Tíminn - 19.07.1983, Blaðsíða 8

Tíminn - 19.07.1983, Blaðsíða 8
8 Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjori: Gísli Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason. Skrifstofustjóri: Ragnar Snorri Magnússon. Afgreiðslustjóri: Sigurður Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elías Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrímsson. Umsjónarmaður Helgar-Timans: Atli Magnússon. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Friðrik Indriðason, Guðmundur Sv. Hermannsson, Guðmundur Magnússon, Heiður Helgadóttir, Jón Guðni Kristjánsson, Jón Ólafsson, Kristín Leifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson (íþróttir), Skafti Jónsson, Sonja Jónsdóttir, Þorvaldur Bragason. Lltlitsteiknun: Gunnar Traustl Guðbjörnssson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Árni Sæberg. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Kristin Þorbjarnardóttir, Maria Anna Þorsteinsdóttir, Sigurður Jónsson. Ritstjórn skrifstofur og auglýsingar: Síðumúla 15, Reykjavík. Simi: 86300. Auglýsingasími 18300. Kvöldsímar: 86387 og 86306. Verð í lausasölu 18.00, en 20.00 um helgar. Áskrift á mánuði kr. 230.00. Setning og umbrot: Tæknideild Timans. Prentun: Blaðaprent hf. Gróðurvernd á köldu sumri ■ Veðurfar hefur verið óvenju hart á íslandi í ár. Veturinn var kaldur og snjóþungur og seint voraði. Sumarið kalt og votviðrasamt. Um miðjan júlí er nætur- frost á nokkrum stöðum á landinu, fjöll grána af snjó og slydda í byggð. Gróður kemur seint upp og víða eru tún kalin. Menn hafa þótst merkja það að verðurlag fari kólnandi hin síðari ár og sígi enn á þá ógæfuhlið. Víst er að samkvæmt mælingum vísra manna lækkar meðalhitinn, þótt þeir ali ekki á svartsýni með því að spá neinu um að sú þróun haldi áfram um eitthvert skeið. Tíðarfar sem þetta ýtir undir ásókn fólks í sólarlanda- ferðir og leggja margir hart að sér til að njóta sumarblíðu, þótt ekki sé nema nokkrar vikur á ári. Vegna þrenginga í efnahagslífinu treystast nú færri en áður til að leita sólar og hlýinda í fjörrum heimshornum og er það miður þegar svona árar. Oft er því haldið fram að íslendingar ættu að leggja meira kapp á að skoða eigið land og sumarnáttúru þess og eyða til þess frístundum sínum í stað þess að flengjast suður undir hitabelti til að njóta lífsins leystisemda þar. En það er ekki alltaf auðhlaupið að því að skoða ísland. Vegatálmar eru settir upp á vegi inn á hálendið til að verja vegslóða og gróður. í sumum sveitum skella á þorraveður á þeim tíma sem kenndur er við heyannir og sandbyljir teppa umferð í öðrum landshlutum. Það er sem sagt tryggara að leita suður á bóginn á móts við sumar og sól heldur en að liggja í svaðilförum á Fróni. En verst leikur kuldatíðin gróður landsins. Talið er að gróður sé nú um mánuði seinna á ferðinni en í meðalári. A þettá aðallega við um norðanvert landið, allt frá Vestfjörðum til Austurlands. Tún koma illa undan vetrinum og bætir það enn á erfiðleikana. Úthagi og afréttir gróa seint og eru vart tilbúin að taka við miklum ágangi kvikfénaðar. Fetta minnir óþyrmilega á hve gróðurfar landsins er viðkvæmt og krefst aðgæslu og verndar ef ekki á illa að fara. Meðferðin á landinu ætti að vera víti til varnaðar. Sem betur fer er skilningur sífellt að aukast á að kakan verður ekki bæði geymd og étin. Ef landinu er ofgert hefnir það sín með síminnkandi afrakstri. En sjónarmið stundar- gróða og óskhyggju eru samt oft látin sitja í fyrirrúmi. Prátt fyrir aðvaranir og frómar óskir þeirra sem vit vilja hafa fyrir mönnum í þessum efnum, skella aðrir skollaeyr- um við og láta eins og gróðurmátturinn norður við Dumbshaf sé ótakmarkaður. Núna þessa dagana hefur landgræðslustjóri ítrekað bent á ófhóflega hrossaeign og upprekstur stóðs á viðkvæman afréttagróður. í sumum sveitum kann það að þykja mannlegt að slá um sig með ríkidæmi í fjölda hrossa, en arðsemin þarf samt ekki að fara eftir því, enda