Tíminn - 24.07.1983, Blaðsíða 11
SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ1983
jP,
11
út fyrstu skáldsögu sína.Armance, og
þó hún þyki á flestan máta misheppnuð
þá var í henni að finna fyrsta Utangarðs-
manninn - í nútíma skilningi - sem
komst á bók. Það er Octave sem vegna
kynferðislegs getuleysis finnur sig ein-
stæðan, einangraðan frá öðrum
mönnum. Eftir byltinguna í júlí árið
1830 komst Stendahl aftur til nokkurra
metorða í Frans og var skipaður konsúll
í Civita Vecchia en hann rækti skyldur
sínar illa og var mestan part í París eins
og áður. Þar kom út anno Domini 1831
sú bók sem dugir til að halda nafni hans
á lofti: Le Rouge et le Noir. Þessi
merkilega skáldsaga fjallar um ung-
mennið Julien Sorel og brennandi þrá
hans til að komast áfram í samfélagi
mannanna - aukin heldur skipti hans
við konur. Julien er óvenjuleg söguhetja
- eða var það altént er bókin kom út -
og hvort er hann erkihræsnari eða heið-
arleikinn uppmálaður? Hann reynir að
vera sterkur en þegar hætta steðjar að
verður lítið úr þeim áformum. „Julien,
það er ég,“ sagði Stendahl. Bókin var
fordæmd einhuga . af menningarpakki
Parísarborgar en hún er nú viðurkennd
sem snilldarstykki og Stendahl sem einna
fyrstur - og jafnframt einna mestur -
realistanna. í þá daga var stíllinn einkum
og sér í lagi úthrópaður og sagður vera
ljótur bæði og klaufalegur en aðrir hlutir
voru Stendahl ofar í huga en blæbrigða-
rík fegurð - nefnilega skynjun, tilfinn-
ingar aðalpersónunnar. Höfundurinn
var kannski ekki alveg viss um hversu
góð bók hans væri en þrátt fyrir allt var
hann óhræddur - hans tími myndi koma.
Heimsmet í afköstum
Hann hélt áfram að skrifa, hóf vinnu
við skáldsöguna Lucien Leuwen en lauk
aldrei við hana. Tíðum skrifaði hann af
ofurmannlegum krafti og árið 1838 setti
hann heimsmet það í afköstum sem enn
stendur - hann hristi fram úr erminni
skáldsögu upp á þrjúhundruð þúsund
orð á rúmum fimm vikum. Það gerir átta
til tíu þúsund orð upp á hvern dag en
þess má geta að greinin sem þú, væni
lesari, ert að lesa nú er í hæsta lagi tvö
þúsund og fimmhundruð orð og hefur
tekið meira en dag. Þrátt fyrir þennan
sjúklega vinnuhraða er niðurstaðan
hreinasti gimsteinn: La Chartreuse de
Parme, en á henni og Rauðu og svörtu
hvílir orðstír Stendahls nú um stundir. í
þessari sögu birtast líkastil einna skýrast
hugmyndir hans um frelsið - frelsið sem
getur aldrei orðið algjört frekar en
hamingjan en við hljótum þó að sækjast
eftir því. Að dómi Stendahls er maður
ætíð umluktur einhverjum fangelsismúr-
um sem ýmist hann sjálfur eða utanað-
komandi bandíttar hafa reist'. Frelsið er
fólgið í því að gera sér grein fyrir því og
mynda sér sitt eigið frelsi - frelsi vitund-
arinnar - bak við múra fangelsisins eða
grímur persónunnar. „Með ánægju
myndi ég ganga með grímu.“ Er frelsið
hvergi nema handan grímunnar? Sten-
dahl fann sér sitt frelsi í ritstörfunum og
hann líkti einu sinni „þeirri skepnu sem
kölluð er rithöfundur" við silkiorminn(
sem étur fylli sína af trjálaufum en má
síðan til að skreiðast upp á grein og vefa
þar eigið fangelsi. Úr silki, úr orðum -
það kemur út á eitt.
