Tíminn - 18.02.1986, Blaðsíða 1
SAMNINGAMÁLIN virtust vera á
leiðinni í hálfgerðan hnút í gærog voru deilu-
aðilar ekki bjartsýnir á að samkomulag næð-
ist í bráðina. ASÍ og VSÍ funduðu í gær og
áfram í gærkvöldi en fundi BSRB og ríkisins
sem halda átti í gærkvöldi var frestað. Ríkið
lagði fram, nýtt kauptilboð á fundi um helgina
þar sem gert var ráð fyrir 7% grunnkaups-
hækkun og einnig að einhver kaupmáttar-
trygging kæmi tii, en þessu tilboði hafnaði
BSRB.
BENT LARSEN teflir fjöltefli á mið-
vikudagskvöld í félagsheimili TR við Grens-
ásveg kl. 19.30. Öllum er heimil þátttaka en
hún er takmörkuð við 40 manns.
LYKTARLAUS ilmandi og lituð
lampaolía úr steinolíu eða terpentínu mun
ekki sjást framar á íslenskum verslunarhill-
um nema að ílát, merkingar, varnaðarorð og
leiðbeiningar um notkun svo og notagildi efn-
anna hafi verið samþykkt af Hollustuvernd
ríkisins. Þessi ákvöroun hefur verið tekin í
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu í
kjölfar þess að slys hafa hlotist af neyslu
slíkra efna. Þar hafa einkum börn átt hlut að
máli.
ÁFENGISÚTSALA í Hafnarfirði
kann að vera á næsta leiti. Bæjarstjórnin hef-
ur ákveðið að efna til kosninga þar sem könn-
uð verður afstaða bæjarbúa til þessa efnis.
Þær fara fram þann 22. febrúar nk. og kosn-
ingarétt eiga allir bæjarbúar sem eru orðnir
20 ára eða eldri á kjördag. Kosið verður í
Lækjarskóla og Víðistaðaskóla.
FERÐASKRIFSTOFUR hafa
samþykkt hörð mótmæli vegna hækkunar
flugvallarskatts sem taka á gildi 1. mars nk.
Þar var bent,á að ef miðað er við forsendur
Seðlabanka íslands um meðaltekjur af ferða-
mönnum þá gæti t.d. 10% samdráttur á
komu útlendinga til landsins þýtt um þrjú-
hundruð milljóna króna gjaldeyristekjutap.
Áætlaður tekjuauki ríkissjóðs af skattinum
mun hins vegar nema um fjörutíu milljónum
króna.
AUSTURRÍSKIR læknar reyndu í
gær að bjarga lífi átta íranskra hermanna er
flogið var með til Vínarborgar eftir að þeir
höfðu hlotið sár af völdum eiturgass sem ír-
akar eru sagðir nota í stríði þessara þjóða.
DVERGAKASTSKEPPNI sem
fara átti fram í V-Þýskalandi í næsta mánuði,
hefur verið aflýst vegna fjölda mótmæla sem
borist hafa frá samtökum dverga í V-Þýska-
landi, Bretlandi og Hollandi. Dvergakasts-
keppni var fyrst sett á laggirnar í Ástralíu fyrir
nokkrum árum til aö laða viðskiptavini að krá
einni. Talsmaður dverga í Hamborg sagði
iðju þessa vera „hryllilegan sjónleik".
KRUMMI
í den voru það kaup-
mennirnir sem sögðu við
viðskiptavininn: Hvað
aetlar þú að fá. Nú hefur
þetta víst snúist
Nautgripapest í Bandaríkjunum:
Kálfalátssóttin gæti
borist með hráu kjöti
- segir Páll Agnar Pálsson yfirdýralæknir - staðfestir að afbrigði
af sjúkdómnum leggst á fólk
Þrálát pest í nautgripum í grennd
við Tulsa í Oklahoma hefur orðið
þess valdandi að bandaríska alrík-
isstjórnin hyggst setja svæðið í
sóttkví. Pestin nefnist „bruscellos-
is“ og er oft nefnd kálfalátssótt hér
á landi. Sjúkdómurinn leggst hvort
tveggja á nautgripi og fólk. Víða
hefur tekist að útrýma kálfaláts-
sóttinni en þess skal getið að henn-
ar hefur hingað til ekki orðið vart
hérlendis.
