Tíminn - 10.04.1984, Page 1

Tíminn - 10.04.1984, Page 1
Allt um íþróttir helgarinnar - bls. 9-13 FJðLBREYTTARA OG BETRA BLAD! Þriðjudagur 10. apríl 1984 86. tölublað 68. árgangur Sidumula 15 — Postholf 370 Reykjavik — Ritstjorn 86300- Auglysingar 18300- Atgreidska og askritt 86300 - Kvóldsimar 86387 og 86306 Tveimur fyrirtækjum í Vík sendur vörugjaldsreikningur ár aftur í tfmann: VIÐ VERÐUM AÐ 11 LOKA OG HÆTTA” ■ „Við fengum bréf frá skattstjóra Suðurlands um þaö að við ættum að borga 24% vörugjald, sem við höfum hvorki heyrt né séð fyrr, af þessum vörum okkar og ekki nóg með að við ættum að innheimta það héðan ■ frá, heldur að borga það ár aftur í tímann, þó við höfum aldrei innheimt þetta gjald. Þetta er auðvitað alveg fráleitt, enda alveg ofvaxið fyrir hvort sem er einstaklinga eða fyrirtæki að borga slíkt úr eigin vasa. Hjá okkur a.m.k. kostar þetta það að við verðum að loka og hætta ef þetta gengur í gegn“, sagði Páll Jónsson, verkstæðisfor- maður hjá Víkurvögnum hf. í Vík í Mýrdal. Fyrirtækið framleiðir sturtu- vagna aftan í dráttarvélar, sem Páll sagði að myndu hækka um 25%. Það hefur aftur orðið til þess aðeinhverjirsem hafa pant- að vagna hafa dregið þær til baka. Páll kvaðst hafa skrifað fjármálaráðuneytinu og beðið um að sleppa við þau gjöld sem þeir hafi ekki innheimt, en ný- lega fengið synun við því erindi. Sami glaðningurinn barst til Árna Oddsteinssonar, sem ásamt konu sinni vinnur að fram- leiðslu rafmagnsþilofna í Hrafna- tindi í Vík, sá eini í landinu. Fríhöfnin: „Ég hef ekki reiknað þetta nákvæmlega út - en það er einhversstaðar á bilinu 300-400 þús. kr. fyrir síðasta ár ef við þurfum að borga þetta“, sagði Árni. Auk þess að hafa lítil ráð til að borga þann skatt sem hann hefur aldrei lagt á, sagði Árni að framleiðslunni væri sjálfhætt ef innheimta ætti 24% gjaldið af framleiðslunni. Ofnana smíðar hann úr áli, sem hann kvað hafa' hækkað um 60% á síðasta ári. Bætist 24% gjaldið við, sem jafnframt mundi þá hækka sölu- skattsgrunninn, væri útilokað að ÞRtÐJUNGUR KAUPIRÍS- LENSKAN BJÓR ■ íslenski bjórinn, sem seldur er í Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli virðist ætla að njóta vinsælda með- al farþcga á leið inn í landið. Tvo fyrstu dagana, sem hann var á boðstólum í síðustu viku, nam sala hans um þriðjungi af heild- arsölu bjórs í vcrsluninni, og yfir 90% íslendinga, sem á'annað borð keyptu bjór, völdu þann íslenska. Að sögn Guðmundar Karls Jónssonar forstjóra Fríhafnarinnar komu 800 kassar af íslenska bjórnum fyrir helgi, 400 af hvorri tegund, Sana og Pólarbjór, og í gær voru aðeins eftir um 200 kassar. Verð ís- lenska bjórsins er hið sama og hins erlenda, eða tveir dalir á lítrann, en sá ís- lenski er seldur í 24 flösku kössum á meðan 12 dósir eru í kassa af erlenda bjórnum. Guðmundur sagði, að ekki væri hægt að merkja hvor íslenska tegundin seldist betur og eftir við- brögðum fólks að dæma, líkaði þessi bjórvel. Ætlun- in er að hafa íslenskan bjór áfram í Fríhöfninni, svo lengi jem \»erksmiðjurnar hafa undan að framleiða. -GB keppa lengur við innfluttu ofn- ana, sem allir eru úr járni. Til þessa hafi þetta staðið í járnum. Ingólfur Friðjónsson