Tíminn - 16.07.1983, Blaðsíða 2
Enn er ekki séð fram úr rekstrarvanda Hraðfrystihúss Patreksfjaröar:
VONAST ERTILAD VINNSLA
HEFJIST A NÝ EFTIR HELGI
■ Enn er ekki séð fram úr rekstrar-
vanda Hraðfryslihússins á Patreksfirði.
Lokið var við vinnslu alls hráefnis í
húsinu á hádegi í gxr, cn ekki náðist að
borga starfsfólkinu kaup, cn það á nú
inni laun tveggja vikna.
„Togarinn er væntanlegur inn á mánu-
daginn og við vonumst til að þá verði
hægt að hefja vinnu að nýju,“ sagði Jens
Valdimarsson, stjórnarformaður frysti-
hússins, í samtali við Tímann í gær.
- Þarf ekki að vera húið aö útvega
peninga til launagreiðslna fyrir þann
tíma?
„Það hafa ekki komið fram nein
skilyrði frá starfsfólkinu um það. Fólkið
hefur staðið þétt við hliðina á okkur í
þcssum vandamálum og reynt að gera
það sem það hefur getað til að halda
rekstrinum gangandi. Við vitum ekki
annað en svo verði áfram enn um sinn,“
sagði Jens.
Hann sagði ennfremur að forstjóri
frystihússins væri nú í Reykjavík að leita
leiða til að leysa vandann að minnsta
kosti til bráðabirgða, en að svo stöddu
vildi hann ekki segja hvaða möguleikar
væru í sjónmáli.
Hjá Hraðfrystihúsi Patreksfjarðar
vinna 120 manns í landi og nálægt 30
sjómenn. Er frystihúsið lang stærsti
vinnuveitandinn í bænum, en íbúar hans
eru um 1100.
-Sjó.
■ Davíð Oddsson tekur fyrstu skóflustungu að 4. áfanga byggingar verkamannabú-
staða á Ártúnsholti í gær. Við athöfnina flutti Guðjón Jónsson, formaður stjórnar
verkamannabústaða, stutta tölu og kvað fyrirhugað að reisa á þessum stað 140 íbúðir.
Það er teiknistofan Ármúli sem tekið hefur hönnun verksins að sér. Fyrsta íbúðin
verður afhent í september á næsta ári og sú síðasta í árslok 1985. Bæta íbúðirnar úr
brýnni þörf en eftir íbúðum af þessu tagi er að jafnaði mikil eftirspurn.
Tímamynd: Árni Sæberg
Þess vegna
þarftu ÞOL
á þakið
ÞOL er einstök málningartegund, sem
er sérhönnuð fyrir bárujárnsþök
á íslandi.
Notaðu því ÞOL á þökin og aðra járn-
klæðningu. Kynntu þér leiðbeiningar fyrir
málun. Yfir 20 ára reynsla sannar gæðin.
Fjölþreytt litakort fæst í næstu málningar-
vöruverslun.
VEÐURHELDNI OG MÝKT
eru þeirhöfuðkostir ÞOLS, sem sérstök
áhersla hefur verið lögð á, vegna:
• fádæmrarendingar við mikið veður-
álag, svo sem slagregn, sem er sér-
einkenni íslensks veðurfars, og
• einstaks viðnáms gegn orkuríkum
geislum sólar og þeim gífurlegu hita-
sveiflum, sem bárujárnsþök verða fyrir í
sólskini, snjó og frosti.
málning'f
Flugleiðir svara yfirlýsingu
samgönguráduneytisins:
Ráðuneytið hugð-
ist afturkalla
leyfi Flugleiða
■ Ffugleiðir hafa gefið út yfírlýsingu
vegna fréttutilkynningar samgöngu-
ráðuneytisins. I yfírlýsingunni segir að
' ráðuneytið hafi tekið það skýrt fram, í
viðræðum við fulltrúa Flugleiða þann
11. júlí, að áætlunurleyfi Flugleiða yrði
afturkallað unt leið og staðfesting bær-
ist frá dönskuin stjómvölduin um leyfi
Flugskóla Helga Jónssonur til Græn-
iandsflugs. Þvi hefði sá kostur verið
tekinn að hætta áætlunarfluginu til
Narssassuuq samstundis t Ijósi þess að
samkvæmt yfirlýsingum ráðuneytis-
manna tæki leyfíssvipting Flugleiða
gildi unt lcið og samþykki danskra
yfirvalda lægi fyrir. Þar nteð væri
útilokað að Flugleiðir gætu síðar haft
upp í þann kostnað sem félagið hefur
lagt í vegna áætlunarflugs til Narssass-
uaq og miðaður var við framtíðaruþp-
hyggingu.
