnu fyrir CIC og þegar nafn Barbies
birtist í skýrslunum nokkrum mánuðum
síðar brá honum heldur í brún því að
Barbie var á lista yfir þá sem átti að
handtaka umsvifalaust og hafði hann
verið skráður á lista yfir slíka menn
nokkrum mánuðum áður.
„Ég sat inni á skrifstofu minni þegar
aðstoðarmaður minn, Jim Ratliff, kom
inn með einhverja pappíra,“ sagði hann.
„Þetta var listi sem Garvey hafði sent
okkur yfir þá sem unnu á svæði 4. Ég las
hann og sá nafnið Klaus Barbie. Ég
ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum.
Ég mundi greinilega eftir því að þetta
var sami Þjóðverjinn og Garvey hafði
sagt að við ættum að handtaka þegar ég
var í Bremen og nú notaði hann þennan
mann... Ég sendi Garvey strax skipun
um að handtaka Barbie.“
Þetta var upphafið að bitrum deilum
Brownings og foringja CIC á Fjórða
Svæði (sem Garvey stjómaði) sem voru
staðráðnir í því að vemda Barbie.
Browning var meira að segja eitt sinn
sagt að Barbie væri „horfinn". í október
og nóvember 1947 sendi hann Garvey
stöðugt harðorðari skilaboð um það að
handtaka Barbie. í desember féllst Gar-
vey loks á að framselja Barbie til
Evrópudeildar CIC í Obemrsel.
Læstur inni í
einangrunarklefa
Dick Lavoie, ungur CIC foringi, átti
að fara með Barbie til Oberursel. Á
leiðinni sagði hann nóg til þess að
staðfesta grunsemdir Barbies um að
hann væri hugsanlega í hættu staddur -
örvæntingarfullur og þunglyndur að
hann hafi tvívegis reynt að fremja
sjálfsmorð. Hann byrjaði loks að skrifa
þegar hann var orðinn hræddur um að
hann yrði framseldur Frökkum. En í
viðtali frá 1979 hrósaði hann sér af því
að hafa sagt frá ósköp litlu: „Ég sagði
þeim ekki meira en það sem ég gat
skrifað á eina og hálfa blaðsíðu.
Skýrslur um yfirheyrslumar frá þessu
tímabili sýna að Barbie neitaði öllum
ásökunum um að hafa framið glæpi
gagnvart Frökkum. Auk þess var beitt
töluverðum þrýstingi til þess að fá hann
lausan. CIC menn á Svæði 4 höfðu beint
máli sínu fram hjá Browning og til
yfirforingja CIC David Erskine og sann-
fært hann um að Barbie væri svo mikil-
vægur að þeir mættu ekki missa hann.
Þeir héldu því fram að réttlætanlegt væri
að nota fyrrverandi Gestapo-foringja
sem gæti veitt mikla aðstoð í baráttunni
við kommúnista. Og Barbie var látinn
laus. Hann sneri aftur til Kempten þar
sem CIC foringjamir vildu ólmir ráða
hann til starfa á ný. Browning mótmælti
en lét undan að lokum.
Barbie tók aftur til við að veita
Bandaríkjamönnum upplýsingar þar til
hann flúði 1951 og gekk þá undir nöfnun-
um Ernst Holzer, Mertens og Behrens.
En hann var enn ekki sloppinn. Foringi
í bandarísku leyniþjónustunni sagði
frönskum kunningja sínum að Barbie
mætti finna á hemámssvæði Bandaríkja-
manna. Sá franski hóf fljótlega leit að
honum.
Einn af frumkvöðlum Rottuleiðarinn-
arárið 1945 var JamesC. Milanoofursti,
yfirmaður leynilegra aðgerða CIC. Bæði
hann og eftirmaður hans, Jack Dobson
sem heimiluðu Barbie-aðgerðina 1951
halda því staðfastlega fram að þeir hefðu
aldrei samþykkt að Gestapo-foringinn
yrði fluttur úr landi, ef þeir hefðu vitað
hver hann var í raun og vem.
En í aðalstöðvum CIC í Ágsborg vom
menn betur upplýstir. Tveir þeirra sem
vissu að Barbie var Gestapo-foringi í
Lyon á stríðsámnum vom Eugene Kolb
og Herbert Bechtold, en þeir notuðu
hann samt báðir sem njósnara árin
1948-1950 og unnu úr þeim upplýsingum
sem hann aflaði þeim, aðallega um
Kommúnistaflokkinn í Bavaríu frá 1948-
50.
