Tíminn - 17.08.1983, Qupperneq 10
MIÐVIKUDAGUR 17. AGUST 1983
MIÐVIKUDAGUR 17. AGUST 1983
fþróttir
Bömfáfrítt
inn í kvöld
■ Börn 12 ára og yngri munu fá að
far.it frítt inn á landslcik íslands og
Sviþjóðar á Laugardalsvelli í kvöld.
KSI hefur fengið leyfi ÍBR fyrir þessu,
og er það fagnaðarefni. Þá cr um að
gera að drífa sig bara á völlinn krakkar,
inngangsorðið er Áfram ísland.
Bautamótið
í september
■ Hið árlega Bautamót í kvenna-
knattspyrnu vcröur háð dagana 9., 1(1.
og 11. september. Þátttökutilkynning-
ar óskast sendar skrifstofu K.S.Í. fyrir
1. september. Vinsældir- þessa móts
hafa aukist með hverju ári og var
þátttaka í fyrra með mesta móti. ✓
Verðlaun til mótsins gefur Bautinn,
Hafnárstræti 92, Akurtyri. Þar að auki
hefur Bautinn staðið fyrir fríum veit-
ingum fyrir alla þátttakendur og aö-
standendur liða í lok mótsins.
2. deild kvenna:
FH, Höttur og
Fylkir beijast
■ Hvcragerði sótti ckki gull í greipar
norðlenskra kvenna í knattspyrnunni
þegar liðið fór norður og keppfi við
Þór og KA í B-riðli. Þór sigraði mcð
tíu mörkum gegn engu og KA sigraöi
meö 12 mörkum gegn engu og voru
þctta sfðustu leikirnir í þessuin riðli.
Þessir leikir breyttu ekkert stöðunni í
B-riðli, Þór sigraði í riðlinum ogspilar
í I. deild á næsta ári og ÍBÍ cr í öðru
sæti. Liðin t öðru sæti í riölunum
tveimur keppa aukaleik um sæti í 1.
deild að ári þar sem nú er liðum fjölgað
úr 6 í 8 í deildinni. Staðan í A-riöli er
nokkuð óljós ennþá cn þar berjast
Höttur ffá Egilsstöðum, FH og Fylkir
urn tvö efstu sætin. _ ASÍ
Fannarsbikar-
inn í golfi
■ N.k. laugardag og sunnudag, 20.
og 21. ágúsl, fcr fram opin kvenna-
keppni í golíi í Grafarholti. Er það
keppni um Fannarsbikarinn, sem
Hanna og Valur Fannar standa að.
Keppt er með því fyrirkomulagi , aö
keppendur velja betra skor á hverri
holu hvorn dag. Reiknuð verður %
forgjöf. Keppnin hefst kl. 1(1.(K) og
þátttakendur geta látið skrá sig í
stmum 82815 og 84735.
Jónsflgnars-
keppnin í golfi
■ Laugardaginn 20. ágúst hefst
Kcppni Jóns Agnars, serti er drengja-
keppni í golfi með og án forgjafar.
Leiknar eru 72 holur á 2 hclgum.
Keppnin á laugardag hefst kl. 11.00.
Opið HHachi ,
mót í golfi
við Selfoss
■ Um næstu helgi verður haldiö á 1
Alviðruvelli við Sog golfmót, Hitachi
open, á vegum Golfklúbbs Sclfoss
(GOS), og Radíóstofu Vilbergs og
Þorstcins. Leiknar verða 18 Itolur í
mótínu og því lýkur seinnipartinn á
laugardag. Glæsileg verðlaun eru og
aukavcrölaun fyrir holu í höggi á
tvcimur holum, myndbandstæki og
sjónvarp. Þá eru aukaaukaverðlaun
fyrir þá sem eru næsti r holu á þessum
brautum, cf ekki næst hola í höggi.
Völlurinn við Alviðru er í finu standi,
og vcröur þar ræst út klukkan 9 og
klukkan 13 á laugardag. Mótið er
opið', og skráning á staðnum.
