Tíminn - 09.11.1983, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1983
5
fréttir
„GOB BVRIUN IHUITA-
FJARSÖFNUN TfMANS"
— segir Þráinn Valdimarsson,
forstöðumaður hennar
■ „Þetta er góð byrjun á hlutafjár-
söfnun Tímans“, sagði Þráinn Valdi-
marsson sem hefur yfirumsjón með
henni í samtali við blaðið er hann var
spurður um árangurinn hingað til, en nú
hafa sextíu og sex einstaklingar gefið
loforð fyrir kaupum á hlutafé að upphæð
ein milljón og fjörutíu og fimm þúsund
krónur.
„Við erum bjartsýn", sagði Þráinn,
„og ekki síst fyrir það að þessi framiög
eru að mestu komin frá mönnum sem við
höfum kallað óbreytta liðsmenn. Ég vil
í framhaldi af þessu vinsamlega biðja þá
sem fengið hafa eyðublöð um hlutafjár-
loforð að útfylla þau eins fljótt og þeir
mögulega geta, og koma þeim á skrif-
stofu flokksins að Rauðarárstíg 18.“
Hér á eftir er birtur listi um hvernig
það hlutafé skiptist sem þegar hefur
verið safnað. í fyrri dálkinum er fjöldi
einstaklinga sem í hlut eiga, en í þeim
seinni er að finna þá upphæð sem þeir
hafa gefið loforð um hver fyrir sig.
Einstaklingar Fjárhæð
33 lofað 5.000 kr.
11 44 10.000 kr.
4 u 15.000 kr.
1 44 20.000 kr.
8 ii 30.000 kr.
1 ii 40.000 kr.
7 ii 50.000 kr.
1 44 60.000 kr.
■ Þráinn Valdimarsson gefur yfirlit um stöðu hlutafjársöfnunarinnar á félagsfundi Framsóknarfélags Reykjavíkur sem
haldinn var á mánudagskveldið, en þar var sérstaklega fjallað um málefni Tímans. Fundarritari var Gylfi Kristinsson,
fundarstjóri Valdimar Kr. . Jónsson, en frummælendur Hákon Sigurgrímsson, blaðstjórnarformaður, og Haukur
Ingibergsson, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins. Tímamynd: G.E.
■ Pétur Jónasson, gítarleikari.
Fyrstu tónleikar
vetrarins kjá
íslensku
hljóm-
sveitinni:
„Frá nýja
heiminum”
■ Fyrstu ákriftartónleikar íslensku
hljómsveitarinnar á öðru starfsári fara
framí Neskirkju annað kvöld kl. 20.30.
Auk hljómsveitarinnar koma fram þau
Anna Guðný Guðmundsdóttir píanó-
leikari, Pétur Jónasson gítarleikari og
Kristinn Sigmundsson söngvari. Stjórn-
andi á þessum tónleikum, sem bera
yfirskriftina „Frá nýja heiminum“, verð-
ur Guðmundur Emilsson.
íslenska hljómsveitin bendir þeim
áskrifendum sem ekki hafa sótt að-
göngumiða sína, að gera það sem fyrst,
en skrifstofa hljómveitarinnar er að
Fríkirkjuvegi 11 og er hún opin frá kl. 9
til 15. Jafnframt bendir hljómsveitin á,
að hægt verður að kaupa áskrift við
innganginn annað kvöld, ef komið er
tímanlega.
Skátahreyfingin vill að...:
Frjáls félög taki
að sér rekstur
æsku lýðsm iðstöð va
— og hid opinbera hætti
samkeppni með launuðum
starfsmönnum
■ Á fjölmennum fundi foringja skáta-
félaga landsins, sem haldinn var fyrir
skömmu, var samþykkt ályktun um að
skora á stjórnvöld að hætta samkeppni
við æskulýðsfélög með opinberu
launuðu æskulýðsstarfi en feli þess í stað
æskulýðsfélögum hin ýmsu verkefni
sem nú eru rekin af launuðum starfs-
mönnum.
í ályktun fundarins segir ennfremur
að stjórnvöld framkvæmi þetta á þann
hátt að gera samning við hin einstöku
félög um að annast æskulýðsstöðvar og
verkefni en í staðinn fái viðkomandi
félög það fjármagn sem í þessi verkefni
hafa farið. Þannig telur fundurinn að
fjármagn sem þarna kæmi myndi nýtast
félögunum betur en því opinbera og
veita almenningi betri þjónustu.
