Tíminn - 04.04.1984, Síða 6

Tíminn - 04.04.1984, Síða 6
0, í spegli tfmans I VERST-OGBEST KUEDDU WRR- ARNR í KVMMYNMHÐMNJM ■ Kvikmyndaleikarar eru allt- af í sviösljósinu, hvort heldur þeir eru á hvíta tjaldinu eða í sínu einkalífi. Því er mikið fylgst með klæöaburði þeirra, og þá kemur í Ijós, að karlmennirnir skiptast í tvö horn: Það eru þeir sem alltaf eru vel klæddir - við öll tækifæri, og svo hinir - sem geta þó verið engu síður glæsileg- ir menn - en þeir hafa ekki smekk l'yrir því að klæða sig, og klæðnaður þeirra er ósamstæður og fer oft ekki vel. Scrfræðingur í karlmannafata- tísku í Bandaríkjunum, John Tudor, hefur látið hafa eftir sér lista yfir S verst- og 5 best- klæddu menn í kvikmyndaiðnað- inum, og hér koma einkunnir hans: Þeir verst klæddu: TOM SELLECK - stjarnan í „Magnum, P.I.“ er feikilega vel vaxinn, og því ættu föt hans að geta farið vel. En hann hefur slæman smekk, sagði John Tudor. Það er engu líkara en að föt hans séu keypt af handahófi af slánni, þar sem útsölufötin eru geymd, og þau eru oft ósamstæð. Það þyrfti að minna hann á það að hann er frægur maður og aðdáendur hans vilja sjá hann vel kiæddan. SYLVESTER STALLONE - Ekkert klæðir hann, - og fötin hans líta helst út fyrir að vera sniðin af garðyrkjumanni með grasklippum! Svo notar hann prjón til að halda flibbanum saman, eins og var vinsælt í ■ Hér er mynd tekin á brúðkaupsdag þeirra, þegar Anna kyssir clsku eiginmanninn á vangann. Ástin brúar árabilið 51ÁRS OG 40 ÁRA ALDURS- MUNUR Á HJÓNUM ■ „Maí-desember-brúökaup“ hafa aigjöra sér- stöðu í Smit-fjölskyldunni í Germiston í Suður-Afr- íku. Nýlega giftist Anna Smit „ sem er 24 ára, 75 ára gömlum manni, Dan Cooper, sem kominn er á eftirlaun fyrir þó nokkru, - og 6 mánuðum áður ■ Gerrie, 22 ára og kona hans Magdalena, 62 ára (t.v.) Dan, 75 ára og Anna kona hans, 24 ára (t.h.). hafði bróðir Onnu, Gerrie Smit 22 ára, kvænst 62 ára konu, Magdalenu Swanepoel. Aldursmunur Smit -systkinanna og maka þeirra var því - í öðru hjónabandinu 51 ár og í hinu 40 ár. Þegar Anna giftist Cooper, í ágúst sl. varð hún um leið stjúpmóðir fjögurra barna - og það yngsta er 13 árum cldra en hún sjálf! En ekki nóg með það, hún varð líka amma 14 barnabarna eiginmanns síns og langömmubörnin hennar urðu á stundinni 5! Anna Smit sagði, að um sama leyti og Gcrric bróðir hcnnar giftist Magdalenu, sem var 40 árum eldri en hann, þá hafi Dan Cooper verið að byrja að fara á fjörurnar við sig. „í fyrstu fannst mér aldursmunurinn alveg fráleitur“, sagði hún, „en þegar ég sá hvað Gerrie og Magdalena voru hamingjusöm, þá varð ég ekki eins hikandi, og ég sagði já þegar Dan bar upp bónorðið*'. Dan sjálfur segist hafa unnið með föður Önnu á árum áður,“ og þegar hún fæddist þá bauð hann mér heim til að sjá nýju dótturina. Þegar ég hélt á ungbarninu í örmum mér, þá dreymdi mig ekki að hún ætti eftir að verða konan mín, - en vegir guðs eru órannsakanlegir**, sagði Dan. Dan Cooper var fjölskylduvinur Smit-heimilisins og þegar hann varð ekkjumaður fyrir tveimur árum fór hann að venja komur sínar meira þangað. Hann varð hriflnn af Önnu og langaði til að bjóða henni út, en bauð vanalega einhverju af systkinum hennar með. Þcgar Gerrie kvæntist svo Magdalenu fóru þau oft fjögur saman. Dan hlær að því, að þegar þau fóru fjögur saman út að dansa, þá héldu allir að Anna og Gerrie væru að skemmta sér með afa sínum og ömmu! Bretlandi fyrir 50 árum. Þá var þetta tískan, - en ekki núna. WOODY ALLEN - Vonlaus! Al gjörlega óinögulegur klæðnað- ur Allens lítur helst út fyrir að vera keyptur á brunaútsölu. Ef ég sæi hann á götu - og þekkti hann ekki, þá myndi ég gefa honum pening, því hann er eins og betlari! PAUL NEWMAN - Föt hans líta út fyrir að vera af ódýrustu sortinni. Hann hneppir aldrei að sér jakkanum, svo hann hangir einhvern veginn utan á þessum bráðmyndarlega manni. Paul er greinilega sama í hvað hann klæðist. BURT REYNOLDS - Hann gengur í gallabuxum við öll möguleg og ómöguleg tækifæri, og jafnvel þó hann sé í jakka og með bindi. Hámark smekk- leysunnar! sagði Tudor um kvennagullið Burt. Þeir best klæddu BOB HOPE - Það þarf ekki nema að líta á Bob Hope, undireins sér maður, að þar er vel klæddur maður á ferð. H ann hefur tilfinningu fyrir því að klæðast réttum fötum við hvert tækifæri. JOHN FORSYTHE (stjarna í Dynasty) - Hann hefur fyrsta flokks fatasmekk og hefur greini- lega gaman af því að klæðast fallegum fötum. JAMES STEWART - Hinn fullkomni! Fötin fara honum vel og hann er frjálslegur og óþving- aður í þeim. GARY GRANT - John Tudor segir, að margir ungir menn komi til sín og biðji um ráðlegg- ingar um fataval, og þá sé oft nefnt hvort hann geti geflð þeim þennan sérstaka „Cary Grant- stíl“ - Grant hefur árum saman verið fyrirmynd vel klæddra manna í Ameríku, og er það enn, sagði Tudor. ROGER MOORE - James Bond-hetjan er einn af þeim mönnum sein hafa tilfinningu fyrir fötum og hvað fer vel saman. Hann klæðist jafnsmekk- lega, hvort sem um jakkaföt eða sportföt er að ræða. Hann er alltaf eins og klipptur út úr tískublaði fyrir herramenn, end- aði John Tudor einkunnagjöf sína um klæðnað kvikmy ndaleikara. ■ Bob Hope, - alltaf viðeig- andi klæddur. ÞEIR BEST KLÆDDU ■ James Stewart - hinn full- ■ Cary Grant, alltaf í forustu komni herramaður. í tískuheiminum. ■ Tom Selleck á ekki að vera í sportskóm með hrágúmmísól- um við dökk, röndótt föt. ÞEIR VERST KLÆDDU ■ Roger Moore, - alltaf í stælnum! ■ John Forsythe - stæll yfir honum. Hvíthærður með svartar augabrúnir, og í hvítum fötum með svart bindi.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.