Tíminn - 03.06.1983, Side 3
FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ1983
3
„HEF RETT11L AD SEUfl
HVERIUM SEM ER JÖGÚRT
— segir Haraldur Gfslason, mjólkursamlagsstjóri á Húsavík,
sem bannað hefur verið að selja Haugkaupum jógúrt
■ „Þetta eru bara menn sem komu hér
í vor og báðu um að fá keypta jógúrt. Ég
held ég hafi rétt til að selja hvaða manni
sem er jógúrt, en kemur síðan ekki við
hvað gert er við hana - hvort menn hella
henni í Skjálfandafljót, flytja hana til
Reykjavíkur eða hvað annað þeir gera
við hana“, sagði Haraldur Gíslason,
mjólkursamlagsstjóri á Húsavik. Hann
staðfesti að komin væri ósk um það frá
Framleiðsluráði að hann láti það fram-
vegis alveg vera að selja Hagkaupa-
mönnum jógúrt, en þar hefur Húsavík-
urjógúrt verið seld undanfarnar vikur á
8 kr. lægra verði hver lítri en jógúrt frá
M.B.F.
Haraldur kvað það rétt að heildsölu-
leyfin séu miðuð við samsölur og mjólk-
ursamlög á hverjum stað. En þessir
aðilar hafi keypt sína jógúrt í þeirri einu
búð á Húsavík sem hana selur, enda reki
Mjólkursamlagið á Húsavík enga heild-
sölu fyrir sunnan. Haraldur kvað ýmsa
lögfræðinga því a.m.k hafa tjáð sér að
erfitt væri að banna honum þessa sölu.
„Það sem mér hefði fundist eðlilegast
væri að samkomulag hefði náðst um það
að þéir fyrir sunnan tækju að sér að
dreifa þessu fyrir mig, ellegar að ég fengi
einhvern kvóta í þessu einu búð,“ sagði
Haraldur.
Húsavíkurjógúrtin er seld á sama
verði á Húsavík og í Hagkaupum, þann-
ig að þar er ekki lagður á hana flutn-
ingskostnaður að norðan. Verðmuninn
kvað Haraldur felast í ýmsu. „Fyrst og
fremst er ég með ódýrari umbúðir og
bara eina tegund, þ.e. venjulegar hálfs
lítra mjólkurfernur, sem kostar um 80
aura’ stykkið eða umbúðakostnað unt
1,70-1,80 kr. á lítrann og pakka auk þess
í okkar mjólkurpökkunarvél. Á Selfossi
er pakkað í rándýrri spesialvél í plastbox
sem sagt er að kosti 2,20 kr. stykkið auk
loka og plastramma, þannig að ég gæti
trúað að umbúðakostnaðurinn þar væri
5-6 krónur á lítra.
Ég er bara svo gantaldags að ég hefi
aldrei haft ánægju af að framleiða vöru
fyrir neytendur í svo dýrum umbúðum
að þeir séu kannski að henda fimmta parti
af verði þeirra beint í ruslatunnuna,"
sagðir Haraldur.
- HEI
Tæpum 11
milljónum
úthlutað
úr
Vísinda-
sjóði
■ Styrkjum úr Vísindasjóði hefur
verið úthlutað fyrir árið 1983. Deildir
sjóðsins eru tvær. Raunvísindadeild
og Hugvísindadeild og var að þessu
sinni úthlutaðsextíuogtveimstyrkjum
úr þeim fyrrnefnda, en fjörutíu og
cinum úr þeint síðarnefnda.
Alls var úthlutað í ár 10.823.00
krónum. þar af úthlutaði Raunvísinda-
deild 7.723.IKK) krónum og Hugvís-
indadcild 3. HK).(KK) krónum.
- JGK
■ Hátíðarhöldin í Hafn-
arfirði á 75 ára afmælinu þ.
1. júní voru mjög vel
heppnuð að sögn Árna
Grétars Finnsonar, forseta
bæjarstjórnar Hafnar-
fjarðar.
Afmælisdagurinn hófst með því að
vinabæjarmótið var sett í Bæjarbíói kl.
10:30 og kom þar fram kirkjukór Viði-
staðasóknar og lúðrasveit Tónlistarskól-
ans. Þá færði forseti íslands, Vigdís
Finnbogadóttir, bænum að gjöf þrjár
birkihríslur sem gróðursettar verða á
Hamrinum. Ein hríslan helgast þeim
stúlkum sem nú eru að vaxa upp, önnur
piltum og sú þriðja óbornum kynslóðum
til að minna á gildi þeirrar náttúru og
umhverfis sem þau taka í arf.
Klukkan 2 e.h. var síðan opnuð mál-
verka-,skúlptúr- og keramiksýning í
Háholti, en þar eru eingöngu verk eftir
hafnfirska listamenn og var forsetinn þar
lík'a viðstaddur auk hinna norrænu gesta.
Hafnarfjörður:
■ Margmcnni var á hátíðafundinum eins og sjá má.
Tímamynd GE
GðD STHMMING Á HflTfBARHðUNINUM”
— sagði Árni Grétar Finnsson forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar
Um kvöldið var síðan hátíðarfundur í ar. Á þeim fundi var afgreitt í fyrsta lagi Bókasafn Hafnarfjarðar, en Hörður friðlýsingu Hamarsins en Vilhjálmur G.
íþróttahúsinu við Strandgötu og var þar tillaga sem allir bæjarfulltrúar stóðu að Zophaníasson mælti fyrir þeirri tillögu. Skúlason mælti fyrir henni. Að því
húsfylliraðsögnÁrnaGrétarsFinnsson- um að byggja nýtt, bókasafnshús fyrir Þá var samþykkt tillaga um skipulag og loknu óskuðu nokkrir utan bæjarstjórn-
■ Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir mætir til athafnarinnar ásamt Áma Matthías Á Mathiesen viðskiptaráðherra og Gunnar G.Schram prófessor.
Grétari Finnssyni forseta bæjarstjórnar. Tímamynd GE Tímamynd GE
ar að flytja ávörp. Þar var fyrstur á
mælendaskrá Sverrir Magnússon, lyfsali
í Hafnarfirði, og tilkynnti að hann hefði
gefiðHafnarfjarðarbæ gjöf ásamt konu
sinni, Ingibjörgu Sigurjónsdóttur. Gjöf-
in sem þau gáfu var fasteignin Strandgata
39, en þar er apótek Hafnarfjarðar til
húsa. Einnig gáfu þau málverka- og
bókasafn en tilgangurinn er að stofna
lista- og menningarstofnun Hafnarfjarð-
ar sem beri heitið Hafnarborg. Síðan
fluttu ávörp Alexander Stefánsson fél-
agsmálaráðherra, Matthías Á. Mathie-
sen, viðskiptaráðherra og þingmaður
Reykjaneskjördæmis, Magnús Guðjóns-
son, framkvæmdastjóri Sambands ísl.
sveitarfélaga, Sigurgeir Sigurðsson,
bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, og Eiríkur
Pálsson fyrrverandi bæjarstjóri.
Síðar um kvöldið var boðið til kaff-
idrykkju og skemmtunar og að sögn
Árna Grétars var þátttakan mjög mikil
og almenn og stemming góð.
- ÞB