Tíminn - 18.01.1984, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 18. JANUAR 1984
5
TRÉÐ, SEM BREGÐUR SÉR
í ALLRA KVIKINDA LÍKI
■ Hálf er hann nú umkomulaus
og undrandi á svipinn litli púðlu-
hundurinn á myndinni, enda
ekki furða. í hans augum gegna
nefnilega trjábolir einu ákveðnu
hlutverki og það er ekki gott að
átta sig á sköpulagi þessa óvenju-
lega trés, eða eigum við heldur
að kalla þetta runna?
Það eru hjónin William og
Eileen Tasker í Brixham,
Devon, Englandi, sem eru eig-
endur og „höfundar" þessa
sköpunarverks. Upphaflega
klipptu þau tréð til eins og hund.
Síðar meir breyttist myndin í
hangsaform og síðast, þegar til
fréttist, var bangsinn orðinn að
ffl.
Sem nærri má geta, vekur
þetta listaverk mikla athygli veg-
farenda og margir leggja hrein-
lega Ivkkju á leið sína til að
skoða það.
mikil vinna, að vísu skorpuvinna
svolítil, en strembin eigi að
síður. Það var mikið um ferðalög
í tengslum við þetta verkefni.
Við hittumst reglulega í fyrravet-
ur að meðaltali einu sinni í
mánuði, og unnum þá alltaf um
helgar. Það var sem sagt mjög
strangt, en skemmtilegt."
- Var eitthvað í þeim upplýs-
ingum sem þú viðaðir að þér í
tengslum við þetta verkefni, sem
komu þér á óvart?
„Nei, í rauninni ekki. Þessar
upplýsingar staðfesta miklu
fremur það sem maður hafði á
tilfinningunni. Það er að segja
þetta lélega ástand, hversu fáar
konur eru í ábyrgðarstöðum og í
pólitíkinni."
Esther sagði að ástandið væri
langverst hér á landi, af Norður-
löndunum, en fremstir stæðu
Finnar og Svíar. Finnar hefðu
best hlutfall kvenna á þingi, en
Svíar hefðu best hlutfall kvenna
í sveitarstjórnum.
Aðspurð um hvar hón teldi
ástandið vera verst, hér á landi,
sagði Esther: „Þessi könnun nær
náttórlega fyrst og fremst til
hluts kvenna á Alþingi og í
sveitarstjórnum. Það má segja
að ástandið sé verst í málaflokk-
um sem fjalla um efnahagsmál
og best er það líklega þar sem
fjallað er um menntamál, fé-
lagsmál og barnauppeldi."
Aðspurð hvort hún teldi að
jákvæð þróun hefði orðið á
þessu sviði, eða ekki, sagði
Esther: „Það hefur aðeins
þokast, frá ári til árs, en sú þróun
er mjög hægfara."
- Ertu þá svartsýn á framhald-
ið?
„Nei, maður verður að vera
bjartsýnn, annað væri uppgjöf.
Auðvitað varð mikil breyting á í
síðustu sveitarstjórnarkosning-
um og síðustu Alþingiskosning-
um, þar sem hlutur kvenna í
sveitarstjórnum tvöfaldaðist og
þrefaldaðist á Alþingi, og maður
verður bara að vona að só þróun
haldi áfram."
- Nú hafa margir leitt að því
getum að sérstök kvennafram-
boð myndu líða undir lok næst
þegar verður kosið - hvað vilt
þú segja um það?
„Maður þorir náttúrlega engu
um slíkt að spá. Það verður bara
að koma í ljós.“
-AB
erlent yfirlit
HERSHÖFÐINGJARNIR,
sem tóku völdin í Nigeríu um
áramótin, hafa aðallega fært tvær
ástæður fyrir valdaráninu.
Önnur ástæðan er sú, að mikil
spilling hefði myndazt í landinu
á þeim fjórum árum, sem lýð-
ræðisstjórn hefði farið með völd.
Hin ástæðan er sú, að fjárhag-
ur landsins væri kominn í hreinar
ógöngur. Herinn yrði að skerast
í leikinn og taka völdin til að
uppræta spillinguna og rétta við
fjárhaginn.
Margir fréttaskýrendur hafa
vakið athygli á því, að það sé
ekki nýtt, að hershöfðingjar,
sem ræna völdum, rökstyðji að-
gerðir sínar á þennan hátt. Þetta
sé hefðbundinn rökstuðningur
fyrir valdaráni.
Reynslan hafi samt orðið sú,
að hershöfðingjastjórnum hafi
gengið illa að efna loforðin. Að
vísu hafi þær oft refsað fyrirrenn-
urum sínum og fundið til þess
nóg rök. Hins vegar hafi ný
spilling myndazt í skjóli þeirra
og oftast ekki minni en sú, sem ■
var fyrir.
hinn fræga herskóla í Aldershot
í Bretlandi. í sambandi við nám
sitt þar heimsótti hann fleiri
lönd, t.d. Indland og Kanada.
Eftir heimkomuna til Nigeríu
varð Buhari strax liðsforingi í
her Nigeríu og vann sér álit
samverkamanna sinna. Hann var
einn þeirra liðsforingja, sem
skipulögðu byltingu gegn Yak-
ubu Gowan hershöfðingja
sumarið 1975.
Gowan var leiðtogi hershöfð-
ingjastjórnarinnar, sem hafði
farið með völd síðan 1966, og
meðal annars kom við sögu í
Biafrastyrjöldinni 1969-1970.
Eftir styrjöldina hafði Gowan
lofað að endurreisa lýðræðis-
stjórn, en ekki sýnt fullan áhuga
á því. Nokkrir liðsforingjar urðu
þá ásáttir um að nota tækifærið,
þegar hann var erlendis, til að
steypa honum af stóli.
