Tíminn - 06.01.1984, Síða 5

Tíminn - 06.01.1984, Síða 5
FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1984 5 fréttir ■ Gunnlaugur Steingrímsson um borð í báti sínum, Knarrarnesi GK. Víst er að honum tókst með því að ferja menn út í báta að forða enn stærra tjóni. 'VERDUM AÐ VERA MKKIÁTIR AD EKKI URÐU MANNSKAÐAR’ segir Gunnlaugur Þorgrímsson, sjómaður, sem var vitni að stórtjóni á bátum í Sandgerd- ishöfn í gærmorgun ■ „Eftir á að hyggja er eiginlega mesta furða að ekki skyldi hafa farið mikið ver. Miðað við hvað menn lögðu sig í mikla hættu verðum við bara að vera þakklátir að ekki urðu mannskaðar. Auðvitað er tjónið mikið, sennilega einir þrír smábát- ar ónýtir, og aðrir, stórir og smáir, meira og minna skemmdir. Enda var veðrið hreint kolbrjálað og sjógangur meiri en elstu menn muna,“ sagði Gunnlaugur Þorgrímsson, sjómaður í Sandgerði, þegar Tímamenn hittu hann við Sand- gerðishöfn í gær. „Ég var nokkuð heppinn með minn bát. Hann slitnaði upp og rak upp í stórgrýtið en mér tókst að komast um borð, setja í gang og komast frá stórgrýt- ' inu eftir mikið basl. Fyrst um sinn andæfði ég bara inni í höfninni og gat ekkert aðhafst til að hjálpa öðrum. En strax og för að falla út og eitthvað var fékkst af viðlegubryggjunni gat ég farið að leggja mönnum lið. Ég sótti að minnsta kosti eina sex átta menn, vél- stjóra og skipstjóra af stærri bátunum í höfninni, og gat ferjað þá um borð í bátana sína, en þá var ekki enn hægt að ganga út á viðlegubryggjuna og eina leiðin að komast í bát utan að bátunum sem enn höfðu ekki slitnað upp. Það mátti stundum ekki tæpara standa, þeir héngu á síðustu spottunum." - Um hvert leyti komst þú niður á höfn? „Ég kom um sjöleytið, en þá var ástandið alverst. Einir sex smábátar liggjandi í stórgrýtinu innan við bryggj- una og þrír stærri bátar að auki. Menn komust út í bátana en gekk ver að koma þeim frá - þeir sneru margir þannig að erfitt var að athafna sig. Það var meðal annars þess vegna sem Svavar ætlaði að draga bátana út á vörubílnum með því að keyra út á bryggjuna.1' . Gunnlaugur kvaðst ekki viss um skemmdir á sínum bát, ómögulegt væri að segja hvort hann hefði marist í stórgrýtinu. „Ég er þó nokkuð bjartsýnn því að hann lekur ekkert ennþá að minnsta kosti," sagði Svavar. -Sjó. Vörubifreiðastjóri hætt kominn í óveðrinu í Sandgerðishöfn: „ÉG VAR ALVEG BÚINN ÞEGAR ÞEIR NÁÐU MÉR UPP ÚR” ■ „Ég var alveg búinn þegar þeir náðu mér upp. Mér var rosalega kalt og líkaminn var allur dofínn og ég átti í miklum erfíðleikum með andardrátt; var alveg loft- laus,“ sagði Svavar Ingibergsson, vörubílsstjóri, sem bjargað var upp úr Sandgerðishöfn í gærmorgun, eftir að bfll hans, Mercedes Benz, sem vegur á milli sjö og átta tonn, fór í sjóinn, með hann innanborðs, í samtali við Tímann á Sjúkrahúsi Keflavíkur í gær. „Veðrið var alveg rosalegt og sjórinn gekk yfír bryggjuna þannig að hún sást stundum ekki. Það slitnuðu margir bátar frá og þá rak upp í grjótið fyrir neðan hafnarskúrinn. Ég átti einn bátanna, Sóley, sem er lítill dekkbátur, og var búinn að fara um borð og setja í gang, en komst ekkert á móti ofsanum. Við gripum þá til þess ráðs að draga bátana á bílnum mínum út með bryggjunni. Eg var með þann fyrsta í togi og var kominn svona 30 metra út á bryggjuna þegar mikið ólag reið yfir og bfllinn hreinlega sópaðist út út af bryggjunni. Hann valt aldrei, heldur sökk hægt og hægt niður á hjólin. „Þeir segja mér að hann sé svo gott sem ónýtur. Hann sökk alveg, en þeim tókst að ná honum upp fljótlega eftir hádegið, en hann er víst brotinn á stöku stað og viðurinn víða marinn. Bíllinn kom víst mun betur út úr þessu. Mér skilst að það sjáist vart á honum, nema hvað að hann er örlítið beyglaður á annarri hliðinni." - Er báturinn tryggður? „Hann er auðvitað tryggöur, cn trygg- ingar bæta aldrei svona tjón að fullu. Ég gæti trúað að nýr bátur kosti um fimni milljónir með öllu, en cg fæ vart meira en þriðjung af því. Svo verður vonandi hægt að bjarga einhverju úr honum - ég var til dæmis með nýjan loran og nýja vél og vonast til að hægt verði að bjarga hvoru tveggja," sagði Svavar. Hann kvaðst búast við að fara heim af sjúkrahúsinu um eða eftir helgi. „Annars líður mér ágætlcga hérna og liggur ckkert á heim fyrr cn ég hef náð mér að fullu," sagði Svavar. -Sjó. ■ Bátur Svavars, Sóley GK, sökk í höfninni og er talinn næstum ónýtur. ■ Að minnsta kosti þrír kranar voru við Sandgerðishöfn síðdegis í gær. Voru þeir notaðir til að hífa skemmda smábáta upp á bryggju, en þeir voru orðnir lekir margir hverjir og óttast var að þeir sykkju í höfninni. Tímamyndir Róbert. Það auðvitað hvarflaði að mér að þarna væri ég að lifa mitt síðasta, en ég reyndi að bægja þeirri hugsun frá mér. Einbeitti mér þcss í stað að því að vera rólegur. Ég áttaði mig strax á því að það þýddi hvorki að opna hurð né glugga fyrr en nokkur sjór væri kominn inn í bílinn. Það leið um það bil hálf mínúta, sem mér fannst heillangur tími, áður en hægt var að opna rúðu sem ég gat komist út um. Síðan svamlaði ég í átt að bryggju- króknum þar sem félagar mínir náðu mér upp, köldum og hröktum," sagði Svavar. „Mér var komið rakleiðis hingað á sjúkrahúsið, sem betur fer. Hér fæ ég svo góða umönnun, að ég er búinn að ná mér ótrúlega þótt auðvitað sé ég hálf slappur ennþá." - Hefurðu frétt hvernig bátnum þínum reiddi af?

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.