Tíminn - 30.07.1983, Blaðsíða 12
12
bIbIbIScIeIbISeIeIbISeIeIgIeIbIbIbIBÍ EJ
ícJ
la
fa
ra
ra
ra
ra
ra
ra
ra
ra
ra
ra
ra
ra
ra
ICJ
ra
ra
ra
ra
ra
ra
ra
la
ra
ra
!|i BORGARSPÍTALINN
’i' LAUSARSTÖDUR
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR
Staða deildarstjóra á hjúkrunar- og endurhæfingardeild i Hafnar-
búöum er laus til umsóknar.
Staðan veitist frá 1. september 1983.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri .störf sendist
hjúkrunarforstjóra.
Stöður hjúkrunarfræðinga á skurðdeild, sérmenntun ekki skilyrði.
Stöður hjúkrunarfræðinga á hinar ýmsu deildir. Um er að ræða
vaktavinnu, fullt starf, hlutastarf og einnig fastar næturvaktir.
SJÚKRALIÐAR
Lausar stöður sjúkraliða á hinar ýmsu deildir.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu hjúkru'narforstjóra í síma
81200 .
SJÚKRAÞJÁLFARAR
Sjúkraþjálfara vantar til endurhæfingar aldraðra í B-álmu, á hjúkrun-
ardeildina í Hvítabandi og hjúkrunar- og endurhæfingardeildina á
Heilsuverndarstöð.
Auk þess kemur til greina að ráða sjúkraþjálfara á aðrar deildir
spítalans, þar með Grensásdeild, eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir yfirsjúkraþjálfari í síma 81200
Reykjavík, 27. ágúst 1983.
BORGARSPÍmiNN
öí 81-200
Ei
EJ
EJ
EJ
EJ
EJ
EJ
EJ
EJ
EJ
EJ
EJ
QJ
EJ
EJ
□J
EJ
EJ
EJ
EJ
EJ
EJ
EJ
EJ
EJ
EJ
EJ
eJ eJeJeJéJeJeJéJeJeIeIéIeIeISeJeJéJeIeI éJ
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
Landspítalinn
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR óskast á bæklunarlækningadeild,
endurhæfingardeild og gjörgæsludeild.
Fullt starf eða hlutastarf.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri i síma 29000.
SKRIFSTOFUMAÐUR óskast við Blóðbankann.
Umsóknir er greini menntun og fyrri störf sendist skrifstofu ríkisspítal-
anna fyrir 5. ágúst n.k.
Upplýsingar veitir skrifstofustjóri Blóðbankans í síma 29000.
Geðdeildir ríkisspítala
Sálfræðingur óskast á geðdeildir ríkisspitala. Um námsstöðu er
að ræða, sem veitist til eins árs.-
Umsóknir er greini menntun og fyrri störf sendist stjórnarnefnd
ríkisspítalanna fyrir 15. september n.k.
Upplýsingar veitir yfirsálfræðingur í síma 29000.
RITARI óskast við sálfræðideild frá 10. september n.k.. Stúdentspróf
eða hliðstæð menntun áskilin, auk góðrar íslensku- og vélritunar-
kunnáttu. Umsóknir er greini menntun og fyrri störf sendist skrifstofu
ríkisspítalanna fyrir 29. ágúst n.k.
Upplýsingar veitir yfirsálfræðingur í síma 29000.
RÍKISSPÍTALAR,
Reykjavík, 31. júlí 1983.
Lausar stöður
hjá Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna starfa: Starfskjör
skv. kjarasamningum.
• Staða hjúkrunardeildarstjóra v/hjúkrunardeild Droplaugarstaða.
Laus frá 1. sept. eða eftir nánari samkomulagi.
• Stöður hjúkrunarfræðinga. Hlutastarf eða fullt starf. Lausar
strax.
• Staða sjúkraþjálfa, 70%. Til greina kæmi að skipta því í 2-3
hluta, eftir nánara samkomulagi. Laus strax.
