Tíminn - 16.07.1983, Page 10
10
LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ1983
LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ1983
11
SÆUIVIKA
Stuð(ð(Má'83
16. JÚLÍ LAUGARDAGUR:
FLUQDAQUR: Fjölbreytt dagskrá á
flugvelli.
KriATTSPYRnUKEPPni yngri flokka,
bæjarkeppni: Siglufjörður og Sauðár-
krókur/ Dalvík og Sauðárkrókur
DAHSLEIKUR í Bifröst: flljómsveit
Ingimars Eydal. •
17. JÚLÍ SUNNUDAGUR:
FRJÁLSÍÞRÓTTAMÓT—meistarakeppni
FRÍ 3ja Deild.
ÚTITÓnLEIKAR í Qrænuklauf, þar koma
fram hljómsveitirnar: Medium — Tyról
- Vonbrigði - Iss og Bubbi Mortens og
EQÓ.
18. JÚLÍ MÁNUDAGUR:
DAnSKIR ÞJÓÐDAnSAR.
ÚTISKÁKMÓT.
19. JÚLÍ MUÐJUDAGUR:
nÝR STÓRMARKAÐUR K.S. opnaður við
Ártorg.
20. JÚLÍ MIÐVIKUDAGUR:
BÓKMEnnTAKVÖLD í Bifröst:
Leikfélag Sauðárkróks.
21. JÚLÍ FIMMTUDAGUR:
JASSKVÖLD í Bifröst:
Jassklúbbur Skagafjarðar.
22. JÚLÍ FÖSTUDAGUR:
DAnSLEIKURí Bifröst:
Hljómsveit Qeirmundar.
23. JÚLÍ LAUGARDAGUR:
QÖnQUDAQUR fjölskyldunnar: ferð að
Ingveldarstöðum. Gengið í
Qlerhallarvík.
BÆJARKEPPni í Sundlauginni:
Sauðárkrókur/Borgarnes.
QOLFMÓT.
QÖTULEIKHÚS: Svart og sykurlaust úr
Reykjavík.
UnQLinQADAnSLEIKUR í Bifröst:
Hljómsveitin TYROL.
DAHSLEIKUR í Bifröst:
Hljómsveitin Alfa — Beta.
24. JÚLÍ SUINNUDAGUR:
UMSS: Unglingamót Skagafjarðar
í sundi.
FJÖLSKYLDUSÆLA í Grænuklauf.
Fjölbreytt dagskrá.
4e ALLA DAGA;
ÚTSÝNISFERÐIR um Skagafjarðar-
hérað.
MÁLVERKASÝNING Jónasar
Quðmundssonar
BÁTSFERÐIR til Drangeyjar með
leiðsögumanni. Farið frá Sauðárkróki.
SUMARSÆLUKVÖLD með uppákomum
í Sælkerahúsinu ogá Hótel Mælifelli.
STANGAVEIÐIMÓT í Sauðárkróksfjöru.
MÁNUDAG TIL FÖSTUDAGS kl. 15 til 18
göngugata í Aðalgötu.
FRAMLEIÐSLUFYRIRTÆKI til sýnis
almenningi kl. 15 til 17.
375 fá frjálsa
sölu í Englandi
■ Hvorki meira né minna en 375 knatt-
spymumönnum i ensku deildunum hefur verið
geRn frjáls sala. Það er u.þ.b. 409 menn á
félag. Preslon hefur t.d. sett 18 á frjálsa sölu
og Chesterfield „aðeins" 11. Þetta þvðir í
raun og veru aðeins það að menn eru látnir
fara frá félaginu, þar sem cfnahagsastandið
gerir félögunum ekki klcift að hafa mikinn
mannskap á launum. Það cr ekki langt síðan
menn eins og Dcnis Tueart, Martin Ruehan
eða John Uevine, hefðu kostað stórfé, en nú
er sagan önnur, þeir hafa verið látnir fjuka.
