Tíminn - 29.07.1983, Blaðsíða 1

Tíminn - 29.07.1983, Blaðsíða 1
Dagskrá ríkisfjölmiðlanna næstu viku - sjá bls. 13 FJÖLBREYTTARA OG BETRA BLAD! Föstudagur 29. júlí 1983 173. tölublað - 67. árgangur Siðumula 15—Posthólf 370Reykjavík—Ritstjorn86300—Augiysingar 18300- Atgreidsla og askrift 86300 - Kvöldsimar 86387 og 86306 Ríkisstjórnin: HBMIUR VERÐ- HÆKKANIR A BIL- INU 17% TIL 44% ■ „Það er öllum sem kæra sig um Ijóst að þessar stofnanir eru konmar á sprengipunkt. Verði á þeirra þjónustu hefur verið hald- ið niðri svo lengi. Það sem gerist núna er einfaldlega að nú er starfandi ríkisstjórn sem þorir að taka á hlutunum, þó að hún sjálf hafi ekki skapað vandann,“ sagði Albert Guðmundsson, fjármálaráðherra, þegar hann var spurður um ástæður gjald- skrárhækkana opinberra fyrir- tækja, sem ríkisstjórnin heimil- aði í gær, en þær eru á bilinu 17% til 44%. Mesta hækkun fær Hitaveita Reykjavíkur, 43,9% á heitu vatni og 20% á heimæðagjaldi. heildsöluverð Landsvirkjunar hækkar um 31 og útsöluverð rafveitna til dæmis Rafmagn- sveitu Reykjavíkur um 26,6%. Þjónusta Pósts og síma hækkar í verði um 18%. Aðrar hitaveitur en Hitaveita Reykjavíkur fá að meðaltali um 17% hækkun á útsöluverði á heitu vatni. í krónutölu er hækkun þeirra álíka, sem kemur til af því að vatn frá þeim er mun dýrara. Forsætisráðherra og iðnaðar- ráðherra munu efna til blaða- mannafundar í dag þar sem skýrt verður frá ástæðum þessara hækkana. Samkvæmt heimildum Tímans munu fyrirtækin ekki fá frekari hækkanir á þessu ári - þannig að í raun er um að ræða hækkanir fyrir tvö verðlags- tímabil. - Sjó. Sjá nánar viðtal við Ásmund Stefáns. sonbls.3. Ríkisstjórnin: FEUJR NIÐUR 10% ÁLAG Á GIALDEYRI Brádabirgdalög væntanlega gefin út f dag ■ Ríkisstjórnin hefur ákveðið að fella niður 10% skattheimtu af fcrðamannagjaldeyri, sem veríð hefur í gildi um nokkurra ára skeið. Bráðabirgðalög um niðurfellinguna verða gefin út í dag eða á morgun. „Þetta hefur alla tíð verið leiðinlegur skattur og afnám hans mun létta mikið á ferða- mönnum. Málið fékk vinsamlega umfjöllun í ríkisstjórninni og var ákveðið að leita samþykkis þingflokkanna og það fékkst í ■ Um þessar mundir eru unnið að ýmsum samstarfsverkefnum á vegum Bréfaskólans og ann- arra aðila og meðal annars er í undirbúningi að kennslu til stúdentsprófs geti hafist í bréfa- formi. Einnig er unnið að undir- búningi fyrir bréfakennslu fyrir kennara heyrnleysingja og fyrir starfandi bókaverði. Þetta kem- ur fram í nýjum Sambandsfrétt- um en aðalfundi fulltrúarráðs þeim báðum í gær,“ sagði Stein- grímur Hermannsson, forsætis- ráðherra, í samtali við blaðið í gær. Hann sagði ennfremur að Al- þjóðagjaldeyrissjððurinn hefði nýlega látið í ljós vanþóknun sína á þessari skattheimtu og talið hana stríða gegn alþjóð- legum samþykktum. Ríkisstjórnin kannar nú hvernig hægt verður að brúa það bil sem afnám skattsins gerir í fjárlögin. - Sjó Bréfaskólans er nýlokið. Nokkru færri nemendur innrit- uðust í skólann á síðasta ári en undanfarin ár 754. 