• Staða skrifstofumanns, 75%. Laus strax eða eftir nánara
samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu í launaút-
reikningum.
Upplýsingar veittar á skrifstofu Droplaugarstaða, heimili aldraðra
Snorrabraut 58, í síma 25811 milli 9-17.
Umsóknir skulu vera skriflegar og greina m.a. frá menntun og
starfsreynslu, auk persónulegra upplýsinga.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar,'
Pósthússtræti 9, 6. hæð fyrir kl. 16, miðvikudaginn 10. ágúst 1983.
Kaupmenn - Kaupfélög
Til sölu eru ettirtalin tæki úr kjöt- og nýlenduvöruverlsun:
Kjötafgreiðsluborð 3 m langt (Levin)
Frystiborð 2 m langt (Levin)
Kjötsög (Hobat)
Buffhamar (Hobat)
Tölvustýrð vigt með merkimiðum, dagsetningum o.fl.
Frystipressa (Copland) 3,5 ha með hitaskipti.
10 kjörbúarvagnar og ýmis fl. áhöld.
Upplýsingar í síma 91-18531.
íþróttir
umsjón: Samúel Örn Erlingsson
Víkingar sigruðu Keflvíkinga 3:1 ígærkvöldi
■ „Ég vona að nú séum við loksins
komnir á beinu brautina, að þetta sé
ekki bara annar sigurinn okkar og búið“,
sagði Omar Torfason landsliðsmaðurinn
sterki í liöi Islandsmeistara Víkings eftir
3-1 sigur Víkinga á Keflvíkingum á
Laugardalsvelli í gærkvöld. „Þetta er
fyrsti leikurinn í sumar sem við leikum á
sama „tempói“ og var á liðinu í fyrra, og
ég vona að það sé byrjun á öðru betra
en verið hefur,“ bætti Ómar við.
Keflvíkingar skoruðu fyrsta markið í
leiknum á 25. mínútu cftir að bæði lið
höfðu þreifað varlega fyrir sér, og full
ákveðni í sóknaraðgerðum hafði ekki
verið við lýði. Keflvíkingar fengu auka-
spyrnu rétt utan vítateigs eftir góðan
einleik Óla Þórs Magnússonar sem cnd-
aði með að hann var felldur. Þrír
Keflvíkingar röðuðu sér á boltann, sá
fyrsti hljópyfir hann, annar rendi honum
til hliðar, og Sigurður Björgvinsson
skaut og skoraði í bláhornið með hörku-
skoti.
Keflvíkingar voru meir sannfærandi
fyrst á eftir markið, en jöfnun Víkinga
kom á 33. mínútu einsog köld vatnsgusa.
Andri Marteinsson fékk þá boltann eftir
þvögu út á vítateiginn, og skaut fremur
lausu en lúmsku skoti á markið. Þetta
skot átti Þorsteinn Bjarnason að verja,
en missti boltann undir sig klaufalega,
1-1. Eftir þetta færðust Víkingar í
aukana, og bættu við rétt fyrir leikhlé.
Þórður Marelsson fékk sendingu inn í
teiginn, stal boltanum rétt af fingurgóm-
um Þorsteins og skaut hátt upp í loftið.
Boltinn kom niður við marklínuna, og
þar ýtti Aðalstcinn honum inn með
öxlinni, 2-1.
Hilmar er
nú fyrstur
Keflvíkingar sóttu grimmt í upphafi
síðari hálfleiks, ætluðu ekki að láta sinn
hlut. Einar Ásbjörn Ólafsson átti tvo
þrumuskalla á Víkingsmarkið og eitt
skot, og annan skalla hans átti Ögmund-
ur fullt í fangi með. Þá átti Óli Þór
þrumuskot sem Ögmundur þurfti spari-
hanskana á.
Þriðja mark Víkinga kom því gegnt
gangi leiksins um miðjan síðari hálfleik.
