Tíminn - 25.09.1983, Page 4
fAQl T'f'il rv* ■ t fHWWé
SUNNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1983
99Ma bjoða þer armbands-
úr á 114 þúsund krómir?”
■ Nu á tímum er mikið talað um hvers konarpeningaáhyggjurlandslýðsins, húsbyggjendur videóaðall vor, mundu nudda á sér hökuna um stund, væri honum boðið til kaups armbandsúr
kveinka og mörgum finnst súrt í broti að ekki hækkar kaupið. á áttatíu þúsund krónur. En þeir eru til sem fúsir ganga að slíkum kaupum og þegar þú af tilviljun
En það eru sem betur fer ekki allir á horleggjunum á gamla Fróni. Alltaf eru þeir nokkrir sem rekur augun í úlfnlið sem ber úr með nafninu „Cartier“ eða „Rolex,“ þá hefur þú liklega fundið
bera sig bara vel og sjálfsagt fleiri en þeir halda, sem mestan hafa uppi barlóminn. Það sannast einn.
á því að jafnan eru ýmsir sem kaupa bestu merkin í Volvo og BMW, sjónvarpstækin frá B&O
og videó-tæki, sem vissulega eru ekki gefin, enda dálitið „status-symból“, enn hvað komið er. Það er Valdimar Ingimarsson, sem rekur verslunina „Úrog skartgripir" við Austurstræti, sem
Eri þrátt fyrir allt þetta eru það þó smáatriðin sem jafnan setja punktinn yfir „i-ið“ og skilja selur „Cartier“ en Franch Michelsen að Laugavegi 39 sem selur „Rolex" og við litum inn hjá
sauðina frá höfrunum, ef svo mætti segja. Hætt er við að ýmsireigendurheldri bila bæjarins og þeim og inntum þá dálítið eftir þessum kjörgripum.
■ Valdimar Ingimarsson með
„Santos" úrið frá „Cartier."
(Tímamynd Róbert)
„Stöðutákn
hvar sem er
segir Valdimar Ingimarsson,
sem flytur inn „Cartier”
■ „Við hér byrjuðum að flytja inn
„Cartier" um síðustu áramót og
höfum orðið vör við að furðulega
margir íslendingar þekkja merkið,
þótt það hafi ekki verið kynnt hér
fyrr,“ sagði Valdimar. „Ástæðan er
sjálfsagt sú að menn hafa séð þessi
úr auglýst í erlendum tímaritum.
Hér höfum við til dæmis eina þekkt-
ustu línuna frá „Cartier," en þessi úr
sem eru ferköntuð bera nafnið „Santos",
og var fyrsta úrið smíðað fyrir franska
landkönnuðinn Alberto Santos du Mont
árið 1904.
Þetta merki er franskt, eins og margir
munu vita, og það var franskur úr og
gullsmíðameistari, Louis Francois Carti-
er sem byrjaði að framleiða þessi úr
1847. Viðskiptavinirnir voru eintómir
aðalsmenn og auðvitað Napoíeon III, -
hann var meðal viðskiptavinanna. „Car-
ticr“ hefur haft miðstöðvar sínar í
fínasta verslanahverfi Parísar frá 1853
og sonur gamla Louis Cartier, Alfred,
setti upp útibú í London 1902 og í New
York 1908. Verslunin í London er við
New-Bondstreet og það ætti að segja
sína sögu.“
Hvað um verðið?
„Nú, ef við tökum „Santos“ úrin, þá
eru bæði herraúrið og dömuúrið á sama
verðinu, sem er 55.900.00. En af „Carti-
er“ á ég hér líka miklu ódýrari úr, svo
sem þetta dömuúr, sem kostar „aðeins“
25.700.00.
Loks hefur þú eflaust gaman af að sjá
dýrustu úrin í þessu merki. Þau eru úr
18 karata gulli og dömuúrið kostar
70.600.00, en herraúrið kostar
78.900.00. En ef menn vilja hafa meira
við og fá úrin skreytt með demöntum,
þá er sjálfsagt að útvega þau.“
Hvernig hefur
salan gengið ?
„Við höfum þegar selt talsvert, því
eins og ég sagði þá þekkja margir merkið
og vita hvað um er að ræða. Já, ég held
að það sé grundvöllur fyrir því hér að
hafa slíka lúxusvöru á boðstólum. Á
„Cartier“ er lífstíðarábyrgð og um gæðin
held ég að ekki þurfi að tala. Loks
verður því ekki neitað að hér er um
„status-symbol" að ræða. „Cartier“ er
„stöðutákn" hvar sem er í heiminum.
Þetta fyrirtæki er ekki aðeins í úrun-
um, þvt' þeir eru frægir skartgripafram-
leiðendur líka og eiga að því er ég best
veit stærsta hreina perulega demant í
heimi, sem er 107.7 karöt. Þegar Richard
Burton gaf Elisabetu Taylor perlulaga
demant árið 1979, þá vakti það heims-
athygli, þótt sá væri „aðeins" 69.42
karöt. Fyrirtækið er því gamalt og heims-
þekkt og mér er sagt að veltan sé 4
þúsund milljónir dollara á ári. Eigenda-
skipti urðu árið 1973 og það er dóttir
nýja eigandans, ungfrú Natalie Hocq,
sem á fyrirtækið núna. Hún er ógift og
aðeins 34 ára gömul og ásamt þeim
ungfrú Hefner, sem á Playboy og
ungfrú Gucci, sem g leður og skartgripa-
fyrirtæki „Gucci“, ríkasta unga konan í
heiminum.
Ég læt þetta fljóta með, ef einhverjir
myndarlegir piparsveinar vildu hugsa
sér til hreyfings."
- AM
■ Lára Axelsson, kona Valdimars,
með kvenúrið í „Santos“-línunni.
Línan breytist aldrei og á úrunum er
lífstíðarábyrgð.
(Tímamynd Róbert)
í heiminum”
■ Gullblýantur og gullkveikjari frá „Cartier."
(Tímamynd Róbert) ■ Dýrustu „Cartier" úrin eru á 70.600 (kvenúrið) og 78.900 (herraúrið).