Tíminn - 06.01.1984, Qupperneq 6

Tíminn - 06.01.1984, Qupperneq 6
€*______________ í spegli tímans RUSSNESN DANSAHNN OODUNW HOPPAÐI HOSWAflF AFBRÝMSEMI ■ Jaquline Bisset og ástvinur hennar Alexander Godunov, rússneski dansarinn, sem baðst hælis sem pólitískur flóttamaður í Bandaríkjunum, voru aðalper- sónurnar í miklu aflrrýðis-drama í partíi í Hollywood nýlega. Jaq- ueline rakst í samkvæminu á fyrrverandi sambýlismann sinn, frakkann Victor Drai, sem hún bjó mcð í sjö ár - en skildi við þegar hún hitti dansarann og flóttamanninn. Nú varð þeim Jaqueline og Victor skrafdrjúgt þegar þau hittust og voru þau hin kátustu og hvísluðust á einhverjum skemmtilegheitum og hlógu mikið. Þetta varð of mikið fyrir Rússann, hann rauk á dyr og skellti hurðum, en Jaqueline hljóp á eftir honum til að sleikja úr honum fýluna. Þá varð Alex- ander svo reiður, að áhorfendur sögðu að hann hefði nærri hopp- að hæð sína í loft upp, þegar vinkonan fór að biðja um gott veður. Reyndar tókst henni að koma honum í gott skap og þau gengu aftur til stofu arm í arm. Það gengur á ýmsu í ástasambandi þeirra, því að bæði eru þau skapmikil, dansarinn og leikkon- an. Jaqueline er þekkt fyrir að vera mjög sjálfstæð í skoðunum og hegðun. Hún hefur aldrei gifst, en „búið með“. Hún segist ■ Leikkonan og dansarinn komu arm í arm í samkvæmið, þegar þau höfðu gert upp ágreininginn vegna afbrýðisemi Alexanders ekki kæra sig um að verða móðir og ekki að gifta sig. „Ég vil ekki binda mig“, er viðkvæði hennar. Hún segir líka, að ástarsambönd sín endist yfirleitt ekki nema takmarkaðan tíma, en það virð- ast vera heitar tilfinningar á milli þeirra hjónaleysanna. Nýlega sáust þau í kvikmyndahúsi í Los Angeles, og þar voru áhöld uin, hvort væri meira spennandi fyrir áhorfcndur að horfa á elskend- urna á tjaldinu eða fylgjast með ástaratlotum Jaqueline Bisset og Godunovs í sætum sínum. „ALLTER ILUKKUNN- ARVEL- STANDI“, — segja Landon-hjónin ■ Linu sinni lék Michael Landon yngsta hróöurinn, Litla Joe, í sjónvarpsþáttunum BON- ANZA, og síðan fylgdumst við með honum í hlutverki hinsgóða hciinilisfööur Charles Ingalls í „Húsinu á sléttunni". Þá var altalað, að Landon væri einmitt hinn dæmigerði góði eiginmaður og faðir, en Landonshjónin höfðu verið lengi gift og áttu þau sjö börn. En svo dró ský fyrir súlu, því að heimilishamingjan virtist allt í einu vera farin út í veður og vind, þegar Michael varð yfir sig hrifinn af stúlku, sem var áratugum yngri cn hann. Þetta cndaöi með skilnaði Michaels við fyrri konu og hann fór frá henni og börnunum. Síðan giftist Landon ungu stúlkunni, Cindy Clerico, og síð- ustu fréttir herma, að þau hafi eignast erfingja, svo nú á Michael átta börn. ■ Michael Landon er virðulegur með sitt gráa hár, en Cindy kona hans er Ijóshærð og litfríð og lítur helst út fyrir að vera dóttir hans. „ÞETTA ER STRAKUR- INN MINN“, SAGÐI KEN KERCHEVAL (CLIFF BARNES) ■ Ken Kercheval, sem við þekkjum best sem Cliff Barnes úr sjónvarpsþáttunum DALI.AS, er hér á góðgerða- skemmtun í „Glingurborg" (Tin- seltown), en Hollywood gengur undir því nafni hjá mörgum. A skemmtuninni var auðvitað Ijós- myndari, sem kepptist við að ná inyndum af frægu fólki. Þegar hann rakst á Ken Kercheval spurði Ijósmyndarinn hann hvaða ungi leikari væri þarna á ferð með honum. „Þessi herra hér?“ sagði Ken, „hann er ekki leikari og eftir því sem ég kemst næst, hcfur hann sko alls ekki hug á aö verða leikari. Þetta er strákurinn niinn, hann Kaleb, og vinkona hans úr skólanum", sagði Ken Kerche- val hinn hreyknasti. Reyndar er Ken Kcrcheval kunnugur mörgum hér á Islandi frá því að hann kom hér fram á skenmitun til ágóða fyrir SAA á sl. ári. viðtal dagsins Starfsnám í Verslunarskólanum: „ERFYRSTOG FREMST HUGSAÐ SEM ENDURMENNTUN“ — segir Helgi Baldursson viðskiptafræðingur sem umsjón hefur með náminu ■ Starfsnám Verslunarskóla fræðum. Frá þeim tíma hafa „Þetta er fyrst og fremst hugs- viðskiptafræðingur í samtali við íslands hófst árið 1982 með sífellt bæst við ný námskeið og að sem endurmenntun og þá Tímann en hann hefur umsjón námskeiðahaldi í nokkrum við- eru þau nú á vorönn 1984 alls 90 handa fólki sem komið er yfir með starfsnámi Verslunarskól- skiptagreinum, vélritun < 'ölvu- talsins. tvítugt" .sagði Helgi Baldursson ans. ■ Helgi Baldursson viðskiptafræðingur. Tímamynd Róbert.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.