Tíminn - 06.01.1984, Síða 7

Tíminn - 06.01.1984, Síða 7
FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1984 7 Hann sparar bensínið! ■ Þar sem bensínið er orðið svo dýrt kom það af sjálfu sér að sniðugir náungar reyndu að fínna upp einhverja bensínsparnaðar- leið. Þetta mjög svo frumlega farartæki varð til úr cinni slíkri sparnaðartilraun. Þetta er Philip Barnes, bóndi í Cambridgeshire í Englandi, á heintasmíðuðum vagni, sem hann ætlaði að láta smáhestinn Pally draga. Eftir að Philip hafði gert nokkrar tilraunir við smíði vagnsins, fann hann það út, að bestur árangur náðist með því að láta Paily hlaupa á nokkurs kon- ar rcnnibraut, sem knúði hjóiin áfram. Hraðinn var um 20 km. á klukkustund, og farartækið vakti óskipta aðdáun vegfaranda. „Þetta er bara ágætur hraði, miðað við að farartækið gengur aðeins fyrir einu hestafli", sagði Philip, sem er 45 ára gamail, og fyrir utan það að stunda búskap- inn, hefur hann mjög ganian af smíðum og tilraunum með vélar. - Það kemur sér oft vel í sveitinni að geta bjargað sér með viðgerð- ir og annað slíkt, sagði hann ánægður, þegar fréttamaður dáðist að sparneytna farartækinu hans. „Einstaklingar geta hagnýtt sé þessi námskeið á ýmsart hátt. Sem dæmi má taka iðnaðarmann sem hefur áhuga á sölustörfum í sínu fagi, þá getur hann sótt námskeið í sölumennsku hjá okkur. Annað dæmi er að hjá okkur hafa verið tveir einstakl- ingar á námskeiði í rekstarhag- fræði en báðir hyggja á að fara út í eigin atvinnurekstur. Þá er þetta einnig hentugt nám fyrir húsmæður sem hafa kannski ein- hverja menntun en hafa séð um heimili frá því að þeirri menntun lauk og eru kannsKi farnar að ryðga í þeim efnum. Þær geta þá rifjað hana upp á námskeiðum hjá okkur og þann- ig mætti lengi telja“,sagði Helgi. Hann sagði að nám hjá þeim væri fyrst og fremst hagnýts eðlis, það er þeir sem sæktu námskeiðin ættu að geta yfirfært þá þekkingusem þeir öðluðust yfir á þá hluti sém þeir væru að gera. „Við reynum að byggja upp námskeiðin hjá okkur eftir því sem þörfin er mest út í þjóðfélag- inu. Sem dæmi má nefna að við leggjum áherslu á ýmis rit- vinnslunámskeið en þörfin fyrir þau er stöðugt að aukast eftir því sem tölvunotkun hérlendis verður algengari“,sagði hann. Þá kom fram í máli hans að þeir fylgdu eftir því námi sem þeir byðu upp á með því að kynna atvinnurekendum þau námsskírteini sem þeir gæfu út og hvað í þeim fælist.Annað væri svo að boðið væri upp á nám- skeið í atvinnuleit, það er fólki væri leiðbeint um hvernig best væri fyrir það að bera sig að þegar það leitaði vinnu og vissi Helgi ekki til að slíkt væri á boðstólum annarsstaðar. Starfsnám Verslunarskólans er þannig uppbyggt nú að um nám er að ræða eina önn í einu, haust-og vorönn og hefst innritun á vorönn í skólanum nú í næstu viku. „Hvað framtíðina varðar þá er hugsunin sú að þetta nám geti orðið liður í að menn geti tekið verslunarskólapróf, námskeiðin verði áfangi til þess.en þessar hugmyndir á eftir að móta betur" sagði Helgi. erlent yfirlit ■ Reagan hefur að mestu látið Shamir ráða ferðinni r Israel stendur í vegi þess að friður náist í Líbanon Um það vitna loftárásirnar síðustu daga SÉRA Jessc Jackson, sem kepp- ir að því að verða frambjóðandi demókrata í forsetakosningun- um í Bandaríkjunum í haust, hefur án efa bætt stöðu sína með för sinni til Damaskus, cn þar fékk hann leystan úr haldi bandaríska flugmanninn, sem varskotinn niðuroghandtekinn, þegar • bandarískar flugvélar gerðu loftárásir á sýrlenzkar stöðvar í Líbanon fyrir nokkru. Jackson var bæði hvattur til þess af bandarísku stjórninni og Reagan forseta að fara ekki þessa för. Hún myndi ekki bera árangur og verða pólitískt óheppileg fyrir Bandaríkin. Jackson lct þessi mótmæli ekki breyta áætlun sinni. Hann þarf ekki að sjá eftir því nú. Jackson kom heim eins og sigurvegari. Honum var vel tekiö í Damaskus, en mcst var þó um vert. að hann fékk flugmanninn leystan úr haldi og kom með hann heim með sér. Það breytir ekki, að þetta er mikill ávinningur fyrir Jackson, að hann er blökkumaður og flugmaöurinn einnig blökku- maður. Ef til vill hafa Sýrlend- ingar látið þá njóta þess og talið að það gæti orðið gagnlcgt fyrir þá í áróðrinum. Ef Jackson hefði ekki ráðizt í þetta ferðalag, þrátt fyrir mótmæli Reagans og stjórn- arinnar, væri flugmaðurinn enn fangi Sýrlendinga, því