-GSH
Unnið að gigt-
lækningastöð
■ Gigtarlækningafélag íslands heitir á
alla sína félagsmenn og áhugafólk að
bregðast vel við happdrætti og jólakorta-
sölu til styrktar Gigtlækningarstöðinni
að Ármúla 5. í happdrættinu verður
dregið 8. desember.
Félagsmenn í G.L.l. eru nú 1700 og
fer alltaf fjölgandi. Þeir þyrftu þó að
vera miklu fleiri því að lauslega er
áætlað að 25000 íslendingar séu meira
eða minna þjakaðir af gigt. Fyrir þann
fjölda er þekking á gigt og málefnum
gigtssjúkra undirstöðuatriði. Félagið
heldur fræðslufundi og gefur út íimarit
sem berst félagsmönnum fjórum sinnum
á ári.
Austur-Skafta-
fellssýsla:
Konur
stofna
friðarhóp
■ Konur í A-Skaftafellssýslu hafa
stofnað friðarhöp. 90 konur sóttu
stofnfundinn úr öllum hfeppum sýsl-
unnar Lóni, Höfn, Nesjum.Suðursveit
og Mýrum. Á fundinum talaði Sigríður
Thorlacíus um friðarmál, tvær
konur fluttu Ijóð sem þær höfðu samið
í tilefni dagsins, Beta Einarsdóttir
sagði frá Jane Adams bandarískri
blaðakonu sem hlaut friðarverðlaun
Nóbels árið 1931. Hún barðist fy(ir
ríki jafnréttis og lýðræðis. Þá voru flutt
erindi um stríðsrekstur og striðsleik-
föng,, lesin upp ljóð og sungið.
Ákveðið var að hafa starf friðar-
hópsins ckki fastmótað, það yrði unnið
í nefndum þar sem ein nefnd sjái um
næstu uppákomu og síðan kæmi Ytý
nefnd og, síðan koll af kolli. í næstu
nefnd starfa Ingibjörg Zopham'asdótt-
ir, Kristín Sævarsdóttir, Unnur Garð-
arsdóttir, Guðrún Ingimundardóttirog
Svanhildur Sigurðardóttir.
, -BK
Finnsk leðursófasett
3 litir
Verð aðeins kr. 46.800.- settið
Húsgögn og
. Suðurlandsbraut 18
mnrettmgar simt 86 900
Sfmi 44566
RAFLAGNIR
Nýlagnir - Breytingar - Viöhald JHHH' Mf
samvirki JS\§
Skemmuvegi 30 — 200 Kópavogur.
Oskilahross
í Hraunhreppi
Mýrasýslu er í óskilum ungur hestur rauöur aö
lit. Mark: óglöggt, gæti verið blaðstýft framan
gagnbitaö vinstra.
Verður seldur á Brúarlandi laugardaginn 19. nóv.
kl. 14 hafi eigandi ekki gefið sig fram.
Hreppstjóri.
Drögum vel úr ferð
við blindhæðir og brýr.
GÓÐA FERÐ!
UMFEROAR
RÁÐ
t
Innilegar þakkir til allra þeirra er vottuðu okkur samúð og vinarhug við
fráfall og útför
Bósasar Valdórssonar,
Ðrekkustíg 23,
Njarðvfk.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólkl i lungnadeild Vífilsstaða-
sþítala og hjartadeild Landsþítalans.
Margrét Eiríksdóttir,
Eðvald Bóasson, Sigrún Albertsdóttir,
Valdór Bóasson, Rósa Gústafsdóttir,
Eiríkur Bóasson, Matthildur Bjarnadóttir,
og barnabörn.
Þökkum innilega auösýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
Perlu Höskuldsdóttur,
Hellubæ,
Hálsasvelt.
Sérstakar þakklr færum við Kventélagi Hálsasveitar, læknum og öðru
starfsfólki á deild 11-A á Landsþítalanum.
Jens Pétursson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Bróðir minn
Guðmundur Þorsteinsson
frá Klafastöðum
lést á Sjúkrahúsi Akraness þann 7. nóv.
Kristmundur Þorsteinsson.