Tíminn - 17.08.1983, Page 4
4
Kjarnaborun
Tökum Ur steyptum veggjum fyrir huröir, loftræstingu, glugga,
og ýmisskonar lagnir, 2", 3", 4", 5", 6" og 7" borar.
HLJOÐLÁTT OG RYKLAUST. Fjarlægum múrbrotið, önnumst
ísetningar hurða og glugga ef óskað er. Hvert á land sem er.
Skjót og góð þjónusta.
Kjárnaborun sf.
Símar 38203-33882
Sími 44566
RAFLAGNIR
■ BilaleiganÁS
CAR RENTAL
29090 DAIHATSU
REYKJANESBRAUT 12 REYKJAVIK
Kyöldsími: 82063
Bllaleiga
Carrental £ %
Dugguvogi23. Sími82770
Opið 10.00-22.00.
Sunnud. 10.00 - 20.00
Sími eftir lokun: 84274 - 53628
Leigjum út ýmsar Þvoið, bónið og
geröir fólksbíla. gerið við bílana
Saekjum og sendum ykkar í björtu og
rúmgóðu húsnæði.
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
Þægilegustu vöðlur sem fram-
leiddar hafa verið.
Léttar, sterkar og teygjanlegar.
Vöðlurnar eru án sauma og na hátt upp á tprjóst,
fullkomlega vatnsþéttar. Leistinn er formaður sem
sokkur og hægt er að nota hvaða skófatnaö sem er
við þær.
Latex-gúmmíiö sem þær eru steyptar ur er afar
teygjanlegt þannig að vöðlurnar hefta ekkl hreyfingar
þinar við veiðarnar og er ótrulegt hvaö þær þola
mikið álag.
Ef óhapp verður, má bæta vöölurnar
með kaldri límbót.
Viðgerðarkassi fylgir hverjum vöðlum.
Þær vega aðeins 1,3 kg og þreytast
veiðimenn ekki á að vera i þeim tímun-
um saman.
Fáanlegar í öllum stærðum.
JOPCO HF.
Vatnagöröum 14 —
Simar 39130 og 39140.
Box 4210 — 124 Reykjavík.
vy- t \ i \ ‘(i i i,
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1983
Góður afli á
Vestfjörðum
i juli:
Guðbjörgin
með878tonn
Vestfirðir: Afli var almennt góður á
Vestfjarðamiðum í júlímánuði, bæði
hjá togurum og bátum. Botnfiskaflinn
í júlí var 8.437 lestir sem er 309 lcstum
meira en í sama mánuði í fyrra.
Uppistaðan í afla togaranna var
þorskur. Þetta kcmur fram í yfirliti
Fiskifélags íslands á ísafirði.
Aflahæstu togararnir í mánuðinum
voru Guðbjörgin á ísafirði með tæp
878 tonn í fjórum sjóferðum, Páll
Pálsson frá ísafirði rúm 672 tonn í 4
ferðum og Bessi frá Súðavík nieð tæp
638 tonn, einnig í 4 sjóferðum.
Til ísafjarðar bárust í júlí 3.149
lestir af botnfiski, sem er 438 lestuni
mciri afli en í sama mánuði 1982. Til
Þingeyrar bárust 864 lestir, miðað við
374 lestir í júlí í fyrra og til Súðavíkur
744 lestir sem er 242 lestum meira en í
júlí í fyrra. Til annarra verstöðva barst
nú víða töluvert minní botnfiskafli en
í fyrra í júlí.
Botnfiskafli frá áramótum á Vest-
fjörðum var orðinn 48.748 lestir í
júlílok, sem er 4.312 lestum minna en
á sama tíma 1982, eða tæpum 9%
minni afli en þá.
- HEI
■ Aö mörgu er að hyggja, jafnt utan dyra sem innan, hjá þeim sem eru að undirbúa opnun nýs hótels. Við sjáum hér
gestgjafana (eigendur) hins nýja Gestgjafa, Mary Sigurjónsdóttur og Pálma Lorens gera hreint fyrir sínum dyrum daginn
fyrir opnunina - og auðvitað í rigningu eins og flestir hafa mátt búa við á Suðurlandi í sumar.
(rnyndir Guðm.S.)
Gestgjafinn —
glænýtt hótel
í Eyjum
Vestmannaeyjar: Pálmi Lorens, veit-
ingamaður í Vestmannaeyjum opnaði
þar nýtt hótel, Gestgjafann, laugar-
daginn 6. ágúst sl. Hótelið er í nýju
húsi sem Pálmi hóf framkvæmdir við
fyrir tveim árum. Á neðstu hæðinni er
Skemmtistaðurinn Skansinn, sem opn-
aður var á s.l. vetri, en 14 gistiherbergi
með möguleika á 40 rúmum á tveim
efri hæðunum voru tekin í notkun fyrir
rúmri viku sem fyrr segir. Þótt mögu-
leikar hafi verið á að fá gistingu í
Eyjum á undanförnum árum mun
Gestgjafinn eini staðurinn þar sem
hægt er að gefa nafnið hótel. Hefur
aðstaða fyrir ferðamenn til gistingar í
Eyjum því mjög batnað með opnun
Gestgjafans.
Pálmi kvað hótelið hafa verið fullt
strax fyrstu helgina og þegar liggja
fyrir nokkrar fullbókaðar lielgar, en
svo séu líka stórar eyður á milli. Það
sé heldur ekki óeðlilegt svona í byrjun,
það taki tíma að vinna upp nýjan stað.
Nýtingin verði örugglega betri þegar
fram : sækir og fólk fari að átta sig á
að komið sé nýtt og gott hótel í
Vestmannaeyjum. Varðandi erlenda
ferðamenn hafi hann og verið heldur
seinn til að ná í þá þetta sumarið.
Spurður um erlenda ferðamenn í
Eyjum kvað hann mjög mikið um að
þeir komi þangað í útsýnisferð, eina
dagsstund eða svo, þannig að hann sjái
lítið af þeim.
Skemmtistaðinn Skansinn sagði
Pálmi ganga Ijómandi vel. Þar eru
dansleikir föstudaga og laugardaga og
taldi hann tæpast grundvöll fyrir fleiri
böll. Hins vegar mætti huga að meiri
fjölbreytni í skemmtanalífinu. „Við
erum hér t.d. með jassklúbb og sæl-
kerakvöld, sem cru þá fyrir afmarkaðri
hópa. Og svo reynir maður auðvitað
alltaf að velta fyrir sér einhverju nýju“,
sagði Pálmi. - HEI
Nýja hótelið á opnunardaginn.
Rækjubátar á Vestfjarðamiðum tvöfalt fleiri en í fyrra:
Rækjuaflinn yfir þre
falt meiri en
Vestfirðir: 36 rækjubátar á Vestfjarða-
miðum öfluðu 1.057 lesta af rækju í
júlímánuði s.l. borið saman við 18
rækjubáta með 399 tonna afla í júlí á
síðasta ári. Rækjuaflinn í sumar var
orðinn 2.014 tonn í júlílok en var 622
tonn á sama tíma í fyrra.
Lang aflahæsti rækjubáturinn í júlí
er Ingólfur GK sem leggur upp í
Bolungavík, með 72,3 lestir. Aðrir
bátar með yfir 40 tonna rækjuafla í júlí
eru: Vonin KE og Valur frá Súðavík
með 48,2 tonn hvor, Þrosteinn GK
með 46 tonn og Ingibjörg frá Hólmavík
með 40,5 tonn. Tíu bátar hafa aflað
milli 30 og 40 tonn af rækju hver.
- HEI