Erla Rafnsdóttir fyrirliði Breiðabliks tekur við sigurlaununum úr höndum
I Gunnars Sigurðssonar, stjórnarmanns KSÍ, að loknum Bikarúrslitaleik KSI í
Ikvennaflokki. 3-1 sigri á ÍA. Verðlaunaafhendingin var nánast það eina sem
Knattspyrnusamband íslands þarf ekki að skammast sín fyrir varðandi framkvæmd
| leiksins. Tímamynd Róbert
Úrslitaleikurinn í Bikarkeppni
KSÍ í kvennaflokki:
FRAMKVÆMDIN
HLSKAMMAR
■ Leikur Breiðabliks og íþróttabandalags Akraness í úrslitum Bikurkeppni
kvenna í knattspyrnu álti samkvæmt áætlun að hefjast klukkan 13.00 á laugardag
en hófst klukkan 13.50. Áslæðan var sú, að dóntarar inættu ekki, og varð að
útvega þá í snurhasti. Þegar liðin ætluðu að fara að yfirgcfa völlinn vegna
dómaraleysis klukkan 13.30 barst orðsending tim það frá mótanefnd KSÍ að
ieikurinn skyldi hefjast klukkan 14.00, og þá skyldu dómarar verða mættir á
svæðið. Þcir komu, og upp úr klukkan 13.50 var byrjaö. Þá var lcikurinn settur
á lélegasta völlinn sem finnanlegur var í Laugardalnum.
Allt þetta mál erstjórn Knattspyrnu-
sambands Islands, dómuruin og
þeim sem þarna eiga hlut að máli til
skammar. I fyrsta líif’i mæta ekki
dómarar, i úrslitaleik þar sem leik-
menn, áhorfendur auk blaðamanna,
fréttamanna og starfsliðs sjónvarps
eru mættir á svæðiö. I öilru /ag/ er
lagöur undir leikinn lélegasti völlurinn,
Hallarflötin. Þar cr búið að taka upp
þökur af meginhluta svæöisins vegna
þess að grafa á það upp í haust, og
einungis hægt að leika upp og niöur
miðað við áhorfendasvæöið. Bæði
aðalleikvangur og Valbjarnarvöllurinn
i fínu standi á santa tíma og þetta
gerist, og á aöalleikvanginn var settur
leikur Skagantanna og KR, sem hófst
klukkan 16.00 sama dag! í þriöja lagi
er leikurinn settur á klukkan 13.00,
þannig að tíminn milli leikja, sem
margir vildu sjá báða, licfði oröiö cin
og hálf klukkustund. - Hefði ekki
verið nær að lcikirnir hefðu getaö farið
fram hvor á eftir öðrum, þó svo að ekki
hafi verið selt inn á kvennalcikinn. Þá
hefði fólk getaö séð hvorn leikinn sem
það vildi, eða báða, og þá hefði
kannski veriö staðið almennilegu að
máluin.
Það er nefnilega þannig, að það er
sama hvaða íþróttagrein er, í karla eða
kvcnnaflokki, aö ef tímumörk sem sett
eru standast ekki, þá vill enginn að
Inkuin koma nálægt. Knattspyrnusam-
bandiö hcfur staðið sig ótrúlega vel
með flcsta svona liluti undanfarin ár,
og hvers vegna að skilja kvenfólkið
útundan? - Þetta er ncfnilcga ekki í
fyrsta sinn sem þetta kemur fyrir í
sumar. Tvisvar í toppbaráttulcikjum
fyrstu deildar kvenna hefur sama stað-
an komiö upp, engir dómarar mætt.
Það var í leik Breiöabliks og Vals á
Kópavogsvelli 21. júlí, og í leik KR og
Akraness 4. ágúsl.
Og nú kastaði fyrst tólfunum, dóm-
aralaust á úrslitalcik í bikarkeppni,
sem settur er á lélegasta völlinn í
Laugardal við aðstæður sem oftast
liafa verið verri í suinar veðurfarslega
séð, klukkan 13.00 á sunnudcgi, og
stórleikur klukkan 16.00 á sama stað,
sama dag.
Tímasetningin á leiknum minnir
óneitanlega á Kvcnnalandslcik íslands
og Noregs í knattspyrnu sem settur var
á klukkan 14.00 á laugardegi, sem er
bæði góður dagur og tími, en það var
liara Verslunarmannahclgin, helgin
þegar flestir íbúar Reykjavíkursvæðis-
Ísland-Sviþjóð íkvöld kl. 19 íLaugardal:
SVÍARNIR SJALDAN
VERIÐ STERKARI!
hafa unnið okkur þrisvar, við unnið einu sinni
ins storma út á land..
linni.
