Tíminn - 10.04.1984, Blaðsíða 5
i Ar‘\ f 0) MM'Vo
ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1984
fréttir
■ Fermingarbömin fimm ásamt mæðram sínum. Gunnar Ásgeirsson, Silvía Bragadóttir, Kolbrún Karlsdóttir, Rúnar Óskarsson
og Guðmundur Blöndal en fyrir aftan standa mæðurnar Alda, Elísabet, Fríða, Guðrún og Sólveig Guðjónsbörn frá Kjörvogi á
Ströndum.
Fimmföld ferming suður
á Álftanesi á sunnudag
Fimm systur halda sameiginlega fermingaveislu
■ Mörgum þykir nóg um allt það
tilstand sem fylgir venjulegri fermingar-
veislu þegar haldið er upp á eina ferm-
ingu í fjölskyldunni. Tímanum þótti það
því saga til næsta bæjar, þegar fimm
systur norðan af Ströndumslógusaman
fermingarveislu barna sinna nú um helg-
ina. Eftir því sem næst verður komist er
þetta einsdæmi hér á landi enda ekki
algengt að fimm systur eigi ailar börn á
sama árinu og hvað þá að þau séu öll
fædd á sama misserinu eins og er í þessu
tilfelli.
Fermingarnar fóru fram í sitt hverri
sókninni en að þeim afstöðnum geystust
fjölskyldurnar fimm suður á Álftanes
þar sem veislan var haldin í félagsheimili
Garðakirkju. Afinn og amman komu úr
Reykjavík þar sem þau búa í ellinni eftir
að hafa brugðið búi norður á Ströndum
en systurnar búa í Borgarnesi, Keflavík,
Hafnarfirði, Reykjavík og Garðabæ.
Skyldulið dreif svo að úr öllum áttum.
Það var því fjölmennt þarna á hlaðinu á
sunnudaginn, og að sögn Sólveigar
Blöndal, en hún er ein þeirra systra bjóst'
hún ekki við færri en 120 manns þegar
allir væru komnir.
Fjölskyldan er líka stór, Guðjón
Magnússon fyrrum smiður og bóndi að
Kjörvogi á Ströndum og kona hans
Guðmunda Þorbjörg Jónsdóttir eignuð-
ust 12 börn, 7 dætur og 5 syni sem nú er
allt uppkomið fólk. Þau hjónin eru stolt
af barnabörnunum sínum sem nú eru
tekin í fullorðinna manna tölu á svo
eftirminnilegan hátt. „Þetta eru allt
myndarbörn og ég er því mjög ánægður
með þetta. Þetta er mikill hamingjudag-
ur," sagði Guðjón Magnússon, þegar
Tímamaður hitti hann að máli.
Guðrún Guðjónsdóttir heitir ein
þeirra systra og býr í Hafnarfirði. Það er
Rúnar Óskarsson sonur hennar f. 13.
maí 1970 sem fermist núna. Önnur
þeirra er Fríða Guðjónsdóttir í Borgar-
nesi en dóttir hennar er Kolbrún Karls-
dóttir f. 28. maí 1970. Sú þriðja Alda
Guðjónsdóttir í Keflavík og sonur henn-
ar er Gunnar Ásgeirsson f. 19. júní 1970.
Fjórða í röðinni' teljum við Elísabetu
Guðjónsdóttur í Garðabæ, en hennar
fermingarbarn er Silvía Bragadóttir f.
26. júlí 1970. Sú fimmta er svo Sólveig
Blöndál í Reykjavík en hennar sonur er
Guðmundur Blöndal f. 2. september
1970.
„Við systkinin höfum áður slegið sam-
an fermingarveislum en aldrei svona
mörgum í einu. Ég og ein systir mín
vorum einu sinni saman og einu sinni
hafa þrjú systkinabörn í fjölskyldunni
verið saman með veislu", sagði Sólveig
Blöndal en Guðmundur sonur hennar er
eitt fermingarbarnanna. „Þetta hefur
vakið athygli, hinum finnst þetta svoldið
sérstakt", sagði Guðmundur um viðhorf
fermingarsystkina sinna til þessarar
veislu.