offramboð á öllum mörkuðum. Pá ættu þéttbýlisbúar að fara að gæta betur að sinni hestaeign. Það mætti kannski leggja meiri áherslu á færri gæðinga en betri. Það er vitað mál og viðurkennt að sauðfjáreign er of mikil. Offramleiðsla er á dilkakjöti og leita bændur nú ýmissa ráða til að koma á jafnvægi í þeim markaðsbúskap. Fækkun sauðfjár og gróðurvernd fer vel saman. Óþarft er að tíunda hvernig ofbeit leikur gróður og moldarskánina þunnu. En það er hægara sagt en gert að segja mönnum sem eiga lífsafkomu sína undir sauðfjárrækt og aleiguna í jörðum, mannvirkjum og vélum til þeirrar framleiðslu, að vinda sér í aðrar framleiðslugreinar eða atvinnu vegna breyttra markaðsástæðna. í hlýindaskeiðinu um miðbik aldarinnar hafa menn gleymt því að harðindi og góðæri skiptast á hér á landi. En þjóðin hefur þraukað þorrann og góuna og er betur undir það búin en nokkru sinni fyrr að mæta hörðu ári og gróðurinn er lífsseigur ef honum er ekki ofgert af mannavöldum. qq ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ1983 skrifað og skrafað Sálmyrðandi úrfelli? ■ Lofsöngurinn um dægurtónlistina flýtur viöstööulítið út úr öllum fjölmiðlum, blööum og ríkisútvörpum, svolítið í auglýsingum og enn meira í skrifum og tali þar til ráöinna manna og kvenna. Ekki er laust viö að sumum þyki nóg um, en enginn þarf að leggja við eyru þótt einhver sé að tísta um að miðaldra æskumenn sem halda að rafmagnsgítar og magn- arakerfi séu upphaf og endir fagurs mannlífs, hafi sig fullmikið í frammi. Kristján skáld frá Djúpalæk hefur ekki tal- ið skáldgáfu sinni mis- boðið með því að yrkja texta við dægurlög og gert það betur en flestir menn núlifandi. Kristján veit og skilur að það ber að leggja rækt við þenn- an þátt menningarinnar ekki síður en þá sem hærra hreykja sér. Hann getur því trútt um talað er hann lætur í ljósi álit sitt á margri þeirri lág- kúru sem flokkað er und- ir áhugamál ungs fólks og þeirri matreiðslu sem þar fylgir. Hann fjallar m.a. um ugg sinn í dálki í Helgar-Degi og skrifar: „Snemma á öldinni sem leið hófst hér á landi merkileg menningarsókn upp úr hörmungum og niðurlæging liðinna ára og alda. Þessi sókn fram á leið óx upp af frækorn- um Fjölnismanna og náði loks hámarki um miðbik þessarar aldar eða um þær mundir sem hin miklu heimsátök hófust, stærsta syndafall germ- anskra þjóða. Hlið við hlið sóttu skáld og stjórn- vitringar 19. aldarinnar fram undir merki Jónasar Hallgrímssonar, Jóns Sigurðssonar og annarra slíkra. Andleg ofurmenn um og eftir síðustu alda- mót, Einar Ben., Matt- hías og Stefán G. voru öldufaldar sem risu hátt og áfram geistist þjóðin á vaxtarvegi. Fyrsti íslenski ráðherr- ann og skáldið, Hannes Hafstein, og Þorsteinn Erlingsson efldu einnig hvort tveggja stjórn- málaþroska og fagurskyn þjóðarinnar, síðan hver af öðrum: Stefán frá Hvítadal, Davíð, Tómas, Guðmundur Böðvarsson. Höfundar óhundins máls í skáld- skap og fræðum: Laxness, Þórbergur, Nordal, Ágúst H. og fleiri og fleiri iétu ekki sitt eftir liggja og um allt land uxu upp og hófust hærra stjórnmála- skörungar, orðlista- menn, málarar og tónskáld. Allt frá Sandi norður til blómlegra byggða Borgarfjarðar fylgdu alþýðumenn í fót- spor menntamanna. f>á skal ekki gleyma sigrum í sjálfstæðisbar- áttu, Ungmennafélags-, Samvinnuhreyfingu og vexti fræða í öflugu skólakerfi en mér er efst í huga gróskan í orðlist- inni. Aldrei síðan á ritun- artíma íslendingasagna hafði hróður okkar orðið meiri á þeirri braut. En eftir aðfallið hefst útfall. Heimsstyrjöldin breytti öllu. Fyrstu fráhvarfsein- kennin voru eftirsókn í stórfenginn fjárgróða, stórveldadekur og sið- ferðileg sljóvgun. Brott- felling stuðla og ríms í ljóðagerð hófst með áhlaupi og þegar svo jarðgrónum undir- stöðum í menningarhefð þjóða er tundrað hlaut fleira að fylgja á eftir: í kjölfarið fylgdi andleg lægð og undansláttur í hverju vígi. Siðferðileg upplausn upp úr stríðs- gróða og hernámi gat af sér