Tíminn - 08.05.1983, Side 27

Tíminn - 08.05.1983, Side 27
SUNNUDAGUR 8. MAI 1983. 27 Höfum nú á lager okkar landsþekktu einfasa rafmótora, meó tilheyrandi rofabúnaói. Stæróir: 10-18 hö. Rakaþéttir. Bændum er ráólagt aó senda inn pantanir sem fyrst. SUG ÞURPKUNAR "40I0RAR Tæknilegar upplýsingar Steinsteypa er blanda af sandi, möl, sementi, vatni og íblöndunarefnum, er hafa bætandi áhrif á steypuna. Steinsteypa er flokkuð niður í brotþolsflokka eftir styrkleika. Algengustu brotþolsflokkar eru í röð eftir vaxandi styrkleika S-120, S-160, S-200, S-250 og S-350, en þessi flokkun táknar 28 daga brotþol 15 x 30 cm sívalninga, sem steyptir eru úr viðkomandi steypublöndu. í venjuleg hús er S-200 algengast. Þykkleiki steinsteypu er mældur eftir því hversu marga cm sérstök keila úr blautri steypu sígur þegar mótið er fjarlægt. Því hærra sem sigmálið er, því þynnri er steypan. Venjuleg tregfljótandi steypa er með sigmáli 5-10 cm , þunnfljótandi með meira en 20 cm sigmáli. Steypan verður því þynnri sem meira vatni er bætt í hana. Of mikið vatn í steypu hefur skaðleg áhrif. Aldrei skyldi setja meira vatn í steypu, en minnst verður komist af með. I steinsteypu er blandað ýmsum efnum til að breyta eiginleikum hennar. Loftblendi- og þjálniefnið H-Loft frá Woermann er sett í alla steypu frá Steypustöðinni.hf til að auka veðrunarþol steinsteypunnar, draga úr vatnsþörf og auövelda niðurlögn hennar. Flotefni eru sett í steypuna, þar sem steypan þarf að vera fljótandi, léttfljótandi eða þunnfljótandi við niðurlögn, eða þar sem þarf að fá slétta áferð á steypufleti, án þess að þau veiki hana, eins og verður við þynningu með vatni. Eftir ítarlegar samanburðarrannsóknir á hinum ýmsu efnum mælir Steypustöðin hf með flotefninu Flot 78. Steinsteypan er burðarás mannvirkisins. Gæta verður vel viö niðurlögn steinsteypu að ekki myndist göt í veggi eða að steypa skilji sig og myndi malarbreiður. Vandið til allrar meðferðar steinsteypu. Upplýsingar um Alkalískemmdir í þeim mannvirkjum á Reykjavíkursvæðinu, sem notuð hefur verið möl og sandur úr Hvalfirði hefur borið á skemmdum í steinsteypu, vegna efnabreytinga er eiga sér staö milli sementsins, saltsins og steinefnanna. Kísilsýraisteinefnunum myndar meðalkalíumsementsinsog saltsins kísilsýruhlaupsem sprengir steypuna. Til að koma í veg fyrir slíkar skemmdir hefur kísilryki verið bætt út í sementið, og notkun óvirkra steinefna verulega aukin í samræmi við niðurstöður rannsókna er Steinsteypunefnd hefur látið gera. Steypustöðin hf hefur ávallt notað og haft á boðstólum óvirk steinefni. Steinsteypukaup Sú hugmynd að dreifa steinsteypu með bifreiðum frá blöndunarmiðstöð þróaðist í Bandaríkjunum og fyrst.slíkra stöðva ÍEvrópu.Steypustöðin hf varreistá Islandiáriöl947. Steypustöðin hf býður húsbyggjendum þjónustu sina. Við reynum að fullnægja óskum viðskiftavinaokkareftir bestu getu. Skrifstofa okkar er við mynni Elliðaánna að Sævarhöfða 4. Sími okkar er 33600. Hafið samband við einhvern eftirtaldra aðila: Jón Ólafsson skrifstofustjóra, Svein Valfells verkfræðing, Halldór Jónsson verkfræðing. Yfirverkstjóri - Reykjavíkurhöfn Reykjavíkurhöfn óskar að ráða yfirverkstjóra. Verksviö: Verkstjórn við verklegar framkvæmdir við hafnarmannvirki og aðra mannvirkjagerð á vegum Reykjavíkurhafnar. Æskileg iðnaðarmenntun með framhaldsnámi. Laun samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafé- lags Reykjavíkurborgar. Nánar upplýsingar gefur yfirverkfræðingur. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist undirrituðum eigi síðar en 13. maí n.k. Hafnarstjórinn í Reykjavík, 28,apríl 1983 Gunnar B. Guðmundsson. Steinsteypupantanir Verkstjóri okkar, sem tekur við steinsteypupöntunum.heitir Ottó Gíslason, s. 36470 eða 33600. Steypu þarf helst að panta með nokkrum fyrirvara þar eð hana þarf að framleiða um leið og hún er afhent. Steypustöðin hf tekur að sér að sjá um pöntun á steypudælu eða krana, ef annars er ekki óskað. SÆVARHÖFÐA 4, PÓSTHÓLF 245, 105 REYKJAVÍK, SÍMAR: 33600 - 34845 - 36470

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.