Sólveig sagði líka að sér þættu svona
sameiginlegar fermingarveislur af þessu
tagi góð lausn á öllu því veseni sem fylgir
því að halda veislur í heimahúsi. Það er
líka af nógu að taka. Barnabörn þeirra
Guðjóns og Guðmundu frá Kjörvogi eru
orðin 28 talsins og eru búsett víðsvegar
um landið.
-b
Utihuröir — Gluggar
Fullkomin samsetning
Ódýrara, sterkara og mun íallegra
Þéttigrip
Fúavarió í.gegn
Gerum verötilboö Sendum gegn póstkröíu.
TRÉSMIÐJAN MOSFELL H.F-
HAMRATÚN 1 MOSFELLSSVEIT SÍMI 6 66 06
Tilboösverö
jÖÍÍD I' j. J
D 0 DJ m
D D I
ofo D I
Svalahuröir úr oregonpine meö
lœsingu, húnum og þéttilistum.
Verö írá kr. 5.654,-
Útihurðir úr oregonpine.
Verö írá kr. 6.390,-
Bílskúrshurðir,
gluggar og gluggaíög.
Gildir til 1.05.84.
TRESMIÐJAN MOSFELL H.F
HAMRATÚN 1 MOSFELLSSVEIT SÍMI 6 66 06
5
FYRIR FERMINGARNAR
Fjölbreytt úrval af skrifborðum
fyrir unglinga og fullorðna.
Sérstaklega gott verð.
Einnig: Svefnbekkir, 4 gerðir.
Vídeobekkir.
Stereobekkir.
Skrifborðsstólar.
Kommóður.
Bókahilluro.fl.
Húsgögn oa
. , . Suðurlandsbraut 18
mnrettmgar simi 86 900
Aðalskoðun bifreiða
1984
í Mýra og Borgarfjarðarsýslu
fer fram við Bifreiðaeftirlitið í Borgarnesi
kl. 09-12 og 13-16.30 eftirtalda daga:
Þriðjudaginn 10.
Miðvikudaginn 11.
Fimmtudaginn 12.
Föstudaginn 13.
Þriðjudaginn 17.
Miðvikudaginn 18.
Þriðjudaginn 24.
Miðvikudaginn 25.
Fimmtudaginn 26.
Föstudaginn 27.
Miðvikudaginn 2.
Fimmtudaginn 3.
Föstudaginn 4.
Þriðjudaginn 8.
LOGALAND 9.
LAMBHAGI 10.
OLIUSTOÐIN 11.
apríl í Borgarnesi
april í Borgarnesi
apríl í Borgarnesi
apríl í Borgarnesi
apríl í Borgarnesi
apríl í Borgarnesi
apríl í Borgarnesi
apríl í Borgarnesi
apríl í Borgarnesi
apríl í Borgarnesi
maí í Borgarnesi
maí í Borgarnesi
maí í Borgarnesi
maí í Borgarnesi
maf
maí
maí
kl. 9-12 og 13-16.30
kl. 9-12 og 13-16.30
kl. 9-12 og 13-16.30
kl. 9-12 og 13-16.30
kl. 9-12 og 13-16.30
kl. 9-12 og 13-16.30
kl. 9-12 og 13-16.30
kl. 9-12 og 13-16.30
kl. 9-12 og 13-16.30
kl. 9-12 og 13-16.30
kl. 9-12 og 13-16.30
kl. 9-12 og 13-16.30
kl. 9-12 og 13-16.30
kl. 9-12 og 13-16.30
kl. 10-12 og 13-16.30
kl. 10-12 og 13-16.30
kl. 10-12 og 13-16.30
Endurskoðun fer fram í Borgarnesi dagana 12-14. júní og í
Lambhaga kl. 10-12 og Olíustöðinni kl. 13-16 þann 15. júní.
Við skoðunina ber að framvísa kvittun fyrir greiddum bifreiða-
gjöldum, tryggingaiðgjöidum og gildu ökuleyfi.
Athugið að engin aðalskoðun fer fram á mánudögum.
Skrifstofu Mýra- og Borgarfjarðarsýslu,
28. mars 1984