Tíminn - 16.07.1983, Page 5
LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1983
5
fréttir
Tryggvi Þor-
móðsson fyrrum
Ijósmyndari
Tímans:
Tók BA
gráðu í
Ijós-
myndun
frá
Brooks
■ Tryggvi Þormóðsson sem var Ijós-
myndari Tímans um rúmlega tveggja ára
skeið hefur lokið námi í ljósmyndun við
Brooks Institute, School of Photographic
Art and Science en þar tók hann BA
gráðu í faginu. Skóli þessi er staðsettur
í Santa Barbara í Kaliforníu.
Tryggvi er sonur Geirþrúðar Finn-
bogadóttur og fékk hann inngöngu í
skólann 1980 en skólinn er í fremstu röð
sinnar tcgundar í heiminum. Aðalgrcin
Tryggva var iðnaðar/vísinda ljósmyndun
en aukagrein neðansjávarljósmyndun og
ætlar hann sér að vinna á sviði iðnaðar,
vídeós og neðansjávarljósmyndunar í
framtíðinni.
Kona hans Anna Sigurðardóttir lauk
á sama tíma námi í atvinnuljósmyndun
frá sama skóla. Aðalfag hennar var
andlitsljósmyndun (portrait) og ætlar
hún sér einnig að starfa áfram í Kaliforn-
íu.
Brooks Institute hefur áður haft
nokkra íslenska ljósmyndara við nám
hjá sér. - FRI
■ Tryggvi ■ Anna
Þormóðsson. Sigurðardóttir.
Lorcakvöld í
Stúdenta-
leikhúsi
■ Sunnudaginn 17. júlí verður frum-
sýning á Lorcakvöldi Stúdentaleikhúss-
ins. Þessi dagskrá ber heitið „Klárinn
blakkur, tunglið rautt" og er hún byggð
á verkum spænska rithöfundarins Feder-
ico García Lorca.
Lorca, sem myrtur var af fasistum 27.
júlí 1936. lödögumeftiraðborgarastyrj-
öldin braust út, nýtur enn mikilla vin-
sælda á Spáni og hafa leikrit hans verið
fastagestir á fjölum leikhúsa þar í landi
eftir að Franco lést.
Hópurinn sem stendur að Lorcakvöld-
inu mun. undir stjórn Þórunnar Sigurð-
ardóttur, flytja hluta úr tveimur þekkt-
ustu verkum skáldsins, „Blóðbrullaup-
inu" og „Yermu". Einnig verða flutt Ijóð
eftir Lorca og spænsk alþýðutónlist í
útsetningu hans.
Sýningar verða einnig 18., 21. og 22.
júlí og hefjast þær allar kl. 20.30.
Tímamynd Árni Sæberg,
■ Áhöfnin á Hirta. Fremst situr Tom Cunliffe mcð dóttur sína sem verður 5 ára um það bil sem skipið nær landi í Ameríku.
Ævintýraleg sjóferð á rúmlega sjötugum seglbáti:
Slö ENGLENDINGAR SIGIA
i KIÖLFAR LEIFS HEPPNA
■ Sérkennilegur seglbátur liggur í
Reykjavíkurhöfn um þessar mundir.
Hann heitir Hirta og var byggður árið
1911 í Cornwall á Englandi. Áhöfnin
telur 7 manns þar á meðal skipstjórann
Tom Cunliffe, konu Itans og 4ra ára
gamla dóttur þeirra. Tom Cunliffe er
siglingarkennari og skrifar greinar fyrir
tímarit um siglingar ogheldurfyrirlestra.
Cunliffe hefur áður farið í siglingar á
Hirtu suður um höf en að þessu sinni er
ferðinni heitið í kjölfar Leifs hcppna.
- Við lögðum af stað frá Isle of Wight
í byrjun maí og sigldum til Noregs, sagði
Tom Cunliffe við blaðamann Tímans
eftir að þeim síðarnefnda tókst að
klöngrast út í Hirta. - í Noregi vorum
við í 2 mánuði en komum svo hingað
með viðkomu í Færeyjum. Héðan förum
við síðan til Grænlands ef við getum
vegna hafíssins og þaðan reynum við að
komast til Nýfundnalands og Nova Scot-
ia. Við ætlum síðan að fara suður þaðan
og vera á Karabíska hafinu þegarvetrar.
Ég reikna með að ferðin muni taka um
12-15 mánuði ef vel gengur.
