Tíminn - 04.04.1984, Blaðsíða 2
2'
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins munu
ferma til íslands á næstunni
sem hér segir:
Hull/Goole:
Jan ......................16/4
Jan.......................30/4
Jan ......................14/5
Rotterdam:
Jan ......................17/4
Jan ...................... 1/5
Jan ......................15/5
Antwerpen:
Jan ......................17/4
Jan ...................... 2/5
Jan.......................18/5
Hamborg:
Jan ...................... 6/4
Jan ......................19/4
Jan ...................... 4/5
Jan ......................18/5
Helsinki/Turku:
Hvassafell................25/4
Hvassafell................20/5
Larvik:
Francop .................. 9/4
Francop ..................23/4
Francop .................. 7/5
Francop 21/5
Gautaborg:
Francop ..................10/4
Francop ..................24/4
Francop .................. 8/5
Francop ..................22/5
Kaupmannahöfn:
Francop ..................11/4
Francop ..................25/4
Francop .................. 9/5
Francop ..................23/5
Svendborg:
Francop ..................12/4
Francop ..................26/4
Francop ..................10/5
Francop ..................24/5
Árhus:
Francop ..................13/4
Francop ..................27/4
Francop ..................11/5
Francop ..................25/5
Falkenberg:
Helgafell.................12/4
Mælifell..................25/4
Helgafell.................10/5
Gloucester Mass.:
Jökulfell...................13/4
Skaftafell..................25/4,
Halifax, Canada:
Skaftafell...................26/4
m
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101 .
Caterpillar 6D og B
Tíl 'sölu varahlutir í Caterpillar]
6D og B. ; , / / :
Ýmislegt í mótora, grjg^
spyrnur á 6B, p.mj, EignigJ
Cat.8D. .
Upplýsingar í síma 32101 ,J
MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 1984
■ Erlendur Einarsson forstjórí Sambandsins býður Axel Gíslason, nýjan aðstoðarforstjóra velkominn til starfa.
Skipulagsbreytingar hjá Sambandinu:
„Stöðugrar endur-
skoðunar er þörf “
— segir Valur Arnþórsson, stjórnarformaður Sambandsins
■ „Skipulag Sambandsins hefur ekki þróast markvisst síðustu ár í samræmi viö
undangengnar breytingar á rekstrinum. Stærð fyrirtækisins og fjölbreytileiki gerir
rekstur þess flókinn, sem þýðir að þörf er stöðugrar endurskoðunar á skipulagi til
einföldunar og aukinnar samhæflngar innan þess,“ sagði Valur Arnþórsson
stjórnarformaður Sambandsins þegar kynntar voru skipulagsbreytingar hjá fyrirtæk-
inu á fundi með fréttamönnum í gær.
; Skipulagsbreytingarnar hafa í för með
sér aukna ábyrgð forstjórans, svo og ýms-
ar tilfærslur í æðstu stöðum fyrirtækisins.
Nýjar stöður verða til en aðrar leggjast
niður. Þá breytist starfsvettvangur deilda
nokkuð, sumar leggjast niður í núver-
landi mynd og nýjar eru stofnaðar.
Framkvæmdastjórar verða nú ráðnit
af forstjóra og bera ábyrgð gagnvart
honum. Framkvæmdastjórn, sem áðut
var hluti af formlegu skipulagi Sam-
, bandsins, verður lögð niður.
I I nýja skipulaginu er gert ráð fyrir að
starf stjórnarformanns verði smám sam-
an fullt starf að málefnum Sambandsins
,og samvinnuhreyfingarinnar. Tilgangur
jbreytingarinnar er að auka þátttöku og
áhrif lýðræðislega kjörinna fulltrúa á
stjórnun Sambandsins og efla hinn fé-
lagslega þátt hreyfingarinnar.
Sambandið ræður sér aðstoðarfor-
stjóra til að fara með daglega yfirstjórn
fyrirtækisins með forstjóra og í það starf
hefur verið ráðinn Axel Gíslason, sem
undanfarin ár hefur gegnt starfi fram-
kvæmdastjóra skipadeildarinnar. Axel
mun gegna því áfram fyrst í stað þar sem
eftirmaður hans þar hefur enn ekki verið
ráðinn.