Að lokum er það ítrekað í yfirlýsing-
unni að Flugleiðum hafa ekki borist -
netnar skaðabótakröfur vegna þessar-
ar ákvörðunar, enda stendur félagið
við allar skuldbindingar gagnvart far-
þegum sínum. Þeim sem eiga staðfcst-
ar pantanir til Narssassuaq verður séð
fyrir farí þangaðeða boðið upp á ferðir
til Angmaksalik í staðinn. j GSH
Skýringar samgönguráduneytis-
ins á Grænlandsflugi Flugskóla
Helga Jónssonar:
Tilboð Helga
næst hugmynd-
um stjórnvalda
og maí í vor. Ráðuneytið taldi svar
Flugleiða ekki fullnægjandi og óskaði
efiir frekari tillögum frá félaginu sem
bárust meö bréfi 21. júni s.l.
F.nnfreitiur segir í fréttinni að þar
sem s\ór frá dönskmn stjórnvöldum
hafi ekki enn borist við beiðni sam-
gönguráðuneytisins hafi Flugskóli
Helga Jónssonar ekki cnn fengiö leyfi
til flugsins, en það ntuni fást um leið
og samþykki danskra stjórnvalda ligg-
ur fyrir, og að uppfylltum öðrum
skilyrðum.
Aö lokum scgir i fréttatilkynning-
unni að það sé úr lausu lofti gripiö að
lcyfi Fluglciða Itafi verið tekið af
fyrirtækinu, eins og sagt var í fréttatil-
kynningu Flugleiða. en samgöngu-
ráðuneytið samþykkti leyfi til Flug-
lciða um áxtlunarflug tvisvar í viku á
tímabilinu júní/ágúst. Ráðuneytinu
þykir miður aö Flugleiðir hafi gripið til
þess nú að leggja niður áætlunarflug
sitt til Grænlands verulegan hluta þess
stutta tíma sem þeir höfðu sótt um
leyft fyrir. Hins vegar er ráðuncytið
þess fullvfst að Flugleiöir munu einsog
jafnan áður standa að fullu við þær
skuldbindingar sem félagið kann aö
hafa gagnvart viðskiptavinum sínum á
þcssari leið í surnar.
- GSH.
■ Samgönguráöuneytið hefur sent
frá sér fréttatilkynningu, þar sem gerö
er grein fyrir þeirri ákvöröun ráöuneyt-
isins aö samþykkja Flugskóla Hclga
Jónssonar sem flugrekstraraöila i áætl-
unarflugi milli íslands og Grænlands.
Þar segir aö tilboð Flugskóla Helga
Jónssonar liafi komist næst þeini hug-
myndum sem komu fram í viöræðum
grænlenskra og íslenskra stjórnvalda
um áætlunarflug allt áriö, en sú skoöun
var ofarlega á baugi að sliku flugi yrði
haganlegast komiö fyrir með föstum
ferðum lítilla véla milli íslands og
Kulusuk í Grænlandi en grænlcnska
flugfélagiö Grönlandsflý fiylti farþcg-
ana innanlands á Grænlandi.
í fréttatilkynningunni segir að við-
ræður við stjórnvöld á Grænlandi hafi
verið teknar upp síðastliðið haust, en
þá felldi SAS niöur millilendingar á
islandi í áætlunartlugi milli Danmerk-
ur og íslands. Samgöngumálaráöu-
neytið var þeirrar skoðunar að flug-
samgöngur milli ísiands og Grænlands
mættu ekki fallu niður og því voru
viðræðurnar hafnar/ í framhaldi af
viðræðunum óskaði ráðuneytið eftir
tillögum frá Flugleiðum, Arnarflugi,
fylugfélagi Norðurlands og Flugskóla
Helga Jónssonar og svör bárust í aprfl