Tíminn - 28.07.1983, Blaðsíða 1
Farþegum með Herjólfi fjölgar — Sjá baksíðu
FJÖLBREYTTARA
OG BETRABIAD!
Fimmtudagur 28. júní 1983
172. tölublað - 67. árgangur
■ Hrcssar stelpur úr Vinnu-
skóla Reykjavíkurbreðga á lcik
í Viðey en þangað fóru um 800
nemendur skólans í gær í boði
Reykjavíkurborgar. Sjá nánar
á blaðsíðu 2.
Tímamynd Ari.
Gerðardómsúrskurður í dagpeningadeilu ferðakostnað-
arnefndar og fjármálaráðuneytisins:
AKVÓRÐUN FERDAKOSTNAD-
ARNEFNDAR STANDI OBREYTT
■ Gerðardómur sem skipaður
var til að leysa úr deilu ferða-
kostnaðarnefndar og fjármála-
ráðuneytisins hefur sent frá sér
niðurstöðu, þar sem segir að
auglýsing ferðakostnaðarnefnd-
ar skuii standa óbreytt.
Forsaga málsins er sú að ferða-
kostnaðamefnd sendir frá sér
tilkynningu í maflok, þar sem
tilkynnt var um 31% hækkun
dagpeninga frá 1. júní. Launa-
deild fjármálaráðuneytisins brá
þá við og tilkynnti 8% hækkun
þessara greiðslna í stað 31%.
Samkomulag tókst svo með
BSRB og BHM annars vegar og
fjármálaráðuneytisins hinsvegar
um að gerðardómur skæri úr í
þessari deilu.
Unnsteinn Beck lögfræðingur,
sem sæti átti í gerðardómnum,
sagði í samtali við Tímann að
dómurinn hefði fjallað um hvort
bráðabirgðalögin tækju til þessara
tegunda greiðslna eða hvort að-
gerðir nefndarinnar ættu að
standa og hefði niðurstaðan orð-
ið sem að ofan greinir.
„Við teljum þetta rétta af-
greiðslu. Þetta er útlagður kostn-
aður ekki laun og við vildum'fá
úrskurð á þeim grundvelli“ sagði
Kristján Thorlacíus formaður
BSRB í samtali við Tímann. f
auglýsingu ferðakostnaðar-
nefndar sem er í fjórum liðum
stendur; að til greiðslu á gisti- og
ISALTAPADI400 MIIUONUM1982
■ „Arið 1982 var hið versta í
sögu áliðnaðarins,“ segir í upp-
hafi ársskýrsíu ísal, sem lögð var
frant á aðalfundi fyriríækisins í
gær. Segir cnnfremur að eftir-
spurn og vcrð á áimörkuðum
hafi lækkað þriðja árið i róð og sá
bati sem efnahagssérfræðingar
hafí spáð hafí ekki komið fram.
Tap á reksfrarreikr.mgi nemur
ails 406.582.418 ísienskra króna.
Á árinu voru framleidd 77.400
tonn af fljótandi áli, en það er
88% af framleiðslugetu. Hreinar
sölutekjur námu 1.078.050.344
krónur. Kostnaður við ýmsar
breytingar og uppsetningu þurr-
hreinsibúnaðar nam á árinu 3.5
milljónum Bandaríkjadala.
Launakostnaðurvar 198.168.565
íslenskar krónur. - JGK,
ferðakostnaði innanlands komi
1060 kr. fyrir gistingu og fæði í
einn sólarhring. í öðru lagi að
fyrir gistingu í einn sólarhring
komi 480 kr. í þriðja lagi að fyrir
fæði einn dag komi 580 kr.
(minnst 10 tímar) og í fjórða lagi
að fyrir kaup á fæði hálfan dag-
inn komi 290 kr. (minnst 6
tímar).
„Þessi úrskurður hlýtur að
hafa fordæmisgildi um dagpen-
inga hjá öðrum“ sagði Kristján.
Indriði Þorkelsson deildarstjóri
í fjármálaráðuneytinu sagði í
samtali við Tímann að hjá þeim
hefði þetta verið ákveðin túlkun
á bráðabirgðalögunum en þar
sem niðurstaðan hefði orðið
þessi bæri að hlíta henni. Hann
sagði að hækkunin samkvæmt
auglýsingunni væri ekki 31%
heldur 22-27% eftir atriðum.
-FRl.
