Tíminn - 17.08.1983, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1983
3
fréttir
Móðurmálskennarar veita verðlaun
í smásagnakeppni:
„VERIU EKKI
MEÐSVONA
BlA AUGU”
— eftir Olgu Gudrúnu hlaut
fyrstu verðlaun, kr.20 þús.
■ Samtök móðurmálskennara efndu
til samkeppni um smásögur handa börn-
um á síðastiiðnum vetri. Frestur til að
skila sögum rann út 1. júní s.l. og bárust
alls 77 sögur. Verdlaunaafhcnding fór
fram í gær í Torfunni við Lækjargötu þar
sem saman voru komnir fulltrúar frá
samtökunum auk dómnefndar. Veitt
voru ein verðlaun að upphæð kr. 20.000.
Verðlaunin hlaut Olga Guðrún Árna-
dóttir fyrir sögu sína „Vertu ekki með
svona blá augu“.
Formaður samtaka móðurmáls-
kennara, Sigurður Svavarsson. flutti
ávarp við verðlaunaafhendinguna og
sagði m.a. að dómnefndinni hefði verið
mikill vandi á höndum við úrskurð sinn.
Mjög margar góðar sögur hefðu borist
og erfitt hefði verið að gera upp á milli.
Megin áherslan hefði verið lögð á að
sagan væri góð út frá bókmenntalegu
sjónarmiði, á góðu máli og að hún segði
börnunum eitthvað sem máli skipti og
væri auk þess góð til kennslu. Flestar
þeirra smásagna sem borist hefðu, væru
þessum kostum gæddar enda væri nú
ráðgert að gefa út 21 sögu sem borist
hefði í tveim bókum nú á næstunni.
■ Olga Guðrún Árnadóttir tekur við verðlaunafénu af Sigurði Svavarssyni formanni
móðurmálskennara. Tímamynd Róbert
Verður önnur ætluð börnum en hin
unglingum.
Höfundar þeirra sagna sent út koma
eru: Andrés Indriðason. Ármann Kr.
Einarsson, Ása Sólveig. Benóný Ægis-
son, Elías Snæland Jónsson, Elísabet
Þorgeirsdóttir, Guðjón Sveinsson,
Guðmundur Ólafsson, Herdís Egils-
dóttir, Jón Dan, Jórunn Sörensen, Krist-
ín Steinsdóttir, Njörður P. Njarðvík,
Oddný Guðmundsdóttir, Ólafur Haukur
Símonarson, Sigrún Björgvinsdóttir,
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir,
Svanhildur Friðriksdóttir og Pórður
Helgason.
Auk þessara sagna bárust tvær sögur
sem dómnefnd telur mjög góðar en cru
taldar ciga frckar heima í sérstakri bók
en í smásagnasafni. Það eru sögurnar
„Músíkalska ntúsin" eftir Þórunni
Gröndal og „Sumarið með Aðalsteini"
eftir Trausta Ólafsson, sem er of löng til
að birtast í safninu. Eru samtökin mjög
ánægð með árangur þessarar samkeppni
og telja þetta sýna að nóg sé til af
höfundunt scm vilja og geta skrifaö
góðar bókmenntir fyrir börn og ung-
linga. -ÞB
íslensk framleidsla:
VARMO SNJÓ-
BRÆÐSLU RÖR
— Reykjalundur framleiðandi
en Þýsk-íslenska verslunar
félagid med söluumboðið
■ „Með þessu hefst samvinna iönfyr-
irtækis og markaðsfyrirtækis sem ég á
von á að verði árangursrík", sagði
Guðmundur G. Þórarinsson hjá Þýsk-ís-
lenska verslunarfélaginu á fundi með
blaðamönnum er kynnt var ný legund
snjóbræðsluröra sem Vinnuheimilið að
Reykjalundi í Mosfellssveit framleiðir
og Þýsk-íslenska verslunarfélagið hefur
tekið að sér söluumboð fyrir. Snjó-
bræðslurörin heita VARMO, en það er
skammstöfun á Vinnuheimilið að
Rcykjalundi, Mosfcllssveit. í forsvari
fyrir Reykjalund voru þeir Jón Ben-
ediktsson og Björn Ástmundsson en
fyrir Þýsk-íslenska verslunarfélagið þeir
Guðmundur G. Þórarinsson og Magnús
Bjarnfreðsson.
Snjóbræðslurörin eru framleidd úr
hitaþolnu plasti frá fyrirtækinu Huls í
V-Þýskalandi. Eru þau fyrst og fremst
ætluð fyrir afrennslisvatn, sem má þann-
ig nýta til þess að halda auðum gangstétt-
um, gangstígum, bifreiðastæðum, heilu
götunum og jafnvel íþróttavöllum.
Tvær stórframkvæmdir eru nú þegar í
gangi hér á landi þar sem VARMO-
snjóbræðslurörin eru notuð. Á Akureyri
er verið að leggja þau í Hafnarstrætið og
þessa dagana er verið að leggja þau í
bílastæði við hið nýja stórhýsi Vöru-
markaðarins á Seltjarnarnesi.
Það kom fram á fundinum að sér-
stakur bæklingur verður gefinn út með
tæknilegum upplýsingum um rörin, með-
höndlun þeirra o.fl. Einnig er í undir-
búningi að halda námskeið fyrir pípu-
lagningamenn, kynningarfundi fyrir
verkfræðinga um þessi rör.