Mál er að
- SÖE
og eitt jaf ntefli
■ í kvöld klukkan 19.00 hefst á Laug-
ardalsvelli sjötti landsleikur íslands og
Svíþjóðar í knattspyrnu. Svíar koma hér
með sitt sterkasta lið, ef frá eru skildir
leikmennimir Corneliusson sem leikur
með Stuttgart, en íslenska liðið er
eingöngu skipað leikmönnum sem leika
hér á landi. Samt er engin ástæða til að
kvíða neinu, okkar menn berjast til
þrautar, þótt andstæðingurinn sé erfið-
ur.
Sænska liðið hefur leikið með frábær-
um árangri síðasta ár. Þeir sigruðu
heimsmeistara ítala 2-0 í sumar í
Evrópukeppni landsliða, og gerðu jafn-
tefli við Brasilíumenn í sumar 3-3, í leik
sem Brassarnir gátu þakkað fyrir að ná
jafntefli. Liðið er talið mjög sterkt á
alþjóðamæiikvarða, og sagt er að nú sé
mikil vinna sænska landsliðsþjálfarans
Lars Arnessons að skila sér, en hann
hefur unnið sleitulaust með liðið síðast-
liðin tvö ár.
Svíar hafa sigrað íslendinga þvisvar í
viðureignum þjóðanna, eitt jafntefli hef-
ur orðið, ogý við sigrað einu sinni.
Leikirnir hafa þó allir verið afskaplega
jafnir, og segir markatalan samanlagða
til um það, hún er 9-7 Svíum í hag.
íslendingar sigruðu Svía í fyrsta leik
þjóðanna, en hann var leikinn á gamla.
Melavellinum árið 1951. Þá var Skaga-
maðurinn Ríkharður Jónsson aðal-
stjarna íslendinga, skoraði öll 4 mörk
íslands í 4-3 sigri. Sama dag sigraði
Island bæði Dani og Norðmenn í lands-
keppni í frjálsum íþróttum, þá hefur
vafalítið verið gaman að vera íslending-
ur.
Næst mættust knattspyrnulið þjóð-
anna í Kalmar í Svíþjóð árið 1954, og
komu þá Svíar inn á albúnir þess að hefna
tapsins. Það tókst þeini, en ekki var það
stórt. Svíar sigruðu 3-2 eftir að hafa
komist í 2-O.Ríkharður var aftur hetja
íslands, og jafnaði 2-2. þórður Þórðar-
son skoraði hið fyrra. Hann fékk þá
dóma fyrir leikinn að hann var í mörgum
dagblöðum á Norðurlöndum talinn besti
knattspyrnumaður Norðurlanda.
Nokkurt hlé varð eftir þetta á knatt-
spyrnusamskiptum Islands og Svíþjóðar.
Næst mættust liðin árið 1973 á Ullevál-
leikvanginum í Gautaborg Þar varð
naumur sigur Svía, 1-0, en Ásgeir Sigur-
vinsson þá 18 ára átti hörkuskot í stöng
á þriðju mínútu leiksins beint úr auka-
spyrnu.
1977 mættust liðin á Laugardalsvelli,
og aftur varð naumur sænskur sigur, 1 -0.
Þá skoruðu Svíar á síðustu mínútu
leiksins, þegar margir Islendingar höfðu
hrósað sigri í jafnteflinu.
Síðast léku ísland og Svíþjóð árið
1980 í Halmstad. Þar varð jafntefli,
Svíar skoruðu fyrst 7 mínútum fyrir
leikslok, en Guðmundur Þorbjörnsson
jafnaði fyrir Island fjórum mínútum
síðar, eftir góðan undirbúning Ásgeirs
Sigurvinssonar.
í kvöld leika liðin enn. Nú verður
róðurinn sennilega erfiðari en oftast
áður, enginn atvinnumanna íslands sem
leikið hafa undanfarið, utan Ragnar
Margeirsson Keflavík sem leikur hér á
landi í sumar, eru með, en við eigum þó
margt ungra leikmanna sem hafa staðið
sig mjög vel með 21 árs landsliðinu
undanfarin ár, og leika í kvöld. -Áfram
ísland.