eftirsókn eftir fánýti og síðan beina dýrkun Ijótleika. Hin síðari ár kemur þetta best í ljós í svokölluðum skemmti- iðnaði í myndum og máli þar sem vanviska og ógeð ná einna hæst. Ágætt dæmi um menn- ingarlegt fráhvarf okkar tíma er dægurtónlistin og flytjendur hennar verða; að vera í samræmi við inntak efnisins. Þeirmála sig því í stíl við hugmynd- ir manna um óvættir and- skota, tónar eru laglínu- laus hávaði, fluttur með tilbúnum hræfuglarómi, orðin afskræmilegt klúð- ur kláms, flónsku og fár- ánleika þar sem öll vits- munamerki og fegurðar- boð eru útlæg ger. Öll hin mikla tækni sem hefði átt að leiða okkur hraðar fram á þroskabraut er tvíeggjuð og reynist háskaleg í höndum þeirra er skortir siðferðilegan þroska. Dæmin blasa hvarvetna við. Fjölmiðlar eiga hér mikla sök, eindum með útbreiðslu hins lítilsiglda vegna þeirrar nútíma verslunaráráttu að ganga alltaf niður til hins lága í stað þess að reyna að draga það upp til sín á hærra svið. Maður þorir varla að opna útvarp og sjónvarp af ótta við sál- myrðandi úrfelli. Þjóð sem gengur bæði á sviði stjórnarfarslegs öngþveitis og menning- arlegs flótta jafnhratt aftur á bak og við nú á ekki langt eftir í hrapið fram af svarta bakkan- um.“ Framtak heimamanna þarf til Iðnþróunarnefnd fyrir Eyjafjarðarsvæðið hefur nýverið skilað mikilli skýrslu um hugsanlega iðnþróun, eins og skýrt hefur verið frá í blöðum. Helgi Guðmundsson er formaður nefndarinnar. í síðustu viku birti Morg- unblaðið viðtal við Helga. Hann var m.a. spurður hver væri afstaða nefndarinnar til orku- freks iðnaðar. Helgi svaraði: „Deilur hafa verið uppi um slíkt - og eru sjálfsagt enn. En nefndin varð sammála um að bygging orkufreks iðn- fyrirtækis, sem veita myndi 200-250 manns at- vinnu, væri af þeirri stærðargráðu, að ekki þyrfti að koma til umtals- verðrar röskunar á at- vinnulífi né skaðleg áhrif yrðu á atvinnurekstur sem fyrir er. Þvert á móti, nefndin telur að þegar fyrir liggja athug- anir er varða veðurfar og mengunarhættu, þá sé ástæða til að gera upp málið í heild. Fjölmenni byggðar er slíkt á svæð- inu, að við teljum að ekki þurfi að koma til verulegrar eða umtals- verðrar byggðaröskunar af völdum stóriðjuvers. Við leggjum mikla áherslu á að sveitarfélög á svæðinu afli nægra upp- lýsinga sem fyrst um þessi mál og kynni þær fyrir almenningi. Til ým- issa pólitískra atriða varðandi stóriðju, svo sem eignaraðild útlend- inga og fleira, tekur nefndin ekki afstöðu, enda liggur fyrir að nefndarmenn hafa þar mismunandi skoðanir.“ - Hvað gerist nú næst eftir útkomu þessarar skýrslu? „Ja, það er nú ekki okkar verk að segja til um það, en ég tel, að nú ættu atvinnumálanefnd- ir, iðnþróunarfélagið og aðrir aðilar, sem skýrslan varðar, að taka upp til- lögur okkar og ábending- ar og hrinda sem fyrst sem mestu af þeim í framkvæmd. Eg vil leggja sérstaka áherslu á það, að til þess að nokkur iðnþróun geti átt sér stað á svæðinu þarf tvennt til. í fyrsta lagi, að iðnaði almennt í landi sé búinn eðlileg vaxtarskilyrði til eðlilegrar þróunar. í öðru lagi, og ekki síður mikilvægt, raunar grund- vallaratriði, að heima- menn sjálfir séu reiðu- búnir til að kosta til þess fjármunum og vinnu. Það er lykilatriði. Sama væri þótt við sem í þessari nefnd unnum, hefðum skilað 1.000 blaðsíðna skýrslu og komið með enn fleiri og ítarlegri til- lögur, ef framtak heima- manna er ekki fyrir hendi, þá er slík athugun tilgangslaus. Ég vil biðja framtaks- sama aðila á Eyjafjarðar- svæðinu - raunar íbúa alla - að líta nú upp úr svartnættishugsunar- hættinum, sem einkennt hefur umræðu um at- vinnumál um of á síðustu tímum, líta upp og huga að þeim möguleikum sém fyrir hendi eru. Þeir eru miklir ef menn gefa þeim gaum. íbúar þessa lands hafa áður þurft að ganga í gegnum kreppu- ástand og komist frá því. Það verður verkefni okk- ar á næstunni að vinna að slíku á Eyjafjarðarsvæð- inu.“

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.