í tolla- deild fjármálaráðuneytisins var spurður hvort vörugjaldið færi eftir framleiðslugreinum eða hvaða reglum þá öðrum. Hann kvað það mjög misjafnt, fara eftir tollaskrárnúmerum, en ekki hægt að tala um neina algilda reglu í því sambandi, nema hvað innflutningurinn og innlenda framleiðslan sitji að sama borði að þessu leyti vegna fríverslunar- samninganna. Vörugjaldið fer ekki eftir framleiðslugreinum - innan sömu greinar geta vörur verið með 30% gjaldi, 24% gjaldi og engu gjaldi. Ekkert vörugjald er t.d. á eldavélum og bakarofnum, en ætli einhver að framleiða rafmagnskaffikönnur er vörugjald á þeim. Og þótt vörugjald leggist á þilofna, þá er ckki vörugjald á miðstöðvarofn- um. Vöárugjald leggst heldur ekki á húsgögn, enda sagði Ing- ólfur vörugjald ekki leggjast á nema brot af þeim vörum sem fluttar eru inn. -HEI Þrjátíu þús- undum stolið úr bifreið — mörg innbrot um helgina ■ Skjalatösku með 30.000- krónum í pcningum og skjölum í var stolið úr bíl við Álíheima á sunnudagsmorgun- inn. Enn hefur ekki tekist að upplýsa þjófnaðinn. Talsvert var framið af inn- brotum um helgina m.a. var brotist inn t Réttarholtsskóla aðfaranótt mánudags og stolið þaðan videótæki auk þess sem 8 hurðir voru mölvaðar í hús- mu. -GSH Umbótasinnar í HÍ GANGA TIL SAMN- INGA m VÖKU! ■ Samþykkt var á fjölmennum fundi í Félagi umbótasinnaðra stúdenta að ganga til meirihluta- samstarfs við Vöku, félag lýð- ræðissinnaðra stúdenta innan Stúdentaráðs Háskóla íslands á komandi kjörtímabili. Fyrir ■ Sérann með fermingarbörnin. Frá dimmiteringu Menntaskólans í Hamrahlíð í gær. Preslinn leikur Ragnar Ómarsson sonur hins kunna skemmtikraftar Ómars Ragnarssonar.___________________Tímamynd Ari fundinum lágu samstarfstilboð Vöku og Félags vinstri manna og voru næsta samhljóða nema hvað Vaka bauð upp á heldur hagstæðari stöðuskiptingar. Fundurinn í Félagi umbótasinn- aðra var langur og var sýndist sitt hverjum með hvorum aðilanum skyldi starfa. Samkvæmt þeim samningi sem samþykktur var mun Vaka ráða yfir stöðu for- manns Stúdentaráðs og fulltrúa í ÆSÍ. Aðrarveigamiklar stöður rnunu falla í hlut umbótasinna. Þessi afgreiðsla innan félags umbótasinaðra stúdenta kom flestum þeim sem að þessum málum vinna mjög á óvart. Samningaumleitanir, við Félag vinstri manna áttu sér langan aðdraganda en samningur við Vöku leit fyrst dagsins Ijós nú um helgina. Samkvæmt upplýs- ingum sem fengust á fundinum í Félagi umbótasinna í gærkvöld verður næsti formaður Stúdenta- ráðs Háskóla íslands Vökumað- urinn Stefán Kalmansson en ráðning í aðrar stöður liggur enn ekki fyrir. Vaka hefur nú 12 fulltrúa í Stúdentaráði, Félag umbótasinnaðra 6 og vinstri menn 12. Bílasýningin: Sýningar- gestir 23 þúsund — fyrstu fjóra dagana ■ Um 23000 manns höfðu í gærkvöldi skoðað alþjóðlegu bíla- sýninguna sem haldin er í Hús- gagnahöllinni við Bíldshöfða en sýningin opnaði á föstudags- kvöld. Að sögn Heiðu Gunnars- dóttur starfsmanns á bílasýning- unni er þetta 25% aukning á aðsókn miðað við sömu daga á síðustu bílasýningu sem haldin var hérlendis. Alþjóðlegu bílasýningunni lýkur sunnudaginn 15. apríl. -GSH

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.