„Verdum að
taka á öllu
ef vel á að fara,, segir
Jóhannes Atlason
■ „Við verðum að taka á öllu sem við
eigum til, og helst meiru, ef við ætlum
að standa okkur gegn Svíum“ sagði
Jóhannes Atlason landsliðsþjálfari á
blaðamannafundi KSÍ þegar íslenska
landsliðið var tilkynnt. Það fer ekkert
milli mála, að Svíar eru með eitt sterk-
asta landslið heims í dag, það sýna best
sigurleikur þeirra gegn ítölum og jafn-
teflisleikurinn gegn Brasilíumönnum.
Sá síðarnefndi var leikur sem Brasi-
líumenn gátu þakkað kærlega fyrir jafn-
teflið í, öll þrjú mörkin sem þeir skoruðu
voru í hæsta máta ódýr, og þeir náðu að
jafna undir lokin", sagði Jóhanncs.
Þegar landsliðsþjálfarinn var inntur
eflt því hvort hlutur annarrardeildar-
leikmanna væri ekki óvenju stór í þessu
landsliði okkar sagði hann það vera.
Jóhannes sagði sitt álit það að sáralítill
munur væri á bestu annarrardeildarlið-
unum og fyrstu deildarliðum, og allir
þeir leikmenn sem hann hefði valið
þaðan hefðu reynst sér framúrskarandi
vel.
íslandsmót yngri flokkanna í knattspyrnu:
KR YFIRBURÐAUÐ
í 4. FLOKKNUM!
■ KR-ingar sigruðu með glæsibrag í
úrslitakeppni, 4. flokks í knattspyrnu og
Frá úrslitaleik Víkings og KR í4. flokki. Leikurinn varjafn framan af, en síðan settu KR-ingar í fluggírinn og sigruðu 4-0.
Tímamynd Róbert
voru ákaflega vel að þeim sigri komnir.
KR sigraði Víking í úrslitaleik 4-0, en
áður hafði liðið sigrað í öllum leikjum
sínum í undankeppninni, og í öllum í
úrslitakeppninni nema einum, gerðu
jafntefli við ÍK 0-0 í fyrsta leik úrslita-
keppninnar á flmmtudag. ÍK sigraði
Þrótt í leik um þriðja sætið 3-2, og
hreppti Kópavogsliðið því bronsið í
keppninni. Grindvíkingar sigruðu ísflrð-
inga 5-1 í leik um 5. sætið, „gott hjá
ykkur, við erum nefnilega hálfgerðir
sveitakallar," sagði einn Grindvíking-
anna bráðhress eftir leikinn. Þór Akur-
eyri sigraði Sindra frá Hornaflrði í leik
um 7. sætið 6-1.
Úrslitaleikur KR og Víkings var jafn
lengi framan af, en KR-ingar sprungu út
þegar fór að líða á fyrri hálfleik. Þeir
náðu að skora tvisvar fyrir leikhlé, og
bættu við öðrum tveimur mörkum í
síðari hálfleik. Úrslit leikja í riðlunum
og lokastaða þeirra í úrslitakeppninni
urðu á þessa leið:
KR-ÍK ..........................0-0
Þór-ÍBÍ.........................0-2
ÍK-ÍBÍ .........................1-0
KR-Þór..........................3-0
Þór-ÍK..........................0-1
ÍBÍ-KR................... 0-4
Lokastaðan:
........ 3 2 1 0 7-0 5
........ 3 2 1 0 2-0 5
............. 31022-52
............. 30030-60
Hinn riðillinn:
Þróttur-Grindavík..............2-0
Víkingur-Sindri................6-0
Grindavík-Sindri...............7-0
Þróttur-Víkingur...............0-1
Víkingur-Grindavík.............2-0
Sindri-Þróttur............... 0-5
Lokastaðan:
Víkingur........... 3 3 0 0 9-0 6
Þróttur............ 3 2 0 1 7-1 4
Grindavík...........3 1 0 2 7-4 2
Sindri............. 3 0 0 3 0-18 0
Leikirnir um sætin:
1. sæti: KR-Víkingur............4-0
3. sæti: ÍK-Þróttur ............3-2
5. sæti: Grindavík-ÍBÍ..........5-1
7. sæti: Þór-Sindri.............6-1
- SÖE
Lið FH, Sumarmeistari í meistaraflokki karla í handknattleik árið 1983.