„I stríði er
allt leyfilegt“
Bechtold, sem nú býr í Richmond í
Indiana, tengdist Barbie vináttubönd-
um. Barbie lýsti fyrir honum hvemig
lífinu var háttað undir stjóm Nasista og
greindi frá afskiptum sínum af frönsku
andspyrnuhreyfingunni á öndverðum
fimmta áratugnum og þeim aðferðum
sem hann notaði til að afla sér upplýsinga
um hreyfinguna. „Eins og hann útskýrði
það,“ sagði Bechtold, „mátti bara engan
tíma missa þegar fólk náðist á annað
borð í yfirheyrslu. Þeir urðu að fá nöfn
hinna strax og í stríði er allt leyfilegt.“
Kolb hefur á hinn bóginn aldrei viður-
kennt þær ásakanir Frakka að Barbie
hafi notað pyndingar. Það sem batt þá
Barbie og Kolb vináttuböndum var
gagnkvæmur skilningur - „sameiginlegir
sálrænir hagsmunir" sérfræðinga eins og
hann kallaði það. Báðir höfðu iþeir
miklar áhyggjur af ógn kommúnismans
en hæddust um leið að þeim sem túlkuðu
alla skapaða hluti sem kommúnísk sam-
særi.
Kolb og aðrir CIC foringjar gefa þrjár
ástæður fýrir því að þeir ákváðu að verja
Klaus Barbie fyrir tilraunum Frakka til
þess að fá hann framseldan.
í fyrsta lagi töldu þeir að þær upplýs-
ingar sem hann aflaði þeim væru mjög
mikilvægar. í öðru lagi álitu þeir að
glæpir hans gagnvart frönsku andspymu-
hreyfingunni væru í rauninni stríðsað-
gerðir. í þriðja lagi, og það er ef til vill
mikilvægasta röksemdin, treystu þeir
Frökkum ekki. Þeir héldu að Frakkar
vildu fá Barbie framseldan í hefndar-
skyni en ekki til þess að fullnægja
réttlætinu. Þá grunaði Frakka um kom-
múnisma og að tilraunir þeirra til að fá
Barbie framseldan væm gerðar að undir-
lagi kommúnista innan frönsku öryggis-
þjónustunnar.
„Ef Frakkar hefðu náð Barbie,“ segir
Kolb, „þá er ég viss um að hann hefði
verið kominn til Moskvu innan fárra
daga.“
Þeir fullyrða allir að þeim hafi verið
ókunnugt um þau grimmdarverk sem
Barbie vann á gyðingum í Lyon -
hvernig hann fór með böm gyðinga og
sendi gyðinga þúsundum saman til þess
að mæta dauða sínum í Auschwitz.
„Sjálfsagt héldum við að hann hefði
hugsanlega notað gúmmíslöngutæknina
einu sinni eða tvisvar en við vissum það
ekki fyrir víst og hreinskilnislega sagt
trúi ég því ekki enn þann dag í dag,“
sagði Kolb.
„Ef við hefðum vitað það þá hefðum
við ekki fengið hann til hðs við okkur.
Það verður að gera skarpan greinarmun
á því að berjast gegn andspymuhreyfing-
unni og hins vegar Gyðingamálunum.
Uppræting Gyðinga var stríðsglæpur
sem við vissum ekkert um. Frakkar
minntust heldur aldrei á þessa hluti.“
Fyrirliggjandi gögn benda til þess að
þetta sé ekki ólíklegt. Rannsókn Frakka
á hryllingsverkum Þjóðverja í Lyon fór
mjög hægt af stað vegna ringulreiðarinn-
ar í stríðslok. Enginn þeirra sem ábyrgð
ber á handtöku Barbies hefur nefnt
Gyðinga á nafn.
En þrýstingurinn frá Frakklandi átti
eftir að aukast jafnt og þétt með hverju
ári. Og að lokum féllust Bandaríkja-
menn á að greiða fyrir flótta eftir hinni
svokölluðu „Rottuleið."
Nú eigum við aftur til á lager vinsœlu
ISUZU pallbílana, með drifi á öllum
hjólum, bensín eða stœrri díeselvélinni,
með eða án vökvastýris.
VERÐ:
ISUZU PICKUP ’82 bensín kr. 277.700,-
ISUZU PICKUP ’83 díesel kr. 374.200,-«** *»«,,
BÆNDUR - VERKTAKAR - FYRIRTÆKI
Komið - Skoðið og kynnist ISUZU
$ VÉLADEILD SAMBANDSINS
Ármúla 3 Reykjavík MÚLAMEGINJ Sími38900