Nú er sem sagl hægt að fá þá úkeypis!
Sumir þessara 375 lcikmanna hafa verið
svo heppnir að önnur félög hafa tekið við
þeim, t.d. George Wood, sem var hjá
Arsenal, er kominn til Crystai Palace, John
Devine fór til Norwich og John Hollins er
aftur kominn til Chelsea. Lítum á nokkra
þeirra sem eru ókeypis:
Arsenal:
John Devine, John Hawley, John Hollins,
George Wood.
Everton:
Alan Ainsow, Trevor Ross, Billy Wriglit.
Liverpool:
David „Super-Sub“ Fairclough
Man. UTD:
Maritin Buchan.
Norwich:
Mike Channon.
Tottenham:
John Lacy, Richardo Villa.
Watford:
Ross Jenkins
WBA:
John Wile
West Ham:
Jimmy Ncighliour.
Biharkeppni
FRÍ í 1. og
2. deild.
■ Ómar Torfason og Sigurður Jónsson heyja skallaeinvígi í Laugardalnum í gærkvöldi.
MIKH) BRENNT AF
— þegar ÍA lagdi Víkinga ad velli 2:1
■ Setur Kristján met?
■ Það verður nóg um að vera fyrir frjáls-
íþróttaf ólk nú um helgina þvi að Bikarkeppni
FRÍ bæði í 1. og 2. deiid fer fram um helgina,
16. ng 17. júlí. 2. dcildarkeppnin fer frain á
Kópavogsvelli og hefst klukkan 14.00 báða
dagana og lykur klukkan 16.00. Verður
spennandi að fylgjast með baráttu liðanna
um sæti í L.deild. Kemur hón sjálfsagt til að
standa helst á milli UMSK, UMSB, HSH og
Ármanns. Fjöldi góðra íþróttamanna keppir
þarna og m.a. er norskur spjótkastari,
Harald Lauritsen sem keppir sem gestur á
mótinu. Hefur hann kastað tæpa 85 mctra
þannig að um spennandi keppni ætti að geta
orðið á milli hans, Einars Vilhjálmssonar og
Sigurður Einarssonar. Nú er bara tima-
spursmál hvenær Kristján Harðarson setur
íslandsmel í langstökki. E.t.v. í Kúpavogin-
um nú um helgina, hver veit?
Það vcrður líka spennandi keppni í 1.
deiidinni því þar eru lið eins og ÍR og KR
með allar sínar skærustu stjörnur, og hin
liðin náttúrulega líka. Keppnin í þcirri fyrstu
hefst ekki fyrr en klukkan 16.30 liáða
dagana, þannig að æstustu frjálsíþróttafrík
ættu að geta farið á báðar keppnirnar.
ÞOR VIÐ HUD KR
Þór vann KR 2:0 á Akureyri
■ Klukkan 20 í gærkvöldi flautaði
Þorvarður Björnsson til leiks jafn-
tefliskónga 1. deildar, KR-inga, og
heimavarnarliðs Þórs. Öll skilyrði
voru hin ákjósanlegustu, 16 stiga hiti
og grasið gott. Fjölmargir áhorfend-
ur voru mættir til leiks - allir til að
sjá góða kanttspyrnu og auðvitað
flestir til að sjá Þór bæta við sig
tveimur stigum og komast þannig
upp við hlið KR-inga.
í fyrri hálfleik brá oft fyrir
skemmtilegum tilþrifum hjá báðum
liðum sem sköpuðu sér færi á víxl og
lengst af hálfleiksins var jafnræði
með liðunum. Markverðirnir áttu þó
tiltölulega auðvelt með þau skot sem
á markið komu. Á 35. mín. dró til
tíðinda, þegar dæmd var aukaspyrna
á KR við vítateigslínu. Guðjón
Guðmundsson gerði sér lítið fyrir og
skrúfaði boltann beint í möskvana.