Innflutningsdeild og Véladeild hafa
verið lagðar niður í núverandi mynd.
Stofnuð hefur verið ný deild, sem sér um
neytendavörur og er nefnd Verslunar-
deild. Hún yfirtekur ýmsa starfshætti frá
Innflutningsdeild, Iðnaðardeild, Véla-
deild og auglýsingadeildina frá sameigin-
legum rekstri. Framkvæmdastjóri versl-
unardeildar er Hjalti Pálsson.
Landbúnaðarþjónustudeild heitir ný
deild, sem sér um sölu á fjárfestingar- og
rekstrarvörum til landbúnaðarins, ásamt
viðgerðar- og vélaþjónustu á tækjum til
landbúnaðarins. Hún yfirtekur starfs-
i þætti frá Véladeild, Innflutningsdeild og
i frá Dráttarvélum h/f, en starfsemi þeirra
'verður lögð niður. Framkvæmdastjóri
Landbúnaðarþjónustudeildar er Jón Þór
Jóhannsson. Þá verður stofnað sjálfstætt
1 fyrirtæki, Bílvangur s.f. sem mun sjá um
rekstur bifreiðaumboða. Framkvæmda-
stjóri er Tómas Óli Jónsson.
Fjármáladeild er lögð niður, en í
staðinn kemur Fjárhagsdeild, sem hefur
með höndum öll fjármál Sambandsins.
Auk þess mun hún hafa með höndum
ýmsa starfsþætti aðra, svo sem hagdeild,
áætlanagerð, tölvumál, skrifstofu í
London, o.fl. Framkvæmdastjóri Fjár-
hagsdeildar er Eggert A. Svavarsson.
Iðnaðardeildin verður fyrst og fremst
útflutningsiðnaður, ullar- og skinnavara.
Framkvæmdastjóri hennar er Hjörtur
Eiríksson. Starfsemi Sjávarafurðadeild-
ar verður óbreytt, að því viðbættu að
skrifstofa Sambandsins í Hamborg fellur
undir hana. Framkvæmdastjóri hennar
er Sigurður Markússon. Starfsemi bú-
vörudeildar verður óbreytt, nema hvað
verslun með ull, gærur, skinn og húðir
færist yfir til Iðnaðardeildar. Fram-
kvæmdastjóri Búvörudeildar er Magnús
Friðgeirsson. Starfsemi Skipadeildar
verður óbreytt.
Innan forstjóraskrifstofu mun sér-
stakur framkvæmdastjóri starfa að þró-
unarverkefnum og nýsköpun í rekstri
Sambandsins. Því starfi gegnir Þorsteinn
Ólafsson.
Fræðslu- og kaupfélagsdeild mun sjá
um öll fræðslumál, útgáfustarfsemi og
starfsmannahald, auk þjónustu og tengsl
við kaupfélögin.
Skipulagsbreytingar þessar eru gerðar
samkvæmt tillögum norska ráðgjafafyr-
irtækisins Ásbjörn Habberstad A/S og
voru þær samþykktar í meginatriðum í
Sambandsstjórn þann 30. mars og ganga
í gildi 1. júlí. Það var í apríl 1983, að
stjórnin skipaði sérstaka skipulagsnefnd
og í henni áttu sæti þeir Valur Arnþórs-
son stjórnarformaður, Ólafur Sverrisson
og Ingólfur Ólafsson. Skyldi nefndin
vinna að endurskoðun skipulagsins
ásamt Erlendi Einarssyni forstjóra.
Norska ráðgjafafyrirtækið var ráðið í
september 1983 og skilaði það tillögum
sfnum í desember síðastliðnum.
„Við vonum að þessar breytingar
verði til þess að skapa ný atvinnutæki-
færi, þegar þær verða komnar vel í
gang,“ sagði Erlendur Einarsson for-
stjóri Sambandsins á fundinum. í því
sambandi nefndi hann hugsanlegt fisk-
eldi, og sagði að margt fleira væri á
döfinni.
-GB
SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
SKIPULAt: 1 . JÚLÍ 1984
■ Þannig mun skipulag Sambandsins líta út frá 1. júlí næstkomandi, þegar skipulagsbreytingarnar verða að fullu komnar
til framkvæmda.