Tíminn - 26.07.1983, Síða 1
Heyskaparhorfur nú slæmar á heildina litið — Sjá bls. 3
Þriðjudagur 26. júlí 1983
170. tölublað - 67. árgangur
Sidumula 15 — Posthólf 370 Reykjavik — Rítstjorn 86300— Auglýsingar 18300— Afgreiðsla og askrift 86300 — Kvöldsimar 86387 og 86306
Misræmi við skattlagningu innlendra og erlendra manna:
IÍTLENDINGAR BERA ÞRIDJUNGI
HÆRRI SKATTA EN fSLENDINGAR
FJÖLBREYTTARA
OG BETRA BLAÐ!
■ Skattlagning á laun útlend-
inga þeirra sem hingað koma til
vinnu ■' frystihúsum víðs vegar
um landið virðist í mörgum til-
vikum vera hlutfallslega um
þriðjungi hærri en skattar þeir
sem heimamenn þurfa að borga
og mun meiri verður munurinn
sé um skólafólk að ræða.
Samkvæmt upplýsingum
Guðjóns E. Friðrikssonar hjá
embætti ríkisskattstjóra eiga út-
lendingar að skila framtali til
skattstjóra viðkomandi umdæm-
is fyrir brottför. Skattur þeirra er
reiknaður þannig út að fundin
eru út meðal mánaðarlaun þann
tíma sem fólkið er hér á landi og
þau síðan margfölduð með 12.
Á þessi uppreiknuðu laun eru
síðan reiknaðir skattar eftir þeim
skattstiga sem í gildi er hverju
sinni og útlendingarnir eiga síð-
an að greiða af þeirri upphæð í
hlutfalli við verutíma. Eftir t.d.
3ja mánaða vinnu greiðir það
fjórðung (3/12) af heils árs
sköttum.
Sá er hins vegar munur á, að
skattar íslendinga eru hverju
sinni lagðir á tekjur næsta árs á
undan, en hjá útlendingunum er
lagt á tekjur sama árs. Miðað við
undanfarin ár getur þetta þýtt
um þriðjungi hærri skattálögur.
í sumum tilvikum kvað Guðjón
þetta þó geta mildast nokkuð
þar sem útlendingarnir mega
miða við þá mánuði og hluta úr
mánuði sem þeir dvelja í land-
inu. Hjá þeim sem t.d. kemur
síðla janúar, vinnur febr., mars,
apríl og maí og tekur sér síðan
sumarleyfi hérlendis eitthvað
fram í júní á því að reikna
tekjurnar sem hálfs árs laun.
Hjá þeim er vinnur hér skamman
tíma getur því munað töluverðu
hvort reiknað er með brottför
rétt fyrir mánaðamót eða eftir
þau.
Guðjón kvað sömu álagning-
arreglur gilda um erlent skóla-
fólk sem hér vinnur yfir sumar-
mánuðina. íslenskt skólafólk
sem aðeins vinnur yfir sumarið
sleppur hins vegar nánast við
skattgreiðslur í flestum tilvikum.
í störfum erlendis verða þau hins
vegar að greiða skatta. _ HEI.
SEX BÍLA
ÁREKSTUR
■ Sex bflar lentu í árekstri á
Miklubraut á móts við Stakka-
hlíð í gær. Bflamir voru á leið
vestur Miklubrautina þegar sá
fremsti stansaði skyndilega og
síðan lentu bílarnir hver aftan á
öðrum. Einn maður var fluttur á
sjúkrahús, en var ekki alvarlega
slasaður. Einn bfllinn skemmdist
það mikið að kranabfl þurfti til
að koma honum á brott.
- GSH
VELTI
STOLINNI
BIFREIÐ
á
■ Olvaður ökumaður slasaðist
talsvert þegar hann velti stolinni
bifreið í Fagradal í S.Múlasýslu
aðfaranótt sunnudags. Maður-
inn var fluttur um nóttina með
flugvél á slysadeild Borgarspítal-
ans í Reykjavík. Farþegi í bflnum
slapp lítið meiddur.
Að sögn lögreglunnar á Egils-
stöðum var bflnum stolið frá
Reyðarfirði fyrr um nóttina. Bfll-
inn er talinn gerónýtur eftir velt-
una. -GSH.
■ Uffe Ellemann-Jensen utanríkisráðherra Dana er nú í opinberri heimsókn hér á landi. í gær renndi hann fyrir lax í Elliðaám og hér sést hann við veiðamar ásamt
aðstoðarmönnum. Sjá bls. 3 Tímamynd: Ámi Sæberg.
Vöruskipta-
jöfnuðurinn
við útlönd:
HAGSTÆÐUR UM 48 MILUÓNIR í JÚNÍ
■ „Ég vil vara við að draga
stórar ályktanir um viðskipti við
útlönd á einum mánuði. Þau em
svo sveiflukennd að ekki þarf
nema einn stóran oh'ufarm til að
setja aUt úr skorðum. Hins vegar
er alveg Ijóst, að með gengis-
lækkunum ásamt minni ráð-
stöfunartekjum, á sér stað sam-
dráttur í innflutningi, sem sér-
staklega kemur fram á bflum,
heimihstækjum og ýmsu öðm,“
sagði Þórhallur Asgeirsson, ráð-
uneytisstjóri í viðskiptaráðu-
neyti, þegar hann var spurður
hvort eitthvað væri öðm fremur
sem þakka mætti hagstæðum
vöruskiptajöfnuði þjóðarinnar í
júnímánuði síðast Uðnum.
Samkvæmt tölum Hagsto-
funnar var útflutningur íslend-
inga tæpum 48 milljónum króna
verðmætari en innflutningur í
júní. Frá áramótum til júníloka
er vöruskipta jöfnuður hins vegar
óhagstæður um tæpar 530 millj-
ónir. Á sama tímabili í fyrra var
jöfnuðurinn óhagstæður um
rúmlega 1,3 milljarða, þar af 5,7
milljónir í júní.
„Það verður að taka með í
reikninginn að þarna er útflutn-
ingur sem við höfum ekki enn
fengið greiddan. Við höfum til
dæmis ekki fengið greitt fyrir
neina skreið sem farið hefur úr
landi á þessu ári og þó éru tekjur
af henni með í þessu dæmi -
enda gert ráð fyrir að greiðslur
berist,“ sagði Þórhallur.
- Má reikna með að þróunin
verði sú að útflutningur verði
verðmætari en innflutningur á
næstu mánuðum - eða að jöfnuð-
ur náist?
„Við verðum að vona að það
takist að minnsta kosti að draga
úr viðskiptahalla. Ég held líka
að allir gangi út frá því að hann
verði miklu minni í ár en í fyrra.
Þar kemur til minni innflutning-
ur og lægra olíuverð, en olíuverð
skiptir okkur verulegu máli.
Varðandi útflutning, þá
höfum við ekki ástæðu til að ætla
annað en hann gangi eðlilega
fyrir sig - þótt auðvitað séu
samdráttur í þorskveiðum,
loðnu veiðibrestur og erfiðleikar
við að fá skreiðina greidda mikil
áföll," sagði Þórhallur, í sam-
bandi við tölur um utanríkisvið-
skipti er rétt að hafa í huga, að
inn flutningsvörumar eru reikn-
aðar á verði hér heima, en út-
flutningstölurnar miðast við ferð
frá útskipunarhöfn. Sem þýðir
að gjaldeyristekjur af flutning-
um, sem að sögn Þórhalls em
verulegar, koma þama ekki
fram,
- Sjó