- Ég er að fara þessa ferð vegna þess
að ég hef alltaf haft brennandi áhuga á
víkingunum. Bretar hafa sinn skammt af
víkingablóði í æðunum og ég held að við
Cunliffe sagði að Hirta ætti að baki
merkilcga sögu. Skipið var byggt árið
1911 og notaö sem hafnsögubátur í þrjú
ár. Síðan var því lagt mcðan á fyrri
heimsstyrjöld stóð cn 1922 var því
breytt í skcmmtisnekkju. Skipinu hefur
verið breytt mikið gcgnum tíðina: 1932
var fyrsta vélin sett í það en nú er ný vél
um borð. Hirta hefur áður farið yfii
Atlantshafið, árið 1931.
værum varla sú þjóð scm við erum nú ef Bretlandseyjum. Ég hef lcsið nokkuð af
víkingarnir hefðu ekki haft sín áhrif á Islendingasögum: Eiríkssögu rauða.
Þorfinnssögu karlsefnis. Njálu og hluta
af Landnámu ogég cr núna að lesa Gísla
sögu Súrssonar. Þctta eru hörku-
skcmmtilegar sögur, eitthvað annað en
ruslið cftir Harold Robbins til dæmis,
þó þessir fornmcnn ykkar hafi nú verið
hálf „nasty characters" allir saman.
■ Breska snekkjan Hirta speglast í sjónum í Vcsturhöfninni fyrir neðan Kaffivagn-
inn. Tímamynd Árni Sæberg
Ég er stórhrifinn af þessu landi ykkar,
sagði Cunliffe að lokum, þó veðrið hafi
verið hálf myglulcgt undanfarið. Við
skruppum með bíl vestur á land í gær og
þaö var alveg ógleymanleg lífsreynsla að
sjá Snæfellsjökul í fjarska. En mér finnst
þó eitt undarlcgt hcrna og það er verðið
á sumum vörunum. Hvernig stendur á
því að hér er hægt að gera mjög góð
kaup í léttvíni cn viskíið kostar tvöfalt
meira en hcima?
GSH
veiðihornið
umsjón: Fridrik Indriöason
Góð byrjun í Brynjudalsá:
ÞEGAR KOMNIR
34 LAXAR UPP
Færeysk hljómsveit
í Norræna húsinu
■ Brynjudalsá virðist ætla að gefa vel
af sér í ár, þegar eru komnir á land úr
henni 34 laxar en til samanburðar má
geta þess að fyrsti laxinn úr henni í
fyrra veiddist ekki fyrr en 12. júlí.
„Þetta hefur gengið ljómandi vel
hjá okkur, en við settum mikið af
niðurgönguseiðum í ánna í fyrra og
það virðist hafa borgað sig vel“ sagði
Ólafur Guðlaugsson veiðinefndar-
formaður árinnar í samtali við Veiði-
hornið.
„Við ætlum okkur að byggja ána
upp og því setti ég núna í hana 2200
niðurgönguseiði í viðbót. Af þessurn
34 löxum sem komnir eru er helmingur
vænir laxar. Sá þyngsti 15 pund.'“ sagði
Ólafur.
Hann sagði ennfremur að laxinn
virtist vera um alla ána og mikið af
honum. Veiðin í Brynjudalsá hófst 21.
júní í ár, en hefur yfirleitt ekki hafist
þar áður fyrr en í kringum 20. júlí. 124
laxar fengust úr ánni í fyrra.
Veiðileyfi í ána munu að mestu
uppseld utan síðustu dagana enda
leyfin ódýr. - FRl
■ Yggdrasil, hljómsveit sem hefur að-
setur sitt í Færeyjum, verður stödd á
Islandi dagana 16.-19. júlí og leikur í
Norræna húsinu sunnudaginn 17. júlí kl.
20:30.
Hljómsveitin er skipuð tónlistar-
mönnum frá Færeyjum, en auk þeirra
leika með henni Danir og Svíar. Hljóm-
sveitinni stjórnar Kristian Blak, sem
jafnframt semur mest af tónlistinni sem
Yggdrasill flytur.
1 Norræna húsinu flytur hljómsveitin
verkið Ravnating (Hrafnaþing), og með
tónlistinni verða sýndar litskyggnur,
teknar í Færeyjum, þar sem hrafninn og
umhverfi hans mynda karnann, en lit-
skyggnurnar eru 100 talsins. Þær eru
teknar árið 1982 og gerði það franski
ljósmyndarinn Philippe Carré.
Verkið Ravnating hefur nýlega verið
flutt í Færeyjum, og það hefur einnig
verið gefið út á hljómplötu.
Aðgöngumiðar að tónleikunum verða
seldir við innganginn, en forsala er í
bókasafni hússins.