Tíminn - 03.06.1983, Síða 5
fr£ttir
Togaranum Guðsteini fra Grindavik breytt í frystiskip:
HLBdlNN Á VEIÐAR KOSTAR
HANN 110-115 MILU. KR'
■ í slippstödinni á Akureyri standa nú
yfir viðgerðir og breytingar á togaranum
Guðsteini frá Grindavík. Er m.a. verið
að breyta togaranum í frystiskip. Tiibúinn
tii veiða áætla nýir eigendur að hann
muni kosta 110-115 milljónir króna.
Guðsteinn er 750 iestir að stærð, smíðað-
ur 1974.
„Skipið var í eigu Samherja h.f. í
Grindavík og eina breytingin sem orðið
hefur er sú, að nýir eigendur eru orðnir
að hlutafélaginu og þar með togaran-
um,“ sagði Þorsteinn Baldvinsson, einn
hinna nýju éigenda.
Spurður um mögulegan rekstrar-
grundvöll og af hverju verið sé að breyta
togaranum í frystiskip, sagði Þorsteinn:
„Ég held að við verðum bara á svipuðum
báti og hinir, t.d. Örvar á Skagaströnd.
Með frystingu teljum við að við aukum
möguleikann á að skipið geti borið sig. “
Þorsteinn kvað vonast til að togarinn
verði tilbúinn til veiða síðari hluta sept-
embern.k. Reiknaðermeðað25 manna
áhöfn verði á skipinu við veiðar og
vinnslu aflans.
- HEI
■ „Þetta er ömurlegt." sagði Sóley Brynjólfsdóttir
Mikil hækkun búvara mælist illa fyrir:
„Ekki byrjar
ríkisstjórnin
glæsilega”
Hótel Loftleiðir:
Kalt boró og
tískusýningar
■ íslenskur heimilisiðnaður, Ramrna-
gerðin og Hótel Loftleiðir gangast fyrir
tískusýningum, þar sem sýndur verður
fatnaður úr íslenskri ull, í hádegi á
föstudögum í sumar í Blómasal Hótel
Loftleiða. Jafnframt verður á boðstólum
kalt borð fyrir gesti.
Þessi starfscmi er hugsuð sem kynning
á þeim mikilvægu útflutningsvörum sem
íslenskar ullarvörur eru og vonast að-
standendur til að fólk bjóði erlendum
gcstum sínuni og gefi þcim tækifæri til
að sjá og kynnast þeim vörum sem
sýndar verða. -JGK
Skemmdar-
verkin við Bíla-
söluna Blik:
Þrfr játa
■ Lögreglan í Reykjavík hefur hand-
tekjð þrjá pilta vegna skemmdarverk-
anna á bílunum við Bílasöluna Blik.
Piltarnir sem eru á aldrinum 17 til 20 ára
hafa játað verknaðinn.
Að sögn lögreglunnar er talið að
þessir piltar tengist öðrum málurn af
svipuðum toga en sú rannsókn er ennþá
á frumstigi. -GSK
Reykjavíkurhöfn:
Fisklöndun
ekki minni sl.
tíu ár
■ Alls var 54.784 tonnum af fiski
landað í Reykjavíkurhöfn á síðasta ári
og er það minna en landað hefur verið
nokkurt annað ár frá árinu 1972, að því
er fram kemur í ársskýrslu Reykjavíkur-
hafnar. Árið áður var landað þar um
66.800 tonnum og árið 1980 nær tvöfalt
meiri afla en í fyrra, eða 108.893
tonnum. En 1980 var löndun lang mest
allt frá árinu 1972. Næst minnstum afla
var hins vegar landað árið 1975, 58.834
tonnum. -HEI
Utanlands-
símtölin
hækka
■ Gjöld fyrir símtöl til útlanda hækka
um mánaðamótin um 37-46% í hinum
ýmsu gjaldflokkum. Hækkunin stafar af
hækkun á gengi gullfranka, sem nemur
45% frá síðustu gjaldskrárbreytingu í
janúar s.l., segir í frétt frá Pósti og síma.
Gjald fyrir hverja mínútu í sjálfvali
verður 29 krónur til Norðurlanda nema
Finnlands kr. 32., til Bretlands kr. 35.,
til Frakklands og V-Þýskalands kr. 43 og
til Kanada og Bandaríkjanna kr. 65.
