Tíminn - 14.07.1983, Qupperneq 1
Vísa gervitennur á árásarmanninn? — Sjá bakslðu
FJÖLBREYTTARA
OG BETRA BLAÐ!
Fimmtudagur 14. júlí 1983
160. tölublað - 67. árgangur
Síðumúlal5-Pósthólf 370 Reýkjavík-Ritstjórn86300-Augíýslngar 18300- Afgreiðsla og áskrift 86300 - Kvöldsímar 86387 og 86306
Albert Guðmundsson um fjárvöntun Lánasjóðs íslenskra námsmanna:
,SKERA VERÐUR HARFRAMLOG
T1L HANS VERULEGA NIÐUR”
— ,,Efast um að fólkiðvilji bæta á sig vinnu til að útvega það fjármagn sem vantar”
■ „Þeir frá Lánasjóði íslenskra
námsmanna komu hingað til
mín, og það eitt er um þcirra mál
að segja á þessari stundu, að það
er verið að kanna þeirra stöðu,“
sagði Albert Guðmundsson,
fjármálaráðherra í samtali við
Tímann í gær, er hann var spurð-
ur hvort ákvörðun hefði verið
tekin um á hvaða hátt fjárhags-
vanda sjóðsins verði mætt, en
eins og greint hefur verið frá í
Tímanum, þá skortir um 180
milljónir upp á til þess að endar
náist saman.
„Við skulum bara átta okkur
á því,„ sagði Albert, „að Alþingi
hefur samþykkt meira framlag
til sjóðsins, en til er af peningum.
Þetta hefur einfaldlega þýtt það,
að það hefur þurft að taka stór
erlend lán til þess að standa
undir fjármögnuninni. Mér er
bara spurn hvort fólkið í landinu .
kærir sig um áframhald á slíku.
Ég er efins um að fólkið í
landinu vilji bæta á sig vinnu og
kostnaði til þess að útvega fjár-
magn það sem Lánasjóðurinn
segir að vanti. Ég er ekki búinn
að taka neina afstöðu, en það er
alveg ljóst í mínum huga, að það
verður að skera fjárframlög til
Lánasjóðsins verulega niður.
Ég væri þess vegna tilbúinn til
þess að láta fara fram þjóðarát-
kvæðagreiðslu um hvort þjóðin
vill halda áfram þessum stöðuga
fjáraustri, og þá á ég ekki bara
við Lánasjóð íslenskra náms-
manna, heldur sinfóníuhljóm-
sveitina, Þjóðleikhúsið og margt
margt fleira sem gerir ekkert
annað en að stækka og bólgna
út, á sama tíma og við erum að
boða samdrátt í þjóðfélaginu.
Ég spyr bara: vill fólkið í land-
inu, sem nú er verið að skera
niður vísitöluna við í launum,
bæta við sig fimm scx tímum á
sólarhring í vinnu, til þess að
fjármagna frekari útþenslu?“
Albert sagðist jafnframt hafa
tjáð fulltrúum Lánasjóðsins, sem
komu til fundar við hann, að
þeim væri velkomið að fylgjast
með þróuninni og ástandi pen-
ingamála í landinu, og þar með
gætu þeir sjálfir sagt sér hvort
ríkisstjórnin væri ósanngjörn í
afstöðu sinni til þeirra eða ekki.
- AB.
■ „Já, bömin mín. Ef þið erað nógu dugleg við að taka blómfræflana og kvöldvorrósarolíuna verðið þið
kannski einhverntímann jafn stór og ég“, gæti sá svartklæddi verið að segja við börain í Barónsborg.
Tímamynd: Ami Sæberg.
SAMDRATTUR 40%
ISÖUlAFERDA-
MANNAGIAIOEYRI
■ Sala á erlendum gjaldeyri til
ferðamanna dróst saman um nær
40% á fyrstu fimm mánuðum
þessa árs, samkvæmt upplýsing-
um Sigurðar Jóhannssonar for-
stöðnmanns gjaldeyriseftirlits
Seðlabankans.
Frá janúarbyrjun til maíloka
á þessu ári hafði ferðamanna-
gjaldeyrir verið seldur fyrir um
það bil 125 milljónir króna. Á
sama tíma í fyrra var upphæðin
200 milljónir króna, framreiknað
til núgildandi verðlags.
„Já, þetta virðist vera talsverð-
ur samdráttur,'1 sagði Sigurður
Jóhannsson, en taldi líklegt að
salan hefði tekið nokkurn fjör-
kipp í júní og fyrstu daga júlí-
' mánaðar.
Þorsteinn Friðriksson, deild-
arstjóri erlends gjaldeyris í Út-
vegsbankanum, kvaðst hins veg-
ar ekki hafa orðið var við aukna
sölu á ferðamannagjaldeyri á
undanförnum vikum.
„Salan hefur dregist saman í
ár og á því hefur engin breyting
orðið að undanförnu,“ sagði
Þorsteinn.
- GM.
BLAÐAUKIUM
Þorlákshöfn
■ í dag er 8 síðna blaðauki um
Þorlákshöfn í Timanum. Þar er
meðal annars rætt við Stefán
Garðarsson svcitastjora, Bene-
dikt Thorarensen í Meitlinum,
Þorleif Björgvinsson fram-
kvæmdastjóra Glettings og
Hannes Gunnarsson í Mát.
Einnig eru nokkrar verslanir
heimsóttar og spjallað við eig-
endur. Fjöldi mynda frá Þorláks-
höfn er í blaðinu.
Fjarmalaraöherra fellir nidur
söluskatt af Tívolíinu á Miklatúni:
„TENGDASONUR
MINN NÝKOMINN
í FYHRTÆKIB'1
— „áttaði mig ekki á því strax“,
segir Albert Guðmundsson
■ „Ef ég á að vera hræddur
við að gera það sem ég tel að
sé rétt, þá er eitthvað öðruvísi
en ég hefði talið áð það ætti að
vera. Að sjálfsögðu vissi ég að
upp myndu koma gagnrýnis-
raddir, og þáð yrði um það
talað að tengdasonur minn
væri einn af aðstandcndum
þessa fyrirtækis, en hann var
nú svo tiltölulega nýkominn
inn i þetta, að ég áttaði mig
ekki á því strax“.
Þetta sagði Albert Guð-
mundsson, fjánnálaráðherra,
í samtali við Tímann í gær, cr
hann var spurður hvað hann
vildi segja um gagnrýnisraddir
sem hcyrst hafa og -sagt að
hann hafi einkum og sér í lagi
fellt niður söluskattimv af Tí-
volfinu á Miklatúni, vegna þess
að forsvarsmenn þess fyrirtæk-
is væru mjög eindregnir stuðn-
ingsmenn hansúrkosningabar- *■
áttunni, m.a. Pétur Svein-
bjarnarson, eigandi Asks, og
Þorvaldur Mawby, sem jafn-
framt er tengdasonur ráðherr-
ans. Sjá nánar bls. 5.