„Þetta er bakteríusjúkdómur
sem fyrst og fremst veldur fóstur-
láti í nautgripum. Hann hefurverið
fremur erfiður. Það eru til ýmis af-
brigði og hann getur auðvitað vald-
ið veikindum í fólki líka," sagði
Páll Agnar Pálsson yfirdýralæknir í
samtali við Tímann. Hann benti á
að helsta vörnin gegn þessum sjúk-
dómi og öðrum á íslandi hefði í
gegnutn árin verið bann við inn-
flutningi nautgripa á fæti, nema í
vel þekktum undantekningatilfell-
um, og gætilegri meðferð á sæði.
„Það gæti hugsast að kálíaláts-
sóttin kæmist hingað til lands með
innfluttu hráu kjöti, en til þess
þyrftu nautgripir hér að komast í
þetta og helst éta eitthvað af þessu
og ég held að það sé nú alvcg úti-
lokað,“ sagði Páll. Hann bætti því
við að þctta væri ekki bráösmitandi
sjúkdómur og að það væru ýmsir
veirusjúkdómar scm menn óttuð-
ust meir.
Að sögn Páls gegnir stofnun í
París því hlutverki að tilkynna
dýralæknisembættum í hinum
ýmsu löndurn um farsóttir í dýrum.
Ef um alvarlegar pcstir væri að
ræða t.d. gin- og klaufaveiki, þá
væru scnd skeyti samstundis en að
öðrum kosti gætu liðiö nllt að tveir
mánuðir þar til upplýsingar bærust.
„Við vitum svona nokkurn veginn
hvað skeður í kringum okkuren þó
ekki alltaf." sagði Páll er hann vís-
aði til þess atburðar sem hér cr
getið.
Það afbrigði af „brusccllosis“
sem leggst á fólk nefnist yfirleitt
öldusótt á íslensku. Sem slíkur lýsir
sjúkdómurinn sér í hitasveiflum og
vanlíðan sem crfitt getur reynst að
ráða við. Páll gat þess að víða er-
lendis er þetta atvinnusjúkdómur
hjá dýralæknum og hefur lagst
þungt á marga þcirra. -SS
Þessar tvær finu „frúr“ sáust svífa yfir gólfið á grímudansleik á Hólmavík fyrir helgina og þótti það ekki til-
tökumál þó Ijósmyndarar þyrptust að þeim. rímamynd: stefin Gisiason.
Auðvelt að
selja kaup-
mönnum þýfi?
Svo virðist vera,
segirformaður mat-
vælakaupmanna
Á stjórnarfundi, sem haldinn var
í Félagi matvörú- og kjötkaup-
manna nú fyrir skömmu, kom
sú spurning upp, hvort víkja ætti
þeim tuttugu kaupmönnum, sent
talið er að hafi keypt stolnar mjólk-
ural'urðir af starfsmönnum Mjólk-
ursamsölunnar, úr félaginu.
Ingi Björn Hafsteinsson formað-
ur samtaka matvörukaupmanna
sagði í samtali við Tímann í gær að
fundurinn hefði tekið þá afstöðu að
bíöa með ákvarðanir þar til rann-
sókn málsins væri lokið.
Hvert er þift persónulega álit á
þcim verslunarháttum, að kaup-
menn kaupi vörur, sem þeir ættu að
vita að cr stolið, og selja þær til
neytenda með stórfelldum hagn-
aði?
„Þetta var fyrir okkur alveg ægi-
legt áfall. Viðerum baraekki farnir
að trúa því ennþá að þetta séu
svona margar verslanir. Við skilj-
um þetta dæmi hreinlega ekki, og
viljum fá að sjá þetta svart á hvítu.“
Hafið þið óskað eftir því við
rannsóknarlögregluna?
„Lögfræðingur samtakanna átti
að hafa samband við þá sem með
málið hafa að gera, en ég hef ekki
séð neitt koma frá honum ennþá“.
Tveir menn með stolið nautakjöt
voru gripnir nú fyrir helgi. Þeir ætl-
uðu að selja það kauptnönnum.
Eiga menn greiðan aðgang að
kaupmönnum með stolna vöru?
„Eftir þessu mjólkurmáli að
dæma, þá virðist það vera. Mér
hefur ekki verið kunnugt um að
svona nokkuð hafi viðgengist, Ég
hef verið í stjórn þessa félags í
mörg ár og þetta kom algerlega
flatt upp á mig.“
Verður óskað eftir rannsókn á
uppruna á fleiri vörutegundum í
framhaldi af mjólkurmálinu?
„Ég trúi því nú ekki að þetta sé
meira en svona... Annars fjöllum
við um þetta á aðalfundi okkar
bráðlega," sagði Ingi Björn. -ES