Rúnar Georgsson bakvörður ÍBK gerði
sig sekan um hroðaleg mistök, hitti ekki
boltann, og Heimir Karlsson slapp einn
inn fyrir. Heimir skoraði örugglega
framhjá Þorsteini. Eftir þetta áttu Vík-
ingar allt sem af viti var í leiknum, þó
Keflvíkingar berðust á fullu allan
tímann.
Bestu menn Keflvíkinga voru Ragnar,
Óli Þór og Einar Ásbjörn. Ögmundur
bestur Víkinga, aðrir jafnir, ÓmarTorfa
vel uppbyggjandi á miðjunni, en sigur
liðsheildar.
■ Hilmar Björgvinsson GS lék vvl í
gær-á íslandsmötinu í golfi, og skaust
upp í fyrsta sætið í meistaraflokki karla.
Annars er kcppni mjög hörð í karla-
flokknum, aðallega þó milli þriggja efstu
manna. Hilmars, Sigurðar Sigurðssonar
og Gylfa Kristinssonar, en þeir kappar
eru allir úr GS. í kvennaflokknum
stendur haráttan aðallega milli Kristínar
Pálsdóttur GK og Ásgerðar Sverrisdótt-
ur GR-
Fyrstu menn í meistaraflokki:
Hilmar Björgvinsson GS................ 232
Sigurður Sigurðsson GS ................233
Gylfi Krislinsson GS ................ 2.33
Úlfar Jónsson GK...................... 238
Sveinn Sigurbergsson GK .............. 238
Björgvin Þorsteinsson GA.............. 238
Magnús Jónsson GS..................... 239
Sigurður Pélursson GR................. 240
Jón Haukur Guðlaugsson NK ............ 240
Ragnar Ólafsson GR ................... 241
I meistaraflokki kvennaerstaðan þessi:
Kristín Pálsdóttir GK................. 258
Ásgerður Sverrisdóttir GR ............ 260
Jóhanna Ingólfsdóttir GR.............. 266
Sólveig Þorsteinsdóttir GR ........... 269
Kristín Þorvaldsdóttir GK............. 277
í fyrsta flokki kvenna er einn dagur
eftireins og í meistaraflokkunum, þremui
lokið. Þar hefur forystu Ágústa Dúa
Jónsdóttir GR á 278 höggum, önnur er
Hildur Þorsteinsdóttir GK'á 291, og
þriðja Margrét Árnadóttir GR á 293
höggum. Fyrri keppnisdagur í 2. flokki
kvenna var í gær, þar lýkur keppni
einnig í dag. Þar hefur forystu Kristine
Eide NK á 102 höggum, önnurer Hildur
Þorsteinsdóttir GK á 117 höggum.
HVAÐA
RAFN?
■ í vinnslu blaðsins í gær slæddist sú
meinlega villa inn í fyrirsögn á íþrótta-
síöu, þar sem nefndur er Guðmundur
Þórðarson landsliðsþjálfari kvenna í
knattspyrnu að hann var skírður Rafn
Guðmundur. Ekki er umsjónarmanni
íþróttasíðunnar kunnugt um að Guð-
mundur beri þetta nafn, og væri það
þá merkileg tilviljun, og biður því
Guðmund og aðra lesendur afsökunar
á þessu ranghermi. - SÖE.
Leikreynt lið
■ Það er leikreynt lið Norðmanna sem
mætir íslenska kvennalandsliðinu í
knattspyrnu á Kópavogsvellinum í dag
klukkan 14.00. Flestar hafa stúlkurnar
norsku lcikið 7-24 landsleiki, og munar
þar allnokkru ef miðað er við íslenska
landsliðið, leikreyndustu stúlkurnar þar
hafa leikið 3 leiki.
Eins og sagt var frá í blaðinu í gær, má
búast við hörkuviðureign á Kópavogs-
vellinum í dag, en þessi lið, ísland og
Noregur skildu jöfn 2-2 í Noregi í fyrra
í fyrri leik sínum í Evrópukeppninni.