KR-ingar komu ákveðnir til leiks í
síðari hálfleik og voru heldur frískari
framan af, án þess þeim tækist að
jafna metin. Þórsarar áttu fyrsta
hættulega færið þegar Þorsteinn
markvörður spyrnti langt fram og
Halldór Áskelsson átti þrumuskot
sem fór naumlega framhjá. Tveimur
mínútum síðar, á 22. mín., braust
Helgi Bentsson gegnum KR-vörnina
og lék á markmanninn, en Sigurður
Indriðason varði skot Helga með
hendi. Guðjón Guðmundsson stillti
boltanum upp á vítapunkti, hljóp að
og skaut í hornið sem markmaðurinn
fór ekki í. Annað mark Guðjóns og
Þórs var staðreynd og eftir þetta
settu KR-ingar meiri baráttu f leik-
inn, þannig að hann einkenndist eftir
þetta meira af stöðubaráttu á kostnað
léttleikans.
Eftir því sem veðrið batnaði
minnkuðu gæði knattspyrnunnar og
KR-ingar gerðu örvæntingarfullar til-
raunir til að jafna metin. Mörkin létu
á sér standa, en engu að síður bauð ’
leikurinn upp á mörg skemmtileg
augnablik. Oft skall hurð nærri hæl-
um beggja vegna en herslumuninn
vantaði. Þórsarar gerðu sig greinilega
ánægða með gang mála og KR-ingar
geta huggað sig við það að þeir eru
enn með í toppbaráttunni eins og
reyndar öll önnur lið deildarinnar,
svo jöfn er staðan nú sem fyrr.
Segja má að Þórsarar hafi verð-
skuldað þennan sigur, bæði ef litið er
á gang þessa leiks og ekki síður þegar
litið er til þess hvernig þeim hefur
vegnað í mótinu, án þess að uppskera
alltaf stig í samræmi við það.
Lið Þórs var jafnt og e.t.v. ekki
ástæða til að nefna einn öðrum
fremur en þó ber að minnast góðrar
frammistöðu Jónasar Róbertssonar,
bakvarðar. Sæbjörn og Ottó voru
bestir KR-inga og kom það á óvart
að Sæbirni skyldi skipt útaf í seinni
hálfleik. Tvö gul spjöld sáust. Sigurð-
ur Indriðason var áminntur fyrir
ítrekuð brot á Helga Bentssyni og
Þorsteinn Ólafsson fékk hitt fyrir að
segja dómaranum til. Hann vildi fá
.betra næði fyrir sóknarmönnum til
að taka útspörk.
íþróttir
Leikir
helgarinnar
Laugardagur 16. júlí:
1, deild Vestmannaeyjavöllur
ÍBV-ÍBK kl. 14.00
2. deild Garðsröllur
Víðir-Einherji kl. 14.00
2. dcild Siglóvöllur
KS-Fram 14.00
Sunnudagur 15. júli:
1. deild Laugardalur
Þrúttur-ÍBÍ kl. 14.00
1. deild Kópavogur
Brciðabl-Valur kl. 20.00
2. deild Sandgerði
Reynir-Njarðvík kl. 20.00
2. dcild Laugardalur
Fylkir-KA kl. 20.00
Frægustu lið
Afríkunnar
■ Já hvernig væri nú að kíkja á hin
slórfrægu lið í a frísku knattspyrnunni.
Tvö helstu knattspyrnuliðin ■ Zambíu og
þau sem flesta titlana hafa unnið eru N'kana
Red Devils og Power Dypamos, en í
síðarnefnda liðinu eru tveir skemmtilegustu
framherjar Zambíu, þeir Alex Chola og
Pétur Kaumba.
Tanzaníubúar hafa skemmtilegum liðum
á að skipa eins og til dæmis Young Africans
og Simba, en i Shnbaerafarleikinn tengiliður
að nafni Ramadhani og senterinn Mogclla.
