Tíminn - 10.07.1983, Side 22
SUNNUDAGUR 10. JÚLÍ1983
nútfminh
FRAKKARMR í Safari:
MEB LÍMRÆMU
LAFANDIí
SÍGARETTUNNI
Staður
lifandi
tónlistar
■ Þá hafa nýir eigendur tekið við
Safari og jafnframt sagt að tvisvar f
viku verði lifandi tónlist á boðstólum
hjá þeim, taka sem sagt við hlutverki
Borgarinnar á þessu sviði en síðan
hún lagðist af fyrir tónleikahald hefur
þrettándinn verið fremur þunnur á
þessu sviði hér í borg.
Á myndunum sem Árni Sæberg
tók fyrir Nútímann á opnunarkvöldinu
eru fyrst þau hjónin Jóhannes Lárus-
son og Guðrún Reynisdóttir en hann
et. nú cigandi Safari. Þá koma þær
• stöllur Ragnhildur og Dóra Einars-
dóttir, síðan má sjá Bubba Morthens
ræða málin við Rúnar, Röggu og
Lindu og loks er svipmynd af dans-
gólfinu.
-FRI
■ Mike og félagar í léttri fönk-sveiflu. Nú-Tíinamyndir Ámi Sæberg.
■ Sætur er sameiginlegur sopinn. Rúnar, Ragga og Danny fylgjast með Frökkunum.
Ekki vitum við hver dýfir í hjá Röggu.
Upp
og
niður
hjá
JoUí
& Kola
■ Þá er hún komin platan Upp og
niður hjá þeim félögum Joilí & Kóla
en það munu vera þeir Valgeir Guð-
jónsson og Sigurður Bjóla. Með
þeim á þessari plötu er allt Stuð-
mannagengið eins og það leggur sig,
Egill, Ásgeir, Tómas, Þórður og
Jakob auk þeirra Eggerts Þorleifs-
sonar, Björgvins Gíslasonar og Gylfa
Kristinssonar en sá síðastnefndi lék
áður í Rifsberja við góðan orðstír en
hefur ekki komið nálægt „bransan-
um“ svo vitað sé s.l. 10 ár eða svo.
Þá má einnig geta þess að Ágúst
Guðmundsson, leikstjórinn kunni,
mun þenja raddböndin að einhverju
Ieyti í einu Iaginu á plötunni en hann
stjórnaði sem kunnugt er upptökum
á myndinni Með allt á hreinu.
FRl
Ásgeir
hættir
I Deild I
■ Ásgeir Bragason mun vera hætt-
ur sem trommuieikari í hljómsveit-
inni Deild 1 en útgerðin þar hefur
verið í meira lagi brösótt frá því að
þessi sveit var stofnuð.
Við stöðu hans tekur hins vegar
Magnús Stefánsson (EGÓ) til bráða-
birgða, þar sem Deild 1 var búin að
bóka sig á nokkra tónleika í sumar.
Magnús er hinsvegar að berja saman
eigin hljómsveit eins og greint var
frá hér fyrir skömmu.
-FRI
Sex-Pol
■ Hér í bæ er starfrækt hreyfing
sem nefnist Sex-Pol. Það nafn stend-
ur fyrir Sexual Politics og er tilgangur
hreyfingarinnar kynfræðsla. Þó ekki
fræðsla um hvemig líkaminn fúnker-
ar eins og endanlega var útskýrt í
heilsufræðibókinni vinsælu, heldur
fræðsla um svokallaða kynjapólitík.
Ekki meir um það.
Þessi hreyfing mun hafa til umráða
eitt kvöld í mánuði í Safari það sem
eftir er ársins til hljómleikahalds og
næsta fimmtudagskvöld, 14. júlí,
hefst það prógramm. Á þessu fyrsta
Sex-Pol kvöldi munu koma fram
hljómsveitirnar Vonbrigði, Q4U og
Baðverðimir. Tvær fyrmefndu þarf
fæpast að kynna en Baðverðina skipa
Pollock bræður, Mike og Danny og
Gunnþór úr Q4U. Einnig koma fram
Þorsteinn, Guðlaugur og Sigtryggur
úr Þeysurum, allir með eigið
prógramm. T.d. er Sigtryggur með
trommu og dansverk sem samið er
fyrir Sex-Pol.