að þeir höfðu ekkert sinnt kröfum Bandaríkjastjórnar um að láta hann lausan. Jackson lét ckki aðeins vel yfir ferðinni við heimkomuna, held- ur taldi hana sýna að það gæti leitt til betri árangurs að tala við andstæðingana en að varpa á þá sprengjum. Friðsamleg lausn væri bezt og hana bæri að reyna til þrautar. Hann hvatti því til þess, að þeir hittust Reagan og Assad, forseti Sýrlands og reyndu að finna lausn á styrjöld- inni í Líbanon. Það væri engan veginn útilokað, að samkomulag gæti tekizt. A.m.k. ætti ekki að láta þetta óreynt. Reagan taldi scr ckki annað fært en að taka þessu jákvætt. Hann lýsti yfir því, að hann væri reiðubúinn til að ræða við Assad. ÞAÐ KOM strax hljóð úr öðru horni, þegar það kvisaðist að Erá fundi Arafats og Muharaks Resigan væri tilbúinn að ræða við Assad. ísraelsstjórn brást þannig við, að hún lét gera harðar loftárásir á stöðvar Sýrlcndinga í Líbanon. í árásum þessum féllu um 100 manns, mest konur og börn, en miklu fleiri særðust. Þetta cru einna mannskæðustu loftárásir, sem hafa verið gerðar í Líbanon. Arásirnar náðu ckki aðeins til hernaðarlegra stööva, heldur stöðva, þar sem óbreyttirborgar- ar bjuggu. Fréttaskýrendum kemur yfir- leitt saman um, að þessar árásir ísraelsmanna muni draga úr líkum á samkomulagi í Líþanon. Ekki aöeins Sýrlendingar, held- ur miklu fremurýmsirskæruliða- hópar, muni hér vilja gjalda líku líkt. þótt það verði ekki gert í formi loftárása. Svokallaðfriðar- gæzluliö Bandaríkjanna í Beirut er tvímælalaust í aukinni hættu. Israelsstjórn gerir sér Ijóst. að ef viðræður færu frani milli Reagans og Assads myndi það vera fyrsta krafa Assads, að rift yrði samningnum milli stjórna Israels og Líbanons, sem geröur var á síðastliónu sumri um brottflutnirrg fsraelshers frá Lí- banon. Þetta væri eðlileg krafa af hálfu Sýrlendinga, því að þessi samningur skerðir mjög sjálfslæði Líbanons og gcrir Lí- banon að hálfgerðu leppríki Isra- els. Undir slíkum kringumstæð- um vilja Sýrlendingarekki draga hcr sinn frá Líbanon. Umræddar loftárásir ísraels- hers eru ný staðfesting þess, að Ísraelsstjóín er það fjarri skapi, að friður komist á í Líbanon undir núverandi kringumstæð- um. Markmið iicnnar er cfalítið, að hún vill iáia koma til stríðsá- taka viö Sýrlendinga og hrekja þá burtu frá Líbanon með beinni og óbeinni aðstoð Bandaríkj- Þórarinn Þórarinsson, ritstjori, skrifar anna. Þegar því marki er náð, vill hún semja á þeim grundvelli, aö Líbanon vcröi leppríki Isra- els. ÍSRAELSSTJÓRN hefur unniö markvisst að því að undanförnu, að teyma Reagan forseta og ráðunauta hans út í slíkt ævin- týri, Um skeið virtist henni ætla aö vcrða vel ágengt, þegar Bandaríkjastjórn lét gera loft- árásir á stöðvar Sýrlendinga í Líbanon. Þetta sætti hins vegar svo harðri gagnrýni í Banda- ríkjunum, að Reagan fann að hann þurfti aö hugsa sig betur um. Nokkur breyting varð á af- stöðu hans, þegar sá óvænti at- burður gcrðist, að Yasser Arafat ræddi við Mubarak, forseta Egyptalands. Þar gat opnast sá mögulciki, að bæöi Jordaníu- stjórn og lciðtogar Palestínu- manna yröu lúsir til að ræða um framtíð vesturbakkans svo- ncfnda á grundvclli tillagna, sem Reagan hafði gert fyrir rúmu ári. Israelsstjórn brást hérenn hart við. Hún lýsti algerri undrun sinni og andúö, 'þcgar Reagan fór lofsorðum um fund þeirra Arafats og Mubaraks. Bandaríkjastjórn hefur haldið þannig á málum í Líbanonsdeil- unni, að hún hefur komiö sér í klípu, sem hún á illmögulegt aö losa sig úr. Hún lætur ísraels- stjórn að mestu ráða ferð sinni, en reynir þó öðru hvoru að koma sér í mjúkinn hjá Aröbum. Sjálf virðist Bandaríkjastjórn ekki hafa neina ákveðna stefnu. heldur sveifíast til og frá. Hættan er sú, að Israelsstjórn ráði því mestu að lokum og Bandaríkin leiðist út í stríð í Líbanon, þótt Bandaríkjastjórn sé því í raun mótfallin og bandaríska þjóðin enn meira. Reagan hefur ekki sömu festu til að bera og Eisen- hovver, þegarhann rak ísraelsher heim frá Suezskurðinum 1956. Ef Réagan ræki ísraelsher frá Líbanon á sama hátt, eru allar horfur á, að Líbanon-deilan væri leyst. Arabaríkin myndu þá knýja Sýrlendinga til að draga her sinn til baka og Líbanir fengu þá einir að ráða ráðum sínum eins og fyrst eftir heims- styrjöldina síðari en þá var mikill blómatími í Líbanon.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.