Tíminn - 11.04.1984, Qupperneq 6

Tíminn - 11.04.1984, Qupperneq 6
ffkGERO/^ Plast og ál skilti / mörgum gerðum og litum, fyrir heimili og stofnanir. Plötur á grafreiti / mörgum stærðum. Nafnnælur / ýmsum litum, fyrir starfsfólk sjúkrahúsa og annarra stofnana Upplýsingatöflur með lausum stöfum Sendum í póstkröfu SKILTAGERÐIN ÁS Skólavörðustíg 18 Sími 12779 Orkubú Vestfjarða Utboð Orkubú Vestfjarða óskar eftir tilboðum í strengingu leiðara fyrir 66kv háspennulínu frá Mjólkárvirkjun til Tálknafjarðar. Útboðsgögn: strenging. Orkubúið leggur til efni frá birgðastövum á ísafirði og Bíldudal. í verkinu felst auk strengingu leiðara uppsetn- ing einangrara, jarðbindingar o.fl. Verkið skal hefjast 16. júlí 1984 og Ijúka 8. október 1984, lengd línunnar er 45 km og fjöldi mastra 503. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Orkubúsins á ísafirði frá og með fimmtudeginum 12. apríl 1984 og kosta kr. 400.00. Tilboð verða opnuð fimmtudaginn 3. maí 1984 kl. 11.00 á skrifstofu Orkubúsins á ísafirði að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska og skulu þau hafa borist tæknideild Orkubúsins fyrir þann tíma. Hafnarfjörður - sumarstörf Eins og undanfarin sumur mun Hafnarfjarðarbær ráða fólk til sumarvinnu við garðyrkju og hreinsun (,,blómaflokkur“), Lágmarksaldur er 16 ár. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu minni Strandgötu 6. Umsóknarfrestur er til 2. mai n.k. Bæjarverkfræðingur BARNALEIKTÆKI ÍÞRÓTTATÆKI Vélaverkstæði BERNHARÐS HANNESSONAR Suöurlandsbraut 12. Sími 35810 í spegli tímans KR0PPAR SEM SEGJA SEX! ■ Maður yæti haldið að þessar píur væru vinningshafar í Barbie-dúkkukepp- ni, en svo er þó ekki þótt þær séu dúkkulegar. Þarna eru þær Judy Land- ers (systir Audrey Landers sem leikur Afton í DALLAS) og leikkonan Lisa Hartman, sem eru með einhverja kroppasýningu í sjónvarpsþætti, sem gerður var til heiðurs liðinu, sem á að keppa fyrir hönd Bandaríkjanna á Olym- píuleikunum, sem halda á þar í landi á þessu ári. Judy Landers hefur leikið nokkuð í sjónvarpsþáttum, en aðallega er hún þekkt fyrir söng þeirra systra, Audrey og hennar, og hafa komið út plötur með söng þeirra sem hafa selst mjög vel. Lisa Hartman leikurí vinsælum bandarískum sjónvarpsþáttum, sem heita Knots Landing. Þeir leikarar sem komast að í vinsælum sjónvarpsþáttum í Bandaríkj- unum, verða strax þekktar persónur þar í landi, og það auðveldar þeim framgang í starfi sínu. Það er því mikið keppikefli hjá þeim að komast að í slíkum þáttum. ■ Judy Landers og Lisa Hartman, kroppasýning í sjónvarpsþætti. SKDIHELD1ÍSKUPÖT ■ Jon Jolcin heitir tískuhönnuður í Kaliforníu, sem er orðinn milljóna- mæringur á því að framleiða skotheldan klæðnað fyrir hina ríku og frægu, sem oft eru hræddir um líf sitt fyrir bófum og mannræningjum. Skotheldi fatnaðurinn .er margskonar, svo sem vesti, nærföt, smókingskyrtur eða minkapelsar! Síðast liðið ár seldi Jolcin skotheld föt fyrir yfir 30 milljónir króna. Einnig tekur vinnu- stofa hans að sér að taka að sér að gera venjulegan fatnað skotheldan. Jolcin segist svo frá í blaðaviðtali: „Ég hef sannanir fyrir því að fram- leiðsla mín hefur orðið til að bjarga fólki frá bráðum bana. T.d. sendi bandarískur blaðamaður mér bréf, þar sem hann sagði að hann hefði verið í Líbanon fyrir ■ Efnið, sem Jolcin-fyrirtækið notar til að gera skotheldar flikur, heitir Kevlar, en það er gerviefni búið til af DuPont-fyrirtækinu. Það er fimm sinnum sterkara en stál, en mjúkt og létt. Hægt er að nota þrefalt lag af Kevlar til að fóðra með flíkur, og þá eiga þær að vera öruggar gegn öllum skammbyssukúlum og jafnvel standast vélbyssukúlur. Hér sjáum við 38 mm kúlu, sem flattist út á Kevlarefni, sem aðeins kom far í eftir kúluna. ■ Alls konar föt eru gerð skotheld. Hér sjáum við tvö uppábúin í skotheldum samkvæmisklæðnaði! blað sitt. Hann hafði orðið sér úti um skothelt vesti fyrir ferðina. Hann lenti í því að sprengja sprakk rétt hjá honum, þar sem hann hafði komið sér fyrir til að fylgjast með átökum stríðsaðila. Hann kastaðist til jarðar, en þegar hann fór að huga að því hvort hann væri meiddur, varð hann þess var að stálflís hafði fest sig í vestinu hans,- og hún hefði áreiðan- lega rifið hann á hol ef vestið hefði ekki tekið við henni. Hann sendi stálflísina til Jolcins og sagði í lok bréfsins: „Ég mun hugsa til þín með þakklæti á hverjum degi allt mitt líf!“ Einnig hafa komið bréf frá lögreglu- mönnum og fleiri aðilum til að þakka fyrír gagnsemi skotheldu fatanna. „Ég nefni engin nöfn, en það eru ófáar stórstjörnurnar hér í Bandaríkjun- um, sem ganga í fötum frá mér“, sagði Jolcin. Hann sagði líka í sama viðtali, að hann hefði stundum fengið mjög sér- kennilegar pantanir, t.d. hefði einn rokksöngvari keypt síðan jakka með austurlandasniði og skotheldu fóðri fyrir 15.000 dollara, og ein af ríkustu konum heims hefði keypt hjá fyrirtæki sínu skotheldan pels úr safalaskinnu, sem kostaði of fjár, - en upphæðina gaf hann ekki upp.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.