Stetla er besta lið Fflabeinsstrandarinnar,
mjög létt og hresst lið. Og þá er eftir
aðalliðið, Vita, frá Zaire. Senterinn Mul-
amba og miðvallarspilarinn Kibongc Mafu
og vinur hans Ntumba Kulala eru allir fastir
landsliösmenn i liöi Zaire-búa.
Þá vitiði það!
■ Þau voru ótrúlega mörg dauðafærin
sem fóru forgörðum í leik Víkings og ÍA,
en þeim lcik lauk með sigri IA á
meisturum Víkings 2-1.
Strax á 9. mínútu opnuðu Skagamenn
markareikning sinn með góðu marki
Harðar Jóhannessonar. Hörður fékk
boltann frá Sigþóri Ómarssyni inn í
miðjan vítateig Víkinganna, Hörður
lagði hann vel fyrir sig og skaut góðu
skoti út í bláhornið, óverjandi fyrir
Ögmund í marki Víkings.
Skagamenn tóku nú leikinn í sínar
hendur, voru mun ákveðnari og sóknar-
Ieikur þeirra var beittari en sóknarleikur
Víkinganna, sem ávallt endaði á sterkum
varnarmúr Skagamanna. Sést þetta best
á því að Víkingar áttu aðeins tvö umtals-
verð skot á mark Skagamanna í fyrri
hálfleik, bæði langskot. Á 18. mínútu
áttu Skagamenn dauðafæri, en Hörður
Jóhannesson stóð fyrir opnu marki eftir
góða fyrirgjöf Guðjóns utan af hægri
kanti, en brenndi af.
Á 27. mínútu skoraði átrúnaðargoð
þeirra Skagamanna, Sigurður Jónsson
alveg sérstaklega glæsilegt mark. Sigurð-
ur fékk boltann á vítateig og sneri þá baki
í mark Víkinga, Sigurði tókst að snúa sér
við og tók 2-3 „búkhreyfingar", lagði
boltann fyrir sig og setti hann pent í
hægra hornið, glæsilegt mark.
Skagamenn héldu yfirburðum sínum
áfram fyrstu mínútur síðari hálfleiks og á
5. mínútu fékk Sveinbjömlanganstungu-
bolta frá Herði, sem skaut góðu skoti en
Ögmundur varði vel. Á 12. mínútu var
Ögmundur aftur vel á verði er hann varði
gott skot Sveinbjarnar.
Víkingar fóm nú að koma smátt og
smátt meira inri í leikinn og á 15. mínútu
fá Víkingar vítaspyrnu eftir að Óskar
Tómasson var felldur innan vítateigs lA.
Ómar Torfason var ekki í miklum vand-
ræðum með að framkvæma hana á réttan
hátt, og minnka muninn í 2-1.
Þetta var greinilega það sem Víkingar
þurftu, þeir sóttu nú látlaust og áttu hvert
dauðafærið á fætur öðm, en það var eins
og þeir ættu auðveldara með að hitta allt
annað en á milli stanga Skagamanna.
Síðustu 20 mínúturnar áttu Vtkingar í
það minnsta fimm kjörin færi á að jafna,
en allt kom fyrir ekki.
Bestu menn Víkinga voru þeir Ög-
mundur Kristinsson og Heimir Karlsson
sem átti mjög góðan leik. Þeir Svein-
björn, Sigurður J., og Guðbjörn
Tryggvason vom sterkastir annars nokk-
uð jafnra Skagamanna. Þ.S.
RflUÐfl
TORGH)
EKTA
HUNANG
CRANBERRY
SULTA
GRÆNAR BAUNIR
LINGONBERRY
SULTA
JARÐARBERJA
SULTA
RUSSNESKAR
VÖRUR
Sýning íbúða
íbúðir í 3. byggingaráfanga Stjórnar verkamannabústaða við Eiðs-
granda, verða til sýnis laugardaginn 16. og sunnudaginn 17. júlí 1983
frá kl. 14-22 báða dagana.
Sýningaríbúðir eru að Öldugranda 1, 1. hœð.