Tíminn - 30.07.1983, Blaðsíða 1

Tíminn - 30.07.1983, Blaðsíða 1
Getraunasedill III í sumargetraun — Sjá bls. 2 Bla 1 ð 1 Tvö blöð í dag Helgin 30.-31. júlí 1983 175. tölublað - 67. árgangur Siðumúla 15—Posthólf 370 Reykjavik—Ritstjorn 86300—Auglysingar 18300- Afgreidsla og askrift 86300 - Kvoldsimar 86387 og 86306 Erlendar skuldir Landsvirkjunar: NEMA UM 29% AF HEILD- ARSKULDUM MÓDARBUSINS ■ Um 29% af erlendum skuldum þjóðarbúsins hvíldu á einu fyrirtæki, Landsvirkjun, um síðustu áramót. Heildarskuld fyrirtækisins nam rúmlega 5,8 milljörðum króna, en heildar- skuld ríkisins tæpum 20 milljörð- um, samkvæmt upplýsingum úr hagtölum mánaðarins og árs- skýrslu Landsvirkjunar 1982. Halldór Jónatansson, forstjóri Landsvirkjunar, sagði í samtali við Tímann í gær, að um 80% af reksturskostnaði fyrirtækisins færi í fjármagnskostnað. „Öll lán til virkjanaframkvæmda hér á landi eru í erlendri mynt. Það leiðir af sér að fjármagnskostn- aður eykst við breytingar á gengi krónunnar og aukning rekstrar- kostnaðar getur farið fram úr aimennri verðlagsþróun í land- inu“, sagði Halldór. Halidór sagði að nú væri í kerfi Landsvirkjunar umfram- orka, sem kæmi til af því, að skammt væri síðan Hrauneyja - fossvirkjun var tekin í gagnið. Meðan svo væri aflaði virkjunin ekki þeirra tekna sem hún gæti. „En það var frá upphaft reiknað með því. Það hefur aldrei verið hægt að selja alla orkuna frá nýjum virkjunum," sagði Halldór. „Við þurfum að taka það til alvarlegrar athugunar á næstunni hvort ekki er ástæða til að hægja á virkjunarframkvæmdum í landinu," sagði Sverrir Her- mannsson, iðnaðar- og orkuráð- herra, í samtali við Tímann í gær. „En fyrst verður að koma í Ijós hvemig eða hvort við semj- um við Alusuisse. Ef við stækk- um álverið í Straumsvík, þá þurfum við áreiðanlega að halda nokkuð á spöðunum til að full- nægja orkuþörfinni. Það mætti segja mér að við þyrftum að halda áfram á fullu við Blöndu og jafnvel að taka inn flöskuháls- inn sem er að myndast við Sultar- tanga, eða Búrfell II,“ sagði Sverrir Hermannsson. - Sjó. Verslunar- manna- helgin: MARGIR í HÚSAFELL ■ HúsafellogGaltaÍækureru þeir staðir sem yngra fólkið virðist ætla að fjölmenna á um versitínarmannahelgina, en þeir eldri fara flestir í Þjórsár- dalinn, Atlavík eða til Vest- mannaeyja á þjóðhátíð. Þó nokkuð margir ætla svo á Þingvöll og f Þórsmörk, en rólegt verður á Laugarvatni. Et þetta samkvasmt upplýsingum frá Umferðarmiðstöðinni og Fiugleiðum. Tíminn fór á stjá f gær og tólttali nokkra ferðalanga, sem voru að leggja af stað út á land. - Sjá bls. 20. - Jól. INNFLUTNINGUR A BIFREIÐUM DREGST SAMAN UM 53%! Skoda sá eini sem nærri heldur sínum hlut ■ Aðeins 2.708 nýir fólksbílar voru seldir hcr á landi fyrri helming þessa árs, miðað við 5.740 bíla á sama tíma í fyrra og 4.391 bíl um mitt ár 1981. Inn- flutningurinn er þannig tæpum 53% minni en í fyrra og rösklega 38% minni en 1981. Þetta kemur frarn í nýjum skýrslum frá Hag- stofu íslands. Samdráttur í bílakaupum er jafnvel enn meiri hjá atvinnubíl- stjórum. Þannig var seld 171 ný sendibifreið fyrri hluta þessa árs á móti 325 í fyrra og 209 vörubif- reiðar ámóti464 nýjum vörubif- reiðum á síðasta árúAlls hafa nú verið fluttir til landsins 3.336 bílar - nýir og notaðir - á móti 6.883 bílum í fyrra á sama tíma. Þessi mikli sölusamdráttur kemur þó mjög misjafnlega niður eftir tegundum. Skoda er þó sá eini sem nærri heldur sínum hlut, eða 106 bílar nú á móti 115ífyrra.Sömuleiðishafa Nissan bílar (áður Datsun) verið nokkuð harðir, 147 nú á móti 183 í fyrra. Hins vegar hafa nú aðeins 75 látið eftir sér að kaupa B.M.W. á móti 314 í fyrra, 41 einhverja tegund af Ford á móti 185 í fyrra, 97 hafa fengið sér Saab á móti 391 í fyrra, 50 Suzuki á móti 230 í fyrra, 44 einhverja tegund af Volkswagen en það gerðu 168 manns í fyrra og Volvoar hafa nú aðeins selst 171 á móti 551 Volvo í fyrra á sama tíma. Því má svo bæta við að aðeins 10 manns hafa nú látið „skynsemina ráða“, þ.e. keypt sér Trabant, en það höfðu 40 manns gert í júnílok í fyrra. -HEI , Rannsóknarlögreglan: RANNSAKAR BRÉFAFAIS Patreks- fjörður: Sigurey sigldi f gærkvöldi ■ Togarinn Sigurey á Patreks- firði var afgreiddur með olíu í gær og lét úr höfn í gærkvöldi, en eins og kunnugt er hefur hann legið bundinn við höfn undan- farnar vikur og ekki fengist af- greiddur. Jón Kristinsson frystihússtjóri á Patreksfirði sagði í samtali við Tímann að málin hefðu ekki skýrst að öðru leyti hvað varðaði fyrirgreiðslu við fyrirtækið. En það verður engum sagt upp eftir helgina, sagði Jón. -JGK ■ Rannsóknarlögregla ríkisins hefur undanfarið haft til rann- sóknar bréfafölsun. Málsatvik voru þau að starfsstúika hjá Bæjarútgerð Revkjavíkur fékk sendibréf frá Am eríku í byrjun mánaðarins og reyndist það inni- halda mjög slæmar fréttir af venslafólki hennar þar. Þegar málið var athugað kom í Ijós að enginn fótur var fyrir þessum fréttum og þá sást að skipt hafði verið um bréf í umslaginu. Um- slagið bar það einnig með sér að það hafði verið opnaö því það var heft aftur en ekki límt. Að sögn rannsóknarlögregl- unnar hefur enn ekki tekist að upplýsa þetta mál enda er það erfitt viðfangs þar sem bréf fara í gegnum margar hendur áður en þau koma á áfangastað. -GSH \\ '' L • « ^ ||J w ' ^-Ím i * * ... ■ Þetta unga fólk var á leiðinni í Húsafell, í þrumustuði, með svefnpokann og allt sitt hafurtask. Vonandi verður gaman hjá þessum krökkum sem og öðrum landsmönnum um verslunarmannahelg- ina. Tímamynd: Róbert.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.