Þótt oftast sé sumarið hálf dauður
tími í hljómleikahaidi virðist þetta
sumar ætla að rísa upp úr meðal-
mennskunni hvað varðar líf og táp og
fjör í blessuðu poppinu. Enda ekki
seinna vænna þar sem næsta ár er
1984 og hver vcit hvað gerist þá.
Hvað sem öðra líður hef ég trú á að
Safari og íslensku hávaðahljómsveit-
imar muni lifa það af, ef fólk hjálpar
til og vappar við á Skúlagötunni.
Bra
■ Nú hefur veitingahúsið Borgin
runnið sitt skeið á enda. Núverandi
stjómendur hafa séð gróðavon í
peningaleiktækjum og því fór sem
fór. En annar og betri staður hefur
tekið að sér að hýsa hljómsveitirnar
og reynt að sinna þeim sem ekki hafa
regluleg mök við vídeóskermana
sína. Safarí er smart staður og
hljómburðurinn þar er með eindæm-
um góður.
Með hjálp Danny Pollock og góðs
söngkerfis var hljómurinn einhver sá
besti sem ég hef heyrt þetta sunnu-
dagskvöld. Hljómsveitin Frakkarnir
naut góðs af þessum frábæra hljóm
og til samans gerðu hljómsveitin og
sándið þessa tónleika að þeim bestu
sem ég hef verið á í langan tíma.
Frakkana skipa Mike Pollock-
söngur, Finnur (Tíbrá, Eik) - gítar,
Þorleifur (Ego)-bassi, Þorsteinn
(Eik, Þeyr) -gítar, en trommarann
kann ég ekki að nefna. Að vísu
verður Þorsteinn ekki mikið lengur
með hljómsveitinni og trommarinn
ekki heldur. Tónlist Frakkanna var
að mestu leyti fönk með smá rokki
og poppi í bland. Þótt venjulega sé
ekki þess vert að minnast á hljóð-
færaleik einan og sér var samspil
hljómsveitarinnar mjög gott og í
góðu jafnvægi við skemmtilegan söng
Mike. Gítarsándið hefði mátt vera
skarpara en í heildina var hljómurinn
einbeittur og tónlistin alvöru fönk.
Mike Pollock hefur geinilega lært
svolítið af Mick Jagger í sviðsfram-
komu og söng undir áhrifum frá Lou
Reed og Grace Jones, en bæði þessi
atriði voru sannfærandi og stundum
hrífandi. Hreyfingar hans virtust
mjög hvetjandi fyrir hljómsveitina
og hann hafði gott vald á „rap“
röddinni. Lög Frakkanna voru
undantekningalaust góð og fram úr
hófi danshæf þótt ekki hafi verið
dansað fyrr en undir lokin.
Eftir uppklapp sögðust þeir ætla
að taka blús og leist mér ekki á
blikuna, því blús getur verið svo
hrottalega leiðinlegur, sérstaklega ef
hann leysist upp í djamm með þreyt-
andi gítarsólóum og svoleiðis ragli.
En viti menn þessi blús var með þeim
skemmtilegri sem ég hef heyrt, agað-
ur og hljóðfærin dempuð en innri
krafturinn fékk fólk til að dansa.
Einhverjir spaugsamir sprautuðu lím-
kenndum ræmum yfir gesti og yfir
Frakkana sem festust í hári, fötum
og meira að segja festist ein ræman í
sígarettu Þorsteins og hékk þar í
dágóðan tíma á meðan hann spilaði.
Ég get ekki sagt annað en að mér
hafi komið á óvart uppákoma Frakk-
anna að öllu leyti. Meðlimir hljóm-
sveitarinnar hafa lítið sem ekkert
komið nálægt svona tónlist áður en
spiluðu hana eins og englar, og Mike
sýndi á sér hlið sem enginn söngvari
hérlendis hefur sýnt. Stíllinn var ekki
aðeins góður, röddin var líka mjög
sterk og textar hans vel samdir og
góðir að efni.
Það er líka gott að vita til þess að
hljómsveitin hafi depúterað á þessum
góða stað Safari. Mér segir hugur að
íslenskar hljómsveitir hafi eignast
nýjan og öruggan lókal og samfara
því muni fara að birta til í hálf
draugslegri poppmenningu landans,
eins og hún hefur verið upp á
síðkastið. Hjá stjórnendum staðarins
er planið að halda a.m.k. tvenna
tónleika í viku og eiga þeir mikið
hrós skilið fyrir það framtak.
Bra