Meterinn af þessum snjóbræðslu-
rörum kemur til með að kosta ca. 35
krónur út úr búð en það er töluvert
ódýrara en innflutt rör kosta. Rörin
verða til sölu í flestum byggingarvöru-
verslunum landsins. _jó|
■ Guðmundur G. Þórarinsson, Björn Astmundsson og Jón Benediktsson standa
hér innan um VARMO-snjóbræðslurörin sem verið er að leggja undir bflastæði við
stórhýsi Vörumarkaðarins á Seltjarnamesinu.
Tímamynd-'Ari
Reykjavlkurvikan:
KVIKMYNDIR
EFTIR ÓSKAR
GÍSLASON
■ Kvikmyndir eftir Óskar Gíslason
kvikmyndagerðarmann, verða sýndar í
Reykjavíkurviku. Sýnt verður úr kvik-
myndinni „Reykjavík vorra daga,“ frá
’46 í Iðnó á fimmtudaginn kl. 20.30.
f myndinni bregður m.a. fyrir
■ svipmyndum frá miðbæ Reykjavíkur.
Einnig koma fram í myndinni þekktir
borgarar svo sem Sveinn Björnsson
forseti íslands og Bjarni Benediktsson
borgarstjóri.
Kvikmyndin „Reykjavíkurævintýri
Bakkabræðra", verður svo sýnd í Iðnó
sunnudaginn 21. ágúst kl. 16.00.
-Jól.
Flugleidir:
Ný flug-
vél f
áætlun-
arflug
■ Ný gerð flugvélar byrjar áætlun-
arflug á lciðum Flugleiða hinn 18.
ágúst. Það er DC-8-71 en þaö cr
flugvél sem búin hcfur veríö nýjum
hreyflum og er hreytt þannig að
innan í henni er brciðþotu innrétting.
Er vélin 249 sæta og vegna nýju
hreyflunna eyðir hún minna eldsney ti
og er hljóölátari en eldri gerðir.
Islenskar áhafnir munu fljúga vél-
inni og tekur endurþjálfun á henni
aðeins einn dag sem er bóklegt
námskeið. Átta áhafnir verða þjálf-
aðar til flugs á þessa vél.
Að sögn Leifs Magnússonar fram-
kvæmdastjóra Flugrekstrarsviðs er
dýrt að breyta flugvélum i þessa átt,
kostarum 15 tnilljótiir doilara. „Fyrir
slíka upphæð er hægt að fá breiðþot-
ur af ýmsum gerðum". sagði Leifur.
Gengið hefur vcrið frá vetraráætl-
un millilandaflugs Flugleiða næsta
vetur. Ein meginbreyting hefur vcr-
ið gcrð frá því scm verið hefur að
undanförnu: Flug til Glasgow færast
af mánudögum og föstudögum yfir á
þriðjudaga og laugardaga. í vetur
vcrður flogið til 3 borga í Ameríku:
New York, Chicago og Baltimore.
Til New York verður llogið á
þriðjudögum, fimmtudögum, föstu-
dögum og laugardögum. Til Chicago
og Baltimore verður svo flogið á
sunnudögum.
Evrópuflug verður til Osló og
Stokkhólms á mánudögum og föstu-
dögum. Til Kaupmannahafnar verð-
ur flogið alla daga nema mið-
vikudaga. Til Glasgow þriðjudaga og
laugardaga og til London veröa fjór-
ar ferðir, á mánudögum, miðviku-
dögúm, föstudögum og sunnu-
dögum. -Jól
Reykjavíkur
vika íkvöld:
Ungt fólk
með tón-
leíka og
upplestur
■ Vcri er að vekja athygli á tveim
listviðburðum Reykjavíkurviku í
kvöld. Kl. 20.30 hefst í Gerðubergi
dagskrá í tali og tónum sem neínist
Reykjavfk fyrr og nú. Flytjendur
verða Anna Einarsdóttir, Emil
Guðmundsson, Valgcir Skagfjörð
og Þörunn Pálsdóttir. Stjórnandi er
Helga Bachmann.
Á Kjarvalsstöðum kl. 21 .<K)hcfjast
tónleikar á Kjarvalsstöðum, ungt
tónlistarfólk úr Rcykjavík leikur og
syngur. Þau scm koma fram eru
Ásthildur Haraldsdóttir flautuleik-
ari, Haukur Tómasson píanóleikari,
Elísabet F. Eiríksdóttir sópran,
Júlíus Vífill Ingvarsson tcnór, Nína
Margrét Grímsdóttir píanóleikari,
Sigríður llelga Geirlausdóttir
píanóleikari og Laufcy Sigurðardótt-
ir fiðluleikari. -JGK
Kópavogur:
Ekið á stúlku
■ Ekið var á 10 ára gamla stúlku á
Skemmuvcginum í Kópavogi í gær-
kveldi klukkan níu. Var hún að
koma úr íþróttahúsinu er ekið var á
hana. Slasaöist hún ekki alvarlegacn
þó var hún á slysadeild Borgarspítal-
ans í nótt en átti að fá að fara heim í
dag.
Á sama tíma urðu tveir árekstrar
annars staðar í Kópavoginum en
engin slys urðu þar á mönnum, sem
betur fer. - Jól. ■
■ Úr myndinni „Reykjavíkurævintýri Bakkabræðra" eftir Óskar Gíslason.