Stendahl lést þann 23. mars 1843 eftir
hjartaáfall en hafði þá átt við alls konar
bilanir og pestir að stríða um skeið.
Hann lét eftir sig mörg ófullgerð verk:
skáldsöguna Lamiel, La Vie de Henri
Brulard þar sem hann rekur æsku-
minningar sínar og fleira að hætti Játn-
inga Rousseaus, Souvenirs d’Égotisme,
dagbækur og ýmiss konar athugasemdir
um lífið og tilveruna, og hafa þessi verk
verið gefin út og þaullesin, ekki síst
dagbækurnar og Henri Brulard.
Næsta fátækleg orð um Stendahl og
kannski ekki við allra lesenda hans hæfi.
Á legsteini hans standa þessi orð sem
hann sagði sjálfur fyrir um: „Scrisse,
Amo, Visse." Stendahl elskaði lífið og
féll ekki í fánýtishyggju þó hann kynni
skil á vonbrigðum þess. Hann brosti
dapurlega og hélt áfram. Hann vissi að
við myndum þekkja þetta.
- ij tók saman.
■ Ulugi Jökulsson
skrifar um lcikhús Ifll
Þú getur flogið beint
til hjarta Evrópu
og fengið flug+hótel
eða bílaleigubíl
á frábæru heildarverði
Nú liggur leiðin beint til Amsterdam,
hinnar lífsglöðu heimsborgar með
hollensku smáþorpin, baðstrendurn-
ar, vindmyllurnar, ostamarkaðina,
leikvellina og skemmtigarðana í seil-
ingarfjarlægð. Við bjóðum flug+hótel-
gistingu í Amsterdam á frábæru verði
og fullyrðum að leitun sé að skemmti-
legri stórborg til lengri eða styttri
heimsókna.
En það er ekki síður erfitt að hugsa
sér ákjósanlegri upphafspunkt en
Amsterdam þegar stefnan er sett á
ökuferð vítt og breytt um Evrópu. Frá
Amsterdam, þessu eina og sanna
Evrópuhjarta, liggur leiðin til allra átta
og stutt er til fjölmargra skemmtilegra
landa og fjölda stórborga sem gaman
er að sækja heim.
Með áætlunarfluginu til Amsterdam
býðst þér einkar hagstætt heildar-
verð fyrir flug og bílaleigubíl. Og það
er notalegt til þess að vita'að í okkar
verðtilboði höfum við innifalið sölu-
skatt, tryggingar og ótakmarkaðan
akstur og um leið verndað þig fyrir
óvæntum aukakostnaði þegar til út-
landa er komið.
Verð miðað við 4 í bíl 1 vika 2 vikur 3 vikur
Fiokkur A 11.022 12.217 13.412
Flokkur B 11.048 12.269 13.489
Flokkur C 11.154 12.481 13.807
Flokkur D 11.315 12.802 14.290
Flokkur E 11.527 13.226 14.926
Flokkur F 11.870 13.914 15.957
lnnifalið: Flug söluskaitur, iryggingar. ótakmarkaður akstur. Ekki innifalið: Flugvallarskattur. Verð miðast við hvern einstakling. Verð miðast við gengi 1. júlí 1983.
Amsterdam—óskabyrjun á ökuferð um Evrópu
Hafið samband við söluskrifstofu
Arnarflugs eða ferðaskrifstofurnar.
Flugfélag með ferskan blæ
ARNARFLUG
Lágmúla 7, slml84477
ÖLL ALMENN PRENTUN
LITPRENTUN
TÖLVUEYÐUBLÖÐ
• Hönnun
• Setning
• Filmu- og plötugerð
• Prentun
• Bókband
PRENTSMIDJAN
édddc
Ct HF.
SMIÐJUVEGI 3, 200 KÓPAVOGUR
SÍMI 45000
MAMWZW nCD-
wrnlm wLmvJPmSmIm
Eigum WELGER AP-53 heybindivélar til afgreiðslu strax.
Hagstætt verð. Greiðsluskilmálar.
ALDRAÐIR
þurfa að
ferðast eins
og aðrir.
Sýnum þeim
tillitssemi.
||ST“