Eftirmaður Gowans varð Ruf-
ari Mohammed, en hann var
myrtur hálfu ári síðar. Þá átti
Buhari þátt í því, að Obasanjo
hershöfðingi yrði forseti, en jafn-
framt yrði því lofað að endur-
Tekst Buhari að uppræta
spillinguna í Nigeríu?
Herforingjastjórnir hafa ekki gefizt vel í þeim efnum
Þá hafi ýmsar nýjar hershöfð-
ingjaklíkur hrifsað völdin, eða
hershöfðingjastjórnin, sem með
völdin fór, talið það hyggilegast
að efna til kosninga og endur-
reisa lýðræðisstjórn.
Slíkar stjórnir hafa oftast tekið
mildilega á hershöfðingjunum,
sem skiluðu völdunum í hendur
þeirra, og látið þá sleppa án
teljandi refsingar.
Undantekning virðist ætla að
verða hin nýja lýðræðisstjórn í
Argentínu.
Shehu Shagari, sem var kosinn
forseti 1979, þegar lýðræðis-
stjórn var endurreist í Nigeríu,
lét hershöfðingjana, sem þá létu
af völdum, sleppa mjög vægi-
lega. Þeir héldu flestir áfram
störfum sínum og titlum. Þeir
voru aðeins færðir til í kerfinu.
Það átti sinn þátt í því, að
hernum reyndist auðvelt að
steypa Shagari af stóli.
Það má líka segja, að lýðræðis-
kerfið hafi átt sinn þátt í því að
fella Shagari. Á síðastliðnu ári
fóru fram bæði þingkosningar og
forsetakosningar í Nigeríu. í
kosningabaráttunni var haldið
uppi hörðum áróðri gegn Shagari
og stjórn hans borin hvers konar
ósómi á brýn, bæði réttilega og
ranglega.
Þetta undirbjó jarðveginn fyr-
ir hershöfðingjana. Mikill meiri-
hluti kjósenda hafði hafnað
Shagari í forsetakosningunum og
syrgði ekki fall hans.
Aðalfylgi sitt átti hann hjá
Múhameðstrúarmönnum í
norðurhluta landsins. Hinn nýi
leiðtogi Nigeríu er sprottinn af
sömu rótum. Þess vegna geta
Múhameðstrúarmenn unað
skiptunum.
AF ÝMSUM ástæðum fylgja
Mohammed Buhari, hinum nýja
leiðtoga Nigeríu, betri vonir úr
hlaði en mörgum þeirra hers-
höfðingja, er hafa staðið fyrir
byltingum í Afríku. Hann þykir
hafa sýnt, að hann muni hafa
vilja til að bæta stjórnarfarið.
Buhari er fæddur 17. desem-
ber 1942 og er því nýlega orðinn
41 árs. Hann innritaðist í her-
skóla í Nigeríu að loknu gagn-
fræðaskólanámi og sóttist námið
■ Mohammed Buhari
svo vel, að brezkir liðsforingjar,
sem kenndu við skólann, fengu
á honum sérstakt álit og komu
því þess vegna til leiðar, að hann
færi til frekara náms til
Bretlands.
Buhari fékk einnig gott orð
þegar hann stundaði nám við
Þórarinn
Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
reisa lýðræðisstjórn. Þetta loforð
efndi Obasianjo 1979 og dró sig
síðan í hlé.
Flestum heimildum bersaman
um að mikil spilling hafi átt sér
stað í stjórnartíð þeirra Gowans
og Obasanjos, en þetta var að
mestu eða öllu fyrirgefið af lýð-
ræðisstjórninni, sem kom til
valda undir forustu Shagari 1979,
eins og áður segir.
Buhari hófst til mikilla áhrifa
í stjórnartíð Obasanjos. Fyrst
var hann hækkaður í tign í
hernum en síðan skipaður olíu-
málaráðherra, sem þá var ein
mesta valdastaða í Nigeríu vegna
þess, að olía er mesta auðlind
landsins og aðalútflutningsvara.
Sæmilega er látið af þessari
stjórn Buharis. Útlendingar,
sem kynntust honum þá, lýsa
honum sem hlédrægum og að-
gætnum manni og sama gera
fréttamenn, sem ræddu við hann
á þessum tíma. Hann hafi varazt
að segja of mikið og verið mjög
nákvæmur í svörum sínum.
Hann vakti því traust.
FYRSTU viðbrögð Buharis sem
leiðtoga Nigeríu virðast stað-
festa þessa lýsingu. Buhari hefur
enn varazt að gera mikla grein
fyrir áformum sínum öðrum en
þeim, að láta Nigeríu standa við
allar skuldbindingar sínar út á
við, jafnt gagnvart samtökum og
einstöku ríkjum.
í innanlandsmálum hefur
hann lofað því einu, að reyna að
rétta við fjárhaginn, sem kominn
er í ógöngur vegna þess að ráðizt
var í of mikla fjárfestingu meðan
olíugróðinn var mestur. Þá hefur
hann að sjálfsögðu heitið því að
vinna gegn spillingu.
Buhari hefur enn engu svarað
því, hvort hann hyggist endur-
reisa lýðræðisstjórn. Það mál
þurfi að hugsa og ræða betur.
Ef til vill er Buhari þeirrar
skoðunar, eins og reyndar marg-
ir aðrir, að reynslan hafi sýnt, að
evrópskt lýðræðiskerfi, sem
byggist á mörgum flokkum, eigi
ekki við í Afríku, heldur verði
að setja lýðræði þar þrengri
mörk, t.d. með eins flokks kerfi,
en innan þess geti þrifist viss
skoðanamunur.