Tíminn - 24.07.1983, Page 19
SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1983
Líkamsstærð
Þegar bakvöðvarnir taka að rýrna, svo
og brjóskið í hryggnum, verður hæfileik-
inn minni til þess að bera uppi þunga
líkamans. Liðamótin liggja nú þéttar
saman og maðurinn tekur að falla
saman. Sem dæmi:
30 ára: 180 sentimetrar.
40 ára: 179,68 sentimetrar.
50 ára: 179,04 sentimetrar.
60 ára: 178.08 sentimetrar.
70 ára: 177.14 sentimetrar.
Líkamsþunginn
Þrátt fyrir að vöðvar og fleiri vefir
rýrni, þá eykst ummál kviðarins með
aldrinum, þar sem hraði efnaskiptanna
minnkar um þrjú prósent á tíu árum. Þar
af leiðir aukið fitumagn. Á elliárum
kemur að því að vefjarýrnun verður
meiri en fitusöfnunin og líkamsþunginn
minnkar. Sem dæmi:
20 ára: 70 kíló (þar af 15% fita)
30 ára: 74 kíló
40 ára: 76 kíló
50 ára: 77 kíló
60 ára: 77 kíió
70 ára: 75 kíló (þar af 30% fita)
Vöðvastyrkleiki
Þrítugur er maðurinn kröftugastur og
sterkastur. Sé hann 74 kíló eru 30 kíló
vöðvar. Á næstu 40 árum mun hann
missa fjögur kíló hér af. Bandvefur
kemur í staðinn fyrir vöðvavefinn og
spenna vöðvanna minnkar. Vöðvarnir í
handleggnum minnka og léttast.
30 ára: hægri handleggur 37 kíló -
vinstri handleggur 24 kíló
40 ára: hægri handleggur 36 kíló -
vinstri handleggur 23 kíló
50 ára: hægri handleggur 34 kíló, -
vinstri handleggur 21 kíló
60 ára: hægri handleggur 32 kíló -
vinstri handleggur 18 kíló
70 ára: hægri handleggur 29 kíló -
vinstri handleggur 16 kíló.
Neglur
Með aldrinum taka neglur á höndum
og fótum að vaxa hægar. Vöxtur naglar
þumalfingurs á viku:
20 ára: 0.94 millimetrar
30 ára: 0.83 millimetrar
40 ára: 0.80 millimetrar
50 ára: 0.77 millimetrar
60 ára: 0.71 millimetri
70 ára: 0.60 millimetrar
Hárið
Eftir því sem á ævina líður vaxa fleiri
hár á líkamanum, - en því miður helst
þar sem síst skyldi. Hárin taka að falla
af höfði karlmannsins, en ný gægjast út
úr eyrum og nösum. Hárprúðastir eru
menn um tvítugt, en er þeir eru orðnir
sjötugir er höfuðhárið orðið þunnt og
fíngert eins og á barni. Þvermál háranna
á ýmsum æviskeiðum:
20 ára: 101 mikron
30 ára: 98 mikron
40 ára: 96 mikron
50 ára: 94 mikron
60 ára: 86 mikron
70 ára: 80 mikron
Fitulagið
Húðin verður feitari með aldrinum.
Sem dæmi skulum við taka fitulagið
neðan við herðablöðin. Þegar karlar eru
um tvítugt er fitulagið þarna um 12
millimetra þykkt, og um 16 millimetra
þykkt um fertugt. Jafnframt verður
brjóstkassinn og mittið gildara. Dæmi
um ummálsaukningu mittisins og brjóst-
kassans:
20 ára: Mitti 84 sentimetrar. Brjóst-
kassi 92 sentimetrar
30 ára: Mitti 92 sentimetrar. Brjóst-
kassi 99 sentimetrar
40 ára: Mitti 99 sentimetrar. Brjóst-
kassi 102 sentimetrar
50 ára: Mitti 102 sentimetrar. Brjóst-
kassi: 104 sentimetrar.
Þol
Þegar hjarta, lungu og vöðvar slakna,
hægist á súrefnisbrennslunni í líkaman-
um. Sjötugur maður í góðu ásigkomulagi
getur vissulega þreytt Maraþonhlaup,
en hann er klukkustund lengur á leiðinni
en ungur maður. Sé „framkvæmd vinna"
á mínútu mæld í kílóum lítur dæmið
svona út:
30 ára: 412 kíló
40 ára: 379 kíló
50 ára: 352 kíló
60 ára: 323 kíló
70 ára: 298 kíló
Höfuðið
Þar sem beinin í höfuðkúpunni gerast
smám saman þykkari, þá eykst ummál
höfuðsins um hálfan sentimetra á hverj-
um tíu árum. Einnig tekur brjósk í
líkamanum að vaxa og um sjötugsaldur
er nefið 13 millimetrum lengra og eyrun
5 millimetrum lengri.
Viðbrögð
Þótt taugabrautirnar séu i góðu lagi
fram eftir elliárum, þá sljóvgast við-
brögðin, þar sem heilinn þarf nú lengri
tíma til þess að vinna úr upplýsingum og
gefa sínar skipanir. Tíminn sem það
tekur að velja á milli tveggja takka sem
látið er ýta á þegar ljós kviknar er eins
og hér segir:
20 ára: 0.88 sekúndur.