Evrópumótið í bridge:
ÍSLENDINGAR
BURSTUÐU
JÚGÓSLAVANA
19-1
■ íslendingar unnu Júgó-
slava 19-1 á Evrópumótinu í
bridge í gær. íslenska liðið er
enn í 20. sæti eftir 17 umferðir
en bilið er að mjókka upp í efri
sæti. Frakkar styrkja sífellt
stöðu sína í efsta sætinu og eru
nú með 54 stiga forskot en 6
umferðir eru eftir á mótinu.
Elín Bjarnadóttir, sem
dvelst með íslenska liðinu í
Wiesbaden, sagði í samtali við
Tímann í gær að leikurinn við
Júgóslava hefði verið vel spil-
aður af hálfu íslendinganna en
Jón og Sævar og Jón og Símon
spiluðu allan leikinn. Það sama
var ekki að segja um leikinn
við Dani sem íslendingar töp-
uðu 20-1. í frétt f Tímanum í
gær var sagt að leikurinn hefði
tapast 20-2 en í gærmorgun
unnu fslendingar kærumál úr
leiknum og björguðu einu stigi
á því. Guðmundur og Þórarinn
spiluðu allan leikinn, en hin
pörin skiptu í hálfleik.
í 17. umferð unnu Frakkar
Portúgali 20-2 og ítalir unnu
Svía 19-0,5. Norðmenn töpuðu
fyrir Austurríkismönnum 4-16
svo Skandinavar virðast ekki
hafa haft gott af frídeginum á
þriðjudag.
Elín sagði að sífellt fjölgaði
í fslendinganýlendunni í Wies-
baden og í gær birtist bridge-
spilarinn kunni, Guðlaugur R.
Jóhannsson, allsóvænt til að
hvetja íslendingana til dáða á
lokasprettinum.
Frakkar eru nú með 279 stig,
ítalir með 225 stig, Ungverjar
með 206,5 og Þjóðverjar með
203 stig. ísland er með 130,5
stig í 20. sæti. í kvennaflokki
er Bretland efst með 91 stig
eftir 6 umferðir.
í gærkvöldi spilaði ísland
við Rúmena en í dag er Spánn
og ísraei á dagskrá. - GSH.
Sidumuia 15 —Postholf 370 Reykjavik — Ritstjorn 86300-Augiysingar 18300— Afgreidsia og askrift 86300 — Kvöidsimar 86387 og 86306
Helgarpósturirm bidur afsökunar á
skrifum sínum um okurlán tveggja
TVEIR BIAÐA-
MENN SEGJA
UPP STÖRFUM!
■ Ritstjórar Helgarpóstsins,
Björn Vignir Sigurpálsson og
Árni Þórarinsson, munu í blað-
inu sínu í dag birta afsökunar-
grein þar sem hörmuð eru skrif
Helgarpóstsins um meint okur-
lánaviðskipti tveggja lögmanna
hér í borg og viðskipti þeirra við
fyrirtækið Böðvar S. Bjarnason
sf. Stjórn útgáfufélags Helgar-
póstsins styður þessa málsmeð-
ferð. í kjölfar þessarar ákvörð-
unar hafa tveir blaðamenn Helg-
arpóstsins ákveðið að segja upp
störfum, en það eru sömu blaða-
menn og stóðu að birtingu og
skrifum umræddrar greinar.
Fyrrnefndar upplýsingar hefur
Tíminn eftir áreiðanlegum heim-
ildum, en Björn Vignir Sigur-
pálsson, ritstjóri, vildi hvorki
staðfesta þær né neita þeim í
samtali við blaðiö í gær.
Umrædd blaðagrein birtist í
Helgarpóstinum fyrir viku. í
henni voru tveir nafngreind-
ir lögmenn hér í borg, Jón
Magnússon og Sigurður Sigur-
jónsson, sagðir hafa staðið í
orkulánaviðskiptum og hafa
komið stöndugu fyrirtæki í
Reykjavík, Böðvari S. Bjarna-
syni sf. á höfuðið. Eins og komið
hefur fram í Tímanum mótmæltu
lögmennirnir þessum áburði, og
kváðust hafa undirbúið höfðun
meiðyrðamáls á hendur Helg-
arpóstinum fyrir vikið. Jafnframt
mótmæitu fyrirsvarsmenn Böðv-
ars S. Bjarnasonar sf. og „hörm-
uðu þessi rugluðu skrif“.
í kjölfar þessara viðbragða
tóku ritstjórar Helgarpóstsins
ákvörðun um birtingu afsökun-
arbeiðni, eftir að ljóst varð að
blaðið gat ekki staðið við um-
mæli sín. í framhaldi af því hafa
blaðamennirnir tveir sem ábyrgð
báru á þessum skrifum sagt störf-
um sínum lausum.
-HEI