Afgreiðslugjaldið fyrir handvirka þjón-
ustu verður kr. 10.50 í öllum tilvikum
fyrir hverja mínútu. -JGK
■ „Hér áður fyrr höfðum við ekki við
að konia ntjólkurvörum hér í hillurnar
en nú er búðin troðfull af þeim. Ég hef
unnið hér í 9 ár og aldrei hefur ástandið
verið svona fyrr“, sagði starfsstúlka í
Austurveri sem blaðamaður Tímans
ræddi við í gærdag í tilefni af hækkun
landbúnaðarvara um að meöaltali
22,25%. Algengustu tegundir hækkuðu
á bilinu 22-33% skv. útreikningum sex-
mannanefndar.
Inga Eðvalds, önnur starfsstúlka í
Austurveri var jafn óhress með hækk-
H „Hvernig á maður að fara að
þessu?“, spurði Garðar Jensson.
unina og kollega hQnnar. „Þetta er
hryllilegt. Hugsaðu þér barnafólkið. Ég
verð að segja eins og er að ekki byrjar
ríkisstjórnin glæsilega."
Næstur varð á vegi blaðamanns ungur
maður að nafni Garðar Jensson:„Mér
finnst það alveg ótækt að láta landbúnað-
arvörurnar hækka um 22,5% á meðan
launin hækka aðeins um 8%. Hvernig á
maður að fara að þessu?"
Loks lögðum við sömu spurninguna
fyrir Sóleyju Brynjólfsdóttur sem var að
versla mjólk. „Þetta er ömurlegt. Nógu
var þetta dýrt fyrir. Ég er afskaplega
óhress með þetta og vona ég bara að
íslenska þjóðin sé nógu sterk til að
standast svona róttækar aögerðir."
Starfsmenn
Sindra:
Kveiktu í
bflflökum
í óleyf i!
■ Slökkviliðið í Reykjavík fór að
beiðni lögreglunnar inn í Sindraport um
hálf eittleitið í fyrrinótt þar sem starfs-
menn Sindra höfðu kveikt í gömlum
bílflökum.
Lögreglunni bárust kvartanir frá fólki
í nágrenninu og því var Slökkviliðið
kvatt út. Slökkvistarfið tók um 40.
mínútur.
Aö sögn slökkviliðsins telja þcir
þessar brennur Sindramanna óleyftlcg-
ar. Starfsmenn Sindra telji sig hins vegar
í fullum rétti að losa sig á þcnnan hátt
við úrgang.
-GSH
Varðberg
stof nað á
Akureyri
■ Félagið Varðberg, félag áhuga-
manna um vestræna samvinnu, verður
stofnað á Akureyri á morgun. Að félags-
stofnuninni standa nokkrir ungir áhuga-
menn um þessi mál úr Alþýöuflokki,
Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki
ásamt óflokksbundnu fólki. Ráðgert er
að félagið verði í tengslum við Varðberg
í Reykjavík og Samtök um vestræna
samvinnu.
Á fundinum, sem haldinn verður á
Hótel KEA og hefst klukkan 14:00,
munu mæta þrír fulltrúar úr stjórn
Varðbergsí Reykjavík: Geir H. Haarde,
Alfreð Þorsteinsson og Jón Eggertsson,
en Björn Bjarnason, blaðamaður og
formaður Samtaka um vestræna sam-
vinnu flytur ræðu um markmið vestrænn-
ar samvinnu. - Sjó.
Kona f lutt á
sjukrahús
eftir árekstur
■ í gær var kona flutt á sjúkrahús eftir
árekstur á mótum Lauganesvegar og
Laugavegar. Að því er best var vitað í
gærkvöld voru meiðsli konunnar ekki
alvarleg.
Áreksturinn varð þegar Trabantbif-
reið sem kom suður Laugarnesveg, ók í
veg fyri WV bifreið sem var ekið vestur
Laugaveg. Á þessum gatnamótum er
biðskylda á Laugaveginn, Konan sent
slasaðist var ökumaður Trabantbifreið-
arinnar. -GSH
■ Þau mistök urðu í blaðinu s.l. þriðju-
dag, að sagt var á bls. 6, að Ragnarsbak-
arí í Keflavík væri stærsta bakarí
landsins. Þar átti að standa að bakaríið
væri eitt af stærstu bakaríum landsins,
enda munu nokkur bakarí vera töluvert
stærri en Ragnarsbakarí. Þetta leiðréttist
hér með. -Þb
- Jól
■ „Ekki byrjar ríkisstjórnin glæsilcga“, sagði Inga Eðvalds, starfsstúlka í Austurveri