ILið Víkings, Sumarmeistari í 2. flokki kvenna í handknattleik 1983.
■ Þau Guðmundur Magnússon
og Kristjana Aradóttir, fyrirliðar
FH-liðanna í meistaraflokkum
karla og kvenna í handknattleik
eru hér á myndinni alsæl, enda
með íslandsbikarana í Sumarmóti
HSÍ í höndunum. FH-ingar teljast
því Islandsmeistarar utanhúss
árið 1983, þó svo mótið hafi verið
innanhúss. Myndin var tekin í
fyrrakvöld eftir að mótinu lauk,
svo og þcssar tvær hér til vinstri,
af karlaliði FH og sigurvegurum í
2. flokki kvenna, Víkingsstúlkun-
um. Þær sigruðu í sínum flokki á
mótinu með miklum glæsibrag,
töpuðu ekki leik.
Tímamyndir Róbert.
5. flokkur á Islandsmótinu í knattspyrnu:
VALSMENN URDU
ISLANDSMEISTARAR
— sigrudu ÍK f úrslitaleik 4-1
■ Valsmenn urðu á sunnudaginn ís-
landsmeistarar í knattspyrnu í flmmta
aldursflokki. Þeir sigruðu ÍK á Smára-
hvammsvelli meö fjórum mörkum gegn
einu. ÍK-ingar skoruðu mark snemnia í
fyrri hálfleik með góðu langskoti utan af
kanti, en Valsmenn jöfnuðu fljótt á
eftir. IK fékk síðan á sig tvö klaufantörk
eftir að markvörðurinn hafði misst holt-
ann frá sér á tærnar á sóknarmönnum
Vals, og seinasta markið var skorað með
góðu langskoti rétt fyrir utan vítatcig.
Úrslit leikja í riðlakeppninni og loka-
staðan:
ÍR-Höttur .......................5-0
Valur-Þór A......................3-1
Valur-Höttur .................. 5-0
Þór-ÍR ..........................1-0
ÍR-Valur.........................0-1
Höttur-Þór...................... 0-3
Lokastaðan:
Valur.............. 3 3 0 0 9-1 6
Þór A.............. 3 2 0 1 5-3 4
ÍR................. 3 1 0 2 5-2 2
Höttur ............ 3 0 0 3 0-13 0
ÍK-ÍBÍ...........................8-0
UBK-Víkingur.....................1-1
ÍK-UBK . ........................1-0
Víkingur-ÍBÍ ....................4-1
ÍK-Víkingur......................2-1
UBK-ÍBI . . .....................5-1
Lokastaðan:
ÍK............... 3 3 0 0 11-1 6
UBK ............... 3 111 6-3 3
Víkingur........... 3 111 6-4 3
ÍBÍ ............... 3 0 0 3 2-17 0
Úrslitaieikur unt 7. sætið:
Höttur-ÍBÍ.......................5-4
Úrslitaleikur um 5. sætið
Víkingur-ÍR................... . 4-0
Úrslitaleikur um 3. sætið:
UBK-Þór A........................2-5
Fyrri hálfleikur í leiknum um 3. sætið
var frekar jafn og staðan þá var 1-1.
Framan af síðari hálfleik áttu Blikarnir
meira í lciknum, en þegar u.þ.b. 15 mín.
voru eftir af leiknum fengu Þórsarar
dæmda vítaspyrnu og skoruðu örugglega
úr henni. Eftir þetta tvíefldust Þórsarar
og spiluðu Blikana sundur og saman og
skoruðu þrjú mörk í viðbót með stuttu
millibili. Blikarnir náðu svo að skora
mark á síðustu sekúndum leiksins.
I.okaröðin
íslandsmcistarar: Valur
2. sæti: ÍK
3. sæti: Þór A.