Dómari í leiknum í dag verður Ey-
steinn Guðmundsson, og línuverðir Þor-
varður Björnsson og Ragnar Örn Péturs-
son.
Skallarnir unnu
■ Skallagrímsmenn úr Borgarnesi
nældu sér í tvö dýrmæt stig sem reyndar
voru þeim fjögurra stiga virði, þcgar þeir
sigruðu crkifjendurna í A-riðli þriðju
deildar Selfoss á Selfossi 3-2 í fyrrakvöld.
Sigurlás markaskorari Þorleifsson þjálf-
ari og leikmaður Selfoss skoraði tvö
ntörk fyrir Selfoss í fyrri hálfleik, en í
síöari hálfleik hresstust Skallagríms-
mcnn heldur hetur. Þegar 15 mínútur
voru liðnar af síðari hálflcik skoraði
Gunnar Orráson fyrir þá, og innan við
mínútu síðar jafnaði nafni hans Jónsson.
Tíu mínútum síðar skoraði svo Gunni
Jóns sigurmark Borgnesinganna, og
Borgnesingar hrifsuðu þar með til sín
stigin úr greipum Ijónsins.
lK-menn úr Kópavogi sóttu sér stig á
Akranes. Sigruðu þar 2-0 í ágætum lcik.
Bogi Petersen markvörður 1K var þeirra
hetja, varði stjarnfræðilega í síðari hálf-
leik, m.a. þrumuneglingu frá Sæmundi
Víglundssyni beint úr aukaspymu af 25
metra færi sem stefndi í vinkilhornið.
Strákur sveif og sló hana yfir. Mörk ÍK
skoraði Austfirðingurinn Óttar Ár-
mannsson bæði í fyrri hálfleik, en þá
voru ÍK menn sterkari.
Austri frá Eskifirði vann 3-1 sigur á
Sindra á Hornafirði, Bjarni Kristjánsson
markakóngur þeirra Eskfirðinga skoraði
tvö og Hjörtur Jóhannsson eitt, en mark
Sindra skoraði Einar Björnsson.
Tindastólsmenn eru óstöðvandi í B-
riðlinum, sigruðu HSÞ 3-0 á heimavelli.
Gústaf Björnsson skoraði tvö þar og er
enn markahæstur í 3. deild, en Guð-
brandur Guðbrandsson gerði eitt.
Þróttur frá Neskaupstað vann svo að
lokum Hugin á Seyðisfirði 3-2, Jóhann
Stefánsson og Sveinbjörn Jóhannsson
skoruðu fyrir Hugin, en Sigurður
Friðjónsson skoraði tvö og Marteinn
Guðgeirsson eitt fyrir Þrótt.
Valur frá Reyðarfirði rúllaði Magna
frá Grenivík upp, 4-0. Gústaf Ómarsson
2, Óli Sigmarsson og Sigmar Metúsalems-
son skoruðu fyrir Val.
Staðan í riðlunum er þá þessi:
A-riðill:
Selfoss , ... 11 8 1 2 25-13 17 ‘
Skallagrímur... ,... 10 7 2 1 21-8 16
Grindavík ... 10 6 2 2 15-12 14
Víkingur Ó1.... ,... 10 3 4 3 11-11 10
ÍK ,... 11 2 4 5 14-15 8
HV .... 11 4 0 7 18-26 8
Ármann ... 912 6 5-12 4
Snæfell ... 811 6 7-19 3
B-riðill:
Tindastóll . . 11 9 2 0 37-9 20
Austri ..11 7 2 2 23-10 16
Þróttur . . 10 7 1 2 21-12 15
Huginn . . 11 6 1 4 16-14 13
Magni .. 10 3 1 6 14-21 7
Valur ..11 3 1 7 14-22 7
Sindri .. 11 0 0 11 6-35 0
Markhæstu menn:
Gústaf Björnsson Tindastóli .... 15
Sigurlás Þorleifsson Selfossi.....12
Bjarni Kristjánsson Austra .........11
Sigurður Friðjónsson Þrótti.......10