50 ára: 0.90 sekúndur
60 ára: 0.92 sekúndur
70 ára: 0.95 sekúndur
Munnur
Þegar sjötugsaldri er náð er aðeins
þriðjungur bragðlaukanna virkur. Þá
hefur munnvatnsrennslið minnkað.
Röddin er tekin að skjálfa, þar sem
raddböndin verða stífari og raddhæðin
lyftist um tvo tóna, frá C upp í E.
Tennur
Ekki er hætta á því að maðurinn slíti
tönnum sínum til fulls, nema hann verði
200 ára gamall. Vandamálið er hins
vegar að fá tennurnar til þess að tolla í
munninum fram til sjötugs. Sjötugur
maður hefur nefnilega tapað þriðjungi
tanna sinna að jafnaði. Orsökin er því
fremur sykurát og ófullnægjandi tann-
hirða en slit.
30 ára: Tvær tennur hafa tapast
50 ára: Sjö tennur hafa tapast
60 ára: Átta tennur hafa tapast
70 ára: Tíu tennur hafa tapast
Eyrun
í raun réttri ætti ekki að vera þörf á
mjög næmum stereógræjum mestan
hluta ævinnar. Strax þegar menn eru
orðnir tvítugir breytast hljóðbylgjur
ofan við 20 þúsund Herz ekki lengur í
taugaboð. Hljóðbylgjutíðni raddarinnar
liggur undir 4 þúsund Herz. Því geta
margir gamlir menn heyrt ágætlega, - ef
þeir á annað borð hafa áhuga á því.
30 ára: Erfitt að heyra hljóð ofan við
15 þúsund Herz. Suð engisprettu.
50 ára: Erfitt að heyra hljóð ofan við
12 þúsund Herz. Hundsýlfur.
60 ára: Erfitt að heyra hljóð ofan við
10 þúsund Herz. Rauðbrystingur.
70 ára: Erfitt að heyra hljóð ofan við
10 þúsund Herz. Hæstu orgeltónar.
Hjartað
í hvíld lætur nærri að hjartað slái með
alveg jöfnum slögum. En slögin verða
veikari með aldrinum. Á efri árum dælir
hjartað minna blóði út í æðakerfið en
fyrr og við áreynslu er púlsinn ekki svo
ör sem fyrr. Blóðmagnið sem hjartað
dælir á hinum ýmsu æviskeiðum:
30 ára: 3.4 lítrar á mínútu
40 ára: 3.2 lítrar á mínútu
60 ára: 2.7 lítrar á mínútu
70 ára: 2.5 lítrar á mínútu
Lungun
Þar sem vöðvar þeir sem annast hrey-
fingar lungnanna slakna og vefirnir í
brjóstkassanum harðna, geta menn
smám saman dregið minna loft að sér.
30 ára: 5.6 lítrar
40 ára: 5.1 lítri
50 ára: 4.2 lítrar
60 ára: 3.3 lítrar
70 ára: 2.8 lítrar
Kynlífið
Sjötugur maður hefur annað fyrir
stafni á nóttum en yngri maður og
kynferðislegum dagdraumum fer fækk-
andi. Sálræn áhrif og dvínanadi lífskraft-
ur hafa þar þó meira að segja en
hormónaáhrif. Getnaðarlimur karlsins
er nú lengur að harðna og fullnæging
fæst seint. Hápunktur sælunnar er líka
tekinn að liggja neðar á línuritinu en
fyrr. Stífur iimur karlmannsins miðað
við lárétta línu:
20 ára: 10 prósent ofan við lárétta línu
30 ára: 20 prósent ofan við lárétta línu
40 ára: Aðeins ofan við lárétta línu.
50 ára: Rétt neðan við lárétta línu.
70 ára: 25 prósent neðan við lárétta
línu.
Nýrun
Nýru sjötíu ára manns sía ekki nema
helming þess blóðmagns sem nýru í
þrítugum manni hreinsa. Þá verða sjö-
tugir menn að fara oftar að kasta af sér
vatni en yngri menn, þar sem þvagblaðr-
an hefur nú aðeins helming þess geymslu-
þols sem var.
Heilinn
Heilinn rýrnar, þar sem milljónir
fruma deyja í áranna rás. Hin ýmsu
svæði heilans hrörna misjafnlega mikið,
en einkum láta þær stöðvar sem stjórna
svefni á sjá. Því sefur gamall maður um
tveimur stundum skemur en ungur
maður. Frammistaða í greindarprófi,
þar sem viðmiðunareinkunn væri 100
mundi verða áþekk þessu.
20 ára: 110
30 ára: 111
40 ára: 106
50 ára: 100
60 ára: 93
70 ára: 83
Við erum ódyrari!
Póstsendum um land allt
Liðamót
Liðamótin stirðna með aldrinum, og
æðarnar taka að kalka. Liðirnir verða
stökkir og brot gróa hægar. Tiltölulega
fáir karlar fá liðagigt, þótt þeir taki að
þjást af æðaþrengslum, er þeir eru
komnir yfir sextugt. Liðabrjóskið eyðist
og vökvi safnast á milli liðanna. Hreyf-
ingar verða hægari og stirðari. Þá gerast
liðaböndin stífari og þau rifna fremur.
(Þýtt - AM)
HflQGIBIMIEI
Smiðjuvegi 14, sími 77152