4. sæti: UBK
5. sæti: Víkingur
6. sæti: ÍR
7. sæti: Höttur
8. sæti: Isafjörður
- Jón Hersir/Úlfar Harri
■ Hart barist í leik Vals og ÍK í úrslitum íslandsmótsins í 5. flokki. ÍK skoraði fyrsta
markið, en Valsmenn svöruðu með fjórum mörkum. Tímamynd Róbert
umsjón: Samúel Örn Erlingsson
Sænska
landsliðiðsem
leikur í kvöld:
■ Sænska landsliðið sem leikur í
kvöld gegn tslendingum er þannig
skipað: ‘
Sören Börjesson, Örgryte
Sven Dahlquist, AIK
Ingemar Erlandsson, Malmö FF
Stig Frcdriksson IFK Gautaborg
Tommy Holmgren.JFK Gautabórg
Tord Holnigren, ÍFK Gautaborg —
Glenn Hyscn, IFK Gautaborg
Mats Jingblad, Halmstad
Lennart Johansson Mjállby
Bernt Ljung AIK
Björn Nilsson, Malmö FF -
Anders Palnter, Malmö FF
Sten Ove Ramberg, Hammarlny
An|dreas Ravelli, Öster
Thomas Ravelli, Öster
Tomas Sunesson, Malmð FF
Þjálfari liösins er Liirs Arnesson. ,
Atvinnumenn Svía í V-Þýskalandi og
Belgíu leika ekki af sömu ástæðum og
okkar, en hlutfall þeirra hefur vcrið* 1
frekar lágt í liðinu. svo ekki sér á því
cins og því íslenska.
Þriðju verðiaun
Koch og austur-
þýskur sigur
■ í blaðinu í gær glcymdist að geta
-úrslita í 4x400 m bóðhlaupum á HM í
Helsinki. í kvennaflokknum sigraði
austur-þýska sveitin, með vcrðlauna-^
hafann Maritu Koch í iararbroddi.
Hún vann þar-sfn þriðju verðlaun.
Úrslitin í 4x400 m boðhlaupi kvenna
urðu þessi:
1. Austur-Þyskaland ......3:19,73
2. Tékkóslóvakia..........3:20,32
3. Sovétríkin.............3:21,16
4. Kanada ................3:27,41
5. Bandarikiii..........:. 3:27,57
6. Vestur-Þýskaland........3:29,43
í 4x400 m boðhlaupi karla sigruðu
Sovétmenn, en það varð afdrilaríkt
fyrir bandarísku sveitina að Willie
Smith féll um koll á þriðja sprctti, og
missti við það mikinn tíma. Hann stöð
þó á fætur oghélt áfram. Edwin Moscs
gat engum stórum hlut bjargað á
lokasprettinum, þrátt fyrir að ná
sænsku sveitinni.
Úrslit:
1. Sovétríkin.............3:00,79
2. Vestur-Þýskaland.......3:01,83
3. Bretland...............3:03,53
4. Tckkóslóvakía .........3:03.90
5. ítaUa ..................3:05,10
6. Bandarikin............”3:05,29
7. Svíþjóð ...............3:08,57
i
Toppárangur í
tugþrautinni
■ Eins og sagt var frá í blaðinu í gær,
sigraði Daley Thompson í tugþrautar-
keppni Heimsmeistaramótsins ífrjáls-
uin íþróttutH í Helsinki. Thompson
hlaut 8666 stig. Júrgen Hingsen,
heimsmethafinn varð í öðru sæti meö
8561 stig. Þó ekki hafi verið um
heimsmet að ræða hjá köppunum, er
árangur þeirra engu að síður atliygl-'
isverður, kannske ekki sfst fyrir Is-
landsmeistara í suniunt einstökum
greinum, lítum nánar á:
Árangur Thompsons varð þessi:
10,60 í 100 m, 7,88 í langstökki, 15,35
m í kúlu, 2,03 í hástökki, 48,12 í 400
nt. 14,37 í 110 nfgrind, 44,46 í kringlu,
5,10 m í stöng, 65,24 í spjóti, 4:29,72
í 1500 m. Alls 8666 stig, heimsmet
Hingsens er 8777 stig. Hingsen náði
eftirtöldum árangri: 10,95 í 100 m,
7,75 í langstökki, 15,66 í kúíu, 2,00 1
hástökki. 48,08 í 400 m, 14,36 í 1J0
grind, 43,30 í kringlu, 4,90 í stangar-
stökki, 67,42 í spjótkasti, og 4:21,59 í
1500 m. '