25 kennarar annast úrlausnir verkefna. Tals- vert hefur verið gert til að áminna nemendur um að halda áfram námi og hefur það skilað sér í auknum námsbréfafjölda og auknum fjölda þeirra sem Ijúka námi. - JGK Bjarni Gud- mundsson adstodar- maður Jóns Helgasonar ■ Bjarni Guðmundsson kennari á Hvanneyri hcfur ver- ið ráöinn aðstoðarmaður Jóns Helgasonar landbúnaðar- og dómsmálaráðherra. Mun hann cinkum sinna landbúnaðar- málum. „Ég neita þvi ekki að það er spennandi að taka þetta starf að sér en það eru auðvitað ekki bjartir tímar framundan hjá landbúnaðinum," sagði Bjarni ■ samtali við Tímann í gær. Bjarni hefur verið fastráðinn kennari á Hvanneyri frá 1973 og hefur kennt fóðuröflun og bútækni. Hann var við nám á Hvanneyri á sínum tíma, fór síðan í framhaldsnám við Landbúnaðarháskólann í Ási í Noregi og lauk þar doktors- prófi árið 1971. Bjarni kvaðst í samtali við Tímann eiga von á því að meðal fyrstu verkefna sinna væri endurskoðun á ýmsum lagabálkum um landbúnað- armál, þ.á.m. á lögunum um Framleiðsluráð. Kona Bjama er Ásdís Geir- -dal. - GM Bréfaskólinn: Stúdentspróf í bréfaf ormi? ■ Bara hringja, þákomum við. Einstök þjónustaá úrvalsbílum. Og að sjálfsögðu eru gömlu taxtarnir enn í fullu gildi hjá okkur. Tímamynd Ari Ákvörðun f dag um nýja húsnæöislánavísitölu: HÆKKAR UM 3% I SEPTEMBER! — en lánskjaravísitalan um 6% ■ Búist er við að ríkisstjórnin muni í dag taka ákvörðun um nýja húsnæðislánavísitölu og nýja lánskjaravísitölu. I ráði er að grunnur þessarar nýju íbúða- lánavísitölu verði að einum þriðja frá hverri eftirtalinna: kaupvísitölu, framfærsluvísitöju og byggingarvísitölu. Varðandi vísitölulánakerfíð er svó helsta breytingin sú að viðmiðunar vísi- tölurnar verði reiknaðar mánað- arlega í stað þess að þær hafa verið reiknaðar á þriggja mán- aða fresti til þessa. Samkvæmt heimildum Tímans mun hin nýja íbúðalánavísitala verða til muna hagstæðari þeim er skulda íbúðalán næstu mánuð- ina, þannig að 1. sept. n.k. muni1 lánskjaravísitalan jafnvel hækka; um ca. 6% en íbúðalánavísitalan í kringum 3%. Þessi munur muni| síðan þynnast út þegar lengra. líður og dæmið gætið jafnvelj snúist við ef kæmi til skyndilegra kauphækkana. Ekki eru því allir jafn vissir um að launþegahreyf- ingin verði svo ýkja hrifin af breytingunni þegar til fram-í kvæmdanna kemur. Ríkisstjórnin fjallaði um þessi' vísitölumál á fundi sínum í gær. Niðurstaðan varð þá sú að nokk- ur atriði þyrfti að athuga betur áður en breytingarnar kæmu til framkvæmda og voru þvf 3 ráð- herranna settir í ákveðna nefnd til að kanna málin. Óvissu- þættirnir eru m.a. um tenging- una við eldri grunn lánskjaravísi- tölunnar, um það hvor vísitalan skuli gilda fyrir skyldusparnað unga fólksins, sem fer inn í lánasjóð Húsnæðisstofnunar, og það sama gildir um lánsfé líf- eyrissjóðanna í húsnæðislána- kerfið. -HEI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.